Verkamaðurinn


Verkamaðurinn - 26.11.1954, Page 1

Verkamaðurinn - 26.11.1954, Page 1
VERKflMRinH GERIST ÁSKRIFENDUR að VERKAMANNINUM. — Nýjir kaupcndur fá blaðið ókeypis til næstu áramóta. — XXXVU. árg. .. - — Akureyri, föstudaginn 26. nóvember 1954 39. tbl. Síminn er 1516. a Höfuðverkefni samtakanna á næstu tveimur árum verður að tryggja stórum aukinn 1 ilut vinn- andi manna í þjóðartekjunum og berjast fyrir útrýmingu atvinnuleysisins í landinu Hannibal Valdimarsson kjörinn forseti og Eðvarð Sigurðsson varaforseti Alþýðusambandsins Vinstri stjórn. 24. þingi Alþýðusambands fslands, er hófst í Rvík sl. fimmtudag, lauk að morgni 23. þ. m., en stjómarkjör fór fram þá um nóttina. Urðu úrslit þess staðfest á þeirri kröfu alþýðunnar um allt land að áhrifum atvinnurek- enda yrði útrýmt úr stjóm samtakanna og mynduð sam- stjóm vinstri manna, sem engum væri háð nema íslenzkri alþýðu og hagsmunum hennar. Urslit stjórnarkjörsins urðu þessi: Miðstjórn: Hannibal Valdimarsson, forseti, kjörinn með 175 atkv. Jón Sigurðsson hlaut 146 atkv. Eðvarð Sigurðsson, varaförseti, kjörinn með 161. atkv. Óskar Hallgrímsson hlaut 159 atkv. Magnús Bjamason, ritari, kjörinn með 161 atkv. Magn- ús Ástmarsson hlaut 160 atkv. Snorri Jónsson, kjörinn með 166 atkv. Sigríður Hannesdóttir, kjörin með 166 atkv. Ásgeir Guðmundsson, kjörinn með 162 atkv. Kristján Guðmundsson, kjörinn með 161 atkv. Aftur- haldsmenn hlutu frá 151 til 159 atkv. Miðstjórnarmenn úr Hafnarfirði voru kosin: Sigurrós Sveinsdóttir og Pétur Óskarsson. Hin nýkjöma stjóm Alþýðusambands íslands. Sambandsstjómarmenn úr landsfjórðungunum: Norðurland: Kjömir voru: Bjöm Jónsson með 165 og Jón Friðbjörnsson með 158. Árni Þor- grímsson hlaut 155 og Gunnlaug- ur Hjálmarsson 156. — Suður- og suðvesturland: Kjörnir voru • MMMMMMIIIIIMMMMtllMMIIIIIIIIIItlMMMMMMMMMMMfi* | Endir bundinn á of- | | sóknirnar gegn Iðju j 1 Á Alþýðusambandsþinginu I | var loks endir bundinn á of- 1 | sóknarherferð afturhaldsins \ I gegn þriðja stærsta verkalýðs- 1 i félagi Iandsins, Iðju í Rvik. i i Samþykkti þingið með at- = = kvæðum 152 fulltrúa, með [ i 12490 atkv. á bak við sig, að i i veita félaginu á ný inngöngu í i i sambandið. Á móti voru 141 i | fulltrúi með 11130 atkv. | Er verkalýðshreyfingunni i | allri að því mikill styrkur að j i þetta öfluga félag er nú aftur j i orðinn virkur meðlimur heild- i I arsamtakanna og inngöngu j j þess fagnað af heilum hug I | allra verkalýðssinna. : « j Sex Akureyrarfulltrúar á I | þinginu, þeir Ámi Þorgríms- i j son, Höskuldur Helgason, Jón j j Pétursson, Árni Magnússon, f | Lisbet Friðriksdóttir og Kol- j j beinn Helgason, vom meðal i j þeirra sem greiddu atkvæði; I GEGN Iðju. I i l IMIMIIIIIIMIMHM.. Hálfdán Sveinsson með 293 og Sigurður Stefánsson með 162. Ragnar Guðleifsson hlaut 159. — Vesturland: Kjörnir voru Albert Kristjánsson með 163 og Árni Vigfússon með 162. Björgvin Sig- hvatsson hlaut 154. og Páll Sól- mundsson 150. — Austurland: Kjörnir voru Ásbjöm Karlsson sem 162 og Alfreð Guðnason með Hannibal Valdimarsson, forseti Alþýðusambands íslands. 162. Þorsteinn Guðjónsson fékk 151 og Guðlaugur Sigfússon 150. Um kjör sambandsstjómar var fullt samkomulag með öllum vinstri mönnum er þingið sátu. Stefnan mörkuð í verkaýðs- og atvinnumálum. Þótt mikill tími þingsins færi í allsherjaruppgjör milli þeirrar afturhaldsstjórnar, sem setið hef- ur að völdum í Alþýðusamband- inu sl. sex ár og þeirrar rísandi samstarfshreyfingar, sem setti svip á kosningar til þingsins og á störf þingsins, vannst því tími til að móta stefnu verkalýðshreyf- ingarinnar á næstu árum í mikl- um fjölda ályktana um hags- muna- og menningarmál alþýð- unnar. Verða ályktanir þingsins birtar hér í blaðinu, eftir því, sem rúm leyfir. Merkustu samþykktir þingsins eru um verkalýðsmálin og ítarlegar ályktanir um atvinnu mál. í verkalýðsmálaályktuninni lagði þingið megináherzlu á það, að höfuðverkefni samtakanna á næstu tímum væri það að tryggja stóraukna hlutdeild vinnandi manna í þjóðartekjunum. Er sú ályktun birt í heild annars staðar hér í blaðinu. í atvinnumálum lagði þingið sérstaka áherzlu á víðtæka upp- byggingu atvinnulífsins í þeim landshlutum ,þar sem atvinnu- leysið hefur að undanförnu hrak- ið verkafólk á brott og benti á leiðina, sem fara verður til þess Munið kvöldvöku ; Sósxalistafélagsins í kvöld; kl. 8.30 í Ásgarði. - Góð<| skemmtiatriði. Spil og töfl. jl Veitingar. Fjölmennið og!; takið með ykkur gesti. —!; að sporna við þeirri válegu þróun, sem þar er að verða með stefnu ríkisstjórnar afturhaldsins. Sterk forusta. Afturhaldið í landinu er lostið skelfingu yfir sigri vinstri manna á Alþýðusambandsþinginu. Það veit að frá hendi þeirrar forustu, sem þar hefur tekið við af því dáðlausa þjónustuliði, sem setið hefur þar yfir hlut verkalýðs- stéttarinnar, verður ekki að ræða um neitt undanhald frá þeirri stefnu, sem Alþýðusambands- þingið hefur ákveðið. Það verður hafin öflugri sókn fyrir stórbætt- um launakjörum og útrýmingu atvinnuleysis, en nokkru sinni áður. Það verður stefnt að vax- andi áhrifum og völdum alþýðu- stéttarinnar. Málgögn afturhaldsfylktingar- innar reyna að halda því fram, að forusta vinstri manna sé veik og iítils megnug, vegna þess að meiri hluti hennar hafi verið naumur á inginu. Þetta er blekking, borin fram gegn betri vitund. Forusta vinstri manna hefur öll skilyrði til þess að reynast sterk og sigur- sæl, vegna þess að hún nýtur trausts yfirgnæfandi meirihluta verkalýðsstéttarinnar og allra þeirra stærstu verkalýðsfélaga, sem úrslitaþýðingu hafa í átök- um við atvinnurekendavaldið og ríkisstjórn þess. Orsakanna til þess að hin nýja forusta vinstri manna hlaut ekki meirihluta á þinginu, í samræmi við raunverulegt traust sitt hjá meðlimum samtakanna um allt land, er m. a. að leita í því, að afturhaldinu tókst með tak- markalausum yfirgangi, hótunum og klækjum, að beygja ýmsa þá þingfulltrúa, sem kosnir voru: af stéttarfélögum sínum sem stuðn- ingsmenn vinstra samstarfs. Þeim harmsögulega þætti Alþýðusam- bandsþingsins verða ekki gerð skil að þessu sinni. Sú prófraun hlaut að verða hlutskipti margra þingfulltrúa að verða að gera upp við sig, hvort þéir mætu meira trúnað sinn við verkalýðssamtök- (Framhald á 6. síðu). Æskan á vcrði eitir rússncsk kvikmynd, sem MÍR sýnir næstk. sunnudag í Ás- arði, sbr. augl. í blaðinu í dag. Myndin er mjög stórfengleg og 'ýsir lífsbaráttu sovétæskunnar regn innrásarherjum nazista. — Fjölmennið á sýninguna. Munið Þjóðvilja- \ happdrættið j Dregið verður 4. desember. [ Þeir, sem hafa blokkið til sölu, j eru vinsaml. beðnir að gera : skil svo fljótt sem þeim er : unnt. .....MIIIIIIIIIUMUUHHiMUIMIMUMUmiUUiniHHn ÁlMMMIMMIIIIIMIIIIIIIMIIMMMI

x

Verkamaðurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Verkamaðurinn
https://timarit.is/publication/215

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.