Verkamaðurinn - 05.11.1954, Page 1
VERKflflMRllin
XXXVII. árg.
Akureyri, iöstudaginn 5. nóvember 1954
37. tbl.
Stjórn Útgerðarfélags Akureyringa h. í. og öll stjórnmálafélög
bæjarins beita sér fyrir allsherjarátaki allra bæjárbúa til þess
að hrinda byggingu hraðfrystihússins í framkvæmd
Sósíalistar!
Fy rsta spilakvöld vetrar-
ins er í kvöld
Sósíalistafélag Akureyrar hef-
ur ákveðið að hafa vikuleg spila-
og skemmtikvöld í vetur og verð-
ur spiluð félagsvist annað hvort
kvöld, en hitt kvöldið verður með
kvöldvökusniði.
Þessi starfsemi hefst r kvöld í
Ásgarði kl. 8.30 og verður þá spil-
uð félagsvist. Góð verðlaun verða
veitt eftir 3 spilakvöld.
Fjölmennið í Ásgarð og haíið
spil með. Aðgangseyrir er aðeins
5 krónur. Verið með frá byrjun.
Nefndin.
Mii ríður á að allir, sem einhvers eru megnugir leggi
fram sinn skerf til hlutafjáraukningarinnar
Mál og menning gefur út merkan
bókaflokk auk félagsbókanna
r
Utgáfa bókaflokkanna opnar almenningi leið
til þ ess að eignast úrvalsbækur
Eins og bæjarbúum er kunnugt
orðið, er frystihúsmálið nú komið
á þann rekspöl, að Útgerðarfélag
Akureyringa h.f. hefur ákveðið
að bjóða út 1,5 milljón króna
hlutafjáraukningu til þess að
hrinda byggingu hraðfrystihúss-
ins i fi'amkvæmd. Einnig standa
nú yfir athuganir á möguleikum
til að fá það fé að láni, sem á
vantar og verður að telja líklegt
eða jafnvel víst að það fáist eins
og málinu er nú komið — svo
framarlega að bæjarbúar sýni
ótvíræðan vilja sinn til þess að
styðja málið með því að tryggja
hlutafjáraukninguna, en helm-
ing hennar, eða 750 þúsund, hef-
ur bæjarstjórn, eða meiriihluti
hennar, nú samþykkt að leggja
fram.
Góðir Akureyringar!
Eins og ykkur mun öllum
kunnugt, er mikill og vaxandi
áhugi fyrir því, að hraðfrystihús
sé byggt og rekið hér í bænum,
sem fyrst og fremst vinni úr hrá-
efni því, sem togararnir afla, og
að mál þetta er nú í höndum Út-
gerðarfélags Akureyringa h.f.,
sem vinnur að undirbúningi
málsins.
Togaraútgerðin á Akureyri er
enn ung að árum, en hefur sýnt
það og sannað, að hún er ein af
aðallyftistöngum undir atvinnu-
Bílstjóri á Akureyri
hlaut happdrættis-
bílinn
Dregið var í happdrætti Dval-
arheimilis aldraðra sjómanna sl.
miðvikudag, en vinningurinn er
Chevrolet-fólksbifreið nýjasta
módel.
Vinninginn hlaut Sveinn Áma-
son, Gránufélagsgötu 57, bifreiða-
stjóri hjá Brauðgerð Kristjáns
Jónssonar.
Munu margir samgleðjast Sveini
með þetta óvsenta og mikla happ.
Stjóm Útgerðarfélagsins og öll
stjórnmálafélög bæjarins hafa nú
myndað samstarfsnefnd til þess
að vinna að skjótum framgangi
hlutaf jársöfnunarinnar. — Skipa
nefndina þeir Helgi Pálsson,
Guðmundur Guðmundsson, Árni
Jónsson, Tryggvi Helgason, Bragi
Sigurjónsson, Björn Halldórsson
og Haukur Snorrason Einnig hef-
ur verið komið á laggirnar undir-
nefndum í hverju bæjarhverfi og
munu þær næstu daga hafa tal af
flestum bæjarbúum og leita imd-
irtekta þeirra um hlutafjárloforð.
Af þessu tilefni hafa stjórn Út-
gerðarfélagsins og formenn stjóm
málaflokkanna sent frá sér ávörp
til bæjarbúa og fara þau hér á
eftir:
lii bæjarins, fjárhagsafkomu bæj-
arfélagsins og efnalegrar afkomu
mikils fjölda heimila í bænum.
Eftir að löndunarbannið i Bret-
landi breytti framleiðsluháttum
togaranna (úr því að flytja fisk-
inn óunninn á erlendan markað),
skapaðist hér í bænum svo mikil
vinna við úrvinnslu togaraaflans,
að atvinnuleysið hvarf frá dyrum
fjölda heimila. Hins vegar hafa
togarar Útgerðarfélags Akureyr-
inga h.f. orðið Um skeið í haust
að flytja afla ■ sinn óunninn á
Þýzkalandsmarkað og selja hann
undir kostnaðarverði, af því einu,
að hér var ekkert hraðfrystihús
á staðnum.
Eins og nú standa sakir, er
hraðfrystihús beinlínis skilyrði
fyrir afkomu félagsins, um leið
og það enn sem áður kallar á
vinnuaflið í bænum, karla, kon-
ur og unglinga.
Allir, sem nokkuð hafa lagt til
þessara mála, telja engan vegiim
verjandi, að bær, sem á 5 togara
staðsetta í umdæmi sínu, eigi
ekkert hraðfrystihús til að vinna
úr afla þeirra, meðan mörg hrað-
frystihús í kaupstöðum og
kauptúnum landsins annars stað-
ar hafa ekki við að afgreiða þá
togara, sem til þeirra leita, og
þeir mega bíða í röðum dögum
saman eftir afgreiðslu.
Með tilliti til þessara aðstæðna,
sem æ koma betur í ljós, eftir því
sem tíminn líður, hefur Útgerð-
arfélag Akureyringa h.f. nýlega
boðið út, með auglýsingu í bæj-
arblöðunum, kr. 1.500.000.00 —
eina milljón og fimm hundruð
þúsund króna — hlutabréfalán,
sem gangi beint til hraðfrysti-
hússbyggingar.
Upphæð hlutabréfanna er:
Kr. 500.00
— 1.000.00
— 2.000.00
— 5.000.00
• — 10.000.00
Að sjálfsögðu getur hver og
einn skrifað sig fyrir hverri upp-
hæðinni sem er, og keypt eitt eða
fleiri bréf í hvaða stærð sem er,
eftir atvikum og ástæðum. Bæj-
ai'stjórn Akureyrar hefur þegar
samþykkt, að Akureyrarbær1
leggi fram 750 þús. kr. til kaupa
á hlutabréfum í félaginu vegna
hraðfrystihússins.
Nú reynir á áhuga bæjar-
búa e. t. v. meira en nokkru sinni
áður. Við treystum því, að hver
sá ykkar sem hefur eitthvað af-
lögu fram yfir brýnustu nauð-
synjar, kynni sér vandlega þetta
ávarp efnislega, og athugi með
sjálfum sér, hvort væntanlegum
afgangstekjum heimilisins sé ekki
bezt verið með því að byggja
upp atvinnulífið á Akureyri og
þar með afkomu sjálfs sín, ná-
grannans og bæjarfélagsins í
heild, með því að kaupa hlut í Út-
gerðarfélagi Akureyringa h.f.
AKUREYRINGAR!
Útgerð 5 togara héðan úr bæn-
um er mikið átak í atvinnulífi
bæjarins. En eins og nú standa
sakir, er bygging hraðfrystihúss
(Framhald á 4. síðu).
Svalbakur landar í
skreið
Togarinn Svalbakur landaði hér
í gær og fyrradag ca. 230 lestum
af ísvörðum fiski. Fer aflinn allur
i skreið. Veiði förin stóð aðeins í
10 daga, og má aflinn því teljast
ágætur.
Þriðji bókaflokkur Máls og
menningar er nú kominn út og er
hann 7 bækur. Teiknibókin í
Árnasafni eftir Björn Th Björns-
son. í þeirri bók eru teiknimyndir
fornar eftir skinnbók í Ámasafni.
Allar myndimar eru prentaðar í
fullri stærð. Gefur bókin glögga
hugmynd um myndlist á Islandi á
miðöldum — sem flestir munu
halda að naumast hafi verið til.
flttarsamfélag og ríkisvald.
eftir Einar Olgeirsson. Um bók
þessa segir Bjöm Þorsteinsson,
sagnfræðingur: „Bók Einars
neistar af nýjiun hugmyndum og
þjóðfélagslegu innsæi í foma
tíma, en er þó jafnframt mjög
fræðileg. Bókin er ekki þung af-
lestrar, heldur lipur og eitt
skemmtilegasta rit sinnar teg-
undar.“
fsland hefur jarl, eftir Gunnar
Benediktsson, fjallar um Sturl-
ungaöldina og merkustu örlaga-
þætti hennar.
Fólk eftir Jónas Árnason og
Dagar mannsins, eftir Thor Vil-
hjálmsson. Höfimdar beggja þess-
ara bóka eru ungir menn, sem þó
hafa báðir kvatt sér hljóðs áður.
Jónas Ámason hefur þegar unn-
ið hugi allra þeirra sem hlýtt
hafa á mál hans í útvarpi og blöð-
um, enda hefur hann yfir að ráða
óvenjulegri og sérstæðri frásagn7
argáfu, sem vart á sinn líka.
Thor Vilhjálmsson mun nú einna
umdeildastur yngri höfunda.
Á hæsta tindi jarðar, eftir John
Hunt, foringja Everestleiðangurs-
ins, sem fyrstur sigraði hæsta
DÁNARDÆGUR
Látinn er að heimili sínu hér í
bænum Sigurgeir Jónsson, söng-
kennari, einn af elztu og þekkt-
ustu borgurum bæjarins.
-K KIRKJAN. Messað í Akureyr-
arkirkju kl. 2 e. h. næstk.
sunnudag. Allraheilagra messa.
Minnst þeirra, sem látizt hafa
á liðnu ári. — P. S. — Messað í
Lögmannshlíðarkirkju næstk.
sunnudag kl. 2 e. h. — F, J. R.
tind jarðar og að lokum er skáld-
sagan Barrabas, eftir Nobelsverð-
launahöfundinn sænska Per Lag-
erquist, en hann hlaut þau verð—
laun m. a. fyrir þessa sogu.
Þrjár þessara bóka geta félags-
menn Máls og menningar eignast
fyrir 125 krónur, en eftir það
fæst hver bók í flokknum fyrir 35
krónur og mun þetta án vafa vera
ódýrustu bókakaup, sem unnt er
að gera, miðað við það, að um úr-
valsbækur er að ræða.
Flóttinn úr bænum
heldur áfram
Dagur skýrir frá því sl. mið-
vikudag, að samkvæmt heimild
skrifstofnu Sjúkrasamlags Ak-
ureyrar, að 154 Akureyringar,
16 ára og eldri, hafi á þessu ári
tekið brottflutningsskírteini hjá
skrifstofunni fram að 1. okt sl.,
en mjög er óvíst að allir, sem
brott hafa flutt, hafi tekið
flutningsvottorð, og er tala
hinna brottfluttu því vafalaust
mun hærri, og er því án vafa
um að ræða brottflutning 2—3
manna, fullorðinna og barna.
Tala þeirra, sem flutt hafa í
bæinn á sama tímabili, er 107
og sést af því að um verulega
fólksfækkun er að ræða, þótt
eðlileg fjölgun bæjarbúa vegi
þar nokkuð á móti.
Er þetta ískyggileg þróun, ekki
sízt þar sem hún hefur verið ó
sama veg undanfarin ár og
greinilegt viðvörunarmerki um
þá brýnu nauðsyn, sem á því er
að bæta atvinnuástandið og af-
komumöguleika fólksins, sem
bæinn byggir. Hún er engu
síður glöggur vitnisburður um
það atvinnulcga hrun, sem nú-
verandi stjórnarstefna er að
leiða yfir alla landsbyggðma
utan næstu áhrifasvæða her-
námsins og þeirrar auðmanna-
klíku í höfuðstaðnum, sem rak-
ar að sér gróðanum af atvinnu-
vegum landsmanna og hemað-
arframkvæmdum Bandaríkj-
anna.
Ávarp félagsstjómar:
„Nú ríður á ábuga bæjarbúa - bygging hrað-
frystihúss skilyrði fyrir rekstri togaranna
um næstu framtíð“