Verkamaðurinn


Verkamaðurinn - 20.08.1954, Side 4

Verkamaðurinn - 20.08.1954, Side 4
4 VERRAMAÐURINlt Föstudaginn 20. ágúst 1954 Fulltrúi sósíalista í togaranefnd- inni vildi undanþiggja alla atvinnubíla skattlagningu Stjómarblöðin, og þá sérstak- lega „Tíminn" og „Dagur“, hafa að undanförnu reynt að verja hina nýju skattlagningu atvinnu- bíla með þeim ósannindum, að Lúðvík Jósefsson hafi verið því fylgjandi í nefndinni að skatt- leggja allan bílainnflutning. Hafa þessi ósannindi verið margendur- tekin. Hér fer á eftir, orðrétt, til- laga Lúðvíks í togaranefndinni, og sannar hún, svo vel sem á verður kosið, að hér er aðeins um venjulegan „Tímasannleika“ að ræða. ,4 þeim tilgangi að afla tekna til að mæta fiskverðshækkun sam- kv. tillögu no. 1, skal gefa inn- flutning á bíliun frjálsan, en skattleggja jafnframt innflutta bfla. Skatturinn verði miðaður við að gefa ca. 15—20 millj. kr. miðað við ár. Jafnframt leggi rík- issjóður fram af sinni hálfu nú- gildandi dýrtíðarsjóðsgjald af bfl- um. Undanþiggja skal atvinnubíla skattlagningunni. Jafnframt verði lagður á fastur ársskattur á lúxusbíla.“ „GREINAEGERÐ: Tekjuöflun til fiskverðshækk- unar: Vegna þess að fyrirsjáanlegt er að lækkun helztu kostnaðarliða í rekstri togaranna fæst aðeins óveruleg, er óhjákvæmilegt að gera ráð fyrir einhverri tekjuöfl- un til þess að standa undir beinni hækkun fiskverðsins. Eins og ástatt er um rekstur togaraflotans og kaup togarasjómanna, þá tel eg fyllilega koma til greina tekju- öflun til ækkunar á fiskverðinu með þeim ætti að skattleggja inn- flutning bíla. Eftirspum eftir bíl- um er mjög mikil og alkunnugt er að verð á bílum er manna á milli langt fyrir ofan rétt innflutnings- verð.. Aðeins fáir útvaldir virðast verða þeirrar náðar aðnjótandi að fá innflutta nýja bfla. Flestir verða að sætta sig við að kaupa þessi tæki á okurverði á svarta- markaðnum. Af þessum ástæðum tel eg rétt, eins og nú standa sak- ir, að gefa bflainnflutninginn sem mest frjálsan, en leggja jafnframt allháan innflutningsskatt á bfla. Rétt er þó að undanþiggja beina atvinnubíla þessum skatti. Eg tel mjög líklegt að afla megi fjár á þennan hátt 15—20 millj. króna, að minnsta kosti fyrsta árið. Þá tel ég rétt, að ríkissjóður leggi fram til hækkunar á fisk- verði togaranna þann skatt, sem nú er lagður á bíla sem sérstakt dýrtíðarsjóðsgjald. Einnig tel eg rétt að skattleggja alla lúxusbfla í landinu nokkuð með árlegum, föstum «katti.“ Söngskemmtun Kristins Þ. Hallssonar Verkfallsalda gengur yfir Vestur-Þýzkaland Ungur bassasöngvari, nýkom- inn heim frá námi á Kommglega tónlistarháskólanum í Lundún- um, hefir vakið mikla athygli í Reykjavík og hlotið einróma lof fyrir list sína. Það er Kristinn Þ. Hallsson, sonur hjónanna Guð- rúnar Ágústsdóttur söngkonu og Halls Þorleifssonar, sem er einn af beztu kórsöngvurum í Reykja- vík og hefir einnig stýrt kór. Mun Kristinn hafa haft býsna gott veganesti úr foreldrahúsum og það mun áreiðanlega hafa orðið honum notadrjúgt. En námið hef- ir hann vissulega stundað af mestu kostgæfni, því að á söng- skemmtun þeirri, er hann hélt hér hinn 19. ág., kom hann fram sem mjög mikið þroskaður lista- maður. , Rodd hans er fremur hár bassi, hreimmikill, en þýður, og er furðu bjart yfir honum. Hann virðist vera fyrir löngu kominn yfir það að þurfa að hugsa um beitingu raddarinnar, svo að hann getur' gefið sig allan á vald sjálfrar sönglistarinnar. Flutningur laganna var mjög smekkvíslegur: Hvergi neitt yfir- drifið, öllu í hóf stillt, en þó undir niðri eldur heitra tilfinninga, og birtist það jafnt, hversu ólík sem viðfangsefnin voru: t. d. Die beiden Grenadiere eftir Schu- mann, Löng er nóttin eftir Björg- vin Guðmundsson, Isl. vögguljóð á hörpu eftir Jón Þórarinsson og hið glæsilega lag Þórarins Jóns- sonar: Norður við heimsskaut, svo að nefnd séu dæmi. Hugo Wolf er tónskáld, sem vandi er að túlka, en Kristinn söng Michaelangelos-lieder hans af næmum skilningi og djúpri til- finningu. Glæsilegastur var samt söngur hans í óperulögunum, sem voru úr Simon Boccanegra eftir Verdi, Don Juan eftir Mozart og Igor fursta eftir Borodin. Eftir með- ferð hans að dæma mundi hann sóma sér vel í hvaða óperu sem væri. Og svo ólík sem þessi þrjú lög eru, þá er þó varla hægt að segja, að hann syngi eitt þeirra öðru betur. Þau voru öll flutt með miklum ágætum. Fritz Weisshappel var við hljóðfærið og lék af sinni al- kunnu snilld. Hefi ég aldrei heyrt hann gera betur og tæplega jafn vel. Vil ég t. d. benda á leik hans í Norður við heimsskaut, í lögum Hugo Wolfs og í óperulögun- um o. fl. Áheyrendur fögnuðu lista- mönnunum ákaflega vel, og urðu þeir að flytja fjölda aukalaga og Hver er ástæðan? Fyrir um ári síðan byggðu 3 Vestmbannaeyingar eitt af stærri frystihúsum, sem nú eru til í landinu og er talið að kostnaðarverð þess hafi numið 10—11 milljónum. — Mestallt þetta fé munu þremenning- arnir hafa fengið að láni hjá opinberum lánastofnunum, þrátt fyrir það að ekki var neinn verulegur skortur í Eyj- um á aðstöðu til hraðfrysting- ar á fiski, nema þá yfir örstutt- an tíma af vetrinum. í ýmsiun sjávarþorpum hef- ur að undanfömu verið unnið að byggingum frystihúsa, m. a. á stöðum, þar sem mjög fáir eru íbúar, svo sem á Djúpu- vík. Um þessar framkvæmdir er allt gott að segja. En hvem- ig má þá vera að næst stærsta bæjarfélag landsins, Akureyri, með 5 togara og allmarga fiski báta, sé ekki kleyft að koma upp frystihúsi? Til þess geta ekki Iegið nema tvær ástæður: annað hvort er Akureyri mis- munað á hinn herfilegasta hátt af stjómarvöldunum, sem fara með stjóm Iánsfjárstofnan- anna eða þá að forvígismenn bæjarfélagsins sækja ekki jafn fast róðurinn við fjárútvegun og þeir vilja vera láta, nema hvort tveggja sé. Á næstu tímum munu tog- aramir fyrst og fremst veiða fyrir frystihúsin og hlýtur það að verða til þess að togamir héðan verða að leggja upp afla sinn fjarri Akureyri, e. t v. á stöðum, þar sem fólksekla er svo mikil af völdum kanavinn- unnar, að nær öll vinnan við frystihúsin er unnin af verka- fólki úr þeim sjávarþorpum á Norðurlandi, þar sem atvinnu- leysið hrekur fólkið í burtu. Verði því ekki án tafar hafizt handa um frystihúsbygging- una hlýtur svo að fara, að tog- amir hætti að mestu að veita nokkra teljandi vinnu í landi meginhluta ársins, og má öll- um vera ljóst hvaða afleiðing- ar það hefur f för með sér: sí- aukinn flótta úr bænum og skarðan hlut þeirra, sem eftir sitja. Atvinnuleysis- skráning Atvinnuleysisskráning sú, sem samkvæmt Iögum átti að fara fram 1. þ. m., hefur nú verið ákveðin dagana 23.—25. þ. m. og fer hún fram kl. 1—5 síðd. í bæjarskrifstofunum, sbr. aug- lýsingu í blaðinu í dag. — AUir verkamenn, sjómenn, bflstjórar og aðrir, sem ekki hafa fasta atvinnu em hvattir til að mæta til skráningarinnar. endurtaka sum. Virtist söngvar- inn óþreytandi. Mikið barst honum af hinum fegurstu blómum. Vonandi getur Þjóðleikhúsið séð þessum gáfaða og glæsilega söngvara fyrir verðugu viðfangs- efní A S. 214 milljónamæringar, Hið stóravesturþýzka íhaldsblað Die Welt birti 8. júlí sl. upplýs- ingar, samkvæmt opinberum hagskýrslum í Bonn, sem skýra vel hvemig hagur alþýðimnar er í Vestur-Þýzkalandi. Samkvæmt þessum upplýsingum hófa aðeins 20 prósent af launþegum yfir 3.600 mörk á ári, það er að segja 300 mörk á mánuði. 300 mörk á mánuði eru það minnsta sem lítil fjölskylda þarf sér til framfærslu. Þannig hafa um 80 prósent af íbúum Vestur-Þýzkalands ekki einu sinni þær minnstu tekjur, sem talið er lítil fjölskylda þurfi að hafa til að afla sér brýnustu nauðsynja. Ennfremur sýna skýrslurnar að nærri því helm- ingur, eða 45 prósent af launþeg- um, hefur minna en 1.800 mörk á ári ,eða ekki einu sinni 150 mörk á mánuði. Á 150 mörkum á mán- uði getur engin fjölskylda lifað. Blöð sósíaldemokrata skýrðu nýlega frá því að 10 milljónir manna lifðu við sult og seyru. Á sama tíma fyrirfinnast í landinu 200.000 manneskjur sem hafa yf- ir 15.000 mörk í árstekjur. í hóþi þessara hátekjumanna íhaldsins eru m. a. 214 milljónamæringar, sem hirða 27 prósent af öllum þ j óðartek j unum. í amerískum áróðri er Vestur- Þýzkalandi hælt á hvert reipi, skipulagi þess og efnahagslegri endurfæðingu. Já, vissulega er ríki með 214 milljónamæringum, 200.000 ríkum mönnum og 10 milljómun sem svelta, í fullu samræmi við lífsstigið í hinum „frjálsa heimi“, sem lýtur fomstu amerísku heimsvaldasinnanna. En verkalýður Vestur-Þýzka- lands virðist hins vegar ekki ætla að sætta sig við þessa „amerísku paradís" í Evrópu. Stórfelld verk- föll hafa verið að undanfömu og eru enn I Vestur-Þýzkalandi og Frú Valgerður Alberfsdóttir látin Þann 11. þ. m. andaðist, á Sjúkrahúsi Akureyrar, frú Val- gerður Albertsdóttir, Hamarstíg 14 hér í bæ, kona Jónasar Hall- grímssonar netagerðarmanns. — Var útför hennar gerð frá Akur- eyrarkirkju í gær. Valgerður var fædd 13. ágúst 1874. Hún var orð- lögð sæmdar- og greindarkona og vinsæl af öllum, er henni kynnt- ust. en 10 milljónir svelta hafa mörg hundruð þúsundir verkamanna lagt niður vinnu sökum þess að atvinnurekenduf, sem flestir eru nazistar, hafa þverskallast við að ganga að kröfum verkamánna um hækkuð laun og aðrar kjarabætur. Hefur komið tfl harðvítugra og blóðugra átaka, vegna þess að stjóm Adenauers, sem í eiga sæti að minnsta kosti tveir kunnir naz- istar frá dögum Hitlers', hefui- sigað vopnaðri lögreglu sinni, undir forustu gámalla nazistafor- ingja, gegn verkíallsvörðum, al- veg eins og gert var á dögum Hitlers, og éins og gert er í Bandaríkjunum og öðrum hálf- fisistískum ríkjum, þar sem tíðk- ast að atvinnurekendur og ríkis- stjómir leigja úrhrök til vérk- fallsbrota. Frá alþýðuríkjunum 33 prósent af stúdentum f há- skólum og öðrum æðri mennta- stofnunum í Tékkóslóvakiu eru í dag frá verkamannaheimilum. 1937 voru aðeins 4 prósent stú- dentanna frá verkamannaheim- Oum. í Ungverjalandi er farið að búa tfl ný „jámlungu", sem eru full- komnari en þau, sem áður hafa þekkzt Þetta nýja „jámlunga" er útbúið með röntgentæki og tæki tfl hjartarannsóknar. I Póllandi hefur verið tekin í notkun ný spunavél, sem spinnur úr celliOoseþróðum. Afköst henn- ar eru eins mikO og 5 þeirra véla, sem áður hafa verið notaðar. Albönsku iðnaðarsamvinnufé- lögin framleiða nú 118 mismun- andi neytendavörur, sem áður voru fluttar inn frá útlöndum, þar á meðal alls konar vefnaðar- vorur. £ Að tOmælum Ferðamálafél. Akureyrar hefur bæjarstjóm samþykkt að taka á fjárhags- áætlun næsta árs 50 þús. kr. framlag tO vegagerðar upp á Selhæð, en þar hyggst félagið reisa skíðaskála, er verði sameign skóla og félaga í bænum. Vegur þessi verður um 5 km. að lengd. Allsherjarskráning atvinnulausra manna og kvenna í Akureyrarkaup- stað fer fram dagana 23., 24. og 25. ágúst næstkom- andi, á bæjarskrifstofunum. kl. 1—5 e. h. Bæjarstjóri.

x

Verkamaðurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verkamaðurinn
https://timarit.is/publication/215

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.