Verkamaðurinn - 17.09.1954, Side 1
tfERKHfllflÐURlHH
LXXVII. árg. Akureyri, föstudaginn 17. september 1954 30. tbl.
llmenn undirskriflasöfnun gegn hernáminu hafin um allf landið
Um allt land er nú að hefjast almenn undir-
criftasöfnun, þar sem öllum íslendingum, sem
áð hafa 18 ára aldri, gefst kostur á að krefjast
ppsagnar hins svokallaða varnarsamnings, sem
erður var að þjóðinni forspurðri í maí 1951 og
uneinast um þá kröfu að hinn erlendi her verði
brott úr landinu svo fljótt, sem uppsagnarákvæði
tmningsins leyfa. Og enn fremur að ekki verði
eist fleiri styrjaldarmannvirki í landinu en þegar
ru risin. Fjórir tugir manna úr ýmsum stjóm-
rálaflokkum hafa tekið frumkvæði að undir-
criftasöfnuninni og hafa sent frá sér eftirfarandi
ávarp til þjóðarinnar:
MAIMANUÐI 1951 var gerður vamarsamningur milli ís-
lands og Bandaríkjanna. Með honum var erlendu ríki
tryggður umráðaréttur yfir íslenzkum landssvæðum og
erlendum her leyft að dveljast hér á landi á friðartímum,
þrátt fyrir eindregin loforð um hið gagnstæða. Æskja má
endurskoðunar á samningi þessum og misseri síðar segja
honum upp einliliða með ársfyrirvara.
AMNINGURINN VAR AF hálfu íslendinga gerður og
undirritaður af ríkisstjórn og síðar samþykktur af Al-
þingi, en álits þjóðarinnar aldrei leitað.
AMNINGUR ÞESSI svipti þjóðina óskoruðu valdi yfir
landi og skerti fullveldi hennar stórlega. Djúptæk áhrif
hans á þjóðlífið allt hlutu að verða sérstaklega háskaleg
vegna fámennis þjóðarinnar. Skaðvænlegar afleiðingar
hersetunnar, þjóðemislegar, menningarlegar og efna-
hagslegar, em líka þegar komnar berlega í ljós. Erlend
spillingaráhrif flæða yfir íslenzkt þjóðlíf með síauknum
þunga, fjölmennur hópur æskulýðs hefur ratað á glap-
stigu og atvinnuvegir þjóðarinnar riða til falls vegna hag-
nýtingar vinnuaflsins í hemaðarþágu. Heilbrigt sjálfs-
traust íslendinga og sjálfsvirðing bíður því meiri hnekki
sem hersetan varir lengur.
IINGAÐ TIL HAFA ýmsir sætt sig við þessi vandkvæði her-
setunnar á þeim forsendum, að herstöðvar hér á landi
tryggðu öryggi vinveittra þjóða og myndu veita Islend-
ingum vernd, ef til styrjaldar kæmi. Grannþjóðir vorar
hafa þó ekki viljað kaupa hugsanlegt örvggi verði er-
lendrar hersetu í löndum sínum, og yfir eðli vopnavemd-
arinnar hefur bmgðið slíku ljósi af atburðum síðustu
mánaða, að hverjum manni hrýs hugur við.
tF ÁHRIFUM EINNAR vetnissprengju, sem gerð var í til-
raunaskyni á Kyrrahafi 1. marz, reyndist öllu lífi hætta
búin á svæði, sem er þrefalt stærra en allt ísland, og langt
út fyrir þau takmörk berast geislavirkir hafstraumar,
víðáttumikil fiskimið hafa orðið ónothæf, og af eitruðu
regni hefur gróður sölnað á landi uppi í órafjarlægð
frá sprengjustaðnum.
Miklar verðhækkanir á kjöt- og
mjólkurvörum
Þann 14. þ. m. hækkuðu allar
njólkurvörur í verði sem hér
egir:
Mjólk hækkar um tvo aura lítr-
nn, en sú hækkun er greidd nið-
ír úr ríkissjóði, og er niðurgreiðsl
in á mjólk nú komin upp í 98
lura á lítra.
Skyr hækkar um 15 aura kíló-
ð, úr kr. 5,85 í kr. 6,00.
45% nstur hækkar um eina
krónu kílóið, úr kr. 28,50 í kr.
29,50.
40% ostur hækkar um 80 aura
kílóið, úr kr. 26,20 í kr. 27,00.
Mysuostur hækkar um 65 aura
kílóið, úr kr. 11,45 í kr. 12,10.
Rjómi hækkar um 30 aura lítr-
inn, úr kr. 24,90 í kr. 25,10 í lausu
máli.
Verð á smjöri helzt óbreytt.
(Framhald á 4. síðu).
MEÐ TILKOMU ÞESSA vopns hefur skapazt nýtt viðhorf,
sem öllum Islendingum er skylt að gera sér grein fyrir.
Það er orðið eins ljóst og verða má, að dvöl erlends hers
í landinu veitir enga vöm, þvert á móti býður hún heifn
hættúnni á gereyðingu í styrjöld.
ÍSLENZKU ÞJÓÐINNI er lífsnauðsvn að landið sé ekki
herstöð eða útvirki framandi stórvelda. Því ber að segja
upp varnarsamningnum frá 5. maí 1951. Sú krafa er ekki
sprottin af andúð í garð nokkurrar þjóðar, heldur af
knýjandi þörf vor Islendinga sjálfra. Hún er og fram
borin í þeirri von, að með því að bægja vígbúnaði og
styrjaldarhættu frá vom eigin landi styðjum vér bezt
friðarvilja annarra þjóða, kröfu inannkvnsins um frið.
VÉR UNDIRRITUÐ heitum á hvers konar samtök lands-
manna og sérhvem einstakling að meta nauðsyn þjóðar-
innar í þessu örlagaríka máli og styðja af alefli kröfuna
um brottför alls herafla af Islandi og fylgja henni fram
til sigurs.
Aðalbjörg Sigurðardóttir, frú
Alfreð Gíslason, læknir
Amgrímur Kristjánsson, skólaslj.
Benedikt Davíðsson, form.
Trósmiðafélags Reykjavíkur
Björn Bjarnason, form. Iðju
Dr. Björn Sigfússon, háskólabókav.
Bjöm Þorsteinsson, sagnfr.
Bolli Thoroddsen, bæjarverkfr.
Brynjólfur Ingvarsson, lögfr.
Finnbogi Rútur Valdimarsson,
alþingismaður
Friðrik Asmundsson Brekkan,
rithöfundur
Gils Guðmundsson, alþingism.
Gísli Ásmundsson, kennari
Guðgeir Jónsson, bókbindari
Guðmundur Thoroddsen, próf.
Dr. Guðni Jónsson, skólastj.
Guðríðnr Gfsladóttir, frú
Guðrún Sveinsdóttir, frú
Gunnar J. Gortez, læknir
Gunnar M. Magnúss, rithöf.
Ualltrerg Hallmundsson, B.A.
Halldór Kiljan Laxness, rithöf.
Hallgrímur Jónsson, kennari.
Hannes M. Stcphensen, form. Dagsbr.
Helgi Sæmundsson, rtistj.
Jakob Benediktsson, magisler
Jón Haraldsson, stud. odont.
Kristín Ólafsdóttir, læknir
Kristinn Bjömsson, yfirlæknir
Kristján Gunnarsson, skipstjóri
Laufey Vilhjáhnsdóttir, frú
Ragnar Ólafsson, hæstaréttarlögmaður
Ríkharður Jónsson, mvndhöggvari.
Sigríður Eiríksdóttir, hjúkrunarkona
Stefán Pálsson, tannlæknir
Theódór Skúlason, læknir
Þórarinn Guðnason, læknir
Þorbjörn Sigurgeirsson, eðlisfræð-
ingur
Þórhallur Bjamarson, prentari,
Þorsteinn Valdimarsson, skáld
Samningar tókust í deilu vöru-
, «
bilstjóra og vinnuveitenda
Aðal krafa bílstjóranna
eignarvörubílstjóra
Eins og frá hefur verið skýrt
hér í blaðinu hafði Vörubflstjóra-
félagið Valur boðað vinnustöðv-
un frá sl. mónudagsmorgni, 13. þ,
m,, ef samningar hefðu þá ekki
tekizt við vinnuveitendur. Einn-
ig hafði Verkamannafélag Akur-
eyrarkau.pstaðar, Dagsbrún, Hlif í
Hafnarfirði, Vörubíistjórafélagið
Þróttur og e. t. v. fleiri verka-
lýðsfélög, boðað samúðaraðgerðir
í formi afgreiðslubanns á vöru-
ílutninga til og frá bænum og áttu
þær aðgerðir að ganga í gildi 16.
þ. m. og síðar hjá sumum félög-
um.
Daginn áður en verkfallið
skyldi hefjast fór deilan fyrir
sáttasemjara, Þorstein M. Jóns-
son, og hélt hann marga fundi og
langa með deiluaðilum. Fóru
leikar svo að sættir tókust í deil-
irnni aðfaranótt mánudagsins .
j Samkvæmt hinum nýju samn-
f ingum, er nú hafa verið undirrit-
um forgangsrétt sjálfs-
náði fram að ganfia
u O
aðir, fá sjálfseignavörubílstjórar
eða félag þeirra, Valur, forgangs-
rétt til allrar vinnu við akstur.
nema að því leyti að fyrirtækjum
er heimilt að hafa bifreiðir til eig-
in nota. Var þetta aðaikraía
vörubflstj órafélagsins. Forgangs -
rétturinn gengur þó ekki i gild'
fyrr en 1. marz næstk., en þangað
til verður viðhöfð vinnujöfnur
milli hinna þriggja bflastöðva hjá
stærstu atvinnufyrirtækjunum
KEA, Útgerðarfélagi Akureyr-
inga h.f., Akureyrarbæ, SÍS og
Guðmúndi Jörundssyni. Fær
Stefnir, bflastöð sjálfseignavöru-
bflstjóra 60% af öllum akstri hjá
þessum fyrirtækjum.
Eftir að forgangsrétturinn
gengur í gildi falla ákvæðin um
vinnumiðlun burt, en’da verður
þá bílstjórunum sjálfum í vald
sett hvort þeir starfrækja eina
eða fleiri bifreiðastöðvar.
(Framhald á 4. síðu).
Jörundur hefur landað
fyrsta síldarfarminum
Togarinn Jörundur landaði í
Hamborg sl. miðvikudag, eftir
fyrstu veiðiförina á síldarmiðin í
Norðursjónum. Aflinn var 2675
körfur (90—100 tonn) af ísaðri
síld og seldist hann fyrir 3761
mark. Auk þess seldi Jörundur
frysta síld fyrir ca. 3000 mörk.
Miðað við aflamagn mun þetta
teljast góð sala, en afli mun yfir-
leitt hafa verið fremur tregur
það sem af er og auk þess munu
nokkrir byrjunarerfiðleikar hafa
gert vart við sig og því betri ár-
angurs að vænta í næstu veiði-
ferðum.
1400 syntu hér í
lauginni
Um 1400 Akureyringar þreyttu
200 metra sundkeppnina hér í
lauginni, og má því telja líklegt
að nokkru fleiri bæjarbúar hafi
að lokum tekið þátt í keppninni
nú en þeirri fyrri, þar sem vitað
er að nokkuð á 3ja hundrað bæj-
arbúa syntu í lauginni að Lauga-
landi og allmargir víðs vegar
annars staðar á landinu, m. a. um
40 í Reykjavík.
Hlutaveltan
Eins og auglýsing á 3. síðu
ber með sér verður hlutavelta
Sósíalistafélagsins í Alþýðu-
húsinu á sunnudaginn. Hluta-
veltuncfndinni hefur borizt
fjöldi ágætra muna og pen-
ingagjafir, sem ncfndin vill hér
með þakka. En þeir eru áreið-
anlega ■ allmargir, sem fullan
hug hafa á því að leggja sitt af
mörkurn, þótt þeir hafi ekki
enn komið því í verk.
Nefndin vill því minna á, að
enn er tækifæri til þess að
koma framlögum til henn-
ar í tæka tíð og verður þeim
veitt viðtaka í skrifstofu Sósía-
listafélagsins frá kl. 4—7 og kl.
8—10 í kvöld og frá kl. 1—2
síðdegis á morgun.
HLUTAVELTUNEFNDIN.
Smárakvartettinn fékk
ágætar viðtökur á
Suðurlandi
Smárakvartettinn frá Akur-
eyri, sem verið hefúr í söngíor
sunnanlands, fékk hvarvetna
hmar ágætustu viðtökur og
góða dóma fyrir söng sinn. —
Kvartettinn hefur bæði sungið
í Reykjavík, Hafnarfirði, Hlé-
garði, Njarðvíkum og víðar. —
Jóhann Konráðsson söng inn á
plötur hjá Ríkisútvarpinu og
kvartettinn söng inn á hljóm-
plötur hjá Tonika í Reykjavík.
Þeir félagar ætla að syngja í
Nýja-Bíó hér á Akureyri á
sunnudaginn kemur kl. 3 e. h.
Messur á sunnudaginn: í Lög-
mannshlíð kl. 2 e. h. í Akureyrar-
kirkju kl. 5 e. h. — f Glerárþorpi.
Prestur: Kristján Róbertsson frá
Siglufirði.