Verkamaðurinn - 24.02.1956, Síða 1
VERRRMRinn
XXXIX. árg._Akureyri, föstudaginn 24. febrúar 1956 8. tbl.
Uppreisn í Framsóknarflokknum
Fulltrúaráðið í Reykjavík samþykkir vítur á
þingflokk Framsóknar, og krefjast vinstri
stjórnar fyrir kosningar
Á fundi fulltrúaráðs Framsókn-
arfélaganna í Reykjavík, fyrra
þriðjudag, urðu harðvítug átök
milli vinstri manna og hægri
manna flokksins.
Vinstri menn báru fram þrjár
tillögur.
Fyrsta tillagan var á þá leið að
allir andstöðuílokkar íhaldsins í
bæjarstjórn Reykjavíkur byðu
íram sameiginlega við næstu bæj-
arstjórnarkosnin&ar.
I annarri tillögunni var þess
krafizt að Framsóknarflokkurinn
sliti nú þegar allri samvinnu við
íhaldið og að mynduð yrði vinstri
stjórn á breiðum grundvelli fyrir
kosningar.
Þriðja tillagan var í sambandi
Sýning á bandarískum
landbúnaðarvélum í
Moskva
Samkomulag hefir náðst um það
milli hlutaðeigandi aðila, að sýn-
ing verði haldin á bandarískum
landbúnaðarvélum í Moskva.
Munu þær sennilega verða til sýn-
is á hinni miklu landbúnaðarsýn-
ingu í Moskva, annaðhvort nú í
sumar eða næsta sumar.
við Grænmetisverzlunina, en eins
og alkunnugt er leggur ríkisstjórn-
in feikna áherzlu á að leggja hana
niður og afhenda bröskurum í
Sjálfstæðisfl. og Framsóknarfl.
þær neýzluvörur, sem hún verzlar
með.
Tillagan var á þessa leið:
„Þar sem fulítrúaráð Framsókn-
arfélaganna í Reykjavík ber fullt
traust til Grænmetisverzlunar rík-
isins um vöruvöndun, hóístillingu
verðsáneyzluvörum og rekstur all-
an, óskar það eftir, að hún verði
aukin og eíld með ráðum og dáð.
Skorar fulltrúaráðið eindregið á
þingflokk Framsóknarmanna að
vinna ötullegá að því, að frumvarp
það um aínám Grœnmetisverzlun-
ar ríkisins, sem nú liggur fyrir Al-
þingi, verði fellt eða svæft, sem
allra fyrst.“
Eins og fyrr er sagt urðu um-
ræðurnar mjög harðar og þegar
hægri mennirnir sáu að þeir voru
nær fylgislausir á fundinum lögðu
þeir til að afgreiðslu tillagnanna
yrði frestað. Þegar það var. fellt,
ruku þeir af fundi og skelltu hurð-
um á eftir sér í bræði. í farar-
broddi þessara fóstbræðra íhalds-
ins voru Olafur Jóhannesson pró-
fessor, Guttormur Sigurbjörnsson,
(Framhald á 4. síðu).
Fengu á aðra milljón krónur
út á fisk, sem ekki var til
Sjálfstæðismenn nota Landsbankann eins og
þeir eigi hann sjálfir
„Tfminn" ljóstaði því upp fyrir
nokkru síðan, að Kveldúlfur h.f.
skuldaði um 100 milljónir í Lands-
bankanum. En ekki hefur enn þá
heyrzt, að Vilhjálmur Þór sé farinn
að skammta Ólafi Thors.
En það eru fleiri Sjálfstæðismenn
en Thorsararnir, sem virðast eiga
innangengt í Landsbankann á sama
tíma og flest iðnfyrirtæki til dæmis
eiga í vök að verjast vegna þess, að
þeim er nú synjað í æ ríkara mæli
um lánsfé í Landsbankanum.
1 Reykjavfk er nú altalað, að
frystihúsið í Kópavogi hafi orðið
uppvíst að þvf að fá á aðra milljón
króna lán í Landsbankanum út á
frystan fisk, sem fyrirfannst alls
ekki í frystihúsinu!
Dagblað Sósíalistaflokksins „Þjóð-
viljinn", skýrir svo frá, að blaðið
hafi snúið sér til Landsbankans og
fengið þau svör, að ekki myndi allt
vera með felldu um lántökur frysti-
hússins. Talning hefði m. a. farið
fram á birgðum þess, en embættis-
maður sá, sem blaðið átti tal við,
vildi ekki láta Þjóðviljanum í té
neinar aðrar upplýsingar um þetta
hneykslismál af því að hann væri
eiðsvarinn, hvað snerti allar lán-
veitingar bankans.
Tveir af aðaleigendum frystihúss-
ins 1 Kópavogi eru Oddur Helga-
son og Sigurjón Sigurðsson, báðir
kunnir Sjálfstæðismenn, og kom sá
fyrrnefndi við sögu í hinu fræga
Blöndalsmáli í sambandi við Brand
Brynjólfsson. Hefur mörgum Sjálf-
stæðismanninum verið tamt að fá
íé í Landsbankanum og lána það
svo út með okurvöxtum.
Athyglisvert er það, að bæði
„Dagur“ og „íslendingur“ stein-
þegja í fyrradag um þetta mál.
„Dagur“ kaus heldur að fá sér
þrifabað fjórum sinnum á dag í
bjánalegri klausu um Búlgaríu. En
hæpið er, að þau böð nægi til að
þvo af Framsóknarflokknum allan
þann óþverra, sem hlaðizt hefur
utan á hann í hjónasænginni hjá
Sjálfstæðisflokknum.
Þessi mynd er af skdkmeistaranum Friðrik Ólafssyni og Júlíusi Boga-
syni, skákmeistara Norðurlarids. Þeir gerðu jafntefli. — Ljósm. Edv. Sig.
Júlíus Bogason varð skákmeistari
Norðlendinga
Friðrik Olafsson tefldi sem gestur
og varð efstur
Skák þeirra Friðriks og Júlíusar varð jafntefli
Skákþingi Norðlendinga, er
staðið hefur yfir undanfarið,
lauk í gær. Urðu úrslitin í
meistaraflokki og I. flokki sem
hér segir:
Meistaraflokkur:
Friðrik ólafsson 8'/2 vini
Júlíus Bogason 6 -
Kristinn Jónsson 4i/2 -
Unnsteinn Stefánsson 41/2 -
Þráinn Sigurðsson 41/2 -
Haraldur ólafsson 4 -
Jón Ingimarsson 4 -
Guðmundur Eiðsson 3/2 -
Margeir Steingrímsson 3
Randver Karlessson 2/2 -
I. flokkur:
Tryggvi Kristjánsson 5 vim
Hörður Einarsson 41/2 -
Anton Magnússon 3
Guðmundur Svavarsson 2/2 -
Steinþór Kristjánsson 2/2 -
Jón Guðmundsson 2
Róbert Þórðarson U/2 -
Stjórn Dagsbrúnar sjálfkjörin
Sl. föstudag var útrunninn fram-
boðsfrestur í Verkamannafélaginu
Dagsbrún 1 Reykjavík til stjórnar-
kosninga, sem fram áttu að fara 25.
og 26. þ. m.
Aðeins einn listi kom fram, bor-
inn fram af stjórn og trúnaðar-
mannaráði, og var hann því sjálf-
kjörinn.
í fyrra voru sameiningarmenn
einnig sjálfkjörnir í Dagsbrún.
Treystir afturhaldið sér nú ekki
lengur til að reyna að ná aftur
völdunum í þessu stærsta og öfl-
ugasta verkalýðsfélagi landsins.
Fer hann ril föðurhúsanna?
Sú saga gengur í Rvík að Vil-
hjálmur Þór hafi hótað þvi að
ganga í Sjálfstæðisflokkinn ef
vinstri mennirnir í Framsókn hafi
sig ekki hœga.
Fimm efstu í II. flokki:
Gunnlaugur Guðmundsson 6 vinn.
Halldór Elíasson 6 —
Ari Friðfinnsson 5y2 —
Friðfinnur Friðfinnsson 5'/2 —
Snorri Sigfússon 5 —
f drengjaflokki urðu þessir efstir:
Magnús Ingólfsson, með 8 vinninga
af 9 mögulegum.
Atli Benediktsson 71'2 vinning, og
Þóroddur Hjaltalín 6 vinninga.
Fjöldi áhorfenda sótti Skákþingið og
samtímaskákina í Alþýðuhúsinu, og
mun ekkert skákþing hér áður hafa
vakið jafn mikla athygli.
Tveir menn farast í
bruna á Melrakkasléttu
S. 1. sunnudag varð sá hörmu-
legi atburður að tveir gamlir menn
fórust í eldi, er íbúðarhúsið að
Blikalóni á Melrakkasléttu brann.
Húsfreyjan, sem var ásamt eins
árs barni, í eldhúsi í kjallara húss-
ins, komst rneð naumindum út
með barnið. Gömlu mennirnir
höfðu báðir lagt sig fyrir uppi eftir
hádegið.
Orðsending til meðlima
verkalýðsfélaganna
F undarstj órnarnámskeið
það, sem Fulltrúaráð verka-
lýðsfélaganna gengst fyrir,
hefst n. k. mánudag kl. 21,30
í Verkalýðshúsinu. —. Eru
allir, sem boðað hafa þátt-
töku sína, og aðrir, sem kynnu
að vilja taka þátt í námskeiði
þessu, eru beðnir að mæta þá.
Námskeiðið stendur ca. 4
kvöld og verður ákveðið
fyrsta kvöldið, hvaða daga
aðra það verður. — Þáttöku-
gjald er ekkert.
Svarið við drápsklyfj-
um Gregorystjómar-
innar
Þegar verkamenn mynduðu hin
fyrstu stéttarsamtök sín og báru
fram fyrstu kröfur sínar um bætt
lífskjör, voru svör atvinnurekenda
á þann veg, að hækkað kaupgjald,
styttri vinnuUmi og annað þess
háttar kæmi ekki til greina af
þeirri einföldu ástæðu, að atvinnu-
vegirnir þyldu alls ékki slíkar ó-
sanngjarnar kröfur.
í hvert skipti, sem verkalýðssam-
tökin hafa borið fram kröfur um
kjarabætur eða t|l að rétta við
hlut sinn eftir árásir stjómarvald-
anna á lífskjör þeirra, þá hefur
svar atvinnurekenda og ríkisvalds
ætíð verið: atvinnuvegirnir þola
ekki, að orðið sé við þessum kröf-
um. Ef einhver sannindi kynnu að
hafa leynzt í þessari margendur-
teknu staðhæfingu, þá ættu öll at-
vinnufyrirtæki fyrir Ufandi löngu
að vera í rustum og þá eðlilega
allt mannlíf þurrkað út jafnframt.
í skjóli þessarar rótlausu stað-
■ hæfingar um að atvinnuvegirnir
; ’ þ°li ekki, að verkamenn og verka-
konur fái mannsæmandi laun fyrir
vinnu sína, hefur ríkisvaldið nú
gert ráðstafanir, með lagasetningu
á Alþingi, til þess að leggja nýjar
og stórar álögur á almenning, ai-
veg án tillits til þess, hvort menn
hafa atvinnu, eða hvort menn eru
snauðir eða auðugir.
Ríkisstjórn Bretlands hefur einu-
ig valið þá leið að skerða Ufskjör
ailrar alþýðu en hlífa stórgróða-
íyrirtækjum. Stjórn brezka Alþýðu-
sambandsins hefur tilkynnt, að
verkamenn hljóti að krefjast kaup
hækkana til að vega upp á móli
kjaraskerðingunni. Kjaraskerðingar
brezku ríkisstjórnarinnar eru þó
stórum minni en kjaraskerðing sú,
sem íslenzka ríkisstjómin hefur nú
framkvæmt með lagasetningu sinni
um stórfelldar nefskattahækkanir.
Stjórn Eysteins og ólafs Thors,
stjórn gróðabrallsmannanna, stjóm
fjárplógsmannanna, sem Rannveig,
valkyrja Framsóknar, sagði stríð á
heuuur í gatnia daga, átti völ á
annarri leið. Hún gat m. a. látið
bankana, olíufélögin, skipafélögin,
heildsölufyrirtækin, okrarana og
aðra þess háttar aðila skiia aftur
fé því, sem þessir aðilar hafa rænt
af aimenningi, svo skiptir tugum
milljóna á hverju árí. Við snertum
ekki eitt hár á höfði þessara aðila,
sagði ríkisstjórnin, aimenningi á
að blæðal Og nú fær almenningur
daglega kveðjur frá Gregory-stjórn-
inni.
svarið við kveðjunum hlýtur að
veröa á pá leið að losa sig við
glæpamennina, gera þá algerlega
hættulausa, einangra þá. Alhr and-
stæðtngar Gregory-skattanna verða
að sameinast, i verkalýðsfélögunum
og utan þeirra. Verkalýðsfélögin
verða ekkt einungis að svara hin-
um nýju drápsklyfjum Gregorys
með verkfalii til að knýja fram
úhærra kaup, þaú verða jafnframt
; i að sameina krafta sína pólitískt við
næstu kosningar til Alþingis.
Til helvítis með
Autherine... .1
Ofsóknimar gegn negrastúlkunni
Autherine Lucy, er hefur stundað
nám við háskólann í Alabama i
Bandaríkjunum, sýna greinilega, á
hve traustum fótum lýðræði og
mannúð og mannréttindi standa í
þvi landi, sem telur sig til þess
kjörið að hafa forustuna íyrir „lýð*
ræðisþjóðum heimsins".
Tólf hundruð „hvitir" stúdentar
brenna hinn iliræmda Ku-Klux-
Aian-kross í garðinum fyrir framan
háskólann, í ógnunarskyni við
negrastúlkuna, og hetmta, að hún
verði rekin úr háskólanum. Og U1
þess að undirstrika þessar hótanir,
tóru stúdentarnir í fylkingum og
hrópuðu: ,^ílabama handa hiniim
hvitu! Til helvítis með Autherine!'
Og meðan kynþáttaofsóknimar
em í algleymingi í Bandaríkjun-
um, lætur hin hjartagóða Breta-
drottning, verndari lýðræðisins í
Evrópu, hýða og skjóta konur,
unglinga og skólabörn á Kýpur.
Það hallast svo sem ekki á.