Verkamaðurinn - 06.04.1956, Qupperneq 1
VERKflttlflDURiHIl
XXXIX. árg.
Akureyri, föstudaginn 6. apríl 1956
13. tbl.
ALÞYÐ UBAN DALAGIÐ
- kosningaflokkur alþýðunnar - formlega stofnaður
Miðstjórn flokksins skipuð fjórum Alþýðuflokksmönnum. fjórum Sósíalist-
um og einum utanflokksmanni. - Hannibal Valdimarsson formaður flokksins
Fyrir þremur vikum ákvað
fullskipuð sambandsstjórn Al-
þýðusambands íslands og full-
trúar fjórðungssambandanna að
beita sér fyrir því að mynduð
yrðu kosninasamtök allra þeirra
vinstri manna, er saman vildu
standa á grundvelli stefnuyfirlýs-
ingar Alþýðusambandsins i at-
vinnumálum og öðrum þjóðmál-
um. Eins og alkunnugt er var
þessi ákvörðun tekin eftir að þing-
meirihluti Framsóknarflokksins
hafði algerlega hafnað öllum til-
mælum Alþýðusambandsins um
að mynduð yrði vinstri stjórn,
með þeim meirihluta vinstri flokk
anna, sem fyrir hendi var á Al-
þingi, og ákveðið að stofna til
kosninga á komandi sumri.
Stjórn flokksins.
Síðan þessi ákvörðun var tekin
hefur miðstjórn Alþýðusambands-
ins unnið að því að skipuleggja
samtök vinstri manna, og í fyrra-
dag, 4. apríl, var formlega gengið
frá stofnun kosningaflokks þeirra
og hefur honum verið valið nafnið
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ.
Miðstjórn flokksins skipa þessir menn:
Hannibal Valdimarsson, forseti Alþýðusamb. ísl.
Einar Olgeirsson, alþingismaður.
Alfreð Gíslason, læknir, formaður Málfundafélags
jafnaðarmanna.
Luðvík Jósepsson, alþingismaður.
Sigríður Hannesdóttir, verkakona.
Eðvarð Sigurðsson, varaforseti ASÍ.
Kristján Gíslason, ritstjóri.
Guðmundur Vigfússon, bæjarfulltrúi.
Finnbogi Rútur Valdimarsson, álþingismaður.
Formaður flokksins er Hannibal Valdimarsson, varaformaður
Einar Olgeirsson og ritari Alfreð Gíslason.
Öflugt bandalag.
Það er nú þegar ljóst orðið af
undirtektum verkalýðsfélaganna
og fjölda einstaklinga úr öllum
flokkum víðs vegar um land, að
Alþýðubandalagið verður mjög
öflugur flokkur og stórum líklegri
til þess að sigra íhaldið en
„þriðja afl“ Eysteins og Gylfa. —
Þrátt fyrir það að hægri foringjar
Alþýðufl. og Þjóðvarnar hafa kos-
ið sér vígstöðu gegn alþýðusamtök
unum í komandi kosningum munu
hinir óbreyttu meðlimir þessara
flokka fylgja stefnu sinni og sann-
færingu og veita Alþýðubandalag-
inu brautargengi til þess að verða
úrslitavald á Alþingi, vald sem
ekki verður unnt að sniðganga er
málefni vinnandi manna verða þar
ráðin til lykta.
Ein stefna. Einn flokkur
Ástæðan til þessa er augljós.
Sósíalistafélag Akureyrar
heldur félagsfund í Verkalýðshúsinu n. k.
sunnudag, 8. apríl kl. 2 síðdegis.
Fundarefni:
Stjómmálaviðhorfið
Formaður Sósíalistaflokksins, Einar Olgeirs-
son mætir á fundinum.
Fjölmennið stundvíslega- — Félagsmenn
mega taka með sér gesti.
Stjómin.
Allir hugsandi alþýðumenn eru
eins hugar um það að skipuleg
uppbygging atvinnuveganna, út-
rýming atvinnuleysisins, stöðvun
okurs og óhóflegs milliliðagróða,
stöðvun dýrtíðarinnar, aukin hlut-
deild vinnandi manna í þjóðar-
tekjunum, brottflutningur her-
Hannibal Valdimarsson.
námsliðsins — séu þau mál sem
nú varði öllu að leyst verði af ein-
beittni og hyggindum.
Engum er treystandi til þess að
leysa þessi mál á viðunandi hátt
fyrir alþýðuna nema henni sjálfri
og samtökum, sem hún sjálf
myndar og standa í órjúfandi
tengslum við hana. Alþýðubanda-
lagið er slík samtök. Allir alþýðu-
menn geta staðið saman um stefnu
þess, hvað sem skoðunum þeirra á
öðrum málum, sem minna máli
skipta, líður.
Kosninganefndir og
framboð í öllum
kjördœmum.
Næstu verkefni Alþýðubanda-
lagsins verða þau að myrtda kosn-
inganefndir vinstri manna í öllum
kjördæmum landsins til þess að
undirbúa framboð flokksins og
hafa forustu í kosningabaráttunni
hver á sínum stað. Hafa vinstri
menn í Vestmannaeyjum þegar
myndað sína kosninanefnd og
skipa hana 15 menn úr Fulltrúa-
ráði verkalýðsfélaganna í Eyjum,
menn úr ýmsum stjórnmálaflokk-
um.
Oimur kjördæmi munu fyglja í
kjölfarið næstu daga. Sóknin fyrir
élæsilegum sigri Alþýðubanda-
íagsins er hafin.
Munið kvöldsskemmtun Kven-
félags sósíalista i Ásgarði annað
kvöld, laugardag. Allir sósíalistar
og gestir þeirra velkomnir. — Sjá
auglýsingu í blaðinu í dag.
imimimmmmiimiiiiiimmi
| Vopnaburður í samræmi
við málstaðinn
í langloku í síðasta „Alþýðumanni“ stendur m. a. eftir-
farandi:
„Stuðningur meirihluta stjórnar Alþýðusambands Norð-
urlands var einnig stórfrétt hjá Þjóðviljanum, enda þótt 4
af 5 stjórnarmanna, er á umræddum stjórnarfundi voru, séu
alkunnir yfirlýstir kommúnistar, en hinn 5.: Alþýðuflokks-
maðurinn, lýsti yfir andstöðu við kosningaflokkshugmynd-
ina, en samþykki við mótmælum á skatta- og tollahækkun-
um ríkisstj órnarinnar. Þessu þögðu blöð kommúnista yfir,
því að það hafði ekki áróðursgildi, svo og hinu, að þessum
oskildu atriðum var blandað saman í eina og sömu tillögu! “
Hið sanna um samþykkt miðstjórnar var hins vegar það
að hún var gerð EINRÓMA af öllum stjórnarmönnum.
Alþýðuflokksmaður sá, sem nefndur er í klausunni lýsti
\ því sérstaklega yfir að hann vceri somþykkur ílyktuninni í
\ heild og mundi fylgja henni sem hann og gerði við at-
I kvæðagreiðslu.
Þetta eru allir viðstaddir fundarmenn áreiðanlega tilbúnir
j að staðfesta við hvern sem er og þ. á. m. Alþýðuflokksmað-
| urinn í stjórninni, sem er þekktur drengskaparmaður.
Um málflutning sem þennan verður það eitt sagt, að hann
| er í fullu samræmi við málstaðinn.
fll"""""".IIMIIIIMIIIMMIII|||IIHMIIIIIIIIII"I"MIIMIII"IIIII|IIIHIIIMIIIIIMHIIIHI„HIII||)|II|,||M|||II|M|IMIII||IÍ
Verður hernáminu
aflétt?
Þau miklu og góðu tíðindi hafa <
gerzt, að Alþingi hefur samþykkt 1
viljayfirlýsingu um brottflutning;
Bandarikjahers af íslandi.
Allir íslendingar fagna þessari
samþykkt og um heim allan hefur
hún þótt athyglisvert tímanna tákn.
Vissulega hlýtur að létta yfir hverj-
um frjálsbornum manni, er þau
tíðindi spyrjast, að tveir þeirra
stjórnmálaflokka, sem fyrir fimm
árum leiddu bölvun erlends her-
náms yfir íslenzku þjóðina, leggja
nti alkvæði sín á löggjafarþinginu
við atkvæði sósíalista og Þjóðvam-
armanna og gefa þjóðinni þannig
von unt að algerrar stefnubreyting-
ar sé að vænta í utanríkismálum.
; Enn skyldi þó full aðgát höfð,
; þrátt fyrir þá samþykkt, sem gerð
; hefur verið og jafn hættulegt gæti
I reynzt að ofmeta slíka viljayfirlýs-
I ingu sem að vanmeta hana, og er
i þá rétt að gera sér fulla grein fyrir
ástæðunum, sem til hennar liggja.
Meginástæðan fyrir því að her-
námslið Alþýðu- og Framsóknar-
flokksins hafa nti snúið við blaðinu
er sú, að stefna Sósíalistaflokksins
og bandamanná hans í herstöðva-
málunum á nú óvéfengjanlegt fylgi
yfirgnæfandi meirihluta þjóðarinn-
ar. Óhvikul og markviss barátta
allra andstæðinga hemámsins hef-
ur skapað slíkt almenningsálit, —
einnig meðal óbreyttra fylgismanna
Alþfl. og Framsóknar, að foringj-
arnir hafa ekki fengið rönd við
reist. Sáust þessa greinileg dæmi á
þingi Framsóknarflokksins, er Vil-
hjálmur Þór, þægasti þjónn Banda-
rfkjanna í foringjaliði flokksins,
hljóp á dyr að felldri tillögu hans
um áframhald hernámsins, en að-
eins 6 fulltrúar af 3—4 hundruðum
réttu upp hendur sínar honum til
stuðnings.
Sannleikurinn er sá, að foringjar
hernámsliðsins i Alþfl. og Fram-
sókn óttast nú svo hið eindregna al-
menningsálit, að þeir þora ekki
með nokkru móti að ganga til kosn-
inga án þess að yfirlýsa að þeir
séu að snúa frá villum sinna fyrri
vega.
Og hræðsiugæði eru jafnan ó-
trygg til þess að byggja á. íslend-
ingar muna enn svardaga þeirra
manna, sem nú reyna að hvítþvo
sig af smán hernámsins og að þeir
voru þá heitastir, er í hönd fóru
verstu svikin, sem framin hafa ver-
ið í sjálfstæðismáli þjóðarinnar.
Ekki eykur það heldur traustið á
einlægninni, að sömu dagana og
hinar nýju.yfirlýsingar eru gefnar,
tilkynnir utanríkisráðherra Fram-
sóknarflokksins að búið sé að ganga
frá samningum um byggingu hafn- 1
ar í Njarðvík fyrir vamarliðið. i
Hvað hefur varnariiðið að gera ;
með herskipahöfn, ef það á að;
flytjast á brott? ;
En þrátt fyrir allt þetta, er ljóst,!
að lið hernámsmanna er nú á und- !
anhaldi og hefur sundrazt. Enginn
þorir nú lengur að mæla hemám-
inu bót opinskátt nema íhaldið,;
sem kosið hefur sér vígstöðu sem
grimulaus undirlægja hins banda-
ríska hers.
Það er nú á valdi íslendinga að
fylgja eftir undanhaldi hernáms-
flokkanna. Ekki með þvi að veita
þeim traust í kosningunum 24.júní.
Ekki með þvi að gleypa hráar yfir-
lýsingar þeirra um iðran og yfir-
bót, heldur með því að fylkja sér
að baki kosningasamtaka alþýð-
unnar, sem einum er fyllilega
treystandi til þess að bera sjálf-
stæðiskröfur þjóðarinnar fram til
sigurs og ein hafa möguleika til að
verða það úrslitavald á Alþingi,
sem knýji hina hræðslugóðu her-
. námsflokka til að standa við loforð
Lsín og yfirlýsingar. ■
Aðalfundur Vals
Aðalfundur Vörubílstjórafélags-
ins Vals var haldinn nýlega. í
stjórn voru kjömir:
Guðmundur Snorrason, form.
Haraldur Bogason ritari.
Magnús Jónsson, gjaldkeri.
í varastjóm voru kjörnir:
Kristján Jónsson og Hermann
Stefánsson.