Verkamaðurinn - 23.03.1956, Blaðsíða 1
VERKfltnflÐURinn
XXXIX. árg.
Akureyri, föstudaginn 23. marz 1956
12. tbl.
Alþýðusamtökin fagna ákvörðun sljórnar ASl um að
koma á kosningasamlökum vinstri manna
Tilraunir pólitízkra erindreka hægri
klíkanna til þess að spilla samstöðunni
í verkalýðshreyfingunni falla
um sjálfar sig
Um allt land eru nú hafnar um-
ræður í verkalýðsfélögunum um
þá mikilvægu ákvörðun stjómar
Alþýðusambands íslands, að beita
sér fyrir kosningasamtökum allra
vinstri manna, sem saman vilja
standa á stefnugrundvelli alþýðu-
samtakanna. Þær fregnir, sem
þegar hafa borizt af þessum um-
ræðum, benda ótvírætt til þess að
vilji allrar alþýðu manna sé mjög
eindreginn til þess að sameina
fylkingar allra vinstri manna og
skapa alþýðustéttunum sem sterk-
astan hóp málsvara á Alþingi í
komandi kosningum.
Hitt er og sýnt, að íhaldið og
hægri klíkur Alþýðufl. og Fram-
sóknar eru slegnar skelfingu við
einingarvilja verkalýðssamtakanna
og svífast einskis til þess að rugla
dómgreind almennings og sundra
samstöðu verkalýðshreyfingarinn-
ar. Var heldur ekki að vænta ann-
ars af þeirra hálfu. Halda klíkur
þessar að þær geti enn fyrirskip-
að því fólki, sem áður hefur fylgt
flokkum þeirra, hvernig það skuli
haga atkvæðum sínum, jafnt í
verkalýðsfélögunum sem við þing-
kosningar, en þeir munu þegar
hafa orðið þess áþreifanlega varir
Brezkur sjóliði drukn-
ar á Akureyrarpolli
Það slys varð á Akureyrarpolli
sl. miðvikudag að sjóliði af
brezku korvettunni Rattel Snake
drukknaði, er seglbúnum bát frá
skipinu hvolfdi.
Atvik voru þau, að þrír af mat-
sveinum skipsins voru á skemmti-
siglingu í bátnum og hvolfdi hon-
um skyndilega. Annar bátur, vél-
knúinn, frá skipinu var einnig á
skemmtisiglingu austur undir
landi og heyrði ekki hjálparkall
frá skipinu er slysið varð. Létti
því korvettan akkerum og stefndi
að slysstaðnum, en mennirnir þrír
syntu allir í átt til skipsins. Er
skipið nálgaðist hina nauðstöddu
menn stungu fjórir sjóliðar sér í
sjóinn þeim til bjargar og náðu
tveim þeirra heilum heilsu, en
hinn þirðji var ekki með lífs-
marki. Reyndust lífunartilraunir
bæði um borð í skipinu og síðar í
Sjúkrahúsi Akureyrar árangurs-
latuar.
og munu þó síðar verða það enn
betur, að tímarnir eru breyttir. Nú
eru meðlimir verkalýðshreyfing-
arinnar ákveðnir í því að láta ekki
tæta stjórnmálalegt afl sitt, hið
sterkasta í landinu, i pólitískar
frumeindir. Fólkið er að vakna til
fullrar meðvitundar um mátt sinn
og rétt til þess að skapa sér sterka
urslitaaðstöðu á löggjafarþingi
þjóðarinnar og sendir pólitíska er-
indreka íhalds og afturhalds
sneypta til föðurhúsanna.
Málfundafélag jafnaðar-
manna.
Meðal þeirra samtaka, sem þeg-
ar hafa lýst fylgi sínu við kosn-
ingasamtök vinstri manna, er Mál-
fundafélag jafnaðarmanna í Rvík,
sem samþykkti aðild sína að þeim
á mjög fjölmennum fundi s.l.
sunnudag með öllum atkvæðum
gegn þremur, en málfundafélagið
hefur innan sinna vébanda fullan
AlireQ Gíslason, læknir, iorm.
Máliundaiélaés jafnaðarm.
helming af flokksbundnum Al-
þýðuflokksmönnum í Reykjavík.
Fulltrúaráð verkalýðsfélganna
í Reykjavík.
A fjölmennum fundi Fulltrúa-
ráðs verkalýðsfélaganna í Rvík s.l.
mánudag, var samþykkt með yfir-
gnæfandi meirihluta atkvæða
stuðningur við stefnu og ákvörðun
Alþýðusambandsins og áskorun á
verkalýðsfélögin og félaga þeirra
að fylkja sér um kosningasamtök
fólksins og færa þeim glæsilegan
sigur yfir afturhaldi og afætum
þjóðfélagsins.
Síðastl. þriðjudag boðaði stjórn
Hannibal Valdimarsson,
forseti A. S. í.
Samþykkt fundar fulltrúaráðs og
stjórna verkalýðsfélaganna á Akur-
eyri og við Eyjaf jörð sl. þriðjudag
„Fundur verkalýðsfélagsstjórna á Akureyri og
við Eyjafjörð lýsir yfir því, að hann telur stjóm
Alþýðusambands íslands hafa valið rétta leið í
kaupgjaldsbaráttunni eins og nú standa sakir með
því að ráðleggja ekki samningsuppsagnir og nýja
verkfallsbaráttu, heldur leggja á það allt kapp að
verkalýðurinn standi sameinaður í Alþingiskosn-
ingunum í vor, svo að hann eigi sem allra sterkast-
an málsvarða á Alþingi eftir kosningar, þegar
ákveða skal hverjar leiðir verði farnar í atvinnu,
efnahags, og dýrtíðarmálum.
Þess vegna fagnar fundurinn þeirri ákvörðun
Alþýðusambands íslands að koma á fót kosninga-
samtökum allra þeirra vinstri manna, sem saman
vilja standa á grundvelli stefnuyfirlýsingar Al-
þýðusambandsins og lieitir samtökunum fyllsta
stuðningi sínum í þeirri baráttu, sem fram undan
er, til þess að auka kaupmátt launanna án verkfalla,
en tryggja alþýðusamtökunum úrslitavald á Al-
þingi í þeim málum, sem mestu varða hagsmuni
alþýðustéttanna svo sem atvinnumálum og dýr
tíðarmálunum.“
Fulltrúaráðs verkalýðsfélaganna
hér í bænum til fundar með Full-
trúaráðinu og öllum stjómum
verkalýðsfélaganna í bænum og
einnig stjórnum félaganna í ná-
grenninu. Á þeim fundi mætti for-
seti Alþýðusambands Islands,
Hannibal Valdimarsson, og hafði
framsögu um viðhorfin í verka-
lýðsmálunum og um kosningasam-
tök vinstri manna. Rakti hann
ýtarlegri og snjallri ræðu þróun
þessara mála allt frá síðasta Al-
þýðusambandsþingi og til þessa
dags. Lagði hann megináherzlu á
3að að verkalýðssamtökin hefðu
nú aðeins átt tveggja kosta völ til
aess að verja lífskjör sín og fram-
tíð: Annars vegar að leggja út
verkfallsbaráttu nú í vor til þess
að rétta hlut sinn eftir þær árásir,
sem gerðar hafa verið á kjör hans
með samþykkt Alþingis á hinum
geypilegu skatta- og tollaálögum
og síðan e. t. v. aftur með haustinu
er búast mætti við enn freklegri
aðgerðum að óbreyttum aðstæð-
um. Hins vegar að efla aðstöðu al-
aýðusamtakanna á sjálfri löggjaf-
arsamkomunni, til þess að tryggja
að þeim leiðum, að komið verði
veg fyrir síendurteknar vinnudeil-
og verkföll, sem óhjákvæmi-
iega leiddu af endurteknum fjand-
skap ríkisvaldsins í höndum
íhalds og afturhalds. Stjórn Al-
þýðusambandsins hefði valið síð-
ari kostinn að vel yfirveguðu máli
og væri sannfærð um að val henn-
ar væri hið eina rétta.
Að lokinni ræðu Hannibals hóf-
ust fjörugar umræður og töluðu
þeir Jón B. Rögnvaldsson, Björn
Jónsson og Jón Ingimarsson af
hálfu vinstri manna. Er nokkuð
var liðið á umræður kvaddi sér
hljóðs Kolbeinn Helgason, verzl-
unarmaður. Kvað hann alls óþarft
að ræða þessi mál, enda kynni
hann utanbókar allar ræður Hanni
bals Valdimarssonar!! Er hann
hafði flutt þessi snjöllu rök dró
(Fraxnhald á 4. síðu).
Rétta leiðin
Eins og alkunnugt er, lagði mið- !
stjórn Alþýðusambands íslands á i
sl. sumri fram stefnuyfirlýsingu al-
þýðusamtakanna í atvinnumálum ;
og öðrum þjóðmálum. Stefnu yfir-
lýsing þessi var byggð á samþykkt-
um síðasta Alþýðusambandsþings,
er gerðar höfðu verið einróma af
fulltrúum verkalýðsfélaganna um
land allt, án alls tillits til þess,
hvar þeir höfðu skipað sér í póli-
tíska flokka. Stefnuyfirlýsing Al-
þýðusambandsins leggur megin-
áherzlu á alhliða uppbyggingu at-
vinnulífsins í öllum landsfjórð-
ungurn, útrýmingu atvinnuleysis,
stöðvun fólksflóttans úr þremur
landsfjórðungum, heilbrigða verzl-
unarhætti, að aflétt verði okur-
sköttum milliliða, að dýrtfð verði
lækkuð með opinberum ráðstöfun-
um, þar á meðal lækkun húsaleigu,
að náinni samvinnu verði kömið á
milli verkalýðs og bænda, að launa- !
kjör aiþýðu manna verði bætt, svo !
að 8 stunda vinnudagur nægi til 1
góðrar afkomu, og síðast en ekki ]
sízt að hernámssamningnum verði ]
sagt upp og hinn erlendi her lát- ]
inn víkja úr landinu, en vinnuafl- !
inu, sem nú er bundið hernáminu,
verði beint að þjóðnýtum störfum.
Að beinum fyrirmæluin Alþýðu-
sambandsþings sneri stjórn Ai-
þýðusambandsins sér til vinstri
tiokkanna fjögurra og leitaði full-
tingis þeirra til þess að frarokvæma
þessa stfenu. Allir flokkarnir kusu
viðræðunefndir, sem síðan ræddu
við fulltrúa verkalýðssamtakanna.
Þessar viðræður snerust, eins og að
líkum iætur, fyrst og fremst um tvö
meginatriði: Hvort flokkarnir gætu
í höfuðatriðunum fallizt á stefnu
verkalýðssamtakanna og hvort þeir
vildu, ef svo væri, nota vald sitt á
Alþingi til þess að framkvæma
hana.
Niðurstaða þessara viðræðna
varð sú, að allir flokkarnir fjórir
lýstu sig í öllum meginatriðum ]
samþykka stefnuyfirlýsingu Al- ]
þýðusambandsins, en AJþýðuflokk- ]
urinn og Framsókn töldu sér hins !
vegar alit að vanbúuaði að fara þá !
einu leið, sem opin iá, að samein- '
ast Sósíalistaflokknum og Þjóðvam- ;
arflokknum um myndun ríkis- ]
stjómar til þess að hrinda þessari ]
sameiginlegu (að eigin sögn) stefnu
í framkvæmd. Þjóðvarnarfiokkur-
inn hefur tii þessa dags humað
fram af sér að taka skýra afstöðu
til myndunar vinstri stjórnar allra
fjögurra flokkanna og kosið að tví-
stíga eins og áttavilltur umrenn-
ingur.
Staðreyndirnar lágu því þannig
fyrir: Alþýðusamtökin höfðu fund-
ið öruggan grundvöll að sameigin-
legri stefnu fjögurra vinstri flokk-
anna, sem hafa að baki sér 46141
atkvæði á móti 28788 atkv. íhalds-
! ins og yfirgnæfandi meirihluta a
! Alþingi. En foringjar Alþýðu- og
Eramsóknarflokksins höfðu tekið
þann kost að gerast böðlar þessar-
ar samfylkingar, sem orðið gat hin- i
sterkasta og atkvæðamesta í stjórn-
málasögunni. Þeir höfðu valið sér
þann hlut að afneita þannig í verki
þeirri stefnu, sem þeir höfðu lýst
sig fylgjandi í orðum, og tekið ó-
raunhæft atkvæðabrask fram yfir
raunhæfar aðgerðir í þágu alþýðu
éttanna.
Þegar svo var komið, áttu al-
þýðusamtökin tveggja kosta völ.
Annar var sá, að gefast upp fyrir
sundrungarforingjum hægri krata
og Framsóknar og selja þeim og
íhaldinu í hendur sjálfdæmi í mál
efnum alþýðustéttanna á vettvangi
löggjafarsamkomunnar, og hinn sá,
sem valinn hefur verið, að fylkja
öllum vinstri mönnum, sem af full-
um heilindum vilja vinna á þeim
grundvelli, er alþýðusamtökin hafa
lagt, saman, í þeim örlagaríku
kosningum, sem í hönd fara í sum
ar, og skapa þannig fjölmennan
fulltrúahóp á Alþingi, sem hafi
sterka aðstöðu til þess að hafa
hrif og úrslitavald um málefni A1
þýðustéttanna.
Það þarf ekki að fara í neinar
grafgötur um vilja verkalýðssam
takanna og alls almennings til þess
að þjappa sér saman að baki kosn
ingaflokks alþýðusamtakanna. Þær
umsagnir, sem þegar hafa komið
fram frá þeirra hendi, sanna, að
hin rétta leið hefur verið valin
1 f ******»**»**»»**»»'»#<>»»»#»###,