Verkamaðurinn - 20.04.1956, Side 1
MKHlMRinn
XXXIX. árg.
Akureyri, föstudaginn 20. apríl 1956
Stuðningsmenn Alþýðubandalagsins á
Akureyri hólu kosningabaráttuna með
fjölsóttum lundi sl. sunnud.
18 manna kosninganef nd, skipuð mönn-
um úr fjórum stjórnmálaflokkum,
kjörin til að hafa forustu um kosn-
inngarundirbúninginn
Jón B. Rögnvaldsson, Hjörleifur Hafliðason,
Baldur Svanlaugsson, Guðrún Guðvarðardótt-
ir og Björn Jónsson kjörin í framkvæmda-
nefnd bandalagsins á Akureyri
Guðrún Guðvarðardóttir, for-
maður Fulltrúar. verkal.fél.,
Hannes Jónhannsson, iðn-
verkamaður,
Hjörleifur Hafliðason, gjald-
keri Iðju, fél. verksm.fólks,
Ingólfur Árnason, verkfr.,
Jón Ingimarsson, form. Iðju,
fél. verksmiðjufólks,
Jón B. Rögnvaldsson, bílstj.,
(Framhald á 4. síðu.)
_____________________15. tbl.
Rakarastofa Sigvalda
og Birgis í nýjum
búningi
Rakarastofa þeirra félaga, Sig-
valda og Birgis í Hafnarstræti 105
hefur tekið miklum stakkaskipt-
um. Hafa þeir stækkað hana og
breytt innréttingu algerlega, mál-
að hana í skemmtilegum litum og
bætt við innanstokksmunum. —
Bæði biðpláss og vinnupláss er
rýmra og greiðara um afgreiðslu.
Þeir Sigvaldi og Birgir hafa rekið
rakarastofu á þessum stað nú í 6
ár og notið vinsælda, og nú er rak-
arastofa þeirra orðin mjög vistleg.
Stuðningsmenn Alþýðubanda-
lagsins hér í bænum hófu kosn-
ingabaráttu sína með fundi er þeir
héldu með sér í Alþýðuhúsinu sl.
sunnuda kl. 4 síðdegis. Var fund-
urinn fjölsóttur (nokkuð á annað
hundrað manns), þótt fundartími
væri mjög óheppilegur, m. a.
F ramsóknarbandalagið
býður Friðjón Skarp-
héðinsson fram á
Akurey
ri
Alþýðuflokkurinn neyddur
til að varpa Steindóri
Steindórssyni fyrir borð.
Framsóknarbandalagið hefur
ák.veðið Friðjón bæjarfógeti
Skarphéðinsson verði í kjöri af
bandalagsins hálfu á Akureyri í
kosningunum 24. júní.
Svo er látið heita, að „trúnaðar-
ráð Alþýðuflokksins" hafi ráðið
framboði þessu, en flestir líta svo
á, að þar hafi vilji Framsóknarfor-
ingjanna ráðið úrslitum.
Mælist framboð Friðjóns mjög
misjafnlega fyrir meðal þeirra sem
enn veita Alþýðufl. að málum, og
þá einkum vegna þess að Stein-
dóri Steindórssyni, sem barizt hef-
ur af harðfylgi í vonlausri kosn-
ingarbaráttu við allar þingkosning-
ar síðan 1946, er nú ýtt til hliðar
til þess að þóknast KEA-forstjór-
unum. Þykir mörgum Steindóri
illa launuð áralöng barátta, er
hann fær nú ekki að vera í kjöri,
þrátt fyrir fullan vilja, í fyrsta
skipti, sem nokkrar líkur eru á að
uppbótarsæti fáist á framboðið.
Friðjón Skarphéðinsson hefur
verið bæjarfógeti hér síðan 1945
og er talinn samvizkusamur emb-
ættismaður, en á hér enga forsögu
sem forustumaður almennings né
áhugamaður um almenn mál.
vegna þess að hundruð manna
voru bundin við fermingarathafn-
ir.
Frummælandi á fundinum var
Einar Olgeirsson, varaformaður
Alþýðubandalagsins. Flutti hann
ýtarlega og afburðasnjalla ræðu
um stjórnmálaviðhorfið og hlut-
verk Alþýðubandalagsins. Var
máli hans ákaft fagnað af fundar-
mönnum. Aðrir ræðumenn á fund-
inum voru Jón B. Rögnvaldsson,
Björn Jónsson og Þorsteinn Jóna-
tansson. Var ræðum þeirra allra
mjög vel fagnað.
KJÖRIN KOSNINGANEFND.
Á fundinum var kjörin, með at-
kvæðum allra fundarmanna, kosn-
inganefnd, skipuð 18 mönnum. —
Var nefndinni falið að ákveða
framboð Alþýðubandalagsins í
kjördæminu og að hafa forustu í
kosningabaráttunni.
Nefndina skipa þessir menn:
Baldur Svanlaugsson,
bifreiðasmiður,
Bjami Finnbogason, ráðun.,
Björn Jónsson, form. Verka-
m.fél. Akureyrarkaupst.,
Eyjólfur Ámason,gullsmiður,
Þrjár leiðir í kjarabarátfunni
Á árunum 1947 til 1955 tókst stjórnarflokkunum að
lækka kaupmátt launa verkamanna og annarra vinnu-
stétta um 20%, þrátt fyrir fórnfreka varnarbaráttu, sem
alþýðusamtökin háðu á þeim ámm. Þegar alþýðusam-
tökin ákváðu í ársbyrjun 1955 að leita réttar síns með
verkfallsaðgerðum, ef annað dygði ekki, þá sögðu
stjórnarflokkarnir:
„Alþýðusamtökin eiga ekki að berjast fyrir
kjarabótum með verkföllum.“
Nú í ársbyrjun 1956 vógu stjórnarflokkarnir enn í
sama knémnn, sem svo oft áður, og lögðu 250 milljóna
króna álögur á alþýðu landsins til þess að svifta hana
vemlegum eða mestum hluta kjarabótanna sem unnust
1955. Nú hafa alþýðusamtökin ákveðið að beita ekki
verkfallsvopninu, heldur freista þess að rétta hlut sinn
með því að gera stjórnmálabandalag alþýðunnar að úr-
slitavaldi á Alþingi. En þá koma stjórnarflokkarnir og
dindillinn aftan í öðmm þeirra og segja:
„Alþýðusamtökin eiga ekki að berjast fyrir
kjarabótum með stjórnmálaaðgerðum.“
Sem sagt: Alþýðusamtökin mega ekki berjíist með
verkfallsvopninu og ekki heldur með stjómmálaaðgerð-
um. Hver er þá þriðja leiðin? Jú, hún er auðvitað sú að
SITJA AUÐUM HÖNDUM OG GERA EKKI
NEITT meðan ávöxtum kjarabaráttunnar er rænt,
hverjar álögurnar á fætur öðmm em lagðar á bak
vinnustéttana, dýrtíðin mögnuð og atvinnvegum þjóð-
arinnar siglt í strand, og fámenn en gírug auðmanna-
klíka í Reykjavík veltir sér í auðinum af striti fólksins.
Slík eru sameiginleg ráð íhaldsins og Framsóknarbanda-
lagsins — en er trúlegt að alþýða manna líti á þau sem
heilræði? Því svarar hver vinnandi maður á alþingis-
kosningunum.
Alþýðubandalagið opnar kosn-
ingaskrifstofu í Verkalýðshúsinu
Skrifstofan verður opin kl. 4-7 daglega
Alþýðubandalagið opnar í dag kosningaskrifstofu sína hér
í bænum og verður hún í Verkalýðshúsinu (salnum). Skrif-
stofan verður fyrst um sinn opin kl. 4—7 e. h. alla daga.
Allir stuðningsmenn Alþýðubandalagsins, sem geta og
vilja vinna að undirbúningi kosninganna, eða þurfa að fá
upplýsingar og fyrirgreiðslu í sambandi við þær, eru beðnir
að hafa samband við skrifstofuna. Þar verður einnig tekið við
framlögum í kosningasjóð bandalagsins.
Hver
vogar serí
„Heima er bezt“
Aprílhefti tímaritsins „Heima er
bezt“ er nýkomið út. I þessu hefti
eru greinar og frásagnir eftir rit-
stjórann, Steindór Steindórsson,
Árna Jónsson, Hákon Guðmunds-
son, Tómas Tryggvason, Guð-
mund Jónsson, Pál Bergþórsson,
Helga Valtýsson, Pál Guðmunds-
son, Hannes frá Hleiðargarði, Ól-
öfu Sigurðardóttur, og auk þess
framhaldssaga og myndasaga.
Lengsta greinin er eftir Árna
Jónsson, kennara. Heitir hún:
Þar sem lítiS o£ læknarnir búa og
fjallar um Fjórðungssjúkrahúsið á
Akureyri, sögu þess, rekstur og
starfslið. Er greinin prýdd miklum
fjölda mynda.
í Degi, 14. þ. m., getur að
líta þessa gullvægu setningu:
Eða hverjum dettur í hug að
Framsóknartlokkurinn og Al-
þýðutlokkurirm muni voga sér
að svíkja þá stefnu, sem þeir
hafa skýrt og ákveðið markað
Já, það má nú segja —
margt er manna bölið.. — Of-
an á alla hræðsluna um stór-
fellt fylgishrun og tap margra
kjördæma í alþingiskosningun-
um, skulu svo framámenn
hræðslu — nei afsakið —
Framsóknarbandalagsins þurfa
að bera þann kross, að menn
vogi sér að draga i efa einlægn-
ina að baki gylliboðanna nú
rétt fyrir kosningar!
En það skyldi þó ekki læð-
ast að sakleysingjunum, sem
skrifa Dag, að grunsemdir al-
mennings séu ekki alveg
ástæðulausar, þegar litið er til
fortíðarinnar. Auðvitað væri
illa gert að fara langt aftur í
tímann til þess að sýna lodd-
araleikinn, sem Framsókn hef-
ur leikið fyrir almenning kring-
um kosningar, enda gerist þess
engin þörf.
Hvernig var það í kosning-
unum 1953? Þá hafði Fram-
sókn slitið stjórnarsamstarfi
við íhaldið og dæmdi það óal-
andi og óferjandi. Þá var nú al-
deilis ekki siglt út í kosninga-
baráttuna með Ihaldssamvinnu-
fánann við hún. En hvað gerð-
ist eftir kosningar? Öll stóru
orðin um íhaldið voru strikuð!
út og Framsókn lagðist í eina'
sæng með Ólafi Thors og!
kumpánum hans. Síðan settu1
þessir flokkar saman málefna-!
samning um lausn helztu |
vandamála þjóðarinnar og!
Ihaldið var aftur orðið harla'
gott samskiptis í augum Fram-:
sóknarforingjanna þangað til
að kosningar nálguðust. Þá
; kom nýtt hljóð í strokkinn. —
■ Tíminn lýsir árangrinum af
; sameiginlegri stjóm íhalds og
! Framsóknar 1953—56 á þessa
; leið í sl. viku:
| „Því verður ekki lengur
! mótmælt að stjórnar-
skútan hafi raunverulega
strandað vegna GETU-
LEYSIS áhafnarinnar til
að fást við dýrtíðina. Það;;
er ekki lengur borið á
móti því, að atvinnuveg-
irnir séu á HELJAR-
ÞRÖM, VERZLUNAR-
höft komin í algleyming
og ALGER STÖÐVUN
á næsta leiti. Allt þetta
er Morgunblaðið nú far-
ið að viðurkenna beint
og óbeint. Annað er ekki
heldur hægt.“
Nú ættu rithöfundar Dags,
þeir sem spyrja í forundran
„hverjum dettur í hug að Fram-
sóknarfl. og Alþýðufl. vogi sér
að svíkja þá stefnu sem þeir
hafa skýrt og ákveðið mark-
að?“ að svara þeirri spurningu,
hvort þetta hafi verið stefnan
sem Framsókn markaði fyrir
síðustu kosningar eða var hún
kannske svolítið gylltari en sú
lýsing sem Tíminn gefur nú af
efndunum?
L
Hjúskapur. 12. þ. m. voru gefin
saman í hjónaband í Akureyrar-
kirkju, af séra Pétri Sigurgeirs-
syni, ungfrú Málfríður Sigurðar-
dóttir frá Borgarnesi og Gísli
Bjamason, háseti á varðskipinu
Ægi.
Skógræktaríélag TjarnargerSis
heldur bazar að Stefni 22. apríl n.
k. kl. 4 síðdegis. — Nefndin.