Verkamaðurinn - 20.12.1954, Síða 1
VERKflltlflÐtlRlllH
XXXVII. árg. Akureyri, mánudaginn 20. desember 1954 43. tbl.
VERKAMAÐURINN
árnar öllum
lesendum sínum
árs og friðar.
Leitað eftir 6 milljón króna láni til frystihús-
byggingarinriar
Bæjarstjórn hefur samþykkt bæjarábyrgð
ef til kemur
Hæstlaunuðu embættismennirnir
fá 5500 hróna jólaglaðning, lág-
launamennirnir 300 krónur
Fjárlög voru afgreidd á Alþingi sl. föstudag og var þá ;!
jafnframt gengið frá tillögum stjó.marliðsins um launa- !
uppbætur til opinb; rra starfsmanna og þær samþykktar.
Samkvæmt þeim liækka laun í 1.-3. launaflokki, þ. e. i|
a. s. hæstlaunuðu embættismanrianna um 10%, eða um i
5500 krónur, í 4. flokki um 8%, 5—9 flokki um
bVz, en laun lægstu flokkanna 10.—15. um 3% eða ;
um kr. 300.00.
Eins og sjá má af þessu er reglan sú, að þeir hæstlaun- !
uðu fá langsamlega hæstu uppbæturnar, en láglauna- ii
fólkið smánarbætur, allt að 18 sinnum lægri upphæð |!
en hálaunamennimir. Lýsir þetta ágætlega afstöðu I
stjpómarliðsins til kjaramála almennings. Allt kapp er !Í
lagt á það að auka sem mest misréttið í þjóðfélaginu. !;
A hinn bóginn verður sú kauphækkun, sem hæstlaun- i;
uðu embætismennirnir hafa nú fengið áreiðanlega frem- ;
ur til þess að ýta á eftir verkalýðssamtökunum að rétta i;
hlut sinn, því að engum mun blandast hugur um, að ;!
þörf þeirra fyrir launabætur, sem aðeins hafa um 30 þús. ;!
kr. árstekjur, hlýtur að vera ærin þegar 70 þúsund kr. :
árslaun em bætt svo ríflega.
Undirbúningur hafinn að ritun
sögu Akureyrar
Fyrir síðasta bæjaa'stjómar-
fundi lá erindi frá stjórn ÚtgerS-
arfélags Akureyrar, þar sem fario
var fram á bæjarábyrgð fyrir allt
að 6 millj. króna láni til frysti-
hússbyggingarinnar, en nokkrar
líkur eru taldar á að slíkt lán sé
fáanlegt í Vestur-ýzkalandi, en
Gísli Sigurbjömsson hefur annast
eftirgrennslanir þar að lútandi að
undanförnu. Fáist lán þetta verða
lánskjörin þau að vextir verða
6% og lánstíminn 5 ár. Er aug-
ljóst, að ekki er unnt að reikna
með því að Útgerðarfélagið geti
greitt lánið á svo skömmum tíma
og verður því jafnframt að fá
tryggingu fyrir ihnlendu láni upp
í hluta afborgana og vaxta, þann-
ig að lánstími félagsins verði 10
—15 ár. Setti bæjarstjóm það að
skilyrði fyrir bæjarábyrgðinni að
slikt lán fáist.
Er nú unnið að því að fá loforð
hjá Framkvæmdabankanum fyr-
ir þessu tryggingarláni og telja
Verður togari keyptur
til Ólafsfjarðar
í ráði er að Ólafsfjarðarbær
kaupi togara Vestmannaeyja-
kaupstaðar, Vilborgu Herjólfs-
dóttur, og hefur nefnd manna,
kjörin af bæjarstjóm, dvalið
syðra um skeið til að ganga frá
kaupunum. Talið er að kaupverð
sé 5,7 milljónir.
Áður hafði bæjarútgerðin í
Eyjum selt hinn togara simi og
verður því engin togaraútgerð
þaðan í bráð a. m. k.
Togarinn er fyrst og fremst
keyptur til atvinnubóta í sam-
bandi við frystihúsið í Ólafsfirði,
en atvinnuástand hefur verið þar
mjög bágborið undanfarin ár. Nú
er nær algert atvinnuleysi í Ól-
afsfirði.
íKVIKNUN
Laust fyrir hádegi sl. laugar-
dag var slökkviliðið hvatt að
Verzlun Eyjafirði, en þar hafði
kviknað í rusli í miðstöðvarklefa.
Var mikill eldur í klefanum er
slökkviliðsvarðmenn komu á
vettvang og hefði vafalaust von
bráðar læst sig í þak hússins,
sem er úr timbri, en slökkviliðs-
mönnunum tókst á svipstundu að
kæfa eldinn með háþrýstidælu
sinni. Kemur æ betur í ljós, hve
frábær hin nýju tæki slökkviliðs-
ins eru og hver trygging þau eru
fyrir því að komið verði i veg
fyrir eldsvoða,
forráðamenn Útgerðarfélagsins
góðar horfur á viðunandi úr-
lausn bnnkans, þótt ekki verði
um hana fullyrt að sVo komnu
máli, en fullra úrslita mun
skammt að bíða.
Engin athugun mun enn hafa
farið fram á lánsmöguleikum
beim, sern fyrir hendi eru í Aust-
ur-Þýzkalandi og áður hefur
verið skýrt frá hér í blaðinu, en
nærri liggur að álykta að þeir
hafi mjög ýtt á eftir og átt drjúg-
an þátt í því að málið er komið
það áleiðis, sem nú er orðið.
Eru það hin beztu tíðindi öll-
um Akui'eyringum, ef þessar fyr-
irætlanir takast og lán fæst, sem
nægir til að koma frystihúsinu
upp ásamt öllum búnaði.
Annað viðfangsefni Leikfélags
Akureyrar á þessu leikári verður
bamaleikritið „Hans og Giéta“,
gert eftir samnefndu ævintýri
Grimmsbræðra, af þýzkuin leik-
ritahöfundi, og verður frumsýn-
ing á annan í jólum. Er sýning
barnaleikrits nýjimg í starfsemi
félagsins.
Bamaleikritið er hér sett á svið
af Sigurði Kristjánssyni og mun
hann jafnframt leika eitt af hlut-
verkvmum. Hlutverk eru þannig
skipuð: Bömin í leiknum sýna
Bergþóra Gústafsdóttir og Arnar
Jónsson, en önnur hlutverk
skipa, auk Sigurðar: Jón Ingi-
marsson, Ingibjörg Rist, Guðm.
Gunnarsson, Jón Kristinsson,
Jónína Þorsteinsdóttir, Gréta
Geirsdóttir og Ingibjörg Ófeigs-
dóttir. Lögin í leiknum hefur
Carl Billich útsett, en hljóðfæra-
leikarar verða Jakob Tryggvason
og Ivan Knudsen. Halldór G Ól-
afssón þýddi leikritið, en leik-
tjöldin gerði Lothar Grundt. Eru
þau fengin frá Hafnarfirði, en þar
var leikurinn sýndur í fyrra.
Sýningar um jólin.
Frumsýning verður á annan í
jólum kl. 5 síðdegis, en næstu
sýningar verða 3. og 4. jóladag
kl. 8 á kvöldi. Var ekki hægt að
Svo frjáls vertu móðir
heitir ný félagsbók frá Máli og
menningu. Þessi bók hefur að
geyma 46 kvæði eftir 22 höfunda
og eru þau öll ort á fyrsta áratug
lýðveldisins. Öll varða þau ætt-
jörðina og þjóðfrelsisbaráttu síð-
ustu ára, enda er útgáfa þeirra
helguð tíu ára afmæli lýðveldis-
lns.
Þuriður Friðriksdóttir
látin
Þuríður Friðriksdóttir, for-
raaður Þvottakvennafélagsins
Freyju í Reykjavík, lézt 13. þ.
m,, eg var útíör hennar gerð sl.
fösíudag. Hún var 67 ára að
aldri.
Með Þuríði Friðriksdóttur
er falliu í valinn einn mikil-
liæíasti kvenskörungur Iands-
ins eg frábær foringi í verka-
lýðshreyfingunnL Hún var for
maður stéttarfélags síns allt
frá stofnun þess og til dauða-
dags og tók auk þess mikinn
þátt í verkalýðshreyfingunni
almennt og í starfi Sósíalista-
flokksins og átti sæti í mið-
stjóm hans.
Félagar og vinir Þuríðar
kveðja hana með djúpri virð-
ingu og þökk fyrir störf henn-
ar, samfylgd og forustu.
koma því við að hafa sýningar
fyrr að deginum vegna þess að
leikaramir þurfa að stunda vinnu
sína. Sýningum er lokið vun kl. 10
að kvöldi. Verð aðgöngumiða er
kr. 10 og kr. 15, tölusett sæti. í
Hafnarfirði var verðið kr. 15, öll
sæti Fyrirkomulag á sölu að-
göngumiða verður með sama
hætti og verið hefur að Meyja-
skemmunni. Aðgöngumiðar verða
seldir á afgreiðslu Morgunblaðs-
ins leikdagana kl. 4.30—6 og við
innganginn, ef eitthvað er óselt.
Vilhjálmur Þór banka-
stj. við Landsbankann
Vilhjálmur Þór lét í dag af for-
mennsku Samvinnutrygginga,
með því að hann tekur um ára-
mót við starfi bankastjóra Lands-
bankans. í hans stað var Erlendur
Einarsson kjörinn formaður fé-
lagsins.
Þá samþykkti stjórn Samvinnu-
trygginga að ráða Jón Ólafsson
lögfræðing sem framkvæmda-
stjóra félagsins frá áramótum í
stað Erlendar Einarssonar, sem
þá tekur við starfi forstjóra SÍS.
Jón verður eftir sem áður fram-
kvæmdastjóri líftryggingafélags-
ins Andvöku.
Jafnframt var sett á fót fram-
kvæmdastjórn Samvinnutrygg-
inga, og kosnir í hana, auk fram-
kvæmdastjórans, Bem er sjálf-
kjörinn, þeir Björn Vilmundar-
son, skrifstofustjóri, og Jón Rafn
Guðmundsson, deildarstjóri.
17. desember 1954.
(Fréttatilkynning frá
esamvinputryggingum.)
Nefnd sú, sem kjörin var á sl.
ári til að undirbúa ritun sögu Ak-
ureyrar, hefur nú skilað áliti til
bæjarstjómar og lagt fram frum-
drög að niðurröðun efnis og til-
lögur um nokkra menn, sem
fengnir verði til að rita einstaka
þætti sögunnar.
í tiUögum sínum gerir nefndin
ráð fyrir að rituð verði saga bæj-
arins frá upphafi til ársins 1962,
en þá eru 100 ár liðin frá því að
bærinn fékk kaupstaðarréttindi.
Aðalkaflar ritsins verða: Um-
hverfi Akureyrar, Saga jarðanna,
Bæjarstjórn felldi að
liætta áfengisveitingura
Á síðasta bæjarstjórnarfundi
fluttu þeir Þorsteinn M. Jónsson
og Marteinn Sigurðsson tillögu
um að bæjarstjóm hætti að veita
áfengi í veizlum sínum meðan
héraðsbann er hér í gildi. Kröfð-
ust tillögumenn nafnakalls um
tillöguna, og greiddu henni eftir-
ialdir bæjarfulltrúar atkvæði.
Þorsteinn M. Jónsson,
Marteinn Sigurðsson,
Tryggvi Helgason,
Bjöm Jónsson.
Á móti voru:
Guðmundur Guðlaugsson,
Jón G. Sólnes,
Jakob Frimannsson,
Sveinn Tómasson,
Jón Þorvaldsson,
Steindór Steindórsson.
Var tillagan því felld með 7 at-
kvæðum gegn 4.
Upphaf kaupstaðarins, Landeign,
skipulag, byggingarsaga, At-
vinnusaga, Heilbrigðismál, Skóla-
mál, Kirkjumál, Menningarmál
og félög, Ýmsir viðburðir og
Stjóm kaupstaðarins. Síðan
verður þessum meginþáttum
verksins skipt í srhærri kafla.
Þeir sagnaritarar, sem nefndin
hefur þegar vahð eru Brynleifur
Tobiasson, sem ritar um forsqgu
Akureyrar og heildarsöguna til
1962, Jónas Rafnar, læknir, sem
ritar um heilbrigðismál, Friðriki J.
Rafnar, sem ritar um Kirkjumál,
Áskell Snorrason, sem ritar um
tónlistarmál, Árni Jónsson, sem
ritar um leiklistarmál, Steindór
Steindórsson, sem ritar um um-
hverfi Akureyrar og sögu jarð-
anna, Ólafur Jónsson, sem ritar
um landbúnað og ræktun og Sig-
laugur Brynleifsson, sem ritar
um Amtsbókasafnið.
Saga Akureyrar verður mikið
verk eins og hún er hugsuð af
sögxmefndinni.
Rafveitukerfi Laxár
verður tengt veitukerfi
Austurlands
Raforkumálastjórn hefur nú
ákveðið tvær nýjar virkjanir,
önnur er virkjun Grímsár fyrir
Austurland, hin er virkjun
Mjólkurár fyrir Vestfirði. Öiku-
verið við Grímsárfossa verður
2400 kg.watta og verður það tengt
Laxárvirkjun með raflínu mHli
Laxár og Egilsstaða.
Ráðgert er að þessum fram-
kvæmdum verði lokið á 2—3 ár-
um, og er kostnaður við þær
áætlaður um 8 Oroillj. króna,
!
„Hans og Gréta64 frumsýnt á 2. dag jóla