Verkamaðurinn - 01.10.1954, Qupperneq 1
VERKflmflÐURinn
GERIST ÁSKRIFENDUR
að VERKAMANNINUM. —
Nýjir kaupendur fá blaðið
úkeypis til næstu áramóta. —
XXXVII. árg.
Akureyri, föstudaginn 1. október 1954
Síminn er 1516.
32. tbl.
Utgerðarfélag Akureyringa hJ.
ákveður að auka hlutafé sitt um 1.5 milljón kr
vegna væntanlegrar hraðfrystihússbyggingar
Verkalýðsfélögin sýna í orði og verki
vilja sinn fil þess að úfrýma áhrifum
affurhaldsins á næsfa Alþýðusamb.þingi
Frumkvæði forustumanna verkalýðsfélaganna á
Akureyri um samstarf hlýtur hvarvetna drengi-
legan stuðning, nema í málgögnum ríkisstjórnar-
innar og í Alþýðublaðinu
Stjóm Útgerðarfélags Akur-
eyringa h.f. hefur nú ákveðið að
nota sér heimild þá, sem aðal-
fundur félagsins á sl. vori gaf
stjórninni til þess að auka hluta-
fé þess um eina og hálfa milljón
króna, upp í 4 milljónir, með til-
liti til væntanlegrar byggingar
hraðfrystihúss. Óskar stjórnin
eftir því að þeir sem vilja kaupa
hlutabréf láti skrá sig sem fyrst á
skrifstofu félagsins.
Eins og kunnugt er á Akureyr-
arbær nú helming hlutafjárins og
má að óreyndu telja líklegt að
bæjarstjóm samþykki að halda
þeim eignarhlut sínum í félaginu
og muni því kaupa helming hinna
nýju hlutabréfa. Eftir yrðu þá
hlutabréf fyrir 750 þús. kr. og
ættu þeim mörgu fyrirtækjum og
einstaklingum, sem hafa mjög
arðvænleg, bein og óbein, við-
skipti við útgerðarfélagið, ekki að
verða skotaskuld úr því að kaupa
hluti fyrir verulegan hluta þeirr-
ar upphæðar. Á þetta ekki sízt við
um Kaupfélag Eyfirðinga, en það
átti upphafl. 1/5 hluta í félaginu.
Þá þarf ekki að efa að almenn-
ingur muni nú ekki síður en áður
leggja að sér til þess að kaupa
marga hluti í félaginu, til þess að
gera því kleyft að hrinda þessu
stærsta og þýðingarmesta verk-
efni þess í framkvæmd. Mega
menn nú gjama minnast þess, að
það voru ekki sízt hinir mörgu
Fulltrúalisti vinstri
raanna sjálfkjörinn í
Iðju
Framboðsfrestur til fulltrúa-
kjörs á 24. þing ASÍ í Iðju, félagi
verksmiðjufólks, var útrunninn
ki. 12 á hádegi í fyrradag. Kom
aðeins fram einn listi, borinn
fram af alþýðuflokksmönnum og
sósíalistum, í samræmi við áður
gert samkomulag þeirra um full-
trúakjör í félögunum hér. Er sá
listi því sjálfkjörinn.
Listann skipa sem aðalmenn:
Hjörleifur Hafliðason,
Jón Ingimarsson,
Kristján Larsen,
Konráð Sigurðsson.
Ný trjá- og gróðursetningarvél,
sem hefur verið smíðuð í Sovét-
ríkjunum lítur út eins og geysi-
stór spíralbor. Hún grefur holur,
sem eru 1 m. í þvermál og 80 cm.
á dýpt Þessar vélar á að nota á
samyrkjubúunum og við að gróð-
ursetja tré og runna í borgunum.
smáhlutir félítilla alþýðumanna,
sem gerðu stofnim Ú. A. mögu-
lega í upphafL
Þrátt fyrir þessa ákvörðun
stjórnar Ú .A. mun enn allt vera
í óvissu um lán til byggingarinn-
ar, en það er engum vafa bundið
að gangi hlutafjársöfnunin vel
verðin- mun erfiðara fyrir stjórn-
arvöldin og lánsfjárstofnanimar,
sem lúta stjóm þeirra, að synja
Akureyringum um aðstoð. Ef
bæjarbúar leggjast á eitt um
hlutafjársöfnunina er mikilvæg-
um áfanga náð og því ber öllum,
sem bera hag og atvinnumögu-
leika bæjarbúa fyrir brjósti að
vinna kappsamléga að því að hún
takist sem bezt.
Berklavamardagurinn — fjár-
öflunar- og kynningardagur
Sambands íslenzkra berkla-
sjúklinga — verður á sunnudag-
inn. Er það nú orðin föst venja að
fyrsti sunnudagur októbermán-
aðar sé helgaður þessum málefn-
um.
Að þessu sinni verður, eins og
að venju, merkjasala um land allt
og blað SÍBS, Reykjalundur,
verður selt. Er blaðið mjög
myndarlega úr garði gert og hið
fjölbreyttasta að efni.
1 stærri kaupstöðum og bæjum
verða samkomur og skemmtanir.
Hér á Akureyri verða skemmtan-
ir í Varðborg og í Alþýðuhúsinu,
bæði á laugardag- og sunnudags-
kvöld. Verða þar dansleikir og
syngja Oskubuskur úr Reykjavík
með hljómsveitunum. Þá hafa
samtök berklasjúklinga einnig
sýningar í báðum bíóunum og
verða þar sýndar kvikmyndir.
Það eru Berklavörn á Akur-
eyri og Sjálfsvöm í Kristneshæli,
sem gangast fyrir samkomum og
fjáröflunum berklavarnardagsins
hér í bæ og rennur allur ágóði af
þeim til vinnustofu SÍBS að
Kristneshæli.
f viðtali sem forrfáðamenn
berklavamarsamtakanna hér áttu
við blaðamenn nú í vikimni bentu
þeir á að vinnustofumar í Krist-
nesi hefðu mjög mikilvægu hlut-
Metsala hjá Svalbak
Svalbakur seldi í Þýzkalandi í
fyrradag 229 tonn fyrir ítæp 118
þús. mörk. Aflinn var aðallega
karfi veiddur á Jónsmiðum við
Grænland.
Þessi sala Svalbaks er hæsta
Þýzkalandssala á þessu ári og ein
þeirra fáu, sem er það hár að
nokkrar horfur séu á hagnaði. —
Hafa aðeins tveir togarar áður
náð 100 þús. marka sölu á þessu
hausti. Voru það Jón Þorláksson
og Kaldbakur.
verki að gegna. Bæði vegna þess
að hófleg vinna sjúklinga styddi
mjög að hraðari bata og einnig
gerðu vinnustofurnar sitt til þess
að sjúklingarnir fæm síður óvið-
búnir og án fulls vinnuþreks út í
atvinnulífið, þar sem þeir, oft á
tíðum, yrðu að sæta vinnu, sem
þeir þyldu ekki. Einnig bæri nokk
uð á því að sjúklingar héðan úr
bæ og héraði vildu síður leits
suður til Reykjalundar, ef kost-
ur .væri hliðstæðrar aðstöðu hér
heima. \
SÍBS rekur vinnustofurnar í
Kristneshæli, en fjár til reksturs
þeirra hefur eingöngu verið aflað
hér um slóðir. Þó hefur sam-
bandið lagt um 100 þúsund krón-
ur til byggingar hjá Kristneshæli,
sem nú er um það bil að rísa af
grunni. Er það bústaður umsjón-
armanns og forstöðukonu vinnu-
stofanna, en önnur húsakynni
eru lögð fram af heilsuhælinu.
Rekstur vinnustofanna að
Kristnesi hefur gengið mjög að
óskum. Voru á sl. ári unnar um
10 þúsun vinnustundir og greidd
laun um 80 þús. kr. Vinnutími
sjúklinganna, sem þar unnu var
frá einni og upp í þrjár klst. á
dag. Framleiddar er ýmiss kon-
ar húsgögn og aðrir smíðisgripir
úr tré, og bindilykkjur fyrir jám-
lagnir á vinnustofu karla, en að-
(Framhald á 4. síðu).
Síðustu daga og vikur hefur
komið berlegar í ljós en nokkru
sinni áður hve alþýðan í landinu
er orðin langþreytt á sundrungu
vinstri aflanna og þeim áhrifum
afturhalds og atvinnurekenda,
sem í skjóli hennar hafa náð að
eflast til valda innan Alþýðu-
sambandsins til óútreiknanlegs
tjóns fyrir hagsmuni verkalýðs-
stéttarinnar. Það féll í hlut
verkalýðsins á Akureyri að verða
fyrstur til að móta vilja sinn til
samstarfs og stéttarlegrar eining-
ar í verki, en síðan hefur hvert
verkalýðsfélagið af öðru fylkt sér
undir merki einingarinnar og
með orðum og athöfnum boðað
stórsókn alþýðustéttarinnar fyrir
hagsmunamálum sínum.
Alþýðusambandskosningarnar
standa nú sem hæst og hefur aft-
urhaldið og atvinnurekendaþjón-
amir farið hinar mestu hrakfarir
bað sem af er og munu þó fleiri á
eftir fara.
Þróttur á SiglufirðL
1 síðasta blaði var getið sam-
þykktar Þróttar á Siglufirði, þar
sem fagnað var samstarfiinu á
Akureyri og skorað á öll verka-
lýðsfélög að kjósa þá eina á þing
Alþýðusambandsins, sem þekkt-
ir væru að samstarfs- og samein-
ingarvilja. 1 Þrótti hefur orðið
fullt samkomulag um fulltrúa-
kjör.
Bjarmi — ASB.
í Verkalýðs- og sjómannafélag-
i; Einingarfundur á i
i; sunnudaginn i
;; Verkakvennafélagið Eining '
; heldur félagsfund á sunnu- j
;| daginn kl. 4 síðdegis i Verka- 2
lýðshúsinu. Verða þar kosnir ,
; fulltrúar félagsins á Alþýðu- \
sambandsþing, 3 að tölu. Rætt 2
' verður um vetrarstarfið og (
! formaður félagsins, Elísabet j
: Siríksdóttir, segir ferðasögu, 5
af för sinni til Sovétríkjanna I
nú í sumar.
Eru félagskonur hvattar til 2
að fjölmenna á fundinn.
inu Bjarmi á Stokkseyri fór fram
kosning á Alþýðusambandsþing
sl. sunnudag og höfðu Alþýðu-
flokksmenn og sósíalistar sam-
vinnu um fulltrúakjörið. Félagið
gerði janframt samþykkt, þar
sem tíðindunum frá Akureyri var
fagnað og skorað var á fylgjehd-
ur verkalýðsflokkanna „að láta
fordæmið frá Akureyri verða
leiðarvísi í þeim kosningum, sem
nú fara fram til þings Alþýðu-
3ambandsins.“
í ASB í Reykjavík var ein-
róma gerð samþykkt, þar sem
fulltrúum félagsins var falið að
(Framhald á 4. síðu).
Verkamannaf élag
;; Akureyrarkaupstaðar ;|
i; og vinnuveitendur
;i hafa samið um kaup- j:
i; hækkun í sements-
vinnu
ii Kaupið verður 18.09 i;
ijá klst. var áður 15.15 ji
;; Áður hefur verið skýrt frá ;!
;| því hér í biaðinu að Verka-
mannafélagið Dagsbrún hefur ! I
'! fyrir nokkum vikum fengið !|
kaup verkamanna hækkað við !;
cementsvinnu úr kr. 15,15,;;
;> miðað við núgildandi vísitölu,;;
I upp í kr. 18,09. Náðust þessiri;
samningar eftir að verkamenn !
' '
við Rcykjavíkurhöfn höfðu 1
!; lagt niður vinnu við tvö se- ;
;; mentsskip. ;
; Stjórn Verkamannafélagsins
hér héfur að undanfömu unii-
%
;! ið að því að fá samningunum 2
! við atvinnurekendur breytt til j
samræmis við Dagsbrúnar- í
; samninga í þessu efni og hefur;
það nú tekizt. Og hefiu: breyt- j
,;ing þessi verið undirrituð af 2
!; Kaupfélagi Eyfirðinga, Vinnu- 2
;; veitendafélagi Akureyrar og j
;; Akureyrarbæ. >
;! Kauphækkunin gildir við 2
;! uppskipun og framskipun se- j
!! ments, móttöku í geymsluhúsi 2
!! og samfellda vinnu við af- 2
!; hendingu úr pakkhúsi og við j
;; mælingu sements í hrærivél. j
Vw**************************!
Berklavarnardagyrgiin er á
sunnudaginn
Fjölbreytt hátíðahöld verða hér í bænum. Allur
ágóði af merkjasölu og skemmtunum hér í bæ
rennur til vinnustofanna á Kristneshæli