Verkamaðurinn - 30.07.1954, Side 2
2
VERKAMAÐURINN
Föstudaginn 30. júli 1954
600 milljónir - fjórði hlufi
íbúa jarðarinnar
WERKHnurouRinn
— VIKUBI.AÐ —
Útgefandi:
Sósíalistafélag Akureyrar
Ritnefnd:
Björn Jónsson, ábyrgðar-
maður, Jakob Árnason,
Þórir Daníelsson.
Afgreiðsla: Hafnarstræti 88. —
Sími 1516. — Pósthólf 21.
Áskriftarverð 30 kr. árg.
Lausasöluverð 1 kr. eintakið.
Prentv. Odds Björnssonar h/f
---------------------------1
Eftir Genfarfundinn
Úrslit mála á Genfarfundinuro
hafa vakið óblandna fagnaðröldu
meðal allra friðelskandi manna
um víða veröld. Fáir atburðir
síðari ára hafa fært mönnum
augljósari sannanir fyrir því hve
miklir möguleikamir em til frið-
samlegra samninga um þau
deilumál, sem uppi em milli
auðvaldsríkjanna annars vegar
og ríkja sósíalismans hins vegar,
ef vilji er fyrir hendi á báða bóga
og raunsæi er látið taka tavun á
tilfinningum, sem espaðar em af
þjóðarrembingi og drottnunar-
girni.
Fögnuður manna yfir friðar-
samningunum í Genf á ekki sízt
rætur sínar í því að með þeim
hyggja menn betri tíma framund-
an í viðskiptum þjóðanna. Vonir
manna um, að í kjölfar þeirra
komi samningar um önnur deilu-
mál og að þær drápsklyfjar her-
væðingar og hörmungar hersetu
friðsamra þjóða verði létt af og
mannkyn allt geti andað léttar í
andrúmslofti friðar og vaxandi
öryggis, fengu nýja lífsnæringu.
Það er næsta fróðlegt að at-
huga þau viðbrögð, sem úrslitin í
Genf hafa haft á athafnir þeirra
tveggja stórvelda, sem nú gnæfa
hæst í viðskiptum auðvalds-
heimsins og heims sósíalismans.
Fáum dögum eftir Genfarfundinn
sendi stjórn Sovétríkjanna Vest-
urveldunum orðsendingu, þar
sem lagt var til að haldin yrði
ráðstefna með Evrópuþjóðunum,
þar sem m. a. yrði undirbúið ör-
yggisbandalag þeirra með tilliti
til stórfelldrar afvopnunar. Orð-
sending þessi túlkaði þá rökréttu
stefnu, sem Genfarfundurinn
hafði markað og bjó vonir manna
í búning raunhæfra tillagna.
í sama mund skeðu þeir at—
burðir í Kínahafi, að flugliðar
kínversku alþýðustjórnarinnar
skutu niður í misgripum brezka
farþegaflugvél. Kínverska al-
þýðustjórnin hármaði atburð
þennan og bauð fyllstu bætur
samkvæmt alþjóðalögum. Þennan
hörmulega atburð notfærði
Bandaríkjastjórn sér til þess að
reyna að eyðileggja þau áhrif,
sem Genfunarfundurinn hafði
haft á friðarhorfumar í heimin-
um og um leið til þess að fá and-
úð sinni á þeirri friðsamlegu þró-
un, sem þar var hafin, útrás. Við-
brögð Bandaríkjastjómar við
hinum stórauknu friðarvonum
birtust í skothríðinni, sem flug-
vélar hennar létu dynja á flug-
varnarliðum alþýðulýðveldisins
kínverska. Það voru hin skil-
merkilegu svör við bandalags- og
afvopnunartillögum ráðstjómar-
innar — enn sem komið er.
Það væri þó vafalaust mikill
misskilningur að álíta þessi við-
brögð Bandaríkjastjórnar boða
feigð allra þeirra vona, sem
Genfarfundurinn hefur vakið. Á
þeim fundi kom í rauninni fram,
í verki samninganna, sú augljósa
andstaða, sem stríðsstefna Banda
ríkjanna á í stöðugt vaxandi mæli
að mæta meðal annarra auð-
valdsþjóða og þá fyrst og fremst
þeirra áhrifamestu, Breta og
Frakka. Og síðustu atburðir í
sambandi við ögranir Banda-
ríkjastjórnar sýna einnig að þau
eru óðum að missa þau þrælatök,
sem á síðustu árum hafa knúð
þessar þjóðir til undirgefni undir
heimsveldisstefnuna.
í þessari „uppreisn“ gegn
stefnu Bandaríkjanna felast
sterkar vonir um bjartari viðhorf
í alþjóðamálum og ekki er
ósennilegt að á næstu tímum
aukizt þeim öflum innan Bandd-
ríkjanna sjálfra, sem bera friðinn
fyrir brjósti, svo ásmegin, að
áhrifa þeirra gæti á vettvangi al-
þjóðamálanna.
Við Islendingar höfum ríkar
ástæður til þess að fngna þeirri
þróun í friðarátt, sem nú á sér
stað, svo mjög sem örlög okkar
öll eru háð því að friður haldist
Vanhirtur reitur.
Eg á daglega leið um Oddagöt-
una og jafnoft verður mér litið á
gilið norðan götunnar, sem teygir
sig allt frá Oddeyrargötu og nið-
ur að Útvegsbankatröppunum, og
mér hefur runnið til rifja um-
komuleysi og hirðuleysi þessa
bletts, sem eg tel að gæti verið
bæjarbúum og þeim, sem bæinn
gista, til óblandinnar gleði og
hvíldar, ef rétt væri á haldið.
Fyrir nokkrum árum mun fé-
lagsskapur hér í bæ, sem allra
góðra gjalda er verður, hafa feng-
ið ráð á meginhluta gilsins í þeim
tilgangi að prýða hann gróðri.
Voru þá gróðursett þar nokkur
tré og eitthvað lagað til. En áhugi
þessa félags mun liggja á öðrum
sviðum en ræktunar og er
skemmst frá því að segja, að stað-
urinn allur er í mestu vanhirðu
og allt annað en til augnayndis.
Nokkrar hríslur hafa að vísu lifað
af í efsta hluta gilsins, en í botni
þess eru óframræst kviksyndi hið
efra en njólinn ræður ríkjum hið
neðra, en neðan' til í gilinu stunda
húseigendur í grenndinni rabar-
bara- og kartöflurækt með tak-
markaðri hirðu. Og ekki er gilið
slegið nema í hæsta lagi einu
sinni á sumri og sjaldnast allt.
Gróðurvin í hjarta bæjarins.
Um þetta væri ekki að sakast,
ef staðurinn væri í fáfarinni leið
og til einkis nýtur. En hér er um
að ræða allstórt svæði við fjöl-
farna leið og ekki steinsnar frá
aðalumferðagötu bæjarins. Gilið
hefur alla kosti til þess að geta
og að okkur takizt, í skjóli frið- |
arhreyfingar heimsins að heimta
land okkar og þjóð úr höndum
erlends herveldis.
Við minnumst þess að íslenzkir
umboðsmenn Bandaríkjanna
„rökstuddu" hemámið á sínum
tíma með því að þá væri styrjöld
í Kóreu og ófriðlegar horfur. Að
vísu sá mikill hluti þjóðarinnar
sjálfur, og þó enn fleiri nú, að sú
„röksemd“ var blekkingin ein-
ber vissi að einmitt í ófriði bauð
hersetan heim til íslands mestri
bg örlagaríkustu hættunni.
En nú er kominn á friður og sú
staðreynd opnar óhjákvæmilega
augu þeirra sem áður blinduðust
af þunga hins bandaríska áróð-
urs. Gleggstu merki þess má sjá
á því, að tvö aðalmálgögn Al-
þýðuflokksins, Alþýðublaðið og
Alþýðumaðurinn, sem bæði
studdu hernámið á sínum tíma,
hafa nú með fárra daga millibili
birt nær samhljóða ritstjómar-
greinar, þar sem þess er krafizt
að Bandaríkjaher hverfi í burtu
af landinu, þar sem forsenda her-
námsins sé nú horfin.
Þessi gagngera stefnubreyting
er augljósasta dæmið um þann
flótta, sem brostinn er í lið her-
námsflokkanna og aukinn styrk
þjóðfrelsisaflanna. Þeim styrk
ber að beita af margefldum krafi,
að því göfuga marki, að íslenzka
þjóðin fái ein og frjáls búið í
landi sínu.
orðið bænum til mikillar prýði og
menningarauka. Við eigum eng-
an stað annan svo nálægt hjarta
bæjarins, þar sem auðvelt væri að
draga sig út úr ryki og hávaða
götunnar og njóta gróðurilms og
hvfldar stutta stund.
Vill nú ekki það góða félag,
sem hér á hlut að máli, taka til
athugunar hvort ekki væri rétt
að það afsalaði sér yfirráðum yf-
ir þessum reit og leitaði fyrir sér,
hvort t. d. Fegrunarfélagið vildi
ekki taka að sér umsjá þess.
Vissulega væri þetta hæfilegt
verkefni slíku félagi. Látum ekki
fleiri sumur líða svo, að ekki sé
hafizt handa.
Brekkubúi.
Vörubíll
í bezta standi, lítið keyrður,
til sölu. — Hentugur fyrir
sveitaheimili.
Byggingavöruverzlun
Akureyrar h.f.
Kross viður
Birki
Gabon
Okola
4, 5 og 6 mm.
Byggingavöruverzlun
Akureyrar h.f.
Það hefur lengi verið kunnugt
að Kina er fólksfiesta þjóðland
heims, en erfiðleikum hefur verið
bimdið að áætla nákvæmlega
íbúafjöldann, því að ekkert al-
mennt manntal hefur verið fram-
kvæmt þar fyrr en í fyrra, en
gizkað var á að þeir væru 480—
500 milljónir.
Nú hefur veri ðtilkynnt niður-'
staða manntalsins, sem fór fram í
sambandi við sveitastjórnarkosn-
ingarnar 1953 og reyndust Kín-
verjar 601,912,371. Hin beina
skráning náði til 573,876,670,
óbein skráning til 8,708,169 og
íbúafjöldi Formósu (Taiwan) var
áætlaður 7 milljónir. Það, Sem á
vantar, eru Kínverjar búsettir er-
lendis.
Nærri 602 milljónir — þ. e.
fjórði hluti af íbúatöl ujarðarinn-
ar. Þetta er satðreynd, sem er
verð íhugunar fyrir alla og ekki
sízt þá, sem reyna að gera lítið úr
alþjóðlegu hlutverki kínverska
alþýðulýðveldisins og ráðast að
lögmætum alþjóðlegum réttind-
um þess. Brezka stórblaðið
„Times“ sagði réttilega nú fyrir
skömmu, að tilkynningin um
fólksfjölda í Kína „hlyti að hafa
mikil áhrif á hvem þann, sem
hlugleiðir mikilvægi hennar“, og
blaðið vill sýnilega vera í þeirra
hópi, sem „hugleiða".
Það er þó ekki fjöldinn einn,
sem er mikilvægur að dómi
„Times“ heldur ekki síður önnur
staðreynd, sú að „framtakssemi
þeirra og þrautseigja__ vekur
hrifningu í grannlöndunum og
þjóðir þeirra sjá hvemig þeir
vaxa að velmegun og vinna kapp-
samlega.... meðan þeir sjálfir
lifa við örbirgð."
En meða lannarra orða er ekki
kominn tími til að ríkisstjóm ís-
lands hætti að hundsa stærstu
þjóð veraldarinnar og viðurkenni
hana með stjómmólasambandi?
íbúð til sölu
3ja herbergja íbúð í inn
bænum er til sölu.
Uppl. í síma 1516 og 1503.
Frá Fjórðungssjúkrahúsinu
Ákveðið hefir verið að leita tilboða í eftirtaldar hús-
eignir:
a) Gamla sjúkrahúsið með nyrðri viðbyggingu.
b) Ganginn milli gamla sjúkrahússins og nema-
bústaðar.
Tilboð má gera í eignirnar allar saman eða einstakar
byggingar-
Réttur áskilinn til að taka hvaða tilboði sem er eða
hafna öllum.
Tilboðin sendist skrifstofu Fjórðungssjúkrahússins
fyrir 1. september næstkomandi.
TILKYNNING
Að gefnu tilefni tilkynnist viðskiptamönnum vorum,
að hráolíugeymar eru alls ekki lánaðir, en aðeins seldir
gegn staðgreiðslu.
Akureyri, 21. júlí 1954.
Umboð Olíuverzlunar Islands h.f.
Shellumboðið, Akureyri.
Olíusöludeild KEA, Akureyri.
UPPBOÐ
Samkv. kröfu Jóns Þorsteinssonar hdl. verður gömul
snurpinót, eign h.f. Goðaborg, Neskaupstað, boðin upp
og seld til lúkningar geymslukostnaði að upphæð kr.
2940.00, á opinberu uppboði, sem fram fer í netagerðar-
stöð Nótastöðvarinnar h.f., fimmtudaginn 5. ágúst n. k.
kl. 2 e. h.
Skrifstofa Akureyrar, 26. júlí 1954.
Orðið er laust