Verkamaðurinn - 08.10.1954, Qupperneq 1
VERKMRinn
GERIST ÁSKRIFENDUR
að VERKAMANNINUM. —
Nýjir kaupcndur fá blaðið
ókeypis til næstu óramóta. —
Síminn er 1516.
ÍÍXVH. árg.
Akureyri, föstudaginn 8. október 1954
33. tbl.
erkakvennafélagið Eining skorar á
erkalýðsfélögin að fylkja sér um þá
fulltrúa, sem vinna að einingu
vinstri aflanna
Hraðfrystihúsmálið fyrir bæjarstjórn
Samþykki að kaupa helming hlutabréf-
annar jafnóðum og þau eru seld öðrum
Krefst brottfarar hersins
Á fundi Verkakvennafélagsins Einingar, er haldinn var sl.
nnudag var eftirfarandi ályktun gerð einróma:
„Fundur í Verkakvnnafélaginu Eirig, haldinn sunnudaginn
október 1954, fagnar þeirri einingu sem ndðst hefur innan
rkalýðshreyfingarinnar á Akureyri og viða annars staðar
landinu.
Fundurinn telur fullkomna einingu verkalýðsins einu leið-
a til verndar hagsmunum alþýðunnar og sjálfstœðis og
enningu þjóðarinnar. Skorar fundurinn á öll þau félög sem
ga eftir að kjósa fulltrúa á 24. þing. A Iþýðusambandsins, að
ósa aðeins þái menn sem vinna að einingu vinstri aflanna."
fflr-
„Fundurinn skorar á allan verkalýð í landinu og frelsisunn-
,di fólk að vinna að því að hernámsliðið fari héðan svo fljótt
m auðið er, meðal annars með því að taka sem virkastan
itt i undirskriftasöfnun þeirri sem nii fer fram gegn her-
íminu."
Kvöldskólinn
Kvöldskólinn tekur til starfa
18. þ. m. Kennslan fer fram í
Menntaskólanum á kvöldin kl.
7,30 til 9,30. Kennarar verða þeir
Friðrik Þorvaldsson, Gísli Jóns-
son, Jón Ámi Jónsson og Ottó
Jónsson, sem kominn er heim frá
Bandaríkjunum, eftir ársdvöl þar
við framhaldsnám. Kennslugjald-
ið er kr. 50 á mánuði.
Kvöldskólinn býður mönnum,
sem hug hafa á nytsömu námi í
tómstundum sínum, hina beztu
kennslu við sérstaklega vægu
gjaldi. Sjá nánar í auglýsingu í
blaðinu í dag.
Fullur skriður kominn á undirskriftasöfnunina
gegn hernáminu
Samstarfsnefnd mynduð hér í bænum. 12
borgarar bæjarins senda frá sér ávarp um
skriftirnar verði sem almennast-
ar og snúi sér hið fyrsta til nefnd-
arinnar, bæði til að taka undir-
skriftarlista svo og með hvers
konar ábendingar, sem mættu
verða málinu til stuðnings og
fyrirgreiðslu.
undirskriftirnar
''ullur skriður er nú kominn á
iirskriftasöfnunina, sem hafin
• fyrr skömmu að frumkvæði
manna úr ýmsum stjórnmála-
vkur. Mætir undirskriftasöfn-
n hvarvetna hinum beztu við-
;um og verður æ ljósara, að
cill þorri fslendinga er stað-
inn í því að berjast til þrautar
ir uppsögn hernámssamnings-
, svo fljótt sem ákvæði hans
fa, og fyrir því að ekki verði
3t fleiri styrjaldarmannvirki
• á landi, en þegar eru risin.
Hér á Akureyri hefur verið
nynduð þriggja manna sam-
tarfsnefnd, er annast mun um
ranikvæmd undirskriftasöfn-
marinnar í bænum. Ennfremur
lafa 12 borgarar bæjarins,
ir ýmsum stjórnmálaflokkum
íosið milli 5 presta
17. október
'’restur til að sækja um Akur-
•arprestakall var útrunninn 1.
t. sl. Eru umsækjendur þessir:
Birgir Snæbjörnsson, sr. Jó-
ín Hlíðar, sr. Kristján Ró-
■tsson, sr. Stefán Eggertsson og
Þórarinn Þór.
Prestkosning fer fram 17. okt.
sent frá sér eftirfarandi ávarp,
þar sem bæjarbúar eru hvattir
til að veita nefndinni öflugan
stuðning í starfi heimar:
Svo sem almenningi er kunn-
ugt af Ávarpi til íslendinga, sem
40 menn í Rvík hafa undirritað
og birzt hefur í ýmsum blöðum,
er nú verið að safna undirskrift-
um um allt land að þeirri áskorun
til ríkisstjómar landsins, að hún
hlutist nú þegar til um uppsögn
hervamarsamningsins frá 5. maí
1951 og að allt herlið og
herbúnaðut verði á burt svo
fljótt sem uppsagnarákvæði
heimila og eigi verði gerð fleiri
styrjaldarmannvirki í landinu en
þegar eru risin.
Hér í bænum hefur verið valin
3ja manna nefnd til að annast
framkvæmd undirskriftasöfnun-
arinnar, og skipa hana þessir:
Anna Helgadóttir, frú, Munka-
þverárstræti 33.
Einar Kristjánsson, rithöfund-
ur, Matthíasargötu 1.
Magnús Albertsson, húsgagna-
smiður, Grundargötu 3.
Eru það eindregin tilmæli
okkar undirritaðra, að allir þeir,
sem áhuga hafa á uppsögn samn-
ingsins, geri sitt til að undir-
Bjami Arason, ráðunautur.
Bjöm Halldórsson, lögfræðingur.
Bjöm Jónsson, ritstjóri.
Bragi Sigurjónsson, ritstjóri.
Elísabet Geirmundsdóttir, frú.
Jón M. Árnason, vélstjóri.
Jón Þorsteinsson, lögfræðingur.
Kári Sigurjónsson, prentari.
Kristófer Vilhjálmsson, afgr.m.
Martcinn Sigurðsson, sýsluskr.
Torfi Vilhjálmsson, verkamaður.
Tryggvi Þorsteinsson, kcnnari.
Fulltrúar Einingar á
Alþýðusambandsþing
sjálfkjörnir
Verkakvennafélagið Eining hélt
félagsfund sl. sunnudag og fór
þar fram kjör fulltrúa á Alþýðu-
sambandsþing. Kjörnar voru ein-
róma:
Elísabet Eiríksdóttir,
Lísbet Friðriksdóttir,
Guðrún Guðvarðardóttir.
Varafulltrúa reru:
Margrét Magnúsdóttir,
Svanborg Jónasdóttir,
Þórgunnur Sveinsdótitr.
Fulltrúalistinn var borinn fram
af sósíalistum og Alþýðuflokks-
konum í samræmi við allsherjar-
samkomulag það, sem orðið hef-
ur í verkalýðsfélögunum hér í
bænum.
Fellt að kaupa helming án skilyrða um sölu
til einstaklinga
Fyrir bæjarstjómarfundi sl.
mðjudag lá tillaga frá bæjarráði
æss efnis að Akureyrarbær
keypti helming hinna nýju hluta-
bréfa í Utgerðarfélagi Akureyr-
inga h.f., eftir sömu reglum og
áður, en það þýðir að bærinn
skuldbindur sig til að kaupa bréf
að verðmæti allt að kr. 750 þús-
und, ef sala til einstaklinga nær
æirri upphæð. Verði sala hluta-
bréfa til einstaklinga minni
minnka kaup bæjarins að sama
skapi.
Tillaga frá Helga Pálssyni um
að bærinn skuldbindi sig til að
kaupa helming hlutabréfaaukn-
ingarinnar, án skilyrða um kaup
einstaklinga, var felld með 5 atkv.
gegn 5. Þeir sem greiddu tillög-
unni atkvæði voru fulltrúar Sósí-
alistaflokksins, Þjóðvarnarfl. og
Jón Þorvaldsson, auk flutnings-
manns. Á móti voru fulltrúar
Framsóknar, Guðmundur Jör-
undsson og Jón G. Sólnes. Bæjar-
fulltrúi Alþýðuflokksins var
ekki mættur, og hefur það senni-
lega ráðið úrslitum málsins.
Verður ekki að sinni fullyrt
um, hvort þessi afgreiðsla er
hættuleg framgangi frystihúss-
málsins, þar sem enn er allt í
óvissu um hlutabréfasöluna, en
fari svo, sem í lengstu lög verð-
ur að vona að ekki verði, að
hlutabréfakaup einstaklinga verði
lítil, getur þessi afgreiðsla verið
mjög varhugaverð. í öllu falli
hefði það verið mun tryggara ef
bærinn hefði nú þegar riðið á
vaðið og samþykkt kaup sín án
nokkurra skilyrða.
Nokkrar umræður urðu um
málið. Tryggvi Helgason gerði
fyrirspurn til bæjarstjóra og for-
manns Ú. A. hvað liði útvegun
lánsfjár til framkvæmda. Benti
hann á að verið væri nú að end-
urbyggja fjölmörg frystihús og
byggja önnur frá grunni og
mundi þetta að verulegu leyti
gert fyrir lánsfé, þótt nokkuð
væri byggt fyrir fenginn gróða af
þessum atvinnurekstri. Þá vék
hann að því að ýms bæjarfélög
hefðu leyst lánsfjárvandamál sín
með því að leita til ýmissa ann-
arra aðila en hinna beinu lána-
stofnana. Hefðu Siglfirðingar t. d.
fengið nokkur lán til fram-
kvæmda bæjarfélags sins frá vá-
tryggingarfélögum, olíufélögum
og Eimskipafélagi íslands. —
Tryggvi skýrði frá því, að í samn-
ingaviðræðum þeim, sem fram
fóru í togaradeilunni, hefði það
komið greinilega fram að togara-
útgerðarmenn litu nú á veiðamar
fyrir frystihúsin sem arðvænleg-
asta rekstur togaranna og kapp-
kostuðu þær eftir því sem fram-
leiðslugeta frystihúsanna hrykki
til. Taldi hann að rekstur togar-
anna hér hefði orðið mun betri á
æssu ári, ef hér hefði verið
frystihús og stöðvun þeirra ekki
jafn tilfinnanleg á þessu sumri.
1 lok ræðu sinnar gaf Tryggvi
þær athyglisverðu upplýsingar
að bæjarstjóm Hafnarfjarðar,
sem ákveðið hefur að byggja
fiskiðjuver með hraðfrystihúsi
fyrir bæjarútgerð Hafnarfjarð-
ar, ætti nú kost á öllum vélum
til hraðfrystingar og ísfram-
leiðslutækjum að láni frá Aust-
ur-Þýzkalandi. Væru lánskjör-
in mjög aðgengileg og ætti
greiðsla að fara fram í afurðum
fyrirtækisins. Taldi Tryggvi að
mjög kæmi til athugunar tun
slík Ián erlendis frá.
Steinsen bæjarstjóri og Helgi
Pálsson urðu fyrir svörum og
varð ekki séð af ræðum þeirra að
annað hefði vei'ið aðafst til þess
að útvega lánsfé en að leita til
Framkvæmdabankans. — Töldu
þeir málinu hafa verið fremur vel
tekið hjá dr. Benjamín, en þeir
hefðu þó verið di-egnir á öllum
greiðum svörum og Væru þau nú
naumast væntanleg fyrr en um
næstu áramót.
299 fiskpakkar eyði-
lögðust í fisktöku-
skipinu
Norska skipið Ame Presthus
hefur legið hér við bryggju und-
anfarna daga og lestað saltfisk
frá Útgerðarfélagi Akureyringa
h.f. — Er framskipun var langt
komið í fyrradag vildi það óhapp
til að ventill í olíudælu bilaði, er
verið var að dæla olíu úr botn-
tanka í hæðartanka, og komst
allmikil olía í neðstu lög fisk-
pakkanna í lestinni. Varð að
skipa í land um 3000 pökkum til
þess að komast fyrir skemmdim-
ar og klæða lestina innan að nýju.
Eyðilegging varð þó minni en
búizt var við, en 299 pakkar eyði-
lögðust með öllu.