Verkamaðurinn


Verkamaðurinn - 18.12.1954, Blaðsíða 1

Verkamaðurinn - 18.12.1954, Blaðsíða 1
VERKflmflöiiRinn XXXVII. árg. Akureyri, laugardaginn 18. desember 1954 42. tbl. JÓL 1954 „Mig hefur alltaf langað til að búa til tunglsljós”, sagði konan suðnr í Fjöru — HÚN, sem meitlar, mótar, málar, teiknar, yrkir, semur lög. Úr sieinsteypu. Hún var ekki nema lítil telpa, þeg- ar hún byrjaði að búa til myndir. Fyrstu olíulitina eignaðist hún, þeg- ar hún ferrndist. Brúðir hennar gaf henni þá. Áður hafði hún notað inálduft, sem hún blandaði terpen- tínu, og reif eftir kúnstarinnar regl- um, og þá pentaði hún myndirnar á óbleikt lérelft. Hún fór svona listamannlega að ráði sinu snemraa. Hún byrjaði eins og margir aðrir, sem hafa farið út á sömu braut: "fún fór að teikna og búa sitthvað til næstum því jafnskjótt og hún var búin að fá málið — eða að minnsta kosti ekki seinna en hún lærði að lesa. Nú þykir þetta engin iurðusaga ura fólk, sem er ekkert eðlilegra en að líta listrænt á lifið í kringum sig. Þó er alltaf furðu- kennt og frásagnarvert að varðveita samfleytt þessa lrumstæðu sköpun- arhneigð í hversdagssýsli fullorðins- áranna, við misjöfn skilyrði og and streymi, sem skapast, þegar verald- arþarfir grípa inn í líf fólks eins og hennar. Hún heitir Elísabet, er Geirmunds- dóttir, og býr suður i Fjöru. Þar liefur hún alið allan aldur sinn, er hreinræktaður Innbæingur, fæddist og ólst upp í Aðalstræti 36, í einu þessara litlu elskulegu húsa, sem gera elzta hluta Akureyrar hcill andi. Ég heyrði talað um Elísabetu oft i gamla daga. Sumir sögðu, að hún væri skrýtin að nenna „þessu". ,.011 list er vita gagnslaus," sagði Oscar Wilde í forspjalli að Mynd- inni af Dorian Gray, og hví skyldi þá ekki fólki, scm á innstæðu í Kea og dagpuðar og brauðstritar, sér og slnum til framdráttar, finnast slikt liið sama? Wilde — sá herjans þrjót- ur — varpaði þcssu hins vegar fram eins og þversögn til þess að sann- færa fólk um æðri gildi listar fyrir einstakling og listamanninn sjálfan — kenninguna: Listin fyrir listina. Vér segjum: Listin fyrir fólkið? — Hvað um sagnaritunina, þjóðsög- urnar, þjóðkvæðin, ævintýrin, skreytilistina? Allt runnið frá hjarta fólksins og fyrir fólkið, þjóð- arsálina, andlegur aflgjafi og hugg- un í lífsbaráttunni. Elísabet er óbrotin íslenzk kona, fólkið sjálft, lífið sjálft, lífið al- þýðunnar, húsfreyja að atvinnu, móðir á annasömu heimili. Hún hefur sama og ekkert hreyft sig af blettinum, skroppið suður tvisvar, af því hún neyddist lil þess vegna veikinda. Annars alltaf verið hérna, og alhaf annað veifið verið að fást við þetta, sem henni þótti gaman að, þegar hún var lítil telpa. Henni liði illa aö öðrum kosti: l>að sagði hún mér, þegar ég skrapp eitt kvöldið í heimsókn til hcnnar suður í bæ, j>ar sem hún býr / Aðalstræti 70, til þcss að skyggnast og skoða. Kunningi minn liafði vakið forvitni mína íyrir al- viiru, og mér hafði auk jiess verið í fersku minni myndir af líkneskj- um, sem hún hafði hnoðað í snjó á lóðinni sinni einn snjóþyngsta veturinn hérna um árið, og birtust í einhverju blaðanna hér. „Þrátt fyrir allt, þá finnst mér þctta aðalstarf mitt.“ sagði hún, þegar ég spurði hana um aðstæður hennar til að vinna að hugðarefn- inu. „Ef líður langt á milli þess, sem ég geri þetta, á ég erfiðara með að sinna öðru." í stofunni litlu — þar verður flest þetta eftir hana til — er aragrúi af ýmsu, sem hún heíur gert. Á gólf- inu eru líkön, skorin út í ísienzkt birkitré og mótuð í gibs, og uppi í hillum og skápum eru litlar stand- myndir. A einum vegg er skjiildur bronsaður, mcð upphleyptri mynd, sem hún kallar: Einn sit ég yfir drykkju, og þaðan á alla vegu teikn- ingar og olíu- og vatnslitamyndir. Elísabet býr til litlar brúður á peysufötum — þær eru íslenzkar húsfreyjur, sem skarta þjóðleg- heitunum — og þar í stofunni eru hafgúur með igulker í fang- inu, og þar eru huldukonur, heimskonur, stæltir Adamar, seið- meyjar með gítara, ýmist gerðar úr gibsi eða birki. Innan um allt eru landslagsmyndir — myndir úr Fjör- unni og af Pollinum og húsunum litlu og görðunum, og þar eru líka alls kyns hugmyndir og hvarvetna naktii konulíkamir. Konan í nekt sinni — í fjölbreytileik uppruna síns — meitluð, mótuð, máluð. Garðurinn. Vatnslitamynd. Konumyndirnar kallar Elísabet ýmist Vor eða Ljósþrá eða Gleði í línum eða Huldukonu, og þær heita fleiri nöfnum, ljóðrænum heitum, og bak við húsið í garð- inum er Ljóð til naturinnar, — i steinsteypu. Við gengum út í garð- inn, og í snjónum þarna um kvöld- ið var gaman að horfa á, þegar klæðinu var svipt frá myndinni, og 500 kerta rafmagnsperan lýsti lik- anið upp: Konu með jarðsítt hár slcgið — hún táknar hina líknandi nótt. þar sem hún horfir niður og er að leggja hörid sína á veruna, sem hvílist að fótum hennar með hönd undir kinn og sefur. Yfir kaffinu er mér tíðlitið á lík- önin. Þetta eru ástríðufullar konur i sérstökum linum, sem streymdu Ljóð til næturinnar. upp, reyndu að brjótast út í duld- um ofsa. Kvenlegur líkami hefur alltaf verið listanrönnum óþrjót- andi viðfangsefni í listrænni sköp- un. Klassisku snillingarnir voru alltal við sama heygarðshornið, konuna nakta. Þar mýktin í form- inu og sveigjanleikinn. Einfald- ar, en margvíslegar línur, og fáar fyrirmyndir jafn-nærtækar til þess að þjóna fegurðarskyni og aug- anu og hjartanu, til þess að endur- spegla lífshrifni eða jafnvel söknuð og dýpt tilfinninga á sálrænum fínleik. Þegar ég mér til gamans spurði Elísabetu um frumsmiðar hennar, hváð henni hefði verið tamast að tcikna og mála, þegar hún var barn, sagði hún: „Þegar ég var innari tíu ára ald- urs, voru það alltaf prinsessur. Ég byrjaði alltaf á hárinu. Þær voru allar með topp. Mér fannst stund- um nóg, ef ég gat teiknað hárið og toppinn, því þá sá ég alltaf and- litið." Ég þagði við, hugsaði með mér, að i sál barnsins, litlu telpunnar suður i Fjörunni, hafi prinsessur verið ímynd hins dýrðlegasta, sem til var. Og síðar hafi hafmeyjarnar, huldukonurnar, seiðmeyjarnar kom- ið til skjalanna. Ævintýrin og þjóð- sögurnar innblása tuttugustu aldar konuna ennþá eins og tunglsljós og stjörnubjartur himinn. Það er ekkert óeðlilegt, að mynd- irnar séu rómantískar. Einlægt fólk er alltaf rómantlskt. Það hefur líka heitara hjarta en annað fólk. List- ræn kunnátta og tæknilegar aðferð- ir skipta minnu en þelið á bak við. Elísabet hefur kennt sér sjálf, hún sér þetta sjálf — hún er ekki spillt af forfíneríinu og skólunum og sýndinni — og kannski einmitt þess vegna er tilfinning ekki hemluð af hendinni. Kenndirnar eru frjálsar eins og náttúran sjálf. Kunnáttan hefur án vafa vaxið með árunum við þjálfun á jafn-erfiðn viðfangs- efni eins og að móta tréð og gifsið með kvenlíkamann að fyrirmynd. Eo spurdi hana í þaula og bað hana að sýna mér meira og meira, og hún tók fram stafla af myndum miugra ára undan skáp í stofunm. Þetta voru frumdrættir að líkönum. teikningar fyrir útsaum og fjöl- breytilcgar blýants- og sortubleks- myndir. Mér varð starsýnt á eina þeirra: Sofandi barn, sagði hún mér hún héti, — og aðra, sem heitir Ljáðu mér vangi, og hún sagði mér sögu þeirra beggja. Hver mynd hennar á sina sögu eins og gengur, og þegar það barst í tal, innti ég hana myndar, sem ég hafði rekið augun í i forstofunni framrai, geð- þekkrar vatnslitamyndar, i brúnu, gulu, grænu, ákveðið unninnar, sem mér fannst ólíkt skemmtilegri en flestar oliumyndanna inni i stofunni. Elisabet brá skjótt við og sagði glettnislega og eins og til að snúa mig út af laginu: „Ég þurfti að flýta mér að Ijúka henni á sinum tíma. Ég málaði hana úti, stóð krókloppin niðri i gili í kalsaveðri og mér var farið að verða illt, lá við uppköstum. Maðurinn minn var kominn til að sækja mig og var auk þess alltaf að hotta á mig, beið með bil handa mér uppi á brúninni og orðinn hinn óþolinmóðasti. Myndin ber þess merki. Síðan gerði ég sömu mynd i oliu, og hún er héma i stofunni." Mér til happs var maðurinn hennar, Ágúst, i stofunni, þegar (Framhald á bls. 12) Safandl barn. , Pennateikning.

x

Verkamaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Verkamaðurinn
https://timarit.is/publication/215

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.