Verkamaðurinn - 10.09.1954, Side 3
Föstudagin 10. sept. 1954
VERKAMAÐURINN
3
Heimskirkjuráðið krefst banns
við afómsprengjum
Slíkt bann mundi auðvelda að binda endi á
vígbúnaðarkapphlaupið
Alþjóðakirkjuráðið, sem sat á
fundi í Evanston í Illinoisfylki í
Bandaríkjunum síðustu viku
ágústmánaðar, samþykkti áskor-
un til allra ríkja heims um að
hætta að ógna með notkun vetn-
issprengja og annarra múgmorðs-
tækja.
Þessi áskorun fólst í langri
skýrslu um ástandið í alþjóða-
málum, sem þingið samþyklcti. í
skýrslunni segir, að ekki sé hægt
að byggja varanléga frið á ótta.
Það er rangt að halda að vetnis-
sprengjan og önnur mugdráps-
tæki geti komið í veg fyrir styrj-
öld af því að þjóðirnar óttist
eyðileggingarmátt hinna nýju
- Amerískir glæpa-
menn útflutningsvara
til Ítalíu
(Framhald af 2. síðu).
glæpamenn, sem hafa gerzt brot-
legir í heimalandinu. ítölunum
finnst að verið sé að gera land
þeirra að eins konar „Djöflaeyju“
Ameríkumanna, þangað sem þeir
senda versta sorann úr undir-
heimum Bandaríkjanna. Þegar
Luciano var fluttur úr landi
birtu amerísk stjómarvöld lista
yfir menn, sem gætu átt von á
slíkri meðferð. Þá skrifaði hátt-
settur embættismaður í utanrík-
isráðuneytinu eftirfarandi:
„Þessir menn og nöfn þeirra
eru vafalaust af ítölskum upp-
runa. En þeir tala ýmist mjög
ófullkomna ítölsku eða þá alls
ékki. Þeir ólust upp í Ameríku og
þar mótaðist skapgerð þeirra. í
stuttu máli, ítalía verður ekki
gerð ábyrg fyrir því, hvemig
synir útflytjendanna haga sér. Að
surnir þeirra verða glæpamenn,
er að mestu að kenna þeim áhrif-
um sem þeir hafa orðið fyrir í
fósturlandinu, en ekki í föður-
landinu.“
„Hér á ítalíu,“ sagði lögreglu-
maður einn, „er venjan sú að
þegar útlendingur fremur glæp,
er honum refsað og síðan vísað úr
landi þegar hann hefur afplánað
hegninguna. En í Ameríku er
beðið þar til viðkomandi er orð-
inn miðaldra og hefur fjölda
glæpa á samvizkunni — þá er
honum vísað úr landi. Á þeim
aldri er engin von um að hann
sjái að sér.“
Mörg blaðanna hafa tekið upp
sérstaka nafngift á glæpalýðinn.
Vegna marshjallvaranna eru
flestum ítölum kunn orðin, sem
á þeim standa, og vilja nú að
prentaðir miðar verði einnig
settir á nýjustu útflutningsvör-
una: „Gangsters — Made in
vopna svo mjög, að þær muni
ekki áræða að beita þeim. Freist-
ingin að grípa til þessara vopna,
sem úrslitum geta ráðið, getur
orðið óttanum yfirsterkari, og
það er einnig hugsanlegt að til
þeirra verði gripið ef annar styrj-
aldaraðilinn er tekinn að örvænta
um sigur.
Kirkjuráðið skorar því á alla
kristna menn í heiminum að
leggja sitt fram til að koma á
banni við kjarnorkuvopnum jafn
framt því sem dregið yrði úr víg-
búnaðinum og honum komið
undir alþjóðaeftirlit.
Hætta að ógna með
kjarnorkuvopnum.
Það væri skref í rétta átt, segir
kirkjuráðið, ef hægt yrði að binda
endi á ógnanir um kjamorku-
stríð. Við það myndu skapast
betri skilyrði til að koma á sam-
komulagi milli stórveldanna um
raunhæft eftirlit með því að
banni við framleiðslu kjamorku-
vopna sé framfylgt.
Litla Borgargolfið opn-
að á sunnudaginn
Síðastliðinn sunnudag var opn-
að Litla Borgargolfið við Varð-
borg. Verður það starfrækt í sam
bandi við Æskulýðsheimili
templara.
Við opnunina voru nokkrir
templarar og fréttamenn útvarps
og blaða. Léku þar margir golf í
fyrsta sinn á hinum nýju braut-
um. Eru þær alls 10 og misþung-
ar, af sams konar gerð og í Tjarn-
arfolfinu í Reykjavik. Virtust
menn skemmta sér prýðilega,
enda mun þetta verða mjög vin-
sæl íþrótt.
Ekið hefur verið ofan í völlinn
í sumar og hann girtur. Eftir er
þó að fullgera hann.
Mikil aðsókn var að gólfinu
síðari hluta sunnudagsins og
verður það opið síðari hluta dags
þennan mánuð, þegar veður
leyfir.
Bætist hér við ný, skemmtileg
útiíþrótt fyrir æsku bæjarins.
Þýzku leikspilin
(5 í kassa)
eru komin.
Ullargarn
með kisumerki, úrval
50 lita, hespan kr. 23.00
Ullargarn
með hundsmerki,
hespan kr. 1.70
Damask
130 og 140 cm á breidd,
frá kr. 18.00 metrinn
Blúndur
Horn og milliverk
Sængurveraléreft
mislit, kr. 8.40 metrinn
Lakaléreft
Koddaveraléreft
Stórisefni
Stórisblúndur
Gluggatjaldaefni
fyrir veturinn
Kaffidúkar,
nýjar stterðir, ný munstur
sérstaklega jallegir
Smádúkar
i fjölbreyttu úrvali,
mjög ódýrir
Vinnufataefni,
grant og blátt,
kr. 19.50 metrinn
Regnkápuefni,
drapp, blátt og grátt,
kr. 26.80 metrinn
Fyrsta flokks gæði.
Járn- og glervörudeild.
Hiitiiiiimiiiiiiiiiiiiiiimiitiiiiiitiiiiimiiiiiiiimiiir«
NÝJA-BÍÓ
Sýnir með PANORAMA-
sýningartjaldi og nýjum
sýningarvélum.
Aðgöngumiðasala opin kl. 7—9.
Sími 1285.
Mynd vikunnar:
Sakleysingjar í París
Víðfræg ensk gamanmynd
gerist á frægum skemmti-
| stöðum í París: Rauðu
myllunni og víðar.
Aðalhlutverk:
Alastair Sim
Ronald Shiner
Claire Bloom
Claude Dauphin
Tlgmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmt
Auglýsið í
VERKAMANNINUM
HAPPDRÆTTI
Söngfélags verkalýðssamtakanna
í Reykjavík
Vinningar samtals kr.
41.925.00
PÍANÓ . . . . kr. 14.000.00
RADÍÓFÓNN . . . . . kr. 10.000.00
ÍSSKÁPUR . . . kr. 6.500.00
GÓLFTEPPI .... . . . . kr. 2.500.00
STRAUVÉL . . . . kr. 1.885.00
MATARSTELL m. dúk kr. 2.400.00
SÓFABORÐ . . . . kr. 1.500.00
STANDLAMPI . . . . . . kr. 1.390.00
KAFFISTELL .... . . . . kr. 1.000.00
MÚSIKLEKSIKON . . . . kr. 750.00
Eflum alþýðumenningu
Dregið 1. október n. k.
Miðarnir eru seldir í skrifstofu verkalýðs-
félaganna, Strandgötu 7.
AKUREYRARBÆR TILKYNNING
Þeir, sem óska eftir lánum úr Byggingarlánasjóði
Akureyrarbæjar á þessu ári, sendi umsóknir sínar á
skrifstofur bæjarins fyrir 20. september næstkomandi,
ef þeir hafa ekki þegar gert það.
Akureyri, 6. september 1954.
Bæjarstjóri.
Gagnfræðaskóli Akureyrar
Vegna skiptingar í bóknáms- og verknámsdeildir G. A.
eru börn þau, sem tóku barnapróf frá barnaskóla Akur-
eyrar s. 1. vor, eða foreldrar þeirra beðin að koma til
viðtals við mig fyrir 12. þ. m. Eg verð til viðtals í skól-
anum frá kl. 5-7 s. d., dagana 8.-11. þ. m. að báðum
meðtöldum.
Akureyri, 6. sept. 1954.
Þorsteinn M. Jónsson,
skólastjóri.
lijólatau
Sel mestu daga mjög ódýrt kjólatau. - Kr. 14.50 m.
Ennfremur léreft og margt fleira.
Verzlunin LONDON
EYÞÓR H. TÓMASSON.
USA.“
(Heimild: U.S. News and
World Report.)
XXX
NPNKIN
A AA I
KHflKI I