Verkamaðurinn


Verkamaðurinn - 08.10.1954, Blaðsíða 1

Verkamaðurinn - 08.10.1954, Blaðsíða 1
VERKMRinn GERIST ÁSKRIFENDUR að VERKAMANNINUM. — Nýjir kaupcndur fá blaðið ókeypis til næstu óramóta. — Síminn er 1516. ÍÍXVH. árg. Akureyri, föstudaginn 8. október 1954 33. tbl. erkakvennafélagið Eining skorar á erkalýðsfélögin að fylkja sér um þá fulltrúa, sem vinna að einingu vinstri aflanna Hraðfrystihúsmálið fyrir bæjarstjórn Samþykki að kaupa helming hlutabréf- annar jafnóðum og þau eru seld öðrum Krefst brottfarar hersins Á fundi Verkakvennafélagsins Einingar, er haldinn var sl. nnudag var eftirfarandi ályktun gerð einróma: „Fundur í Verkakvnnafélaginu Eirig, haldinn sunnudaginn október 1954, fagnar þeirri einingu sem ndðst hefur innan rkalýðshreyfingarinnar á Akureyri og viða annars staðar landinu. Fundurinn telur fullkomna einingu verkalýðsins einu leið- a til verndar hagsmunum alþýðunnar og sjálfstœðis og enningu þjóðarinnar. Skorar fundurinn á öll þau félög sem ga eftir að kjósa fulltrúa á 24. þing. A Iþýðusambandsins, að ósa aðeins þái menn sem vinna að einingu vinstri aflanna." fflr- „Fundurinn skorar á allan verkalýð í landinu og frelsisunn- ,di fólk að vinna að því að hernámsliðið fari héðan svo fljótt m auðið er, meðal annars með því að taka sem virkastan itt i undirskriftasöfnun þeirri sem nii fer fram gegn her- íminu." Kvöldskólinn Kvöldskólinn tekur til starfa 18. þ. m. Kennslan fer fram í Menntaskólanum á kvöldin kl. 7,30 til 9,30. Kennarar verða þeir Friðrik Þorvaldsson, Gísli Jóns- son, Jón Ámi Jónsson og Ottó Jónsson, sem kominn er heim frá Bandaríkjunum, eftir ársdvöl þar við framhaldsnám. Kennslugjald- ið er kr. 50 á mánuði. Kvöldskólinn býður mönnum, sem hug hafa á nytsömu námi í tómstundum sínum, hina beztu kennslu við sérstaklega vægu gjaldi. Sjá nánar í auglýsingu í blaðinu í dag. Fullur skriður kominn á undirskriftasöfnunina gegn hernáminu Samstarfsnefnd mynduð hér í bænum. 12 borgarar bæjarins senda frá sér ávarp um skriftirnar verði sem almennast- ar og snúi sér hið fyrsta til nefnd- arinnar, bæði til að taka undir- skriftarlista svo og með hvers konar ábendingar, sem mættu verða málinu til stuðnings og fyrirgreiðslu. undirskriftirnar ''ullur skriður er nú kominn á iirskriftasöfnunina, sem hafin • fyrr skömmu að frumkvæði manna úr ýmsum stjórnmála- vkur. Mætir undirskriftasöfn- n hvarvetna hinum beztu við- ;um og verður æ ljósara, að cill þorri fslendinga er stað- inn í því að berjast til þrautar ir uppsögn hernámssamnings- , svo fljótt sem ákvæði hans fa, og fyrir því að ekki verði 3t fleiri styrjaldarmannvirki • á landi, en þegar eru risin. Hér á Akureyri hefur verið nynduð þriggja manna sam- tarfsnefnd, er annast mun um ranikvæmd undirskriftasöfn- marinnar í bænum. Ennfremur lafa 12 borgarar bæjarins, ir ýmsum stjórnmálaflokkum íosið milli 5 presta 17. október '’restur til að sækja um Akur- •arprestakall var útrunninn 1. t. sl. Eru umsækjendur þessir: Birgir Snæbjörnsson, sr. Jó- ín Hlíðar, sr. Kristján Ró- ■tsson, sr. Stefán Eggertsson og Þórarinn Þór. Prestkosning fer fram 17. okt. sent frá sér eftirfarandi ávarp, þar sem bæjarbúar eru hvattir til að veita nefndinni öflugan stuðning í starfi heimar: Svo sem almenningi er kunn- ugt af Ávarpi til íslendinga, sem 40 menn í Rvík hafa undirritað og birzt hefur í ýmsum blöðum, er nú verið að safna undirskrift- um um allt land að þeirri áskorun til ríkisstjómar landsins, að hún hlutist nú þegar til um uppsögn hervamarsamningsins frá 5. maí 1951 og að allt herlið og herbúnaðut verði á burt svo fljótt sem uppsagnarákvæði heimila og eigi verði gerð fleiri styrjaldarmannvirki í landinu en þegar eru risin. Hér í bænum hefur verið valin 3ja manna nefnd til að annast framkvæmd undirskriftasöfnun- arinnar, og skipa hana þessir: Anna Helgadóttir, frú, Munka- þverárstræti 33. Einar Kristjánsson, rithöfund- ur, Matthíasargötu 1. Magnús Albertsson, húsgagna- smiður, Grundargötu 3. Eru það eindregin tilmæli okkar undirritaðra, að allir þeir, sem áhuga hafa á uppsögn samn- ingsins, geri sitt til að undir- Bjami Arason, ráðunautur. Bjöm Halldórsson, lögfræðingur. Bjöm Jónsson, ritstjóri. Bragi Sigurjónsson, ritstjóri. Elísabet Geirmundsdóttir, frú. Jón M. Árnason, vélstjóri. Jón Þorsteinsson, lögfræðingur. Kári Sigurjónsson, prentari. Kristófer Vilhjálmsson, afgr.m. Martcinn Sigurðsson, sýsluskr. Torfi Vilhjálmsson, verkamaður. Tryggvi Þorsteinsson, kcnnari. Fulltrúar Einingar á Alþýðusambandsþing sjálfkjörnir Verkakvennafélagið Eining hélt félagsfund sl. sunnudag og fór þar fram kjör fulltrúa á Alþýðu- sambandsþing. Kjörnar voru ein- róma: Elísabet Eiríksdóttir, Lísbet Friðriksdóttir, Guðrún Guðvarðardóttir. Varafulltrúa reru: Margrét Magnúsdóttir, Svanborg Jónasdóttir, Þórgunnur Sveinsdótitr. Fulltrúalistinn var borinn fram af sósíalistum og Alþýðuflokks- konum í samræmi við allsherjar- samkomulag það, sem orðið hef- ur í verkalýðsfélögunum hér í bænum. Fellt að kaupa helming án skilyrða um sölu til einstaklinga Fyrir bæjarstjómarfundi sl. mðjudag lá tillaga frá bæjarráði æss efnis að Akureyrarbær keypti helming hinna nýju hluta- bréfa í Utgerðarfélagi Akureyr- inga h.f., eftir sömu reglum og áður, en það þýðir að bærinn skuldbindur sig til að kaupa bréf að verðmæti allt að kr. 750 þús- und, ef sala til einstaklinga nær æirri upphæð. Verði sala hluta- bréfa til einstaklinga minni minnka kaup bæjarins að sama skapi. Tillaga frá Helga Pálssyni um að bærinn skuldbindi sig til að kaupa helming hlutabréfaaukn- ingarinnar, án skilyrða um kaup einstaklinga, var felld með 5 atkv. gegn 5. Þeir sem greiddu tillög- unni atkvæði voru fulltrúar Sósí- alistaflokksins, Þjóðvarnarfl. og Jón Þorvaldsson, auk flutnings- manns. Á móti voru fulltrúar Framsóknar, Guðmundur Jör- undsson og Jón G. Sólnes. Bæjar- fulltrúi Alþýðuflokksins var ekki mættur, og hefur það senni- lega ráðið úrslitum málsins. Verður ekki að sinni fullyrt um, hvort þessi afgreiðsla er hættuleg framgangi frystihúss- málsins, þar sem enn er allt í óvissu um hlutabréfasöluna, en fari svo, sem í lengstu lög verð- ur að vona að ekki verði, að hlutabréfakaup einstaklinga verði lítil, getur þessi afgreiðsla verið mjög varhugaverð. í öllu falli hefði það verið mun tryggara ef bærinn hefði nú þegar riðið á vaðið og samþykkt kaup sín án nokkurra skilyrða. Nokkrar umræður urðu um málið. Tryggvi Helgason gerði fyrirspurn til bæjarstjóra og for- manns Ú. A. hvað liði útvegun lánsfjár til framkvæmda. Benti hann á að verið væri nú að end- urbyggja fjölmörg frystihús og byggja önnur frá grunni og mundi þetta að verulegu leyti gert fyrir lánsfé, þótt nokkuð væri byggt fyrir fenginn gróða af þessum atvinnurekstri. Þá vék hann að því að ýms bæjarfélög hefðu leyst lánsfjárvandamál sín með því að leita til ýmissa ann- arra aðila en hinna beinu lána- stofnana. Hefðu Siglfirðingar t. d. fengið nokkur lán til fram- kvæmda bæjarfélags sins frá vá- tryggingarfélögum, olíufélögum og Eimskipafélagi íslands. — Tryggvi skýrði frá því, að í samn- ingaviðræðum þeim, sem fram fóru í togaradeilunni, hefði það komið greinilega fram að togara- útgerðarmenn litu nú á veiðamar fyrir frystihúsin sem arðvænleg- asta rekstur togaranna og kapp- kostuðu þær eftir því sem fram- leiðslugeta frystihúsanna hrykki til. Taldi hann að rekstur togar- anna hér hefði orðið mun betri á æssu ári, ef hér hefði verið frystihús og stöðvun þeirra ekki jafn tilfinnanleg á þessu sumri. 1 lok ræðu sinnar gaf Tryggvi þær athyglisverðu upplýsingar að bæjarstjóm Hafnarfjarðar, sem ákveðið hefur að byggja fiskiðjuver með hraðfrystihúsi fyrir bæjarútgerð Hafnarfjarð- ar, ætti nú kost á öllum vélum til hraðfrystingar og ísfram- leiðslutækjum að láni frá Aust- ur-Þýzkalandi. Væru lánskjör- in mjög aðgengileg og ætti greiðsla að fara fram í afurðum fyrirtækisins. Taldi Tryggvi að mjög kæmi til athugunar tun slík Ián erlendis frá. Steinsen bæjarstjóri og Helgi Pálsson urðu fyrir svörum og varð ekki séð af ræðum þeirra að annað hefði vei'ið aðafst til þess að útvega lánsfé en að leita til Framkvæmdabankans. — Töldu þeir málinu hafa verið fremur vel tekið hjá dr. Benjamín, en þeir hefðu þó verið di-egnir á öllum greiðum svörum og Væru þau nú naumast væntanleg fyrr en um næstu áramót. 299 fiskpakkar eyði- lögðust í fisktöku- skipinu Norska skipið Ame Presthus hefur legið hér við bryggju und- anfarna daga og lestað saltfisk frá Útgerðarfélagi Akureyringa h.f. — Er framskipun var langt komið í fyrradag vildi það óhapp til að ventill í olíudælu bilaði, er verið var að dæla olíu úr botn- tanka í hæðartanka, og komst allmikil olía í neðstu lög fisk- pakkanna í lestinni. Varð að skipa í land um 3000 pökkum til þess að komast fyrir skemmdim- ar og klæða lestina innan að nýju. Eyðilegging varð þó minni en búizt var við, en 299 pakkar eyði- lögðust með öllu.

x

Verkamaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Verkamaðurinn
https://timarit.is/publication/215

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.