Verkamaðurinn


Verkamaðurinn - 18.12.1954, Blaðsíða 5

Verkamaðurinn - 18.12.1954, Blaðsíða 5
 Laugardaginn 18. des. 1954 VERKAMAÐURINN 5 Sr. KRISTJÁN RÓ BERTSSON: Friöur á jörðu (JÓLAHUGLEIÐING) jMí. ,£)ýrð sé Guði i upphœðum, og friður á jörðu með peim mönnum, sem hann hefur velþóknun á.“ (Lúk. 2, 14). Ekki vitum vér hvað fjárhirðarnir voru að hugsa þarna úti á Betlehemsvöllum hina frcegu nótt fyrir nitján og hálfri öld, síðan, og aldrei getum vér með vissu gert oss i hugarlund hvaða augum þeir litu hið þögla myrkur, sem vafðist að þeún eins og voð. Hitt vitum vér eftir frásögn jólaguðsþjallsins, að á þeirri stund, sem Jesús fceddist og engillinn birtist þeim, rofnaði myrkrið og i kringum þá Ijómaði mikil og fögur birta. Þessa nótt kynntust þeir þvi Ijósi, sem siðan hefur ávallt skinið og raunar með ce vaxandi Ijóma. Þessir óbreyttu erfiðismenn heyrðu i birt- unni óma þann söng, sem síðan hefir aldrei þagn- að, „um dýrð Guðs föður, frið á jörð, og föður- ást á barnahjörð.“ Þcssa nótt var hugsjón friðar- ins borin í heiminn. Þrá eftir friði hafði mannkynið þekkt áður, en fastmótaða friðarhugsjón eignaðist mannkynið ekki fyrr en með Kristi. Síðan hefur friðarhug. sjónin átt samleið með mannkyninu og mun eiga unz hún verður að veruleika um siðir. Langt er orðið siðan englarnir sungu fjárhirð- unum sin friðarljóð um nótl. Og langt er siðan su raust þagnaði, er héll þvi fram, að allir menn vœru brceður og œttu að lifa sem brceður, þvi að þeir œttu Guð sjálfan að föður. En eins og nótt- in helga varð fjárhirðunum minnisstæð, hefir boðskapur Krists um Guðsríki og frið á jörð orðið mannkyninu minnisstœður. ............... Mörgum kann að virðast, að lítinn ávöxt hafi þetta borið í mannheimi. Engin kynslóð hefur lifað geigvœnlegri ófrið en kynslóð nútímans. Sjaldan hefur verið meiri vá fyrir dyrum eða ófriðarhœtta heldur en nú. Þótt mikið sé talað og ritað um frið, er eins og friðurinn sé hornreka stórveldahagsmuna og sérgæðingsháttar ríkjandi stefna i heimsmálum. En þrátt fyrir allt þetta, er þó ekki eins mikil ástæða til svartsýni og ætla mætti. Friðarhugsjón Krists hefir smátt og smátt haslað sér völl, svo ekki verður um villzt. Þótt stórveldi heimsins sniðgangi hana eftir mætti, komast þau ekki hjá því að taka tillit til hennar að vissu marki. Yfir- gnæfándi meirihluti mannkynsins þráir frið og setur hugsjón friðar, bræðralags og öryggis öllu ofar. Fram hjá þessum ótviræða vilja verður ckki gengið öllu lengur. Þótt menn geri sér e. t. v. enga grein fyrir þvi hvaðan áhrif þessi eru runn- in, þá er það staðreynd, að hér hefir hugsjón Krists verið það súrdeig sem sýrt hefir hugsana- feril kynslóðanna. Svo máttugt hefir þetta súr- deig verið, að friðurinn liefur aldrei verið elsk-' aður heitar en einmitt nú. Þrátt fyrir allar blóðsúthellingar og mannvíg sðustu áratuga, er það þó vist að aldrei hefur gildi hvers einstaklings verið metið meira en nú. I nafni kristinnar mantigildishugsjónar er nú barizt á mörgum vígstöðvum fyrir auknum mannréttindum og helgi sérhvers mannlífs, gegti örbyrgð, fátækt og hungri, gegn sjúkdómum og slysum. I nafni kristinna frelsis- og brœðralags- hugsjóna er nú unnið um allan heim að jöfnuði milli kynþátta, skilningi milli stétta og gegn fá- fræði, kúgun og órétti. Þótt mennirnir hafi margoft brugðizt kristin- dómnum, hefur kristindómurinn aldrei brugðizt mönnunum. Hnn hefur kennt mönnunum að meta■ það, sem þeim er dýrmætast af öllu. Mannkyninu er ógnað af ófriði og öryggisleysi. þ'essi óvissa ásamt þeirri þenslu og þeim hraða, sem einkennir lifshœtti nútímamanna, allt tekur þetta rnjjög á taugakerfi manna og íþyngir sálar- lífi fjöldans. Ef til vill er á þvi sviði að finna geigvænlegustu hættuna fyrir velferð nútíma- kynslóðarinnar, þótt hún láti lítið yfir sér í fljótu bragði. Allt of margir nútimamenn eru fómar- lömb sinnar eigin taugaveiklunar. í þessu efrii er kristindómsins brýn þörf, þvi að reynzlan sýnir, að heilbrigt trúarlif einstaklingsins er bezta vörn hans gegn gcðrænum og likamlegum sjúkleika. Kristindómurinn hefur sýnt mátt sinn sem friðarboði milli þjóða og einstaklinga. Áhrif hans i því efni fara ört vaxandi. Hann á einnig eftir að sýtia enn betur sinti mikla lækninga- mátt gagnvart öllum meinum mannlegra sálna. Kristin lífsskoðun og trú megnar betur en nokk. uð annað að gefa sannan sálarfrið og frelsi frá ótta. „Verið óhræddir", var kveðja engilsins forð- um til fjárhirðanna. Það er kveðja kristindóms- ins til mannkynsins i dag. Þegar Jesús fæddist varð nóttin björt scm dagur i kringum vöku- mennina á Betlehemsvöllum. Sú birta hefur ekki dofnað og i dag fer hún vaxandi. Enn er nótt. En „hugsjónir rætast, þá mun aftur morgna." í trausti þess skulum vér öll halda GLEÐILEG JÓL. Gleðileg jól! Farsælt nýtt ár! Þökk fyrir viðskiptin á árinu. Bifreiðastöð Akureyrar. Gleðileg jól! Farsælt nýtt ár! Þökk fyrir viðskiptin á árinu. Litla bilastöðin. Gleðileg jól! Farsælt nýtt ár! Þökk fyrir viðskiptin á árinu. Gúmmiviðgerðin, Strandgötu 11. Gleðileg jól! Farsælt nýtt ár! Þökk fyrir viðskiptin á árinu. Sigtiyggur og Eyjólfur gullsmiðir. Gleðileg jól! Farsælt nýtt ár! Þökk fyrir viðskiptin á árinu. Bifreiðastöð Oddeyrar. Gleðileg jól! Farsælt nýtt ár! Þökk fyrir viðskiptin á árinu. Brauðgerð Kr. Jónssonar ir Co. Gleðileg jól! Farsælt nýtt ár! Þökk fyrir viðskiptin á árinu. Byggingavöruverzlun Akureyrar. Gleðileg jól! Farsælt nýtt ár! Þökk fyrir viðskiptin á árinu. Prentverk Odds Bjömssonar h.f. Gleðileg jól! Farsælt nýtt árl Þökk fyrir viðskiptin á árinu. Pétur & Valdimar h.f. Gleðileg jól! Farsælt nýtt ár! Þökk fyrir viðskiptin á árinu. Sépuverksmiðjan Sjöfn. Gleðileg jól! Farsælt nýtt ár! Þökk fyrir viðskiptin á árinu. Verkstæði Magnúsar Árnasonar, Strandgötu 59. Gleðileg jól! Farsælt nýtt ár! Þökk fyrir viðskiptin á árinu. Trésmíðaverkstæðið Skjöldur, Gránufélagsgötu 45. Gleðileg jól! Farsælt nýtt ár! Þökk fyrir viðskiptin á árinu. VALBJÖRK h.f. Gleðileg jól! Farsælt nýtt ár! Þökk fyrir viðskiptin á árinu. DIDDA BAR. Gleðileg jól! Farsælt nýtt ár! Þökk fyrir viðskiptin á árinu. Verzlunin LONDON. Eyþór H. Tómasson. Gleðileg jól! Farsælt nýtt ár! Þökk fyrir viðskiptin á árinu. 'Raftækjavinnustofan Elding s.f. Hafnarstræti 81. >###############/#»»#^»##»#»^»#-^##*#####

x

Verkamaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Verkamaðurinn
https://timarit.is/publication/215

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.