Verkamaðurinn


Verkamaðurinn - 20.01.1956, Blaðsíða 1

Verkamaðurinn - 20.01.1956, Blaðsíða 1
VERKRltlflÐURltltl XXXIX. árg. Akureyri, föstudaginn 20. janúar 1956 3. tbl. Aflurhaldið slórhækkar útsvörin frá þvf í fyrra 12 millj. 403.500 kr plús 10% vanhaldaálagning Allar breytingatillögur sósíalista felldar samkv. fyrirfram ákveðinni stefnu A fundi bæjarstjómar Akureyr- arkaupstaðar s.l. þriðjudag var samþykkt fjárhagsáætlun fyrir þetta ár. Niðurstöðutölur áætlunarinnar eru 15.375.500.00 kr. Af því eru útsvörin áætluð kr. 12.403.500.00, og er það mikil hækkun frá því í fyrra. Við þetta bætist svo 10 prósent vanhalda- álagning, sem afturhaldið rígheldur sér í. Steind. Steind. bar fram tillögu um að vanhaldaálagningin yrði 5% í stað 10%. Var hún felld með 5 atkv. gegn 4. Þótti það tíðindum sæta að Mart. Sigurðsson, útgef- andi Norðanfara sáluga, fyrrv. Framsóknarmaður og núverandi málaliði hjá Sjálfstæðisfl. (íhald- ið, hemámsflokkurinn, kaus hann fyrir framfærslufulltrúa sinn!) greiddi atkv. gegn till. Steindórs. Breytingartillögur sósíalista voru allar felldar. Er það yfirleitt ófrá- víkjanleg stefna hjá afturhaldinu. Samþykktur var 10 þús. kr. rekstursstyrkur til leikskóla Bama- verndunarfélagsins. Þá samþykkti bæjarstjórnin 5 þús. kr. gjöf til Friðriks Olafssonar sem viðurkenningu á afrekum hans á sviði skáklistarinnar. Sósíalistar höfðu m. a. lagt til að fasteignaskatturinn á íbúðarhús- næði yrði lækkaður þannig að hann yrði aðeins innheimtur með 200% álagi í stað 400%, eins og tíðkast hefur síðan dr. Kristinn, sem nú er blýfastur í segulbandi amerískra herþræla, „rétti“ Akur- eyringum sem vinargjöf áður en hann hljóp suður til að þjóna her- srælunum. Þá var einnig m. a. felld tillaga sósíalista um hækkun á lántöku vegna hlutabréfakaupa í Möl og Sandur s.f. Verður það mál rætt nánar í næsta blaði. Aðalfundur Sjómanna- félags Akureyrar var haldinn 12. þ. m. Stjóm fé- lagsins var öll endurkjörin, en hana skipa þessir menn: Tryggvi Helgason, formaður. Lórenz Halldórsson, varaform. Ólafur Daníelsson, ritari. Jónas Tryggvason gjaldkeri og Jón Halldórsson, meðstjómandi. Varamenn í stjóm félagsins voru kosnir: Sigurður Rósmunds son, Marteinn Sigurólason og Páll Marteinsson. Fundurinn samþykkti, að ár- gjöld félagsmanna skyldu hækka úr kr. 110.00 í kr. 150.00. Tala félagsmanan er nú 190. r Kvikmyndasýning MIR Næstkomandi sunnudag kl. 4 e h. sýnir MÍR rússnesku stór- myndina Orlög Marínu. Myndin er í afga-litum og mjög fallegar senur í henni. Hún fjallar um konu sem vinnur fullnaðarsigur eftir langar og strangar þrengingar. Er myndin mjög spennandi og áhrifamikil. — Hún verður sýnd í Ásgarði (Hafn- arstræti 88). — Öllum heimill að gangur meðan húsrúm leyfir. — Aðgöngumiðarnir kosta aðeins 5 krónur. Mjög siæmar atvinnuhorfur í bænum LA sýnir „Þr já eigin- menn“ til ágóða fyrir orgelsjóð kirkjunnar Leikfélag Akureyrar hefur ákveð- ið að sýna leikinn Þrjá eiginmenn næstk. laugardagskvöld í Sam- komuhúsinu til ágóða fyrir orgel- sjóð Akureyrarkirkju. Hefur félag- ið nú sýnt leikinn 13 sinnum við ágæta aðsókn og átti síðasta sýn- ingin að vera síðastliðið sunnu- dagskvöld, en nú hefur verið ákveðið að sýna leikinn einu sinni enn, eins og fyrr getur, það er n.k. laugardagskvöld, og á allt, sem inn kemur iyrir aðgöngumiða, að renna í orgelsjóð kirkjunnar. Aðgöngumiðar seldir í blaðasöl- unni við Ráðhústorg og við inn- ganginn. Alvarlegt ástand rikir nú í at- vinnumálunum. Á fundi bæjarráðs 5. þ. m. var lagt fram erindi frá Vinnumiðlunarnefnd Akureyrar. Vekur nefndin athygli á því í er- indi sínu, að slæmar horfur séu hvað snertir atvinnu í bænum. Fór nefndin þess á leit við bæjarráð að hafizt yrði handa um að bæta úr atvinnuleysinu með því að láta vinna við verklegar framkvæmdir, sem unnt væri að vinna að yfir veturinn. Árshátíð Verkamanna- félags Akureyrarkaup- staðar og Verkakvenna- félagsins Einingar Ákveðið hefur verið að Verka- kvennafélagið og Verkamannafé- lagið haldi sameiginlega árshátíð í Alþýðuhúsinu laugardaginn 28. þ. m. Enn hefur ekki verið gengið til fulls frá dagskrá samkomunnar, en reynt verður að vanda til henn ar eftir föngum. Verður dagskráin og annað fyrirkomulag nánar aug- lýst í næstu viku. Samþykkti bæjarráð að láta hefja vinnu við holræsagerð í Að- alstræti og í Glerárþorpi. Enn- fremur að leggja vatnslögn í Ása- byggð. Hins vegar munu ekki margir verkamenn hafa orðið feitir af þessari vinnu ennþá. Væri nú mikill munur ef hrað- frystihúsið væri komið í fullan gang. Aðalfundur Skákfélags Akureyrar Skákfélag Akureyrar hélt aðal- fund sinn sJ. mánudag. Form. var kosinn Jón Ingimars- son, ritari Haraldur Ólafsson, gjaldkeri Friðgeir Sigurbjömsson. Áhaldavörður Anton Magnússon og spjaldskrárritari Guðmundur Eiðsson. Varaformaður Júlíus Bogason, vararitari Haraldur Bogason og varagjaldkeri Margeir Steingríms- son. Gert er ráð fyrir að félagið tefli bráðlega símskák við Taflfélag Húsavíkur. Bandaríkin ætla að stórauka framlag sitt til vígbúnaðar í fjárlagafrumvarpi því sem Eis- enhower forseti hefur sent Banda- ríkjaþingi er m. a. gert ráð fyrir því að útgjöldin til vígbúnaðar I verði aukin um allt að milljarð Tékkar buðu vélar og spennistöðv- ar í nýju virkjanirnar með lægstu verði Ákveðið að taka tilboðum þeirra Síðastliðið vor leituðu rafmagns- veitur ríkisins tilboða í vélar, spennistöðvar og fleira efni fyrir þær virkjanir og veitur, sem nú éru í undirbúningi á vegum ríkis- ins samkvæmt 10-ára áætlun rík- isstjórnarinnar í raforkumálum. Fjöldi tilboða barst frá ýmsum löndum. Ákveðið var að kaupa vélarnar og spennistöðvamar í Tékkóslóvakíu. Samkomulag hefur náðst um þessi kaup í öllum aðal- atriðum og gengið verður formlega frá samningum nú á næstunni. Tilboð Tékka vom lægst og er gert ráð fyrir allt að 8 árá greiðslu fresti. Mun verðmæti kaupanna í Tékkóslóvakíu nema 20—-30 millj. kr. Þær virkjanir, sem um er að ræða era í Fossá í Bolungarvík, Mjólkurá í Bjamarfirði og Grímsá á Austf jörðum. dollara. Einkum er gert ráð fyrir að auka framleiðslu á múgmorðs- vopnum, svo sem kjarnorku- og vetnissprengj um. í viðtali við Life, eitt útbreidd- asta blað Bandaríkjanna, sagði Dulles, utanríkisráðherra, að Bandaríkin hefðu þrívegis hótað að útkljá deilumál með kjarnorku- árásum. Þessi ummæli réðherrans hafa ekki aðeins sætt harðri gagnrýni í Bretlandi og Frakklandi, heldur jafnvel einnig í f jölmörgum banda- rískum blöðum. Dulles hefur viðurkennt að um- mælin væru rétt eftir sér höfð og Eisenhower hefur lýst sig sam- þykkan þeim með því að andmæla þeim ekki og lýsa því hins vegar yfir jafnframt að Dulles sé sá bezti utanríkisráðherra, sem hann hafi kynnst FRIÐRIK OG LARSEN. Einvígi Friðriks Ólafssonar og Bents Larsens um skákmeistaratit- il Norðurlanda hófst í R.vík s.l. þriðjudag. 1. skákinni er enn ekki lokið, fór tvívegis í bið. Friðrik vaim 2. skákina. Þriðja skákin er tefld i kvöld. Selur og svikur Síðan um áramóc hefur allur < bátafloti landsmanna verið bund- J Landssamband ísl. útvegs- J manna hefur bannað alla útgerð J sökum ágreinings við rikisstjórnina. J Mikili hluti af togarafiotanum er einnig bundinn. Engin fjárlög hafa verið afgreidd. Rikisstjómin situr og situr aðgerðarlaus. óstjórnin og spillingin í herbúðum stjórnarinn- ar og stjómarflokkanna fer í vöxt dag frá degi. Tjónið af stöðvun bátaflotans nemur um 3 milljónum á dag, og uú eru liðnir 20 dagar frá áramót- um. Ríkisstjómin hefur, með þvi að semja ekki við útgerðarmennina, hreinlega stolið 60 miUjónum af ijóðinni í dýrmætum gjaldeyri. Ef maður brýzt inn, eftir nám i jjófnaði og gripdeildum í amerísk- um kvikmyndum og hasardblöðum, og hnuplar sér nokkrum cigarettu- pökkum og tugum eða hundruð- um króna, er honum refsað. En ráðherrarnir eru látnir ganga laus- ir, þó þeir séu sannanlega, með stöðvun framleiðslunnar, búnir í raun og veru að hnupla mörg hundruð milljónum króna af þjóð inni nú og fyrr. Þegar ríkisstjórnin er spurð um, hverjar tillögur hennar séu í ; vandamálum útgerðarinnar, þá J svara ekki einu sinni ráðherrarnir. 1 Þeir steinþegja, eins og þeir séu 1 málbundnir. En þegar verkamenn j hafa farið fram á lítilsháttar kaup- j hækkanir til að vega ögn upp á móti hinum skipulögðu verðhækk- unum ráðherranna og flokksmanna þeirra, þá ausa þeir illyrðum yfir verkamenn og beita ríkisvaldinu til hins ýtrasta til að reyna að hindra að verkalýðurinn geti rétt ögn við hlut sinn. Og til að kóróna athæfi sitt, heimtuðu svo ráð- herrarnir sjálfir 47% kauphækkun! Á sama tíma og stjórnleysið og ringulreiðin fer vaxandi, vex áhugi ríkisstjórnarinnar fyrir því að selja og svikja sem mest af landinu eða gæðum þess í hendur hemámsliðs- ins eða Breta. Ekkert er hirt um þjóðarhagsmuni. En ráðherramir og gæðingar stjórnarflokkanna keppast hins vegar við að hirða, samkvæmt helmingaskiptareglunni, ágóðann af sölunum og svikunum, Hornsteinar vest- ræns lýðræðis Halldór Kiljan Laxness var í haust sæmdur Nobelsverðlaunun- um fyrir frábær skáldafrek. Skák snillingurinn Friðrik ólafsson vann glæsilegt afrek á skákmótinu í Has- tings. En Englandsdrottning vann hins vegar þáð afrek, að láta undir- tyllur sínar húðstrýkja böm og unglinga á eynni Kýpur, sem Bret- ar stálu fyrir löngu síðan og þrjózkast enn við að skila. Húð- J strýkingin á Kýpur er framin í nafni vestræns lýðræðis, í nafni At lantshafsbandalagsins. Morð þau sem undirtyllur Englandsdrottn ingar fremja daglega í Kenya, Mal akkaskaga og í öðrum þeim lönd' um, sem Bretar hafa stoiið og rænt, eru einnig framin í nafni vestræns iýðræðis. Frakkar leika sömu listir í Norður-Afríku — til að vernda lýðræðið — og Bandaríkin ganga skrefi lengra: Þau hóta, samkvæmt frásögn sjálfs utanríkisráðherrans, Dullesar, að myrða tugi milljóna með atom- og vetnissprengjum, jafnvel að eyða öllu lífi á þessum hnetti — til að bjarga lýðræðinu og frelsinu. Og Eisenhower lýsir yfir, að Dulles sé sá bezti utanrikis ráðherra, sem hann geti hugsað sér. Það sem er verið að reyna að vernda og bjarga með þessum glæpum og glæpsamlegu hótunum, er ekkert annað en peningar og völd gjörspilltrar yfirstéttar. Yfir- ,stéttin ærist, er hún heldur, að peningarnir og völdin séu að renna úr greipum hennar. Hún verður að trylltu, blóðþyrstu óargadýri. Það er þetta dýr, sem veður nú uppi á Kýpur og býr sig undir að rtfa skólabörnin á hol í næsta J J stökki — í nafni Englandsdrottn- ingar, í nafni vestræns lýðræðis.

x

Verkamaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Verkamaðurinn
https://timarit.is/publication/215

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.