Verkamaðurinn - 26.11.1954, Síða 3
4
VERKAMAÐURINN
Föstudaginn 26. nóv. 1954
Leikfélag Akureyrar:
Meyjaske m m a n
Leikstjóri: Ágúst J. Kvaran, tónstjóri:
Árni Ingimundarson
Akureyri
þessa bæjar hafa akureyrskir
leik- og söngkraftar sett á svið
óperettu. Það er hin þekkta og
vinsæla Meyjaskemma, óperetta
í þremur þáttum, með lögum eftir
ástvin allra laga- og ljóðaunn-
enda, Franz Schubert.
Það þarf vissulega mikla bjart-
sýni og áræði til að ráðast í slíkt
fyrirtæki sem óperettusýningu,
þar sem þetta er fyrsta tilraunin
hér í þá átt og ber þar einkum til
vþndi leikstjóra og tónstjóra á
vali starfskrafta til slíks listforms,
sem byggist öllu meir á söng en
leik. Auk þess er þetta lang fyrir-
ferðarmesta og dýrasta sýning,
sem L. A. hefur ráðist í um dag-
ana, bæði hvað leikendafjölda,
búninga og leiksviðsútbúnað all-
an snertir. Það vakti að vonum
mikla eftirvæntingu í bænum
þegar það kvisaðist að L. A. væri
með óperettu á prjómmum, og
mér er ekki grunlaust um, að
ýmsir hafi verið svartsýnir í þeim
efnum, einkum þó með tilliti til
hljómsveitarinnar — því að
hvernig er hægt að færa upp
óperettu án hljómsveitar, spyrja
menn. Það er kapítuli, sem eg
kem að síðar.
Það lætur að líkum að leik-
stjórinn, hr. Ágúst J. Kvaran,
hefur með þessu tekizt á hendur
mikið og vandasamt starf, að
velja úr hinum sundurleita hópi
áhugasöngvara og leikara okkar
Akureyringa og gera úr honum
eina samfellda heild, brjóta ísinn
og sviðsetja óperettu í fyrsta sinn
í sögu leiklistarinnar á Akureyri;
en það er merkisviðburður, sem
verður lengi minnzt hér í bænum
og á vonandi eftir að marka tíma-
mót, því að eg trúi ekki öðru en á
eftir komi fleiri óperettusýningar,
þegar svona glæsilega er af stað
farið.
AJls eru hlutverkin í Meyja
skemmunni 19, en aðalhlutverkin
eru í höndum Jóhanns Konráðs-
sonar, sem leikur tónskáldið
Franz Schubert, Jóhanns Og-
mundssonar, sem leikur Franz
Schober barón og skáld, Árna
Jónssonar, sem leikur Christian
Tschöll kgl. hirðglermeistara, og
svo Bjargar Baldvinsdóttur, sem
leikur eina af meyjunum, dóttur
Tschöll gamla.
Jóhann Konráðsson er algjör
lega nýr gestur á leikpallinum,
en skilaði hlutverki hins ófram-
færna og hlédræga Schuberts
betur en hægt var að heimta af
byrjanda í leiklist, en á söng Jó-
hanns var enginn byrjandabragur
og naut hinn lýriski og blæfagri
tenor hans sín sérstaklega vel í
þessu hlutverki.
Leikur Jóhanns Ögmundssonar
og söngur var í alla staði öruggur
og var sýningunni mikill styrkur
að jafn senu- og söngvönum
manni, en röddin er alltaf ofur-
lítið klemmd hjá Jóhanni og
þyrfti að opna sig betur; að öðru
leyti er hún björt og falleg.
Frammistaða Bjargar Baldvins-
dóttur var eins og vænta mátti
með ágætum. Björg er löngu bú
in að sýna það, að hún býr yfir
miklum hæfileikum sem leikkona
og brást heldur ekki í þetta sinn.
Það er eftirtektarvert um Björgu,
að hún er í stöðugri framför og
vex með hverju nýju hlutverki,
sem henni er fengið. Rödd hennar
er ekki ýkjamikil, en blæfögur og
ávallt beitt af smekkvísi og með-
fæddri músík-kennd.
Og þá er það Árni Jónsson. Eg
átti alltaf von á miklu af Áma —
en ekki svona miklu! Leikur hans
allur var með hinum mestu ágæt-
um; mig langar til að segja full-
kominn. Látæði hans eða svip-
brigðum (mimik) skeikaði
hvergi. Honum tókst hreint og
beint snilldarlega að sýna hinn
góða, grunnhyggna heimilisföður
og hjartamenntaða Vínarbúa
nítjándu aldarinnar, og eg held að
fáir, sem sáu Tschöll gamla
höndum Áma Jónssonar undir
lok annars þáttar, gleymi frammi
stöðu hans. Aðeins má Ámi gæta
þess að*leika ekki of sterkt.
Þá lék frú Matthildur Sveins-
dóttir Lúsíu Grísi, hina afbrýði-
sömu og blóðheitu, ítölsku
óperusöngkonu. Leikur hennar
var bæði tilþrifamikill og sann-
færandi. Rödd frúarinnar er bæði
mikil og falleg og það er synd, að
hún skuli ekki hafa notið meiri
skólunar, því að frú Matthildur
hefur bæði raddefni og skap í
ríkum mæli, og það er engan
veginn óhugsandi að hún hefði
sjálf getað orðið óperusöngkona
Vini Schuberts, aðra en Scho-
ber, sem áður er getið, leika þeir
Hermann Stefánsson Moritz v.
Schwind teiknara, Halldór Helga
son Leopold v. Kupelwieser mál-
ara, og - Guðmundur Gunnarsson
Joh. Michael Vogl kgl. hirðóperu-
söngvara. Öll voru þessi hlutverk
lýtalaust af hendi leyst og söngur
þeirra þrímenninganna hressileg-
ur og skemmtilegur, sem vænta
mátti af svo góðum raddmönnum.
Vignir Gumundsson lék þarna
Scharntorff greifa. Hlutverkið er
lítið og reyndi ekki verulega
Vigni í þetta skipti. Maríu
Tschöll lék frú Sigríður Pálína
Jónsdóttir. Vakti rödd frúarinnar
og söngur allur — þó lítið væri
hlutverkið — verðskuldaða hrifn
ingu leikhússgesta. Yngri dætur
Tschöll gamla, þessar í skemm-
unni, léku þær ungfrú Brynhild
ur Steingrímsdóttir Hildu, og
Helga Alfreðsdóttir Heiðu. Hafa
þær báðar laglega rödd og fóru
égætlega með hlutverk sín. Hina
hamingjusömu tengdasyni léku
þeir Guðmundur Stefánsson
Andreas Bnmeder söðlasmið, og
Vilhjálmur Árnason Ferdinand
Binder póstafgreiðslumann.Hvort
tveggja smáhlutverk — þó und
arlegt megi virðast — en mis
fellulaust leikin. Guðmundur
Ágústsson lék Stjána veitinga
dreng, mjög lítið hlutverk, en
Guðmundur sýndi, þó ungur
væri, að lítil hlutverk má gera
eftirminnileg. Það má mikið vera
ef þama er ekki í uppsiglingu
góður leikari. Húsráðskonuna lék
Matthildur Olgeirsdóttir og gerði
því hlutverki ágæt skil. María
Sigurðardóttir lék herbergis-
þernu hjá Grísí og Bára Björg-
vinsdóttir þernu hjá Tschöll
gamla.
Hermann Stefánsson æfði dans-
ana og eru þeir mikil prýði í sýn-
ingunni.
Haraldur Sigurðsson lék Now-
otny leynilögreglumann með
mestu ágætum.
Árni Ingimundarson hafði á
hendi söngstjórn og hefur farizt
það eins og vænta mátti vel úr
hendi, þótt skiptar skoðanir geti
verið um meðferð einstakra laga,
t. d. hraða.
Leiktjöld málaði Þorgeir PálS'
son eftir teikningum frá Lothar
Grund og eru þau til mikils
augnayndis áhorfendum.
Ljósameistari er Ingvi Hjör-
leifsson og leiksviðsstjóri Oddur
Kristjánsson. Hárgreiðslu annað
ist María Sigurðardóttir. Búninga
aá, sem ekki eru fengnir að láni
frá Rvík, saumuðu þær frk. Mar-
grét Steingrímsdóttir og frú
Karolína Jóhannesdóttir.
Eins og áður er getið hefur
hinn reyndi og mikilhæfi leikhús-
maður, Ágúst J. Kvaran, haft
leikstjórn á hendi, enda leynir sér
ekki hin nærfærna og örugga
handleiðsla hans gegnum allt
verkið. Þessi ljúfi söngva- og
gleðileikur náði slíkum tökum á
áheyrendum, að hvert andlit
ljómaði að lokinni sýningu og
ætlaði fagnaðarlátunum aldrei að
linna.
Undirleikurinn var ágætlega af
hendi leystur, en hann annaðist
frú Soffía Guðmundsdóttir píanó-
leikari og Ivan Knudsen, norsk
ur fiðlari, sem kennir hér við
Tónlistarskólann.
Og er eg þá kominn að efni,
sem ekki er hægt að ganga fram
hjá þegar skrifað er um þessi
mál. Það eru hljómsveitarmál
Akureyrar. Hljómsveitarmál Ak-
ureyrar! Hvílík firra, munu
margir segja, og það er von menn
segi það. Þessi okkar bær, Akur-
eyri, sem er annar stærsti bær
landsins og þekktur fyrir mikla
og góða söngkrafta og marga og
stóra kóra, hgnn getur ekki boðið
fram einn fiðlara innan bæjartak-
markanna þegar mikið liggur við.
Þama er alvarlegur brestur
menningarlífi okkar bæjar, og
það sem verra er, okkur hefur
farið aftur á þessu sviði. Það er
vert að rifja það upp í þessu sam
bandi, að fyrir um það bil tuttugu
árum var starfandi hér 13 manna
hljómsveit, sem skipuð var bæði
málmblásturshljóðfærum, klari-
netti, fjórum fiðlum, tveim sell-
óum og kontrabassa. Þessari litlu
hljómsveit (hún þætti ekki lítil
j núna hér í bæ) stjómaði stofn-
andi hennar, Karl O. Runólfsson
tónskáld, og var hún ávöxtur af
sleitulausu og óeigingjörnu starfi
hans hér á þeim árum. Hann var
þá stjórnandi lúðrasveitarinnar,
sem hafði lítils háttar styrk frá
bænum, og því var hægt að njóta
starfskrafta hans og hæfileika
hér. Hlj ómsveitarmál okkar virt-
ust því vera á góðri leið og meira
en draumur einn. Hljómsveit
þessi fór mjög myndarlega af
stað, og lofaði góðu um framtíð-
ina. Eg heyrði tónleika hjá henni
í Nýja-Bíó, þar sem meðal annars
var fluttur fiðludúett eftir J. S.
Bach og kafli úr Paukenschlager.
sinfóníunni eftir J. Haydn með
furðulega góðum árangri. Hvílík
menningarleg lyftistöng hefði
ekki áframhald þessarar starf-
semi orðið tónlistarlífi okkar
kæra bæjar-----og þá leikhúsinu.
Það hefði ekki verið amalegt fyrir
Leikfélag Akureyrar að geta nú
í sambandi við óperettusýningu,
gripið til hljómsveitar með meira
en tuttugu ára starfsreynslu að
báki! — En Adam var ekki lengi
í Paradís. Hin listelsku bæjaryf-
irvöld þessara ára komust fljótt
að þeirri niðurstöðu, að starf-
semi slík sem þessi væri ekki sem
heillavænlegust fyrir bæjarkass-
ann, og með einni handaupprétt-
ingu, sem ekki tók lengri tíma en
sem svaraði einum takti í Pauk-
enschlager-sinfóníunni, stöðvuðu
þau þessa þróun tónlistarmálanna
um áratugi. Og Karl O. Runólfs-
son, sem gjarnan vildi starfa a
Akureyri fyrir þessi mál, var |
sveltur burtu úr bænum af
skammsýnum bæjarfulltrúum,
sem ekki þekktu sinn vitjunar-
tíma í menningarlegu tilliti. Þar
með varð okkar fagridraumurum
hljómsveit og blómstrandi tón-
listarlíf í þessum bæ „á snöggu
augabragði, afskorinn
En nú er aftur ofurlítið að rofa
til. Lúðrasveitin er vakin upp frá
dauðum og nýtur nú aftur styrks
fra bænum — heiður sé núver-
andi bæjaryfirvöldum fyrir það,
og einnig þá rausn að ætla nú á
næstunni að leggja tugi þúsimda
í hljóðfærakaup handa Lúðra-
sveitinni.
Tónlistarskólinn hefur nú aft-
ur á að skipa kennara í fiðlu- og
sellóleik. Það er einmitt þetta,
sem tilfinnanlegastur skortur hef
ur verið á: strokhljóðfærin á móti
Lúðrasveitinni, svo að hægt sé að
gera eitthvað fleira með hana en
stilla henni upp við steinvegg og
láta hana spila marsa, þó að það
sé góðra gjalda vert, svo langt
sem það nær. — Það væri freist-
andi að skrifa langt mál um þetta
efni, en í þetta sinn verður ekki
farið lengra.
Og að lokum þetta: Hafi Leik-
félag Akureyrar, leikstjóri og
leikendur hlýjustu þakkir fyrir
ógleymanlega stund með Schu-
bert og vinum hans.
Jón Eðvarð.
LOGTOK
Eftir kröfu bæjarritarans á Akureyri og að undan-
gengnum úrskurði, verða lögtök látin fara fram á kostn-
að gjaldanda en ábyrgð bæjarsjóðs, að átta dögum liðn-
um frá birtingu þessarar auglýsingar, fyrir ógreiddum
útsvörum til Akureyrarkaupstaðar, gjaldföllnum 1. sept-
ember síðastliðinn.
Akureyri, 20. nóv. 1954.
BÆJARFÓGETINN
HAFIÐ ÞER REYNT
DEXION
SLOTTED ANGLE
Úr því má búa til óteljandi hluti á ódýran og
hagkvæman hátt.
Nefnum sem dæmi:
Húsgrindur — Skilrúm — Geymslurekka. — Stiga —
Tröppur — Vinnupalla — Hliðgrindur — Færibönd —
Vinnuborð — Brúsapalla — Handrið — Fjárréttir.
DEXION
vinklar og hilluplötur fást úr ryðvörðu stáli og aluminium.
DEXION
sparar yður fé og fyrirhöfn.
DEXION
geta allir notað. Klippur, skrúflykill og yðar eigið
hyggjuvit er allt sem þarf.
Söluumboð á Akureyri og nágrenni:
Kaupfélag Eyfirðinga.
Byggingavörudeild.