Verkamaðurinn


Verkamaðurinn - 02.03.1956, Blaðsíða 1

Verkamaðurinn - 02.03.1956, Blaðsíða 1
VERKMJMinn XXXIX. árg. Akureyri, föstudaginn 2. marz 1956 9. tbl. Bílsljóralélag Akureyrar mótmælir harðlega hinum skefjalausu álögum ríkissljórnarinnar Lýsir yfir samþykki sínu við tilraunir Alþýðu- sambandsstjórnar til að koma á stjórnmálasam- vinnu um hagsmunamál hinna vinnandi stétta. Aðalfundur Bílstjórafélags Akur- eyrar var haldinn í fyrrakvöld. Samþykktar voru í einu hljóði tillögur trúnaðarmannaráðs um stjórn og trúnaðarráð. / stjórn voru kosnir: Formaður, Höskuldur Helgason, Sigurgeir Sigurðsson, Börn Brynjólfsson, Þormóður Helgason, Jón B. Rögn- valdsson. Trúnaðarmannaráð: Guðjón Njálsson, Ragnar Skjóldal, Friðrik Blöndal og Davíð Kristánsson. — Varamerm: Anton Valdimarsson, Sigurgeir Jónsson, Reynir Vil- helmsson og Friðgeir Valdimars- son. Tjarnar&erðisneínd: Bjarni Krist- insson, Árni Böðvarsson, Björgvin Bjarnason og Reynir Vilhelmsson. Varamenn: Brynjólfur Jónsson og Guðjón Njálsson. Veéaneínd: Ragnar Skjóldal, Sigtryggur Ólafsson og Jón For- berg. Gjaldmælanefnd: Bjarni Jóns- son, Guðjón Njálsson og Júlíus B. Magnússon. Endurskoðendur: Björn Guð- mundsson og Jakob Pálmason. Til vara: Þorsteinn Bogason. Eftirfarandi tillögur voru sam- þykktar með samhljóða atkvœð- um: „Fundur Bílstjórafélafjs Akur- eyrar, haldirm 29. febr. 1956, mót- mælir harðlega þeim skefjalausu álögum, sem lagðar hafa verið á bílstjórastéttina til tekjuöflunar í ríkissjóð, langt fram yfir það, sem aðrar atvinnustéttir hafa orðið að þola. Má þar fyrst netna, að alla varahluti í bifreiðar — að undan- skildum hjólbörðum — verður að kaupa á bátagjaldeyri, bifreiðarnar sjálfar — atvinnutækið — með sérstökum togaraskatti auk ýmsra armarra tolla, benzínið með sér- stökum benzínskatti og nú síðast hafa opinber bifreiðagjöld verið hækkuð um helming og hjólbarðar stórhækkaðir í verði vegna beinna ráðstafana af hálfu ríkisstjórnar- innar. Oían á þetta bætist, að at- virma bílstjórarma hefir beinlínis (Framhald á 4. síðu). Lygarnar um kommúnista dugðu ekki! S.l. laugardag og sunnudag fóru * ® fram stjórnarkosningar i Málara- sveinafélagi Reykjavíkur. Síðan 1950 hafa einingarmenn- irnir í Málarasveinafélaginu verið sjálfkjörnir. En nú fór hið þríeina afturhald á stúfana og krafðis,t alkherjaratkvæðagreiðslu og taldi sér vísan sigur eftir að Mogginn, Tíminn, Alþýðublaðið, Vísir og Frjáls þjóð (aukablað, gefið út af fasistanum Bergi Sigurbjömssyni, með endurteknum Göbbelslygum) höfðu undirbúið jarðveginn ræki- lega með ferlegustu históríum frá Moskva. (Framhald á 4. síðu.) „Ærslabelgur“ Vegna ótal áskorana verður þessi Sovét-kvikmynd sýnd aftur í Ásgarði (Hafnarstr. 88) sunnud. 4. þ. m. kl. 4 e. h. — Myndin er í agfa-liturn og er framúrskarandi skemmtileg, m. a. full af nýstár- legri kímni. Sovétríkjamaðurinn OLEG GONCHARENKO heimsmeistari í skautahl. 1956. Skautamót íslands fer fram á Akureyri á morgun og sunnudag. Fer mótið fram á Flæð' unum sunnan við Brunná og hefst kl. 3 e. h. báða dagana. — Sæta' ferðir verða frá Ferðaskrifstof- unni. Skráðir eru til keppninnar 4 frá Rvík og 9 frá Ak. Frá Rvík verða þeir Kristján Ámason, Þor- steinn Steingrímsson, Jón R. Ein- aruon og Bjöm Ámaaon. Hugulsemi ríkis- { stjórnarinnar Skrifstofa verðgæzlustjóra | hefur látið fara fram athugun á | því hvað hinar nýju skattaálög- | ur rikisstjórnarinnar muni f valda mikilli hækkun á smá- 1 söluverði nokkurra vöruteg- | | unda. Telur skrifstofan, að miðað ; við það verðlag er var, þegar I útreikningamir voru gerðir, og | að öðrum aðstæðum óbreytt- 1 i um, muni hækkun á smásölu- | verðinu verða nálægt því sem | i hér greinir: Rúgmjöl 8.3% | Hveiti 8.8% i Haframjöl 8.1% \ Hrísgrjón 8.3% i Kartöflumjöl 11.3% | j Strásykur 7.1% I | Léreft 12.9% | j Fataefni 11.7% | ! H úsgagnaá klæði 13.2% ! I Kceliskápar og \ eldavélar 6.1% f j Leir- og glervörur 35.8% } } Nýir ávextir 24.8% \ \ Þetta eru aðeins hækkanir í | I fyrstu atrennu, svo munu þess- | j ar hækkanir t. d. hafa í för i I með sér hækkun á vísitölu, i f vísitalan hækkar kaupgjaldið, | i kaupgjaldið hækkar vöruverðið | f og svo koll af kolli áfram i Það veitir svo sem ekki af f | skáldskap um ræður austur í j f Moskva til þess að reyna að f i fela hina frábæru hugulsemi : f rikisstjórnarinnar, sem er mest | I í garð fátækra, stórra fjöl-: : : f skyldna og fátækra gamal- | : menna. i Það er því lífsnauðsyn fyrii | ! stjómarflokkana og kjölturakka f f þeirra, að reyna með lygasög | : um um ræður austur í Moskva, f i að breiða yfir þá staðreynd, at i i ríkisstjómin vildi alls ekki taka f ! svo mikið sem 1 kr. af hinum : f gífurlega okurgróða olíufélag- f ! anna, bankanna, skipafélaganna : f og annara okurfyrirtækja. f í •« iiiiiimMMiiiMiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiMiiuiiiiiiimiiiiiiiini; 8. marz Almennur kvennafundur verður haldinn í Alþýðuhúsinu n.k. fimmtudag, 8. marz, á hinum al- þjóðlega baráttudegi kvenna fyrir friði. Eisenhower verður í kl on Dwight Eisenhower, Banda- ríkjaforseti, hefir tilkynnt að hann muni gefa kost á sér sem forseta efni við kosningarnar í haust, en eins og kunnugt er eiga forseta- kosningar að fara fram í Banda- ríkjunum næstk. nóvember. Eisenhower forseti Banda- ríkjarma. Mikill fögnuður er nú sagður rikja hjá flokksmönnum forsetans, síðan hann tilkynnti að hann væri fús til þess að vera aftur í kjöri. Telja þeir sér nú sigurinn vís- ann i forsetakosningunum. And- stæðingar þeirra, demokratar, eru hins vegar siður en svo vonlausir um að þeim takist að fá sitt for- setaefni kjörið, benda þeir á þá staðreynd, að sjúkdómur Eisen- howers sé þess eðlis að ekki sé verjandi af ábyrgum stjórnmála mönnum að bjóða fram svona veiklaðan mann, sem þar að auki sé mjög aldurhniginn. — Er talið að þessi áróður þeirar geti reynzt republikönum mjög hættulegur. Aðalfundur Skógræktarfél. Ak- ureyrar verður haldinn í íþrótta- húsinu fimmtudaginn 8. marz n.k. kl. 8.30 e. h, H. C. Hansen í heim- sókn til Sovétríkjanna Forsætisráðherra Dana, H. C, Hansen, leiðtogi jafnaðarmanna, lagði af stað í morgun, ásamt föru- neyti, til Sovétríkjanna. Mun hann dveljast þar í boði ráðstjómar- innar um hálfsmánaðarskeið og fara víða. Búizt er við að forsæt- isráðherrann muni meðal annars ræða viðskiptamál við sovét- stjómina, en Danir eru nú mjög aðþrengdir vegna aðgerða Banda- rikjastjórnar, sem hefir m. a. boð- ið mjör til sölu á mun lægra verði en Danir hafa selt og jafnframt hefir Bandaríkjastjóm bannað Dönum að smíða skip fyrir Sovét- ríkin. Vopnið sem dugar gegn skef jalausum álögum Hvert verkalýðsfélagið a£ öðru mótmælir nú hinum gifurlegu skattaálögum ríkisstjórnarinnar og býr sig undir að svara henni og flokkum liennar á þann eina hátt, sem að haldi kemur. Samþykktir aðalfundar Bíl- ; stjórafélags Akureyrar sem birt- ar eru hér í blaðinu i dag, em eitt nýjasta daemið um það, hvernig launþegar og alþýða manna yfirleitt lítur á skattpín- ing ríkisstjómarinnar. Öllum ofbýður hinn skefjalausi ágang- ur ríkisvaldsins, sívaxandi hnupl þess úr vösum einstaklinganna. Vinir íhaldsins í Framsókn og | Alþýðuflokknum hafa um all- langt skeið unnið að þvi að reyna að koma á kosningabanda ; j lagi þessara flokka gegn Sjálf- stæðisflokknum og Sósíalista- flokknum. Þéir segjast ætla að sigra íhaldið með þessu móti. Menn spyrja: Eiga þessir menn ekki einmitt heima á Kleppi? Öllum er augljóst, að ráða- gerðirnar um að sigra ihaldið á j ; þcnnan hátt, er endemis fjar- J stæða og barnaskapur. Enda er' ;; tilgangur vina íhaldsins í Fram- ] sókn og Alþýðuflokknum sann-! ; arlega ekki sá, að sigra íhaldið.; Þeir vita, að þetta fyrirhugaða; ! kosningabandalag mundi aldrei! fá nálægt því meirihluta á þingi.; Að kosningum loknum ætla svo! ; þessir íhaldsvinir að segja við; kjósendur: Úr því að þið gáfuð okkur ekki meirihluta, verðum við að mynda stjórn með íhald- inu. Þetta er sá eini sanni tilgang- ur með fyrirhuguðu kosninga- j! bandalagi Framsóknar og Al- þýðuflokksins. £n það er til leið, sem auðvelt er að fara til að sigra ihaldið. Sú leið er, að allir andstæðingar Sjálfstæðisflokksins sameinist í kosningabandalagi. Alþýðusam- band íslands hefur beitt sér fyrir því að þessi leið verði farin Það eru æ íleiri menn, sem skilja það, að ekki er hægt að stjórna landinu án þess að ríkisstjómin njóti stuðnings hins volduga Al- þýðusambands. Leið sú, sem Alþýðusambands- stjórnin vill fara, er því eina raunhæfa leiðin til að svara skefjalausum skattpíningi ríkis- stjórnarinnar, sem Sjálfstæðiv flokkurinn og hægri menn Fram sóknar hafa slegið skjaldborg um og ætla sér með hjálp hægri krata að lialda áfram eftir næstu kosningar, undir forustu nýrrar skattpíningarstjórnar. Þetta ráðabrugg verður að hindra, og það em verkalýðsfé- iögin, undir fomstu Alþýðusam- bandsins og vegna skeleggrar ! forustu og baráttu Sósíalista ; ilokksins, sem munu ónýta þess- 1 ar niðingslegu og glæpsamlegu j fyrirætlanir afturhaldsmanna í [ Framsókn og Alþýðuflokknum. Menntaskólaleikurinn Síðastliðinn laugardag frum- sýndi Leikfélag Menntaskólans á Akureyri gamanleikinn Æðikoll- urinn eftir Holberg, í þýðingu Jak- obs Benediktssonar, mag. — Leik- stjóri er Jónas Jónasson. Þetta er einn af þessum gömlu dönsku gamanleikjum, þar sem allt snýst um það að koma af stað brellum, misskilningi og trúlofun- arflækjum í sem afkáralegustu formi, en hvergi skírskotað til heilbrigðrar skynsemi eða mann- legra tilfinninga. En hvað um þaí Maður fer þó með nokkurri eftir væntingu að sjá þessa leiksýningti því að hún er sannarlega kærkom in tilbreyting í fábreyttu leiklistai lifi bæjarins og auk þess er allta ánægjulegt að fá að kynnast þv unga fólki, sem væntanlega setu sinn svip á framtiðina. Lejkendurnir eru um tuttugi talsins og er þar skemmst af &< segja, að allir gera þeir hlutverV (Framhald á 4. siðu).

x

Verkamaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Verkamaðurinn
https://timarit.is/publication/215

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.