Verkamaðurinn


Verkamaðurinn - 06.01.1956, Síða 1

Verkamaðurinn - 06.01.1956, Síða 1
VERKRDIflÐURinn 07 o irr XXXIX. árg. Akureyri, föstudaginn 6. janúar 1956 I. tbl. Kommúnislaflðkkur Frakklands vinnur glæsilegan sigur Fékk nú 151 þingmann í stað 98 áður Afturhaldið skelfingu lostið í þingkosningunum í Frakklandi, sem fóru fram 2. þ. m., unnu franskir kommúnistar stórfelldan sigur. Kosningunum er þó enn ekki lokið í Alsír, en þar á að kjósa 30 þingmenn. Samkvæmt þeim úrslitum, sem þegar eru kunn, fengu kommúnist- ar 151 þingmann, en höfu áður 98. Þá vakti það einnig mikla athygli að „pólitísk" samtök, Poujadeistar, sem neita að greiða skatta, en leggja ekkert jákvætt til mála, hlutu 52 þingsæti, en þessi samtök hafa ekki tekið þátt áður í þing- kosningum. Samkvæmt upplýsingum franska innanríkismálaráðuneytisins fengu 7 stærstu flokkamir eftirfarandi atkvæðamagn: Kommúnistar......... 5,5 millj. Sósialdemokratar..... 3,2 millj. íhaldsmenn ...........3,0 millj. Katólskir ............. 2,3 millj. Gaulleistar ...........0,9 millj.. Kommúnistafl. er því langsterk- asti flokkurinn. Bætti hann við sig 480 þús. atkv. og sósialistar 500 þús. atkv. Juku verkalýðsflokkarn- ir þannig atkvæðamagn sitt um 1 millj. Allar líkur benda til þess að hreyfing Poujadeista sé álíka sápu- bóla eins og hreyfing Gaullista, sem springur fyrr en varir. Hreyf- ing ruglaðra smáborgara og auð- borgara, sem hafa meiri áhuga á að elska aurinn sinn en eyða tíma í að hugsa. Það er ekki einungis franska íhaldið, sem er skelfingu lostið, vegna hins glæsilega sigurs komm- únista. I London og Washington ríkir einnig uggur og ótti vegna sigurs kommúnista, og þá er skelf- ingin ekki minnst í aðalstöðvum yfirherstjórnar Atlantshafsbanda- lagsins. Allt er á huldu enn um stjómar- myndun í Frakklandi. En enginn vafi er á því að afturhaldsöflin munu neyta allra ráða til að reyna að hindra að mynduð verði vinstri stjórn, raunhæf vinstri stjórn, með þátttöku kommúnista. Miðstjórn kommúnistaflokksins telur að kosningaúrslitin sýni það greinilega að frönsk alþýða sé al- gjörlega andvig nýlendukúgunar- og afturhaldsstefnu ríkisstjórna síðustu ára og krefjist þess að ný stjórn verði mynduð, sem vinni að framförum, þjóðfélagsumbót- um, frelsi nýlenduþjóðanna og friði. Hefir miðstjómin boðið sósialdemokrötum og öðrum vinstri öflum á þingiaðmyndameð þeim stjóm á þessum grundvelli. Róttæktir ............ 2,9 millj. Poujadeistar ......... 2,4 millj. Aðalfundur Verkamannafélagsins Verður Friðrik efstur? 8. umferð skákmótsins í Hastings lauk í gær. Að lok- inni þeirri umferð voru þeir Friðrik og Kortsnoj efstir með 61/2 vinn. hvor, Ivkoff með 6 og Tajmanoff með 5. Níunda og síðasta umferðin er í dag. Stjórnin kosin einum rómi Nýr Moggi í Reykjavík Ritstjóraskipti urðu hjá „Degi“ nú um áramótin. l.ætur Haukur Snorrason nú af ritstjórn blaðsins og fetar í fótspor Dr. Kristins og Tómasar Árnasonar og flytur til R.víkur. Mun honum ætlað það hlutverk af V Þór og öðrum stór- bröskurum „Framsóknar1' að gera Tímann að Mogga R.vík- ur nr. 2 og mun sú tiltrú byggð á þeirri staðreynd að Hauk hefir tekizt með brauki og bramli (að ógleymdum auglýs- ingamokstri KEA og SÍS í þetta einkablað „FramsóknarflA) að gera „Dag“ að Mogga Akureyrar, svo að gallharðir íhaldsmenn hafa engan mun getað gert á þessum tveim Moggum. Mun V. Þór og öðrum peningasálum „Framsóknarfl.“ þykja nauðsynlegt að efla hægri öflin við „Tímann“, svo að þeir standi betur að vígi í baráttunni við hákarla „Sjálfstæð- isfl.“ um helmingaskiptin á gróðanum af hermanginu og öðru álíka vel fengnu fé. í þessu sambandi er einnig mjög hagkvæmt að fá sem nýjan ritstj. mann, sem er auðmjúkur dýrkandi utanríkis- málastefnu eindregnasta, og starblindustu auðkýfingastjórn- ar heimsins, stjórnar Bandaríkjanna, landsins þar sem sam- vinnustefnan er algjörlega máttlaus. Fráfarandi ritstj. „Dags“ hefir nú ekki einungis gefist upp við að efna það loforð að stöðva flóttann til Suðurnesja og rétta við hlut dreifbýlisins, heldur er hann nú beinlínis orð- inn einn í flóttamannahópnum og á sem ritstj. hins nýja Mogga R.víkur að vinna af alefli að því að efla Reykjavík- urvald beinhákarla Framsóknar og Sjálfstæðisflokksins, og auðvitað á grundvelli hinnar alkunnu helmingaskiptareglu. Að vonum vaknar nú almennt sú spurning: Hvaða „Fram- sóknar“-íhaldsforingi flýr nú næst suður, eftir að hafa svikið öll sín vinstri loforð og þar með samvinnustefnuna. I r##############################################################J Aðalfundur Verkamannafélags Akureyrarkaupstaðar var haldinn í gærkvöldi. Tillögur uppstillinga- nefndar um stjóm og trúnaðar- mannaráð vom samþykktar einum rómi. Er stjórn og trúnaðarmanna- ráð nú þannig skipað: Stjórn. Formaður: Bjöm Jóns- son, varaform.: Þorsteinn Jónat- ansson, ritari: Stefán Aðalsteins- son, gjaldkeri: Torfi Vilhjálmsson, varagjaldk.: Hallgrímur Stefáns- (Framhald á 4. síðu). Félags jsvist Sósíalista- félaganna í Ásgarði í kvöld í kvöld kl. 8,30 verður fyrsta spilakvöld af fjórum, sem sósí- alistafétögin efna til nú í árs- byrjun. Glæsileg verðlaun verða veitt fyrir samanlagðan, hæsta slagaíjölda á öllum kvöldunum og auk þess verð- laun fyrit hvert kvöld. Aðalverðlatmin eru borðbún- aður úr silfri, bókaflokkur Máls og menningar 1955 (irtnb.) og ljóðasafn Jóhannesar úr Kötl- um. Ef eitthvað verður óselt at aðgöngumiðum verða þeir seld- ir við inngangirm í kvöld. — Heimilt er að taka með sér gesti. Mætið stundvíselga. NEFNDIN. | r»######################### Marteinn framfærslu- fulltrúi Á síðasta bæjarstjórnarfundi fór fram kjör framfærslufulltrúa og var Marteinn Sigursson kjörinn með 6 atkvæðum. Hlaut hann stuðning sjálfs sín, Steindórs Steindórssonar og allra fulltrúa íhaldsins. Jón Ingimarsson hlaut 2 atkv. og Axel Jóhannsson 1 atkv. Tveir seðlar voru auðir (St. Reykjalín og Guðm. Guðlaugsson). Fulltrúaráð verkalýðsfélaganna og Leikfélag Akureyrar ætla að starf- rækja leikskóla í sameiningu Að tilhlutan stjórnar Leikfélags Akureyrar og nefndar frd Fulltrúa- rdði verkalýðsfélagannavar tiðinda- mönnum útvarps og blaða skýrt frd þvi í geer, að Leikfélagið og Full- trúardðið hefðu dkveðið að starf- rœkja i sameiningu leikskóla. Innan Leikfélags Akureyrar hef- ur þetta mál verið til umræðu í mörg ár, en málið hefur aðallega strandað hingað til á kostnaðarhlið- inni. En í haust gerðist svo það, að Fulltrúaráð verkalýðsfélaganna til- kynnti, að það hefði í hyggju að gangast fyrir námskeiði í upplestri og framsögn. Bauð Fulltrúaráðið Leikfélagi Akureyrar samstarf í þessu máli, og taldi Leikfél. mjög æskilegt og að öllu leyti hagkvæmt að starfrækja slfkan skóla eða nám- skeið í sameiningu. Niðurstaðan varð þess vegna sú á sameiginlegum fundi fyrrnefndra aðila í fyrradag, að hafizt skyldi handa og auglýst eftir þátttakend- um og að fá Jónas Jónasson fyrir kennara. Gert er ráð fyrir að kenna upplestur, framsögn, leiklist og lát- bragðslist. Væntanlegir nemendur leikskól- ans munu ekki þurfa að greiða nema mjög viðráðanlegt kennslu- gjald. Er þess að vænta, að sem flestir taki þátt 1 námskeiðum leikskólans, en kennslan mun verða á kvöldin, af eðlilegum ástæðum. Hvað býr undir hjali Framsóknar um vinstri stjórn? í sxðastliðnum sex árum ha£a orðið sextán sinnum stjórnarskipti í Frakkiandi. Nýjum ríkisstjórnum hefur verið hnoðað saman jafn- harðan og aðrar hafa oltið úr há- sætinu, vegna megnrar óánægju almennings. Nýjar ríkisstjórnir — en aldrei skipt um stjórnarstefnul Kosningaúrslitin nú í Frakklandi sýna, að almenningur er að verða fullsaddur á sífelldum loforðum nýrra stjórna, sem jafnharðan eru svikin. Hér á Islandi hefur einnig verið mögnuð óánægja um langt skeið með stjórnarfarið, og óánægjan fer nú mjög vaxandi. Ríkisstjórn aftur- haldsins er á góðum vegi með að vinna sér heimsfrægð. Laxness varð heimsfragur, er hann hlaut verð- laun Nóbels, og nafn Friðriks Ól- afssonar er nú þekkt um víða ver- öld eftir afburða afrek hans í Hast- ings. En ríkisstjórn Islands er að verða heimsfræg fyrir óstjóm. Hún hefur sýnt dugnað í því að sóa gjaldeyri þjóðarinnar, og þegar gjaldeyrir er þrotinn, stöðvar hún íiskiskipaflota landsmanna. JÞegar | verkamönnum tekst, eftir langvinnt I verkfall, að bæta lítils háttar kjör ■ sin, í harðri andstöðu við ríkis- ' stjómina, heimta ráðherrarnir 47% ] kauphækkun sjálfirl Þegar þjóðar- ] nauðsyn krefst þess, að togarafloti ] landsmanna sé endurnýjaður og aukinn, svo og önnur fiskiskip, þá hrúgar ríkisstjómin í staðinn bíl- um inn í landið og fyllir nær allar götur Reykjavíkur og annarra bæja. ; Pegar vinnuafl skortir til að fram- ] leiða meira af útflutningsvörum, ]þá skipuleggur ríkisstjórnin vinnu við að byggja herstöð á Suðurnesj- um, svo tryggt sé, að sem flestum landsmönnum verði banað í einu vetfangi, ef heimsstyrjöld skellur á, og þær fáu hræður, sem eftir lifðu, geti hjarað lengri eða skemmri tima við hin mestu harmkvæli. Og þegar rlkisstjórnin óttast að þjóðin uni ekki lengur óstjórn hennar, hótar hún að stofna her, til að halda almenningi í skefjum með vélbyssum og handsprengjum í höndum Heimdallarskríls, svo að braskarar og fjárplógsmenn, kjöltu- börn ríkisstjórnarinnar, geti áfram mergsogið almenning. Svo er nú samt komið, að ríkis- stjórnin mun hafa í hyggju að segja af sér, efna síðan til kosninga, þyrla upp moldviðri fyrir þær, og íáta svo sína sömu flokka mynda nýja ríkisstjórn — án breytinga á stjórnarstefnu. Framsóknarblöðin eru þegar far- in að tala um að þörf sé á því að mynda vinstri stjórn. En það verð- ur, að fenginni reynslu, ekkert mark tekið á þeim skrifum þeirra, nema þau sýni vilja sinn í verki ' með því að mynduð verði raun- ' veruleg vinstri stjórn fyrir kosn- ]ingar. — Og það yrði aldrei nein ] vinstri stjórn, sem mynduð yrði af [ Vilhjálmi Þór og Stefáni Jóhanni, ! handbendum þeirra eða vasaútgáf- ! um. U. M. F. A. minnzt í kvöld efna U. M. S. E. og í. B. A. til kvöldvöku í Samkomuhúsi bæjarins til minningar um að 50 ár eru nú liðin frá því að Ung- mennafélag Akureyrar var stofnað. Á kvöldvökunni verður m. a. frum- sýnd ný kvikmynd, sem var tekin á Landsmóti U. M. F. 1. í sumar. Fulltrúaráð verkalýðsfélaganna hefur ákveðið að halda jólatrés- fagnað fyrir böm í Alþýðuhúsinu sunnudaginn 8. þ. m. kl. 2 e. h. — Aðgöngumiðar seldir á skrifstofu verkalýðsfélaganna kl. 3—5 á laugardag og við innganginn. Hvað er að gerast í flokkshreiðri Sjálfstil. og Jakobs Frím. í skrifstofum Útgerðarfélags Ak.? LAÍJQSBÓKAS’Fn! m 2 0 u 9 s ‘j | ISLAÍ’O^

x

Verkamaðurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verkamaðurinn
https://timarit.is/publication/215

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.