Verkamaðurinn - 27.04.1956, Qupperneq 2
2
VERKAMAÐURINN
Föstudaginn 27. apríl 1956
Sigur Alþýðubandalagsins
verulegi ósigur Ihaldsins
Skrýtnar hugmyndir.
„Alþýðumaðurinn“ kveinkar sér
sáran yfir því að forustumenn Al-
þýðubandalagðsins skuli hafa
mætt til fundahalda á Akureyri.
Að vísu skrökvar hann til um 3
fundi, sem þeir eiga að hafa hald-
ið hér á vegum Alþýðubandalags-
ins, því að þeir eru ekki orðnir
nema 2, þó Bragi telji þá 5. Er
það auðvitað vel skiljanlegt, að
Alþýðum. skelfist þær ágætu und-
irtektir, sem þeir Einar Olgeirs-
son, Hannibal Valdimarsson og
Karl Guðjónsson hafa fengið hér
og sjái margfalt fyrir hræðslu
sakir.
En Bragi á fleiri ásökunarefni á
hendur Alþýðubandalaginu, en að
það noti sér rétt sinn til opin-
berra fundahalda, til kynningar á
stefnu sinni. Það er sem sé
ákveðið í að nota líka rétt sinn til
að bjóða fram hér í bænum. Já
fyrri má nú vera frekjan! Er það
ekki alveg dæmalaust að Alþýðu-
bandalagið skuli ekki einasta
halda stjórnmálafundi, meira að
segja stærri og áhrifameiri en
nokkur von er til að hræðslu-
bandalagið geti nokkurn tíma
komið á, heldur líka gefa sífjölg-
andi fylgismönnum sínum tæki-
færi til þess að kjósa frambjóð-
anda sinn, og það þó að sjálfur
bæjarfógetinn, hinn borðalagði
innheimtumaður Eysteins Jóns-
sonar, sé í kjöri!
Já, þær geta verið skrítnar og
meira að segja miklu skrítnari en
þetta, hugmyndir H.B.-manna um
lýðræði og þingræði. En sleppum
því í bráðina.
Hver ber ábyrgðina?
En það væri ekki úr vegi að
taka til athugunar þver ber
ábyrgðina á því að íhaldið hefur
enn nokkra sigurmöuleika í kaup-
staðakjördæmunum og þ. á. m. hér
í bænum. Enginn é þar þyngri sök
en hægra flokksbröt Alþýðufl. og
Þjóðvarnarfl. Bæði Alþýðuflokkn-
um í heild og Þjóðvarnarflokkn-
um stóð til boða að verða þátttak-
endur í kosningasamtökum vinstri
manna, á jafnréttisgrundvelli.
Þessu höfnuðu hægri kltkurnar.
Ef þeim hefði verið jafnmikið
kappsmál og þær nú láta, að fella
íhaldið, þá hefðu þessir þrír flokk-
ar sameiginlega gert sigurvonir
íhaldsins að engu. Hvert þmgsæti,
sem íhaldið kann því að fá / kaup-
staðakjördæmum, utan Rv'tkur,
verður því að skrifast á reikning
hægri manna Alþýðufl. og Þjóð-
varnar.
Samlagningarreglan.
Um framboðin hér á Akureyri
er það að segja, að enginn getur
fullyrt um það, hvort Alþýðu-
bandalagið eða Framsóknarbanda-
lagið fær fleiri atkvæði. „Sam-
lagningarreglan" getur bilað svo
að um muni, og þótt hún stæðist
fyllilega hefur Friðjón enga
möguleika á að ná kjöri nema sem
uppbótarþingmaður, en nær óyggj- J
andi líkur eru til að væntanlegur I
frambjóðandi Alþýðubandalagsins
nái kjöri af landslista, ef stuðn-
ingsmenn þess standa fast saman
í kosninunum, sem ekki þarf að
efa.
En hvernig er það annars með
framboð Framsóknarbandalagsins
t þeim kjördæmum, þar sem Al-
þýðubandalagið hefur yfirgnæf-
andi fylgi umfram Alþýðufl. og
jafnvel Framsókn líka. Sýnir Al-
þýðufl. ekki þar sama lítillætið og
hann krefst af Alþýðubandalaginu
hér á Akureyri og styður það til
fulls sigur yfir íhaldinu? Nei, ekki
aldeilis, enda væri þá „Bleik mín-
um brugðið". Þeir styðja ekki
Karl Guðjónsson í Vestmannaeyj-
um eða væntanlegan frambjóð-
anda á Siglufirði og styðja þann-
ig, að sjálfs sín sögn, íhaldsmenn-
ina Jóhann Þ. og Einar Ingimund-
arson til áframhaldandi þinsetu,
og er þó tvísýnt að sá „stuðning-
ur“ dugi þeim til sigurs.
Þýðingarlaust að veina.
Það er vita þýðingarlaust fyrir
H. B.-menn að veina undan fram-
boðum Alþýðubandalagsins. Þeir
hafa á undanförnum árum dauf-
heyrst við öllum kröfum alþýð-
unnar um einingu gegn íhaldinu
og óstjórn þess og Framsóknar-
flokksins. Og þeir hafa á þessu
voru höggvið þau litlu tengsl, sem
þeir enn höfðu við verkalýðssam-
tökin, rekið forustumenn þeirra úr
Alþýðufl., slegið á þá hönd, sem
þeim var til samstarfs rétt og neit-
að að mynda vinstri stjórn með
þingmeirihluta, sem þó var fyrir
hendi. Og í dag veina þeir eftir
kjörfylgi alþýðunnar, sem þeir
hafa hrakið og smáð í orðum og
athöfnum. En þeim verður ekki
sinnt.
Stofnuð Akureyrar-
deild Menningar- og
friðarsamtaka kvenna
Á sunnudaginn var, var stofnað
nýtt félag á Akureyri. Heitir það
Menningar- og friðarsamtök ís-
lenzkra kvenna — Akureyrardeild.
Markmið félagsins er að sameina
allar konur, án tillits til stjórn-
málaskoðana, til baráttu:
a) Fyrir alheimsfirði.
b) Fyrir öryggi og framtíð barn-
anna.
c) Fyrir vináttu og samvinnu
kvenna í öllum löndum.
d) Fyrir hernaðarlegu hlutleysi
íslands.
e) Gegn hvers konar hemámi og
þeim hættulegu áhrifum, sem seta
erlends herliðs hefur á æskulýð
landsins og menningu þjóðarinnar.
Stjórn félagsins skipa: Formað-
ur Sigríður Þorsteinsdóttir, vara-
formaður Theódóra Þórðardóttir,
ritari Þórný Þórarinsdóttir, féhirð-
ir Jóhanna Tryggvadóttir og með-
stjórnandi Guðbjörg Bjarman.
I varastjóm voru kjömar Guð-
rún Kristjánsdóttir og Hlín Stef-
ánsdóttir.
Stofnendur voru 36 konur.
er eini raun-
Sigur Alþýðubandalagsins —
ósigur íhaldsins.
Almenningur er þegar vaknaður
til vissu um það, að slíkir loddar-
ar þurfa að fá eftirminnilega
ráðningu, eftirminnilega leiðbein-
ingu um vilja alþýðunnar til þess
að gerbreyta stjómarfarinu í land-
inu og beina því að bættum lífs-
kjörum, uppbyggingu atvinnuveg-
anna og sjálfstæði þjóðarinnar.
Og henni skilzt æ betur að eina
leiðbeiningin, sem slíkir menn
skilja, er sú, að efla Alþýðubanda-
lagið og gera sigur þess sem mest-
an, að það er eina leiðin til þess
að koma vitinu foringja Fram-
sóknar og hægra liðs Alþýðufl. og
knýja þá til samstarfs við verka-
lýðssamtökin.
Þess vegna er sigur Alþýðu-
bandalagsins líka eini raunvem-
legi ósigur íhaldsins, hvort sem
hann er, beint atkvæðalega séð,
unninn í einu kjördæminu á þess
kostnað eða í öðru á kostnað
hræðslubandalagsins.
Því fleiri atkvæði sem Alþýðu-
bandalagið hlýtur, því minni líkur
eru fyrir því að foringjar Alþýðu-
og Framsóknarfl. þori að mynda
stjóm með íhaldinu.
Hvert einasta atkvæði, sem Al-
þýðubandalagið fær, hvar sem það
er greitt á landinu, kemur því að
fyllstu notum í baráttunni gegn
íhaldinu.
Akureyri boðin þáttaka
í heimssambandi
vinabæja
Borgarstjórinn í St. Etienne í
Loire í Frakklandi hefur ritað
bæjarstjóranum hér, Steini Stein-
sen, bréf fyrir hönd heimssam-
bands vinabæja, er nefnist Le
Monde Bilingue, en stofnandi þess
var frönsk þjóðhetja úr heims-
styrjöldinni síðari, M. Jean-Marie
Brersand, og boðið honum þátt-
töku í þingi samtakanna, er haldið
verður í Júlíbyrjun næstk.
í Le Monde Bilingue eru nú um
70 enskar, amerískar, kanadískar
og franskar borgir, en um 200
borgir leita sér nú vinabæjasam-
banda, svo að úr miklu er að velja
á menningar- og félagsmálasviði.
Meðal verndara þessara sam-
taka eru ýmsir þekktustu stjórn-
málamenn Frakklands, svo sem
Coty, forseti, Herriot, forseti
franska þingsins, og forsætisráð-
herrann Mollet.
Markmið samtakanna eru gagn-
kvæm menningarleg kynni og bar-
átta fyrir alþjóðafriði.
MÍR MÍR
Kvikmyndasýning
Sýning í Ásgarði n. k. sunnu-
dag kl. 8,30 e. h.:
För Bulganins og Krutst-
jovs til Asíulanda
— Mynd í Agfa-litum —
Mynd þessi var sýnd við mikla
aðsókn í Tjarnarbíói í Rvík
fyrir skömmu.
Aðgangur kr. 5.00.
1. MAÍ
hátíðahöld verkalýðsfélaganna
hefjast kl. 1.30 e. h. við Verkalý ðshúsið með útifwidi
Lúðrasveit Akureyrar leikur
Ræður:
BRAGI SIGURJÓNSSON, ritstjóri
BJÖRN JÓNSSON, form. Verkam.fél. Ak.
GUÐRÚN GUÐVARÐARDÓTTIR,
formaður Fulltrúaráðs verkalýðsfél.
Kröfuganga
Lúðrasveit Akureyrar leikur /yrir göngunni.
Bamasamkoma í Alþýðuhúsinu kl- 3,30
LEIKÞÆTTIR KVIKMYND
GAMANÞÁTTUR BARNADANSLEIKUR
Dansleikur
í Alþýðuhúsinu 1. maí kl. 9 e. h.
Dansleikur
í Alþýðuhúsinu 30. apríl kl. 9 e. h.
Samkoma í Skálaborg í Glerárþorpi
1. maí kl. 8.30. — Samkoman sett (Jónas Jónsson). —
Ræða (Kristján Larsen) — Kvikmynd — Dans (eldri
dansarnir. — Aðgangseyrir kr. 15.00.
Merki dagsins verða seld allan daginn
Aðgöngumiðar að öllum samkomum dagsins verða seld-
ir í Verkalýðshúsinu frá kl. I e. h. og við innganginn.
1. maí nefndin.
L
ÚTSÝN
Blað Alþýðubandalagsins, ÚTSÝN, kemur
út á mánudögum.
Blaðið fæst í öllum bókabúðum og blaða-
sölum bæjarins og í kosningaskrifstofunni,
Strandgötu 7.
Þeir, sem óska að fá blaðið heimsent hringi
í síma 1169 eða 1516.
Strœtisvagnar
Ákveðið er að stofna hlutafélag um rekstur strætisvagna
á Akureyri, og er hverjum borgara hér með boðið að
gerast hluthafi í væntanlegu félagi um rekstur þeirra.
Hlutabréf á kr. 200, 500 og 1000 munu verða til sölu
á Ferðaskrifstofunni, Túngötu 1.
Frá landssímanum
Stúlka verður tekin til náms við landssímastöðina á Ak-
ureyri 1. maí n. k. Námstími 3 mánuðir. Námsstyrkur
um kr. 2000.00 á mánuði, síðan byrjunarlaun um kr.
2700.00 á mánuði. — Eiginhandar umsóknir, þar sem
getið er aldurs og menntunar, sendist mér fyrir 29. apríl.
SÍMASTJÓRINN.