Verkamaðurinn


Verkamaðurinn - 13.01.1956, Síða 1

Verkamaðurinn - 13.01.1956, Síða 1
VERRRlMlRinn r XXXIX. árg. Akureyri, föstudaginn 13. janiíar 1956 2. tbl. Ríkissljórnin reiSubúin aS svíkja í landhelgismálinu Ólafur Thors færðist undan í flæm- ingi þegar hann loksins hleypti kjarki í sig til að svara fyrirspurn í gær, sem Einar Olgeirsson bar fram 1 lok nóvember síðastliðins Margar undanfarnar vikur hafa bQFÍrt um þaS fréttir, m- a, ffá er- lendum blöðum og fréttastofum, aS ríkisstjórn íslands væri aS §emja á laun við Breta um tilslak- anip í landhelgismálinu, Einar Olgeirsson bor í lok s.l. nóvember fram fyrirspurn á AU þingi út af þessu máli, en hinar sannsöglu hetjur, sem ennþá hanga í ráðherrastólunum, kusu heldur að velja þá leið að brjóta landslög en að svara fyrirspurninni eins og þeim var þó skylt samkv. lögum. Loks mannaði Ól. Thors sig upp í þaf í gær aS feyna ag §vara fyrir- spurninni. Lýsti hann þvj yfjr aS ríkisstjórain myndi ekki fallast á að færa inn núverándi landhelgis- línu og ekki semja um hana sem framtíðarlausn íslendinga á land- helgismálunum. Hins vegar, þe&ar hanrt var spurStir aS því, hvort ríkisstjórnin mundi tallast á bráSabirgSalausn á meSan máliS væri í athugun, þá tékkst ráSherrarun ekki til aS svara. Leikur enginn vafi á þvj a§ rík- isstjórnin er að gera leynisamning við Breta um svik í landhelgismál- unum, ajveg eips og húíi samdi á laun við hernámsliðið um að af- henda því Njarðvíkurhöfn, svq að mögujeikaf verði á að tortlma sem flestvm íslendingum, ef Bandarík- in hefja kjarnorkustríð, sem þeir hafa alltaf verið að hóta, sbr. yið- tal bandarjska ptanritíisráðherrans við blaðið Life. Orðrómurinn um nýja stjórn Siðustu daga hefur verið magn- aður orðrómur um að ríkisstjórnin væri í þann veginn að segja af sér og samningar væru í þann veginn að takast um nýja stjóm. Samkv. áreiðanlegum heimild- um munu allir hermangara-ráð- herrapnir standa enn á báðum fót- um sínum í stjórnarráðinu, eða öllu heldur sitja þar, hinir ánægð- ustu, 1 hægindastólunum og harla litið fararsnið sjáanlegt á þeim. Hins vegar munú Framsókpar- menn og krataf §jtthvað hafa verið a3 malla sín á milli að undanfömu um sameiginlegt prógram hugsan- legrar stjórnar. Davlð Ojstrach í Bandaríkjunum Hinn heimskunni sovét-fiðlu- leikari, Davíð Ojstrach, sem margir telja mesta núlifandi fiðlusnilling heimsins, hefur að undanfömu verið á ferðalagi í Bandaríkjunum. Hélt hann fyrstu hljómleikana í CamegieHall íNew Stjórnarflokkarnir hækka rafmagnsverðið Stjóraarflokkarnir eru iðnir við að hækka dýrtíðina. Nýjasta afrek þeirra hér í bænum er hækkun rafmagnsverðsins. Hefur rafmagn til hitunar að næturlagi verið Ný uppfinning Fyrirtæki nokkurt í Bandaríkj- unum hefur fundið upp og er farig að framjeiða belti með nokkurs konar vekjaraklukku, sem fer að hringja þegar eigandinn treður í sig of miklum mat Ríkisstjórnin hefur samið við hernámsliðið um að afhenda því Njarðvíkurhöfn Stjórnin mun einnig ætla að láta herinn hafa Hvalfjörð og fleiri staði Þrátt fyrir alla svardaga ríkisstjórnarinnar er nú svo kom- ið að hún hefur gert samning við hernámsliðið um að af- henda því Njarðvíkurhöfn. Hvað eftir annað hefur ríkisstjórnin neitað því að hún cetlaði að láta hernámsliðinu í té fleiri stöðvar til að stofna lífi sem flestra íslendinga í hættu. Ríkisstjómin gerir þetta emmitt nú, þegar verið er að end- urskipuleggja fyrstu hersveitirnar t hinum nýja þýzka her undir forustu herforingja Hitlers, hinna gömlu átrúnaðar- goða Bjarna Ben. og Dr. Kristins. Hver einasti íslendingur veit að herinn er einungis hér vegna Bandartkjanna sjálfra, og þar vestur frá er talið að ísland sé önnur þý ðingarmesta árásarstöð þeirra utan landa- mæra Bandaríkjanna. Blygðunarleysi ríkisstjórnarinnar á sér engin takmörk. Axlar Björn var smámenni hjá henni. hækkað um 2 aura kw. og til hit- unar að degi til um 4 aura. Enn- fremur hækkar vísitala rafmagns- verðs um 3 stig eða úr 5% upp í 8%. Stjómarflokkamir segja að þetta sé sjálfsagt, því að erlend kol hafi hækkað í verði og olía. Og þar sem olíufélögin hafi grætt nokkrar milljónir að minnsta kosti árlega um langt skeið ,sé ekki nema rétt að Rafveitan reyni að reyta meira sinn sjóð, til að standa strauminn af óstjóm íhaldsflokkanna hér rafveitumálunum frá upphafi æirra hér í bæ. Mun bæjarstjórinn hafa ákveð ið þessa verðhækkun í samráði við kolasalann Sverrir Ragnars og olíu- og kolasalann Jakob Frí- mannsson (sem er í stjórn félags, sem fékk á sig dóm fyrir að hafa haft heldur langa fingur). Bæjarbúar verða að sameinast um að mótmæla þessari rafmagns- hækkun. Aðalfundur Sósíalistafélags Ak. York fyrir troðfullu húsi. Var jessi konsert talinn einn af mestu hljómlistarsigrum, sem New York hefur kynnzt um langt skeið. Er hljómleikunum lauk klöppuðu áheyrendur samfleytt í tíu mínút- ur. Meðal áheyrenda voru t. d. að- alritari Sameinuðu þjóðanna, Dag Hammarskjöld, og fulltrúar margra landa á þingi Sameinuðu þjóðanna. Að loknum hljómleikunum i New York efndi fiðlusnillingurinn til nokkurra hljómleika í Filadelfia og Chicago og víðar. Var aðsókn gífurlega mikil og urðu margir frá að hverfa, og aðgöngumiðarnir seldust upp á mettima. Blöð þar vestur frá hafa farið mjög lofsam- legum orðum um Ojstrach og und- irleikara hans, Jampolskij. r Kvikmyndasýning MIR í sl. desember sýndi Nýja-Bíó hina ágætu sovét-kvikmynd „Lífið í Norðuríshafinu", sem er ein feg- ursta og fróðlegasta kvikmynd, sem sýnd hefur verið hér um langt skeið. Sökum margra áskorana sýnir (Framhald á 4. síðu). Sósíalistafélag Akureyrar hélt aðalfund s.l. sunnudag. Var fund- urinn vel sóttur. í stjórn voru kosin: Þorsteinn Jónatansson, formaður, Jón Ingi- marsson, varaformaður, Guðmund- ur Snorrason, ritari, Sigtryggur Helgason, féhirðir. Meðstjórnend- ur: Tryggvi Helgason, Guðrún Guðvarðardóttir, og Bjöm Jóns- son. Varastjóm: Jakob Árnason, rit- ari, Steingr. Eggertsson, féhirðir, varameðstjórnendur Jón E. Jóns- son, Theodóra Þórðardóttir og Anton Jónsson. Auk aðalfimdarstarfa voru bæj- armál á dagskrá og urðu allmiklar umræður um þau. Á síðastl. ári gengu 24 nýir með- limir í félagið, og er það mesta fjölgun á einu ári frá því að félag- ið var stofnað. Þeir verða að moka sorpinu út úr húsi sínu Hinir kunnu bandarísku blaða- menn, Alsop-bræðurnir, komust svo að orði í mjög athyglisverðri grein nýlega í einu stærsta og út- breiddasta biaði Bandaríkjanna, að báðir þeir flokkar, sem styddu nú- verandi ríkisstjóm ísiands, væru íhaldsflokkar. Það er einkar skemmtilegt fyrir bandarísku dindlana, sem enn þá hanga í ríkisstjórn íslands, að „vinir“ þeirra og húsbændur í Am- eríku skuli ekki geta gert neinn greinarmun á Sjálfstæðisflokknum og Framsóknarflokknum. Hinn síð- arnefndi er að þeirra eigin dómi engu síðar íhaldsflokkur en Sjálf- stæðisflokkurinn. Þetta er laukrétt að því leyti, að nær allir foiystumenn Framsóknar- flokksins hafa gerzt fóstbræður spákaupmanna og braskara og af- ætulýðs Sjálfstæðisflokksins og tek- ið sér þá til fyrirmyndar í hvívetna. Framsóknarflokkurinn má muna sinn fífil fegri. Hann átti eitt sinn hugsjónir og hafði að kjörorði: „allt er betra en íhaldið." Hann átti það til að hafa samstarf við ! verklýðssamtökin í bæjarmálum og < landsmálum, svo sem þegar Ingi- < mar Eydal, fyrrv. ritstjóri Dags, var | kosinn í bæjarstjóm með stuðn- ! ingi verkalýðssamtakanna. Þá gátu ! Framsóknarleiðtogarnir umgengizt ' verkamenn (sem eru yfirleitt flestir ' fyrrverandi bændur eða bænda- synir). Nú eru Framsóknarforkólf- arnir orðnir svo fínir menn, að það er hneisa, að þeirra dómi, að umgangast verkamenn, það er svo sem eitthvað finna að sverjast í !; fóstbræðralag við spákaupmenn og braskara Sjálfstæðisfl. í leynifélög- um frímúrara og oddfellowa, þar sem sameiginlegar hemaðaraðgerð- ir gegn verkalýðssamtökunum eru samþykktar í öllum helztu þjóð- málum og bæjarmálum. Þegar svona er í pottinn búið, verður torvelt fyrir Framsóknar- blöðin að sannfæra menn um, að alvara fylgi skrifum þeirra nú um að „ekki sé hægt að ráða fram úr málum þjóðarbúsins giftusamlega án virkrar þátttöku verkalýðsins í stjórn landsins". Og að „þess vegna sé það óhjákvæmilegt, að verkalýð- urinn verði að fá á næstunni aukna hlutdeild í stjóm landsins". Peningafurstar Framsóknar, sem fitnað hafa á undanförnum árum á kaupfélögunum, SÍS, Olíufélag inu, hermanginu o. fl., eins og púkinn í fjösbásnum, munu seint ganga heilir til samstarfs við verka- lýðssamtökin. Enda japla þeir með mestu ánægju enn á tuggu þeirra Hitlers og Göbbels um „Moskva- vald" og „kommúnistahættu". Meðan blöð Framsóknar temja ' í sér það, mun forustumönnum flokksins ekkert ljúfara né geð- felldara en að sleikja óæðri end- ann á afætulýð Sjálfstæðisflokksins; eins og þeir hafa nú gert að undan förnu um langt skeið. — Það er þeirra gómsætasta jólaterta. Jónas frá Hriflu sagði einu sinni um íhaldsmenn, að þeir kynnu ekki að skammast sín. Svo er nú komið, að forkólfar Framsóknar manna kunna ekki heldur að skammast sin. Vinstri menn i Framsóknarfl, verða því að byrja á því að hreinsa til hjá sér. Þeir verða blátt áfram að moka sorpinu, sem safnazt hef-!; ur fyrir á liðnum árum, út úr bað stofu sinni. Þá fyrst geta þeir vænzt þess að aðrir ihaldsandstæðingar telji alvöru búa að baki skrifum þeirra um að þeir vilji mynda ; raunhæfa vinstri stjóm, stjórn, er ! yrði alger andstæða núverandi rík ! isstjómar. Nýr yfirdýrálæknir Landbúnaðarráðuneytið hefur skipað Pál S. Pálsson í embætti yfirdýralæknis í stað Sig. E. Hlíð- ar, sem lætur af því starfi, sökum aldurs. Páll A. Pálsson er sonur hjónanna Guðrúnar Hannesdóttur | frá Deildartungu og Páls Zóphoní- i assonar, alþingismanns.

x

Verkamaðurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verkamaðurinn
https://timarit.is/publication/215

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.