Verkamaðurinn - 15.10.1954, Síða 1
vERKHlflÐURlllH
GERIST ÁSKRIFENDUR
að VERKAMANNINUM. —
Nýjir kaupendur fá blaðið
ókeypis til næstu áramóta. —
XXXVII. árg.
Akureyri, föstudaginn 15. október 1954
Síminn er 1516.
34. tbl.
Við Norðurskaut
Tvær stöðvar sovétvísinda-
manna hafa að undanförnu verið
að starfi í rekísnum nálægt
Norðurheimskautinu. Eru stöðv-
amar búnar öllum hugsanlegum
rannsóknartækjum, sem komið
er fyrir í meðfærilegum tjöldum
og byrgjum. Tjaldbúðirnar eru
hitaðar með kolum og fljótandi
gasi. Vísindamennirnir hafa full-
komið samband við heimaland
sitt með útvarpi og loftskeytum
og til þeirra eru fastar flugferðir,
er færa þeim póst og nauðsynjar.
Myndin sýnir leiðangursmenn
að kvöldverði í „borðsal" sínum.
Fyrir enda borðsins er Tresnikov,
foringi leiðanursins.
Bátakvlin svarar ekki þörfum
smábáfaeigenda
Brýn þörf á að hún verði stækkuð
Hér í bænum munu vera um
70 menn, sem eiga smábáta, trill-
ur og árabáta, og stunda veiðar á
þeim, ýmist sem aukastarf eða
aðalstarf, nokkra tíma úr árinu.
Meðal þessara manna er vaxandi
óánægja yfir þeirri aðstöðu, sem
þessi atvinnugrein á við að búa.
I smábátakvínni, eins og hún er
nú úr garði gerð, eru þrengsli
mikil, svo að oft má teljast ógern-
ingur að hreyfa bátana út og inn,
og iðulega geta þeir, sem þó hafa
tryggt sér afnot af bryggju og
dokkarplássi með samningi við
hafnarnefnd, hvorugs notið vegna
þrengsla.
Aðeins 14 lóðum fyrir nauðsyn-
legar skúrbyggingar fyrir veiðar-
færi og annað, sem tilheyrir út-
gerð bátanna, hefur verið úthlut-
að, og ekki rúm fyrir fleiri nema
kvíin verði stækkuð.
Stofnfundur iðnnema-
félags á sunnudaginn
Iðnncmasamband Islands boð-
ar til fundar með iðnnemum
hér í bænum næstk. sunnudag
kl. 2 í Verkalýðshúsinu í þeim
tilgangi að stofna með þcim
félag, en iðnnemafélög eru nú
starfandi i flestum stærri bæj-
um landsins.
Fulltrúi frá stjóm Iðnnema-
sambandsins mætir á fundin-
um.
Ættu iðnnemar að f jölmenna
á fundinn og fara þannig
myndarlega af stað með félags-
stofnun sína.
Þá er innsiglingin í kvína einn-
ig allt of grunn, svo að vandræði
eru að.
Vitamálaskrifstofan hefur fyr-
ir nokkru gert nýjan uppdrátt að
smábátakvínni, og er þar gert ráð
fyrir nokkurri stækkun. Hafa
eigendur smábátanna nú í hyggju
að snúa sér til hafnamefndar og
bæjarstjómar og fara þess fast-
lega á leit, að nú þegar verði gerð
gangskör að því að skapa þeim
viðunandi starfsskilyrði.
Fulltrúar Bílstjóra-
félagsins
í Bílstjórafélagi Akureyrar
urðu þeir Jón Rögnvaldsson og
Höskuldur Helgason sjálfkjömir
sem aðalfulltrúar félagsins á Al-
þýðusambandsþingi og varafull-
trúar þeir Bjarni Kristinsson og
Garðar Svanlaugsson.
Sjómannafélag
Akureyrar
hélt félagsfund í gærkvöldi og
fór þar fram fulltrúakjör á 24.
þing ASÍ. Kjörnir voru einróma
aðalfulltrúar þeir Tryggvi Helga-
son og Lórenz Halldórsson. Vara-
fulltrúar eru: Magnús Ólason og
Jón Ámason.
AKUREYRARKIRKJA. Séra
Stefán Eggertsson messar í Ak-
ureyrarkirkju kl. 8.30 í kvöld.
Vélar til hraðfrysfihússins íáanlegar með hagstæð-
um lánskjörum í A.-Þýzkalandi
Einar Olgeirsson formaður
Sósíalistaflokksins er fyrir
nokkru kominn heim úr ferða
lagi til Sovétríkjanna og Aust-
ur-Þýzkalands. — í Austur-
Þýzkalandi kynnti hann sér
möguleika á vélakaupum og
lánum, þeim viðkomandi, til
bæj arútgerðar Hafnarfj arðar,
en hún hefur ákveðið að reisa
fiskiðjuver með liraðfrysti-
húsi fyrir togara sína. Báru at-
huganir Einars þann árangur,
að hann telur fullvíst að unnt
sé, bæði fyrir Bæjarútgerð
Hafnarfjarðar og Útgerðarfé-
lag Akureyringa h.f., að fá all-
ar nauðsynlegar vélar til fyrir-
hugaðra frystihúsa sinna smíð-
aðar í Austur-Þýzkalandi og
jafnframt að fá þar samsvar-
andi lán fyrir öllu kaupverði
þeirra til 3—5 ára með 4%
vöxtum. Verði andvirði vél-
anna greitt með afurðum frá
fyrirtækjunum og þá senni-
lega gerðir sölusamningar á
þeim til jafnlangs tíma.
í sl. viku fór Tryggvi Helga-
son, bæjarfulltrúi, á fund for-
stjóra Útgerðarfélags Akur-
eyringa h.f. og skýrði honum
frá þessum athugunum Einars
og mun málið nú vera í athug-
un hjá stjórn félagsins og for-
stjóra þess.
Þriðji hluti kostnaðar.
í áætlunum þeim, sem Gísli
Verði greiddar með afurðum fyrirtækisins á
3-5 árum. Hægt að tryggja afurðasölusamninga
til lengri tíma en áður hefur þekkst
Einar Olgeirsson.
Hermannsson, verkfræðingur,
gerði á sl. vori, er gert ráð fyr-
ir að hraðfrystihúsið uppkom-
ið kosti 3,2 millj, kr. og var þá
gert ráð fyrir 8 tonna afköst-
um (flökum) á 12 tímum. —
Síðan hefur verið ákveðið að
staðsetja húsið annars staðar
og auka afköst þess í 20 tonn á
12 klst. Kostnaðarverð hússins,
eins og það er nú fyrirhugað,
mun því verða ca. 4,5 millj. kr.
Hæsfu fjárlög í sögu Alþingis
Skattar og tollar hækka um 57 milljónir kr.
Rekstrarafgangur áætlaður 62.7 milljónir kr.
Alþingi var sett sl. laugardag
og lagði ríkisstjómin fram fjár-
lagafrumvarpið fyrir árið 1955
samdægurs sem fyrsta mál þings-
ins. Hækka fjárlögin mikið frá
fyrra ári, eða um nær 68 milljón-
ir kr. á rekstursreikningi og um
67 milljónir í sjóðsyfirliti, og eru
því hæstu fjárlög, sem lögð hafa
verið fyrir Alþingi, og eiga þau
þó vafalaust eftir að hækka í
meðförum þingsins svo sem venja
er til.
Aðaltekjustofn ríkisins, skattar
og tollar, hækkar úr rúmum 325
milljónum í rúmar 382 milljónir
eða um 57 milljónir. Tekjur af
rekstri ríkisstofnana hækka hins
vegar úr 95,7 milljónum í 106,3
milljónir eða um 110,6 milljónir.
Gjöld ríkissjóðs.
Helztu gjaldaliðir ríikssjóðs
eru: Vextir 4 milljónh’; alþingis-
kostnaður og yfirskoðun ríkis-
reikninga 4,5 milljónir; til ríkis-
stjómarinnar 15 milljónir og
hækkar um eina milljón; dóm-
gæzla og lögreglustjóm, opinbert
eftirlit, kostnaður vegna inn-
heimtu tolla og skatta og sameig-
inlegur kostnaður við embættis-
rekstur 43 milljónir og hækkar
um 3,3 milljónir; læknaskipun og
heilbrigðismál 31 milljón og
hækkar um 2 milljónir; vegamál,
samgöngur, vitamál og hafnar-
gerðinr og flugmál 70,5 milljónir
og hækkar um 11,5 milljónir;
kirkju- og kennslumál 72 millj.
og hækkar um 7,5 milljónir; söfn,
bókaútgáfa, listastarfsemi og
rannsóknir í opinbera þágu 11,5
milljónir og hækka rum hálfa
milljón; atvinnumál 58 milljónir
og hækkar um 3 milljónir; félags-
mál 58 milljónir og hækkar um
6,5 milljónir, og óviss útgjöld 51
milljón og hækkar um 6 milljónir.
Rekstrarafgarjgur í ár er áætlað-
ur 62,7 milljónir, en var áætlaður
38 milljónir á fjárlagafrumvarp-
inu í fyrra.
og er um þriðji hluti þeirrar
upphæðar verð véla.
Ef lán fengist því fyrir öll-
um vélum til hússins og hluta-
fjársöfnunin gengi viðunan-
lega væri lánsfjárþörfin til
byggingar hússins því leyst að
2/3 hlutum og er útilokað að
innlendum lánsfjárstofnunum
væri þá lengur stætt á því að
synja um aðstoð fyrir því, sem
á vantaði.
Reynist því þeir möguleik-
ar, sem hér eyu fyrir hendi,
jafn aðgengilegir, við nánari
athugun, sem allar líkur
og vonir benda til, ætti ekkert
að vera því til fyrirstöðu að
hafizt yrði handa um bygg-
ingu hússins.
Samningar til langs tíma.
í sambandi við athuganir
Einars Olgeirssonar er það
mjög athyglisvert að Austur-
Þjóðverjar vilja gera samninga
um kaup á afurðum ísl. hrað-
frystihúsa til lengri tíma en
nokkru sinni hefur þekkzt um
sölu afurða héðan. Sýnir það
ljóslega að markaðirnir í al-
þýðulýðveldunum og Sovét-
ríkjunum eru stöðugri og
ábyggilegri til frambúðar en
ýmsir hafa viljað viðurkenna
og afsannar þær íullyrðingar
að rekstur hraðfrystihúsa með
togara sem hráefnisgjafa sé
ótryggari en aðrar vinnslu- og
söluaðferðir sjávarafurða.
Þvert á móti benda allar stað-
reyndir til þess að hraðfrysting
fisksins sé einmitt öruggasta
leiðin til þess að tryggja ótæm-
andi markaðsmöguleika oo- ör-
uggan rekstur togaraflotans.
Lánsmöguleikar víðar fyrir
hendi.
Blaðið hefur fregnað, að
bæjarstjórn Hafnarfjarðar hafi
einnig til athugunar að taka
lán í Danmörku til byggingar
fiskiðjuvers síns og séu nokkr-
ar horfur á að það sé fáanlegt.
Þar mun að vísu ekki vera um
að ræða jafn hagstæð vaxta-
kjör eins og í Austur-Þýzka-
landi, en möguleikar taldir á
að fá þar stærra lán.
Benda þessar fregnir til þess
að lánsfjármöguleikar séu víð-
ar fyrir hendi en látið hefur
verið í veðri vaka, ef fast er
eftir leitað.