Verkamaðurinn


Verkamaðurinn - 02.07.1954, Side 1

Verkamaðurinn - 02.07.1954, Side 1
VERKfllMRinn GERIST ÁSKRIFENDUR að Verkamanninum. Nýir kaupendur fá það, scm eftir er af þessum árgangi, fyrir kr. 15,00. — Sími er 1516. XXXVII. árg. Akureyri, föstudaginn 2. júlí 1954 2). íH. Hæsla útsvarsupphæð í sögu bæjarins, 9 milljónir 590 þúsund Meirihluti niðurjöfnunarnefndar samþykkti að leggja 10% á f járhagsáætlunina fyrir vanhöld- um, þrátt fyrir tilmæli bæjarstjórnar um að að- eins 5% yrðu lögð á. Sami útsvarsstigi og í fyrra Ráðstefna sósíalistafélaganna á Norð- urlandi verður haldin á sunnudaginn Útsvarsskrá Akureyrar var lögð fram í fyrradag og er heild- arupphæð útsvaranna krónur 9.590.120.00, eða tæpri milljón hærri en á s.l. ári. Fjárhagsáætl- un bæjarins fyrir yfirstandandi ár er að upphæð 8.711.350.00, og samþykkti meirihluti niðurjöfn- unarnefndar (fulltrúar Sjálf- stæðisflokks og Framsóknarfl.) að bæta 10% ofan á þá upphæð eða eins miklu og lög frekast leyfa. Áður hafði bæjarstjórn mælst til þess við nefndina að hún legði ekki nema 5% á fyrir vanhöldum. Útsvarsstiginn. Farið var eftir sama útsvars- stiga, og á sl. ári og gefur eftir- farandi útdráttur nokkra hug- mynd um hann: , Nettót. Útsvör Nettót. Útsvar 13100 315 38000 4744 14000 450 39000 4943 15000 600 40000 5145 16000 750 41000 5350 17000 900 42000 5558 18000 1050 43000 5769 19000 1250 44000 5983 20000 1450 45000 6200 21000 1650 46000 6420 22000 1850 47000 6642 23000 2050 48000 6866 24000 2222 49000 7092 25000 2394 50000 7320 26000 2566 51000 7550 27000 2738 52000 7782 28000 2910 53000 8006 29000 3082 54000 8252 30000 3254 55000 8490 31000 3435 56000 8730 32000 3613 57000 8972 33000 3794 58000 9216 34000 3978 59000 9462 35000 4165 60000 9710 36000 4355 og 25% af afg. 37000 4548 Persónufrádráttur kr. 4500,00 fyrjr konu og hvern ómaga og er það 1000 kr. hærri frádráttur en í fyrra. Annar frádráttur við út- reikning nettótekna er hinn sami og gert er ráð fyrir í skattalögun- um nýju og auk þess fengu þeir, er vinnu stunduðu utan bæjar, 18 kr. frádrátt fyrir hvem dag, sem þeir dvöldu við vinnu fjarri heimilum. Einnig var nokkuð vikið frá útsvarsstiganum til lækkunar, þar sem um var að ræða tekjur eiginkvenna fram- teljanda, kostnað vegna náms barna í skólum erlendis eða í Rvík og ennfremur þar sem aðrar ástæður töldust fullnægjandi til ívilnana. Hæstu gjaldendur. Þau fyrirtæki og einstaklingar, sem hæstu útsvörin bera, eru tal- in hér á eftir og mun mönnum þykja athyglisvert hve stór hluti þeirra eru úr sjómannastétt bæj- arins. Ekki skal tekin ábyrgð á að allir séu taldir sem bera 10 þús. kr. útsvar eða hærra. , v Amaró h.f. 48.010 Axel Kristjánsson h.f. 24.290 Árni M. Ingólfsson 11.850 Ásbyrgi h'.f. 10.270 Ásgeir Árnason ' 13.950 Baldvin Þorsteinsson 12.000 Bergur Sveinsson . 15.070 Bernharð Ctefánsson 18.310 BSA h.f. 11.040 Bjargey Pétursdóttir 10.910 Bílasalan h.f. 12.440 Bjarni Jóhannesson 14.640 Björn Baldvinsson 10.500 Brauðgerð Kr. Jónssonar 16.420 Brynj. Sveinsson 15.400 BSA-verkst. h.f. 12.430 Byggingavöruv. Tóm. Bj. 37.870 Elecktro Co. 10.680 Eyþór Tómasson 10.860 Finnur Daníelsson 13.570 Friðjón Skarphéðinsson 14.880 Friðrik Magnússon 10.530 Friðþjófur Gunnlaugsson 10.790 Guðjón Sigurjónsson 11.480 Guðm. Jörundsson 21.340 Gunnar Auðunsson 17.820 Hafnarbúðin h.f. 13.440 Hallur Helgason 14.690 Haraldur Halldórsson 13.000 Haukur Jónsson 10.400 Hámundur Bjömsson 10.230 Helgi Skúlason 22.000 Hvannbergsbræður 15.570 I. B. & Kvaran 15.520 Jakob Frímannsson 18.530 Jónas Þorsteinsson 14.990 Kaffibrennsla Akureyrar 39.660 KEA 205.930 Kristján Kristjánsson 27.860 Ladxla, Anna 17.630 Laxdal, Bernharð 18.010 Lárus Björnsson 10.130 Linda h.f. 38.180 Nýja kjötbúðin s.f. 15.950 Oddi, vélsmiðja h.f. 12.260 Olíuverzl. íslands h.f. 20.900 Otterstedt, Knut 10.960 Ólafur Ágústsson & Co. 10.620 (Framhald á 4, síðu). Bræðslusíldarverðið ákveðið kr. 60.00 Stjóm Síldarverksmiðja ríkis- ins hefur einróma lagt til að bræðslusíldarverðið verði það sama og í fyrra sumar, kr. 60.00 á mál. Hefur atvinnumálaráð- herra ákveðið, í samræmi við þetta, að heimila síldarverksmiðj- unum að kaupa síldina þessu verði. Jafnframt er útgerðarmönhum heimilað að leggja síldina inn til vinnslu, ef þeir kjósa það heldur, og fá þeir þá útborguð 85% af áætlunarverði eða 46,50 við af- hendingu og endanlegt verð þegar reikningar verksmiðjanna verða gerðir upp. Síldarverksmiðjan á Skaga- strönd verður ekki starfrækt og er móttaka síldar frá viðskipta- mönnum ríkisverksmiðjanna því bundin við Raufarhöfn og Siglufjörð. Þeir urðu ekki hissa Skoðanakönnun fór nýlega frarn meðal nokkur hundruð mennta- skóla- og gagnfræðaskólanem- enda í New Jersey um afstöðu þeirra til ósæmilegrar hegðunar. Niðurstaða könnunarinnar varð sú að 75% nemendanna álitu hvorki lygar né svik ósæmilegar. Yfir 12% álitu þjófnað fyrirgef- anlegan; 15% töldu tilgangslausa eyðileggingu eigna meinlausa* og ein 17% töldu kynferðilegt of- beldi ekkert sérlega athugavert. Niðurstaða könnunarinnar var birt í öldungadeild Bandaríkja- þings of republikanum Robert C. Hendrickson. Þeir virðulegu öld- ungadeildarmenn urðu ekki mjög undrandi. Og því skyldu þeir hafa orðið undrandi fyrst „lygar og svik eru talin eðlilegt líferni“ af þeim sem stóðu fyrir könnun- inni, svo að notuð séu orð Hend- rickson’s. Orðsending frá Æ.F.A. Félagar í Æskulýðsfylkingunni og annað æskufólk, sem hafið hug á að fara í stutta og skemmtilega sumarferð, takið ykkur fár með hópferð Æskulýðsfylkingarinnar, er farin verður til Norðfjarðar föstudagxnn 16. júlí. Komið verð- ur til baka mánudag 19. júlí. Þið, sehn ekki hafið komið til Nes- kaupstaðar, grípið tækifærið og komið með. Þeir, sem hafa hug á að slást með í ferðina, ættu að tala sem fyrst við Björn Her- mannsson, Aðalstræti 54, Braga Sigurgeirsson, Glerárgötu 8, eða Gunnlaug Björnsson, Kotá, sem gefa allar nánari upplýsingar um ferðina. Ferðanefndin. Sósíalistafélögin hér á Norður- landi efna til ráðstefnu næstk. sunnudag. Verður hún haldin í Ásgarði, Hafnarstræti 88, og hefst kl. 10 f. h. Til ráðstefnunnar eru væntan- legir fulltrúar allra sósíálista- félaga norðanlands og mun hún taka til meðferðar ýmis sameig- inleg málefni félaganna í fjórð- ungnum. Valbjörk opnar söluhúð í Reykjavík Húsgagnaverksmiðjan Valbjörk hefur nú opnað sölbuúð fyrir framleiðslu sína í Reykjavík, en áður hafði fyrirtækið komið á fót húsgagnaverzlunm hér í bæn- um, í Siglufirði og á ísafirði. Er framleiðsla verksmiðjunnar mjög eftirsótt og á miklu áliti að fagna fyrir nýtízkulega og hent- uga gripi. Ekki er nema ár síðan fyrir- tækið var stofnað af nokkrum ungum húsgagnasmiðum hér í bænum. í förinni voru 29 börn og söng- stjóri kórsins, Björgvin Jörgens- son, en alls voru 6 fullorðnir í förinni með börnunum. Börnin fóru til Noregs í boði vinabæjar Akureyrar, Álasundsbæjar. Far- ið var með Gullfaxa til Osló 12. júní og með lest til Álasunds og komið þangað um kvöldið. Börnin fengu feykilega góðar og myndarlegar viðtökur í Ála- súndi, Bjarni Ásgeirsson, sendi- herra íslands í Noregi, og Torgair Anderssen-Rysst, sendiheixa Norðmanna hér, voru báðir við- staddir komu barnanna og ávörp- uðu þau. Karlakór Álasunds ann- aðist móttökur fyrir bæjarins hönd og hafði boð fyrir börnin 17. júní og ræðimaður íslands í Ála- sundi, Oscar Larsen, hafði einnig boð fyrir börnin á þjóðhátíðar- daginn, en þann dag sungu þau í útvarpið í Álasundi. Fyrsti söng- ur barnanna var við opnun fiski- málasýningarinnar í Álasundi. Auk þess hélt bamakórinn sjálf- stæða söngskemmtun í Álasundi, en þar voru þau til 19. júní. Enn- fremur sungu þau í Sykkylven. í Bergen var kórinn 19. og 20. og söng þar í útvarp og ennfremur í byggðasafninu og í hléi sinfóníu- Af hálfu miðstjórnar Sósíalista- flokksins mæta á ráðstefnunni varaformaður flokksins, Steinþór Guðmundsson, og framkvæmda- stjóri flokksins, Eggert Þorbjarn- arson. Landsmót hestamanna í næstu viku 2. landsmót Landssambands hestamannafélaga fer fram á Þveráreyrum síðari hluta næstu viku. Hefur mjög víðtækur und- irbxiningum verið gerður að því að gera mót þetta sem glæsileg- ast. M. a. hefur undirbúnings- nefndin byggt hús yfir 30 stóð- hesta, veðbankahús og dómpall og látið girða svæði fyrir á annað þúsund hesta. Þarf ekki að efa, að fjölmenni verður mikið á Þveráreyrum þessa daga, en um 14 þúsundir manna sóttu fyrsta landsmótið, er haldið var á Þingvöllum sumar- ið 1950. Athygli skal vakin á auglýs- ingu um landsmótið á öðrum stað hér í blaðinu. hljómsveitarinnar í Bergen, en hún var á förum til hljómleika- samkeppni í Belgíu. í Bergen bjuggu flest börnin í skóla, en nokkur úti í bænum, var’böm- unum boðið á margar skemmtan- ir og höfðu þau frífar með spor- vögnum í bænum. Telpnakór út- varpsins í Bergen tók á móti börnunum, en ræðismaðurinn, Trygve Rithland hafði undirbúið dvöl þeirra. íslendignur, Jón Sigurðsson, vélstjóri hjá Berg- enska gufuskipafélaginu, lét sér annt um börnin, og íslenzk kona, Oddfrid Sætre, reyndist eins og hún væri móðir þeirra allra. Þá sungu börnin einnig í Voss, og í Osló sungu þau í útvarp og í byggðasafninu, ennfremur sungu þau á sjóbaðstaðnum á Bygdöy sl. laugardag, en þar voru samkórar af Norðurlöndunum samankomn- ir. ísl. sendiráðið hafði undirbúið dvöl bamanna í Osló og Bjarni Ásgeirsson sendiherra bauð þeim heim til sín og sá þeim fyrir leið- sögn um bæinn og skemmtisigl- ingu. Ferðalagið gekk allt eins og í sögu og allir voru hraustir og kátir. Barnakórinn fékk hvarvetna hinar bezfu móffökur í Noregi

x

Verkamaðurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verkamaðurinn
https://timarit.is/publication/215

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.