Verkamaðurinn - 27.04.1956, Síða 3
Föstudaginn 27. apríl 1956
VERKAMAÐURINN
S
íhald og Framsókn eru að gera þjóðina gjaldþrota:
Gjaldeyrisskuldirnar umfram eignir
158 milljónir króna!
r
Landsbanki Islands kveður upp hinn þyngsta
áfellisdóm yfir stjórnarstefnunni
Ein afleiðingin af hinni gegnd-
arlausu óstjórn Ihalds og Fram-
sóknar er sú, að gjaldeyrisástandið
fer hríðversnandi með hverjum
mánuði sem líður. Fyrstu þrjá
mánuði þessa árs versnaði gjald-
eyrisstaðan um nærri 40 milljónir
og það vantar nú 158 milljónir
upp á það að bankarnir eigi fyrir
gjaldeyrisskuldum og skuldbind-
ingum! Á síðasta ári versnaði
gjaldeyrisstaða bankanna um 140
milljónir.
Þessi ömurlega þróun er skil-
getið afkvæmi stjómarstefnunnar.
Heildsalar og braskarar hafa feng-
ið að vaða í gjaldeyristekjum þjóð
arinnar og hrúga inn í landið hvers
konar lúxusvörum og skrani fyrir
tugi og hundruð milljóna króna ár-
lega til þess eins að græða á því. I
þessu skyni hefur íhaldið sölsað
undir sig stjórn bankanna, með
Jóhann Hafstein og Gunnar Viðar
sem bankastjóra Utvegsbankans,
meirihluta í bankaráði Landsbank-
ans og Pétur Benediktsson sem
nýjan bankastjóra þar. Eru þeir
þremenningarnir sem kunnugt er
allir nátengdir Thorsurunum,
skuldugustu ætt landsins. Það er
fyrst og fremst íhaldið sem ber
ábyrgð á gjaldeyrissukkinu, en þó
ber Framsókn einnig sína þungu
ábyrgð; einn af bankastjórum
Landsbankans er ekki minni mað-
ur en Vilhjálmur Þór, og hann
hefur látið Samband íslenzkra
samvinnufélaga heyja harða bar-
áttu við heildsalana um óþarfan
lúxusinnflutning. Og sameiginlega
er það ríkisstjóm Ólafs Thors og
Eysteins Jónssonar sem hefur
markað þá stefnu að þjóðin er að
verða gjaldþrota á sama tíma og
gjaldeyristekjumar eru hærri en
nokkru sinni fyrr í sögu þjóðar-
innar.
• DÓMUR LANDS-
bankans.
Það er kaldhæðni örlaganna að
þessi harði og óvéfengjanlegi dóm-
ur um stjómarstefnuna er kveðinn
upp af stjórn Landsbanka íslands.
í fréttatilkynningu frá bankanum
eru þessar alvarlegu staðreyndir
raktar, og hljóðar hún á þessa leið:
„Á Landsbankanefndarfundi í
marzbyrjun var frá því skýrt, að
gjaldeyrisstaða bankanna, að með-
töldum ábyrgðum og öðrum gajld-
eyTÍsskuldbindingum hefSi versnað
um 140 millj. kr. á árinu 1955. Á
móti þessu kom birgðaaukning,
sem áætluð var 94 millj. kr.
Það sem af er þessu ári, hefur
gjaldeyrisástandið enn farið versn-
andi. Fyrstu þrjá mánuði ársins
versnaði gjaldeyrisstaðan, að með-
l
töldum skuldbindingum og óinn-
korrmum kröfum á útlönd, um 39,4
millj. kr. Á sama tíma í fyrra
versnaði gjaldeyrisstaðan um 42,2
millj. kr., en um 2,8 millj. kr.
sömu mánuði árið 1954. Nettó-
gjaldeyriseign, að meðtöldum inn-
heimtum, lækkaði um 12,0 millj.
kr. á fyrsta ársfjórðungi. 26,3
millj. kr. á sama tíma í fyrra, en
hún batnaði um 23,7 millj. kr.
fyrstu þrjá mánuði ársins 1954. •
Nettóskuldir í erlendum gjald-
eyri nema nú 40,3 millj. kr., kröf-
ur á útlönd 32,6 millj. kr., en
ábyrgðir og greiðsluskuldbinding-
ar 50,3 millj. kr. Skuldir og skuld-
bindingar umfram eiénir nema þvi
alls 158,0 millj. kr., þar af 82,0
millj. kr. í frjálsum gjaldeyri, en
76 millj. kr. í vöruskiptagjaldeyri,
en það er 137 millj. kr. lakari
steða an um sama leyti i fyrra. —
Utlit er fyrir, að birgðir af útflutn-
ingsvörum séu nú þó nokkru meiri
en á sama í fyrra, en ekki eru fyr-
irliggjandi neinar traustar áætlan-
ir um það.“
Vörubifreið til sölu
Ford-vörubifreið, módel 1942, til sölu með
tækifærisverði. Uppl. í síma 1516 og 2092-
*
BORGARBÍÓ
— Sími 1500
Ncesta mynd:
SHANE
j Ný, amerísk verðlauna-
I mynd í eðlilegum litum.
Aðalhlutverk:
ALAN LADD
§ Bönnuð innan 16 ára.
- Fjölmennur fundur Alþýðubandalagsins
(Framhald af 1. síðu).
um við ykkur ekki stuðning
áfram, þá er farinn botninn úr
bandalagi okkar. Þá gætu Frám-
sóknarmennirnir sagt: Hvað ætlið
þið þá að gera. Ekki ætlum við þá
að styðja ykkur í næstu kosning-
um og þá liggið þið allir dauðir.
Með öðrum orðum: Alþýðufl. er
kominn í þá aðstöðu fyrir nefnda-
og samningamakkið við Framsókn
á undanförnum mánuðum, að hann
er ekki til lengur sem sjálfstæður
verkalýðsflokkur. Hans verkalýðs-
pólitík verður mótuð af náðarsam-
legum forskriftum Framsóknar-
flokksins. Það var þetta, sem lá
fyrir áður en Alþýðusamb. íslands
gerði nokkurn hlut til þess að
mynda Alþýðubandalagið. Þessir
atburðir höfðu gerzt áður. Þessi
grautur hafði verið eldaður fyrr.
Og það var í þessum graut, sem
mig langaði ekki, sem formaður
Alþýðusambandsins, að verða
nein rúsína í. — Og ég get bætt
því við, að ég er sannfærður um,
að það eru mörg hundruð, það eru
vænti eg þúsundir, af verkamönn-
um og verkakonum, sem vilja
vera verkalýðshreyfingunni trúir,
sem ekki finnst þetta vera góð
verzlun hjá verkalýðsflokknum,
Alþýðuflokknum, og langar heldur
ekki til að vera neinar rúsínur né
kúrennur í þessum Framsóknar-
graut.“
Alþýðan á framtíð sína undir
úrslitum kosninganna.
Hannibal Valdimarsson sagði m,
a. um eðli og þýðingu kosninganna
fyrir verkalýðsstéttina:
„Við erum með kjörseðlinum að
vinna það sama eins og við höfum
áður verið að vinna með fóm-
frekri verkfallsbaráttu. Og það er
þýðingarmikið atriði að allir
verkamenn og verkakonur skilji
það, að kaupmáttur launanna
verður ákvarðaður með stjórnmála
aðgerðum eftir þessar kosningar
innan veggja Alþingis, og leiðirn-
ar, sem þar verða farnar, ákvarð-
aðar m. a. algjörlega eftir því
hversu sterkan þingflokkur verka-
lýðssamtökin eiga til varnar hags-
munum sínum þar og þá.“
Karl Guðjónsson lauk sinni
snjöllu ræðu með eftirfarandi orð
um;
„Það er ekki að efa, að ef aft-
urhaldsöflin í þessu landi geta tal-
ið sig komast af án þess að njóta
atfyglis verkalýðshreyfingarinnar,
án þess að verkalýðshreyfingin
geti orðið gildandi afl í þjóðfélag-
inu, þá verður ekki svifist neins
um það að rýra lífskjörin frá því
sem þau eru nú. Það verður ekki
hikað við að fella gengi krónunnar
og binda síðan kaupið. Það verður
ekki hikað við að hygla bröskur-
um og öðrum gróðabrallsmönnum,
sem þegar eru orðnir alltof stórir
aðilar í okkar þjóðfélagi og alltof
voldugir.
Alþýðubandalagið eitt er það
afl, sem getur stöðvað tímabil
það, sem við höfum nú gengið í
gegnum .tímabil gróðaklíkunnar í
Reykjavík og í nánasta umhverfi
Reykjavíkur. Tímabil verkalýðs-
hreyfingarinnar og bættra kjara
verkalýðsins getur þá fyrst runnið
upp, þegar Alþýðubandalagið hef-
ur komið út úr kosningunum á
næsta vori með sigur.“
Höfðu ekki erindi
sem erfiði.
Að loknum framsöguræðum
kvöddu hinir nýbökuðu sálufélag-
ar, formenn Alþýðu- og Fram-
sóknarflokksins hér í bæ, Bragi
Sigurjónsson og Ásgrímur í Heklu,
sér hljóðs og reyndu af miklum
dugnaði, en lítilli getu, að halda
uppi vörnum fyrir hræðslubanda-
laið. Hin aumkunarlega ræða Ás-
gríms Stefánssonar gaf ekkert til-
efni til andsvara, en Bragi fór hina
mestu hrakför fyrir Hannibal, svo
sem vænta mátti eftir málstað og
andlegri vopnfimi.
Þeir sálufélagarnir, atvinnurek-
endafulltrúinn og „alþýðuforing-
inn“ höfðu því ekki erindi sem
erfiði, sem bezt varð séð af því, að
aðeins 11, að þeim sjálfum með
töldum, réttu upp hendur þeim til
stuðnings, en eftirfarandi tillaga
var samþykkt með nær öllum at-
kvæðum fundarmanna. Voru hend
ur fundarmanna sem þéttur skóg
ur er þeir samþykktu ályktunina
Almennur kjósendafund
ur, haldinn á Akureyri
vegum Alþýðubandalags
ins, telur, að stjórn AS [
hafi innt af hendi þýðing
armikla þjónustu við hags
munamál alþýðustéttanna
með því að beita sér fyrir
myndun þeirrar stjómmála
samtaka, sem nú hefur ver-
ið komið á fót og hlotið
hafa heitið Alþýðubanda
lagið.
Fundurinn fagnar því, að
nú gefst fólkinu í verka-
lýðssamtökunum, og öllum
öðmm launþegum lands
ins, kostur á að heyja kjara-
baráttu sína án fómfrekrar
og vonlítillar verkfallsbar-
áttu með samstöðu á sjóm-
málasviðinu með kjörseðil
í höndum, án alls tillits til
þess, hvaða flokka það hef
ur áður kosið.
Með þessari friðsamlegu
baráttu getur alþýðufólkið
varið kaupmátt launanna
og afstýrt gengisfellingu og
kaupbindingu, efAlþýðu
bandalagið eignast
nógu sterkan þing
flokk til að gceta hags
muna sinna, þegar úr
ueði verða valin d Al
þmgi í efnahagsmál
unum.
Fundurinn heitir á kjós
endur Akureyrar að veita
Alþýðubandalaginu traust
an stuðning og stuðla þann
ig að sigri þess, enda telur
fundurinn það höfuðnauð-
syn, að hér verði til einn
sterkur verkalýðsflokkur,
sem starfi í náinni sam-
vinnu við verkalýðssamtök-
in.
Að lokum tók til máls Kristinn
Jónsson, oddviti á Dalvík, og
flutti athyglisverða og ágæta ræðu
til stuðnings Alþýðubandalaginu.
Það er mál allra er fundinn sátu
að hann hafi verið einn glæsileg-
asti stjórnmálafundur er hér hef-
ur verið haldinn um árabil og sýnt
glögglega að Alþýðubandalaið á
hér mikið og vaxandi fylgi og
mikla sigurmöguleika.
Karlakórinn Geysir heldur sam-
söngva í Nýja-Bíó í kvöld og ann-
að kvöld. Söngstjóri er Árni Ingi-
mundarson og við hljóðfærið Þór-
gunnur Ingimundardóttir,
NÝJA-BÍÓ
Aðgöngumiðasala opin kl. 7-9.
Simi 1285.
Ncestu myndir:
Rómeó og Júlía
Ensk-ítölsk verðlaunamynd
í litum eftir leikriti
Williams Shakespeare
Aðalhlutverk:
LAURENCE HARVEY
SUSAN SHENTAS
Milljónaþjófurinn
Æsispennandi amerísk
kvikmynd með hinum
frcegu leikurum
JOSEPH COLLAN og
TERESA WRIGHT.
>' '*i
íbúar við Sólvelli hafa skrifað
bæjarstjórn og óskað eftir að
gangstétt yrði lögð meðfram hús-
um þeirra. Bæjarstjóm hefur sam-
þykkt að verða við þessari ósk.
Sigurbjörn Þorsteinsson, Holta-
koti, hefur fengið löggildinu til að
standa fyrir trésmgíði við hús-
bygingar.
Sjötug varð 24. þ. m. Rósa
Randversdóttir, Oddeyrargötu 11.
Hjónaefni. Á sumardaginn fyrsta
opinberuðu trúlofun sína ungfrú
Svanhildur Friðriksdóttir, starfs-
stúlka í efnagerðinni Flóru, og
Gunnbjöm Jónsson bóndi Yzta-
Gerði.
Hjúskapur. Síðastl. laugardag
voru gefin saman í hjónaband
unfrú Jóhanna Svanfríður
Tryggavd., verzlunarmær, Helga-
magrastræti 7, Akureyri, og Hall-
dór Pálmi Pálmason, rafvirki, Æg-
isgötu 19, Akureyri. — Heimili
þeirra verður að Helgamagrastr. 7.
— Þann 18. apríl síðastliðinn
voru gefin saman í hjónaband ung-
frú Anna María Hallsdóttir og
Baldur Ágústsson deildarstjóri. —
Heimili þeirra er að Ránargötu
10. — Á sumardaginn fyrsta vom
gefin saman í hjónaband ungfrú
Alda Þorgrímsdóttir og Garðar
Aðalsteinsson bifreiðastj. Heimili
þeirra er að Brekkugötu 1. —
Sama dag voru gefin saman í
hjónaband ungfrú Guðný Elísabet
Halldórsdóttir og Kristinn Sigur-
páll Kristjánsson símavirki. Heim-
ili þeirra er í Þingvallastræti 6.
Fíladelfía, Lundargötu 12. Op-
inberar samkomur verða laugardag
og sunnudag, kl. 8.30 báða dagana.
Ræðumaður: Erik Aasbö frá Nor-
egi. Söngur og hljóðfæraleikur. —
Allir velkomnir!
1169
er sími Alþýðubanda-
lagsins