Verkamaðurinn - 05.11.1954, Blaðsíða 4
á
VERKAMAÐURINfV
Fðstudaginn 5. nóv. 1954
- Samstarfið um frystihússmálið
(Framhald af 1. síðu).
skilyrði fyrir rekstri þeirra um
næstu framtíð, og þá um leið skil-
yrði fyrir afkomuöryggi ein-
staklingsins og bæjarfélagsins —
og tun leið ykkar heimilis.
Næstu daga fer ávarp þetta um
bæinn. Ef þið viljið af ykkar
meiri og minna takmörkuðu getu
styðja þetta málefni til eflingar
atvinnulífsins í bænum, þá út-
íyllið viðfest eyðublað og sendið
eða skilið persónulega í skrifstofu
Úígerðarfélags Akureyringa h.f.,
Gránufélagsgötu 4, fyrir 15. nóv-
ember næstkomandi.
Innborgun hlutafjárloforðanna
má ekki dragast lengur en til 1.
marz 1955.
Akureyri, 28 .október 1954.
í stjórn Útgerðarfélags
Akureyringa h.f.:
Helgi Pálsson.
Steinn Steinsen.
Jakob Frímannsson.
Óskar Gíslason.
Albert Sölvason.
Áskorun íormanna stjórnmálafélaganna:
„Bygging hraðfrystihúss er það verkefni sem
mest kallar að til þess að bæjarfélagið fylgist
með í atvinnu- og framleiðsluþróuninni“
Útgerðarfélag Akureyringa h.f.
hefur boðið út ný hlutabréf x
féiaginu fyrir 1 Vz milljón króna,
og er þessu fé ætlað að vera
fyrsta framlag til byggingar hrað-
frystihúss til hagsbóta fyrir tog-
araútgerðina og bæjarfélagið í
heild. Bæjarstjóm Akureyrar
hefur samþykkt að leggja fram
helmingur þessarar upphæðar. —
Er ljóst, að Útgerðarfélagið og
hraðfrystihússmálið þai'fnast nú
þegar 750 þúsund króna hluta-
fjárframlags frá einstaklingum og
fyrirtækjum í bænum.
Ástæða er til að ætla, að við-
bótarfé til hraðfrystihússbygg-
ingar fáist að láni ef í ljós kemur
Bæjarhlutakeppni
verður háð á mánu-
dagskvöldið
Haustmót skákfélags-
ins hefst 11. þ. m.
Næstk. mánudagskvöld, kl. 8,30,
efnir Skákfélag Akureyrar til
bæjarhlutakeppni í skák, og fer
hún fram í Alþýðuhúsinu. Keppa
þar Innbæingar og Brekkubúar
við Oddeyringa og Glerárþorps
búa. Heitir Skákfélagið á alla
skákunnendur, utan sem innan
félagsins, að f jölmenna til keppn-
innar, og eru þeir, sem tök hafa
á, beðnir að hafa með sér töfl,
þótt ekki sé það skilyrði fyrir
þátttöku.
Haustmót Skákfélagsins hefst
svo næstk. fimmtudagskvöld í
Ásgarði, Hafnarstræti 88, og eru
allir félagar Skákfélagsins, og
þeir sem hug hafa á að gerast þar
félagsmenn, hvattir til að taka
þátt í því.
Frá Ileimilisiðnaðarfél. Norð-
urland. Mánaðar námsskeið í
bókbandi og hálfs mánaðar náms-
skeið í fatasaum hefjast föstu-
dagirm 12. nóv. í Brekkugötu 3B,
kL 8 e. h. — Saumanámsskeið
verður starfrækt annað hvert
kvöld. Kennari verður Guðrún
Scheving, Hríseyjargötu 18. —
Tekið á móti umsóknum í síma
1028.
að Akureyringar hafa þegar í
upphafi svo mikla trú á málinu
að þeir vilja leggja fram það
stofnframlag, sem nauðsynlegt er
til að hrinda því af stað.
Það er einróma álit undirrit-
aðra formanna stjómmálafélag-
anna í bænum að nú sem fyrr
beri brýn nauðsyn til að Akur-
eyringar standi saman um eflingu
togaraútgerðarirmar og atvinnu-
lífsins í bæjarfélaginu og sýni
vilja sinn í því efni í ver)ú með
stóraukinni almennri þátttöku í
hlutafjárframlögum til Útgerðar-
félagsins. Bygging nýtízku hrað-
frystihúss er það verkefni, sem
nú kallar mest að til þess að
skapa útgerðinni viðunandi
starfsaðstöðu og tryggja að bæj-
arfélagið fylgist með í þeirri
atvinnu- og framleiðsluþróun,
sem orðin er í þjóðfélaginu.
Innan skamms mxm Útgerðar-
félagið leita til allra borgara og
fyrirtækja í bænum um liðsinni
í þessu mikla hagsmunamáli.
Við heitum á alla, sem þess eiga
nokkurn kost, að bregðast vel
við og leggja fram skerf til þess
að unnt verði að hefjast handa
um byggingu hraðfiystihxiss á
Akureyri.
Akureyri, 25. október 1954.
Haukur Snorrason,
form. Framsóknarfél. Akureyrar.
Bragi Sigurjónsson,
form. Alþýðufl.fél. Akureyrar.
Björn Jónsson,
varaform. Sósíalistafél. Ak.
Kristóferi Vilhjálmsson,
form. Þjóðvarnarfél. Akureyrar.
Gunnar H. Kristjánsson,"
gjaldk. Sjálfstæðisfél. Akureyrar.
1
Kosningar
Stúdentaráð
Um sl. helgi fóru fram kosning-
ar í Stúdentaráð og urðu úrslit
þessi:
A. (Fi-ams. og ki-atar) 119 (138)
B. (Þjóðvörn) 80 (86)
C. (Róttækir) 125 (130)
D. (íhaldið) 283 (301)
Eins og þessar tölur bera með
sér kusu nú mun færri en í fyrra
og lækkaði því atkvæðatala allra
nokkuð en róttækra þó minnst,
og hefur hlutfallstala þeirra
hækkað að mun.
Hinir kjörnu fullti-úar Félags
róttækra, Alþýðuflokksmanna,
Þjóðvarnaimanna og Framsókn-
aimanna hafa gert samkomulag
um stjórn i'áðsins og er Skúli
Benediktsson formaður þess.
mi
4f SR. KRISTJÁN RÓBERTS-
SON hefur verið skipaðxxr
sóknarprestur hér á Akureyri
fi'á 1. þ. m. að telja, en hann
hlaut eins og kunnugt er flest
atkvæði við nýafstaðnar pi-ests-
kosningar, enda þótt hann næði
ekki lögmætri kosningu. —
Siglufjarðarprestakall hefur nú
verið auglýst laust til umsókn-
ar, en þar hefur Kristján þjón-
að að undanförnu.
-K HJÓNAEFNI. Ungfrú Ásta
Sigxrrlásdóttir frá Vestmanna-
eyjum og Guxrnar Berg Gunn-
arsson, starfsmaður hjá POB.
-K HJÓNAEFNI. Ungfrú Oddný
Dxifa Kristjánsdóttir, Eyrarveg
29 og Óskar Ingimarsson, sjó-
maður, Engimýri 4.
-K SKÁKFÉLAGIÐ. Aðalfundur
Skákfélags Akueryrar var
haldinn sl. fimmtudag. í stjóm
voru kjömir: Jón Ingimarsson,
formaður, Haraldur Ólafsson,
ritari, Björn Halldórsson,
gjaldkei’i, Friðgeir Sigurbjöms
son, áhaldavörður, og Guðm.
Eiðsson, spjaldskrárritari. Fé-
lagið hefur taflfimdi tvo daga í
viku í vetur, á mánudögum og
fimmtutögum, í Ásgarði, Hafn-
arsti-æti 88.
-K FIMMTUGUR varð sl. laugard.
Jón Norðfjörð, bæjargjaldkeri,
hirm þjóðkxmni leikari. — Um
þessar mundir dvelur hann í
„sumarleyfi“ á Aki-anesi og
vinnur þar að sviðsetningu hjá
leikfélaginu þar.
Erunr fluttir í Hafnarstræti 97
(bctkhús)
SIGTRYGGUR & EYJÖLFUR
gullsmiðir.
NYJA-BÍÓ
Stmi 128).
í. kvöld og næstu kvöld ameríska stórmy ndh\:
(hækkað verð sökum þess hve myndin er dýr)
Höfum fengið nýtt Panorama-sýningartjald.
Á sunnudag kl. 3 barnasýning:
GOSI
Hin fræga mynd WALT DISNEYS.
Verð: Barnamiði kr. 5.00, fullorðnir kr. 7.00.
LÆKNAVAL
Vegna fyrirhugaðs burtflutnings Árna Guðmundssonar læknis,
verða allir, sem nú eru skráðir hjá honum, að velja sér annan
lækni. Læknavalið miðast við áramót.
Nokkrir af læknum bæjarins geta bætt við sig mjög takmörk-
uðum fjölda veljenda, en auk þess má velja Bjarna Rafnar lækm,
er flytur hingað upp úr næstu áramótum. Kemur hann eínnig til
greina við áður auglýst læknaskiptit
Nánari upplýsingar á skrifstofu samlagsins, síma 1934.
SJÚKRASAMLAG AKUREYRAR
TILKYNNING
Þann 30. okt. 1954 framkvæmdi Notarius publicus í
Akureyrarkaupstað, útdrátt á skuldabréfum láns Al-
þýðuhúss Akureyrar.
Þessi númer komu upp í 50 þús. kr. láni:
7 _ 9 _ 15 _ 32 - 36 - 37 - 38 - 40 - 42 - 50
_ 55 _ 56 - 58 - 65 - 73 - 84 - 93 - 94 - 98
- 99.
Af 100 þtís. króna láni komu þessi númer upp:
Litra A: 4 - 16 - 21 - 25 - 28 - 56.
Litra B: 62-97 - 100 - 120 - 121 - 137 - 144
_ 165 - 175 - 185 - 190 - 203 - 206 - 207 -
213 - 214 - 219 - 222 - 257 - 260.
Litra C: 267 - 268 - 275 - 281 - 290 - 340 -
343 - 350 - 364 - 369 - 380 - 387 - 398 - 401
- 409 - 413 - 420 - 425 - 440 - 446 - 457 -
461 _ 473 - 507 - 509 - 510 - 519 - 530 -
534 - 545.
Útdregin skuldabréf og vextir af bréfum verða greidd
eftir 1. janúar 1955 hjá gjaldkera Alþýðuhússins, Stefáni
K. Snæbjörnssyni.
Stjóm Alþýðuhússins.
*** i
KHflKI