Verkamaðurinn - 09.03.1956, Side 1
VERKHnuMinn
XXXIX. árg.
Akureyri, fötudaginn 9. marz 1956
Byggingu hraðfrystihússins miðar lötur-
hægl álram
Stjórnarflokkarnir og gæðingar
þeirra hafa eins og áður engan
áhuga fyrir byggingu þess
Á síðastliðnu ári fleygðu þeir hinsvegar 74
millj. kr. i bilainnflutning
Byggingu hraðfrystihússins á
Oddeyrartanga miðar löturhægt
áfram. Má heita að bygging þess
hafi verið stöðvuð um margra
mánaða skeið.
Það var í okt. 1951, sem Sósíal-
istafélag Akureyrar sendi bæjar-
stjórninni erindi, þar sem skorað
var á hana að beita sér fyrir því
að byggt yrði hér í bænum stórt
og fullkomið hraðfrystihús.
í erindinu var m. a. komist svo
að orði:
„í öllum bæjum landsins og
nær öllum sjávarþorpum eru hrað
frystihús, eitt eða fleiri, sem
frysta fisk. Nær þriðji hlutinn af
öllum fiskafla landsmanna er
hraðfrystur til útflutnings, og fer
Aðalfundur Einingar
Verkakvennafélagið Eining hélt
aðalfund 26. f. m,
Stjórnin var endurkjörin, og er
þannig skipuð: Formaður: Elísa-
bet Eiríksdóttir, varaformaður:
Margrét Magnúsdóttir, gjaldkeri:
Vilborg Guðjónsdóttir, ritari:
Guðrún Guðvarðardóttir, með-
stjórnandi: Þórgunnur Sveinsdótt-
ir.
Samþykkt var að hækka ár-
gjaldið upp í kr. 100.00, og að
hækka framlag félagsins til skrif-
stofu verkalýðsfélaganna um kr.
500.00.
sú meðferð aflans vaxandi með
hverju ári.“
Afturhaldsöflin spyrntu við fót-
um eins lengi og þau gátu, eins og
þau hafa raunverulega ætið gert
þegar um hefir verið að ræða ein-
hver þjóðþrifamál. Jakob Frí-
mannsson, kaupfélagsstjóri, hafði
þar einkum forustuna fyrir bæjar-
fulltrúum afturhaldsins.
En vegna harðvítugrar og þraut-
seigrar baráttu sósíalista og verka-
lýðssamtakanna neyddist aftur-
haldið í bæjarstjórninni að lokum
til þess að láta í minni pokann.
í ávarpi, sem stjórn Útgerðar-
félags Akureyringa h.f. sendi bæj-
arbúum seint á árinu 1954, var
m. a. tekið svo til orða:
..... togarar Útgerðarfélags
Akureyringa h.f. hafa orðið um
skeið í haust að flytja afla sinn ó-
unninn á Þýzkalandsmarkað og
selja hann undir kostnaðarverði,
af því einu að hér var ekkert
hraðfrystihús."
Þetta var þungur áfellisdómur
um afglöp hinna „ábyrgu". — Og
svo var nú komið að sjálfur Jakob
Frímannsson varð að skrifa undir
þessa yfirlýsingu.
Drátturinn á byggingu hrað-
frystihússins hefir kostað bæ og
ríki óhemju fé. Verkafólk hér hef-
ir glatað gífurlegum upphæðum
vegna þess að hraðfrystihúsið er
ekki fyrir löngu tekið til starfa.
(Framhald á 4. síðu).
Árshátíð Sósíalistafé-
lags Akureyrar
síðastl. laugardagskvöld var ágæt-
lega sótt og rúmuðu húsakynnin
ekki fleiri samkomugesti. — Var
skemmtunin að öllu leyti hin
ánægjulegasta.
10. tbl.
Hraðskákmót Akur-
eyrar 1956
í gærkvöldi hófst Hraðskákmót
Akureyrar 1956 og var þá tefld
fyrri umferð.
Síðari umferðin verður tefld
næstk. mánudagskvöld. — Þátt-
takendur eru 15.
Skákmótið er í Ásgarði (Hafn-
arstræti 88).
Samkomulag um viðskiptasamn-
inga og víðtæk menningartengsli
milli Danmerkur og Sovétrikjanna
Bulganin og Krústjoff boðið að koma í opin-
bera heimsókn til Danmerkur
Þessi mynd er af inngangi Ungherja-hallarinnar í Tasjkent í Sov-
étlýðveldinu Uzbekistan. — Ferðaskrifstofa Sovétríkjanna, „In-
tourist“, hefir nú gert samninga við ferðaskrifstofur í fjölmörgum
löndum, meðal annars hér á Islandi um ferðalög til Sovétríkjanna.
Eftir fjögurra daga viðræður
H. C. Hansen forsætisráðherra og
Juliusar Bomholt menntamálaráð-
herra Dana við Bulganin forsæt-
isráðherra Sovétríkjanna og aðra
ráðamenn þar austur frá, var und-
irritað í Moskva 6. þ. m. viðtækt
samkomulag.
Gjaldeyrishallæri - og
bilar
Bankastjórinn Vilhjálmur Þór
kvartaði yfir því í harmagráti í út-
varpinu nýlega, að ástandið í
gjaldeyrismálum þjóðarinnar væri
ógnar ískyggilegt.
Kvað hann t. d. hafa verið flutta
inn bíla á s.l. ári fyrir 74 milljónir
kr.
Hverjir réðu þessu? Stjórnar-
flokkamir. Hverjir stjóma Lands-
bankanum? Stjórnarflokkarnir.
Hverjir hafa hindrað árum saman
byggingu hraðfrystihúss á Akur-
eyri og þar með rýrt gjaldeyris-
tekjur þjóðarinnar? Stjórnarflokk-
arnir.
En ýmsir gæðingar og braskarar
stjórnarflokkanna munu hafa
grætt vænar fúlgur á því að flytja
inn bíla — á því hefur Vilhjálmur
Þór vissulega gott vit.
Það skilja allir, nema Lands-
bankastjórnin og ríkisstjómin, að
engin þörf var á þessum brjálæðis-
kennda innflutningi og auk þess
sem gjaldeyri hefir verið sóað á
þennan hátt „hefir atvinna bil-
stjóranna beinlínis verið rýrð með
hinum gífurlega bifreiðainnflutn-
ingi s.l. árs“, eins og segir í álykt-
un aðalfundar Bílstjórafélags Ak-
ureyrar.
Moksturinn á bílum inn í land-
ið var eingöngu framkvæmdur til
þess að braskararnir í stjómar-
flokkunum gætu_ grætt nokkrar
milljónir í viðbót á kostnað þjóð-
arheildarinnar.
Náðist samkomulag um að
samningar skuli hefjast í Kaup-
mannahöfn í næsta mánuði um
verzlunarviðskipti milli Dan-
merkur og Sovétríkjanna, en við-
skipti milli þessara landa hafa leg-
ið niðri um alllangt skeið, sökum
þess að Danir neituðu, samkvæmt
skipunum frá Washington, að
smíða olíuflutningaskip fyrir Sov-
étríkin. í samkomulaginu er tekið
fram að Danir tjái sig fúsa til að
smíða olíuflutningaskip fyrir Sov-
etrikin eða hraðskreið vöruflutn-
ingaskip, ef Rússar kjósi það
fremur.
Sovétstjórnin lofar að rannsaka,
hverjir Danir, sem börðust með
nazistum á stríðsárunum, kunni að
vera í haldi í Sovétríkjunum.
Þá ætla Danir og Rússar að
hafa samvinnu um björgun úr
sjávarháska á Eystrasalti.
Stúdentaskipti verða tekin upp
milli þessara landa með gagn-
kvæmum styrkveitingum. Jafn-
framt verður skipaður danskur
sendikennari við háskólann í
Moskva og sovézkur við háskól-
ann í Kaupmannahöfn og danskir
(Framhald á 4. síðu.)
Aðalfundur Félags
verzlunar- og skrif-
stofufólks
Félag verzlunar- og skrifstofu-
fólks hélt aðalfund sinn 23. f. m.
í stjórn voru kosnir: Jón Samú-
elsson, formaður, Björn Þórðar-
son, ritari, Kolbeinn Helgason,
gjaldkeri, meðstjórnendur: Sigurð-
ur Jónasson og Óli Friðbjarnar-
son.
Á s.l. ári gerði félagið nýja
kaup- og kjarasamninga. — Félag-
ið telur nú 185 meðlimi.
Játningar
1
Síðan þingmenn Framsóknar-
flokksins og ráðherrar tóku það til
bragðs að gerast samábyrgir íhald-
inu um hinar nýju, stórfelldu
skattaálögur, hefur verið ógnar ;
bágt ástand í Framsóknarkotinu.
f'etta hefur m. a. komið glöggt
í ljós í skrifum Framsóknarblað-
anna að undanförnu og í viðræð-
um við Framsóknarmenn. !
í ritstjórnargrein „Dags“ i fyrra-
dag er m. a. svo að orði komizt: ;
„tínahags- og dýrtíðarmálin á ;
iandi hér eru ailtaf á dagskrá og ;
um þau þrefað endalaust, en þó !
án úrlausnar. Allar ráðstafanir eru !
bráðabirgðaráðstafanir. Sannast að
segja er almenningur orðinn sár-
ieióur og margþreyttur á öllum
þessum umræðum og blaðaskrifum
og hugsar og les með sáralitlum !
ahuga."
1 sama blaði er birt ræða (mjög
furðulegur samsetningur og rúgl-
ingslegur) sem V. Þór flutti fyrir
hönd Framkvæmdastjómar Lands-
bankans. Þar segir m. a.:
„Fjárhags- og efnahagsþróun sl.
árs hefir verið mjög óhagstæð, ó-
heppileg og hættuleg.“
Þetta eru athyglisverðar játning-
ar og mikils virði — ef hugur
fylgir þar máli.
i ramsóknarflokkurinn og Sjálf-
stæðisflokkurinn hafa farið með
völdin í þessu landi í sameiningu
um margra ára skeið. Það eru þeir,
sem bera ábyrgðina á þvi að allar
ráðstafanir, sem þeir hafa gert í
efnahags- og dýrtiðarmálunum
hafa verið og eru bráðabirgðaráð-
stafanir — ráðstafanir sem einungis
hafa aukið dýrtíðina og öngþveitið
í efnahagsmálum þjóðarinnar bæði
inn á við og út á við.
Og það er virðingarvert að
„Dagur" skuli viðurkenna að al-
menningur er fyrir löngu ojðinn
þreyttur á lygum og blekkinga-
skrifum stjómarblaðanna um þessi
mál og les þau þar af leiðandi
; nieð sáralitlum áhuga eins og út-
; gefendur „Dags“ vita manna bezt.
| „Fjárhags- og efnahagsþróunin
sl. ár hefir verið mjög óhagstæð,
óheppileg og hættuleg," segir
bankastjórinn bilalausi.
Hverjir eiga sökina? Bankastjór-
inn sjálfur og aðrir ráðamenn í
flokki hans ásamt bröskurum og
fjárplógsmönnunum í Sjálfstæðis-
flokknum, því það eru þessir menn
eða auðsveipir þjónar þeirra, sem
ráða algjörlega yfir innflutningi og
útflutningi þjóðarinnar, ráða í
gjaldeyrismálunum, hafa ríkis-
stjórnina, hafa m. ö. o. öll völdin i
þessu landi, sem nauðsynleg eru
til þess að unnt sé að leiða dýrtið-
ar-, efnahags- og atvinnumálin
farsællega til lykta.
En i stað þess að gera það hafa
stjórnarflokkarnir, forystumenn
þeirra og trúnaðarmenn í æðstu
embættum stjórnað fjárhags- og
; efnahagsmálunum á óhagstæðan,
; óheppilegan og hættulegan hátt,
; eins og bankastjórinn V. Þór játaði
sjálfur í ræðu sinni.
Vangaveltur V. Þór og fram-
!; kvæmdastjórnar bankans um hvað
eigi að gera til að bæta úr þessu
eru hins vegar jafn fraieitar og
óheppilegar og hættulegar eins og
sú endemis vitleysa og sá glæpur
að fleygja 74 milljónum kr. gjald-
eyri til að kaupa ipn bíla á sl. ári.
Tveir ósigrar
Utanríkisráðherra Frakklands, C.
Pineau, lýsti því yfir í byrjun þessa
mánaðar, að franska stjórnin væri
algjörlega andvíg þeirri utanríkis- ?
stefnu, sem Vesturveldin hafa fylgt. 1
Þessi yfirlýsing vakti mikla skelf-
ingu í London og Washington. Um
svipað leyti vék stjórn Jórdaníu
yfirmanni hersins, brezkum hers-
höfðingja, frá starfi. Þessi atburð-
ur olli einnig mikilli skelfingu í
London og Washington.
Báðir þessir örlagariku atburðir
eiga rót sína að rekja tii þess, að
almcnningur verður nú æ andvíg-
ari stríðsstefnu Breta og Bandaríkj-
anna, og eru þeir gífúrlegt áfall
! fyrir London og Washington.
; Bretar hafa raunveruléga tapað
; síðustu fótfestunni i Arabalönd-
; unum. Þeir játa ósigurinn, en
; kenna Dulles um, en segja, að
! Rússar hafi hins vegar metið
ástandið rétt austur þar og hagað
sér eftir þvi
l
.................rfffimj |