Verkamaðurinn - 04.05.1956, Qupperneq 1
VERKflnwÐURinn
XXXIX. árg.
Akureyri, föstudaginn 4. maí 1956
17. tbl.
Bjöm Jónsson verður í kjöri fyrir 1. maí-hátíðahöldin á Akureyri
Alþýðubandalagið á Akureyri fjölmennari en nokkru sinni fyrr
Héraðsnefnd Alþýðubandalags-
ins á Akureyri hefur einróma sam-
þykkt að Björn Jónsson, ritstjóri
og formaður Verkamannafélags
Akureyrarkaupstaðar, verði í
framboði fyrir Alþýðubandalagið
á Akureyri Við Alþingiskosning-
arnar 24. júní næstk.
Bjöm Jónsson er fæddur 3.
sept. 1916 að Úlfsstöðum í
Blönduhlíð, sonur hjónanna Rann-
veigar Sveinsdóttur og Jóns Krist-
jánssonar kennara. Fluttist til Ak-
ureyrar 5 ára gamall með foreldr-
um sínum og hefur átt þar heima
nær óslitið síðan. Stundaði nám í
Mentnaskólanum á Akureyri og
tók stúdentspróf úr stærðfræði-
deild 1936.
Bjöm Jónsson hefur um langt
skeið tekið mikinn þátt
í baráttu verkamanna á Akureyri
og starfsemi verkalýðshreyfingar-
innar. Hann var einn aðalhvata-
maður að stofnun Verkamannafé-
lags Akureyrarkaupstaðar 1943
þegar verkamannahreyfingin á
Akureyri var sameinuð. Hann var
kjörinn varaformaður félagsins
1945 og formaður þess 1947 og
hefur verið það síðan, að undan-
skildu einu ári er hann var vara-
formaður. Hefur átt sæti á öllum
þingum Alþýðusambands íslands
frá 1946 og í fulltrúaráði verka-
lýðsfélaanna á Akureyri. í stjórn
Alþýðusambands Norðurlands frá
stofnun þess 1947 og í stjórn Al-
þýðusambands Islands frá 1954.
Hann átti og sæti í samninganefnd
verkalýðsfélaganna i vinnudeil-
unni miklu á sl. ári.
Björn hefur verið ritstjóri
Verkamannsins síðastliðin þrjú ár.
Kosinn bæjarfulltrúi 1954. Hann
á sæti í stjórn Sósíalistafélags Ak-
ureyrar og i stjórn Sósíalista-
flokksins.
1. maí-hátíðahöldin á Akureyri
hófust með útifundi við Verka-
lýðshúsið um kl. 2 e. h. og var þar
samankominn geysimikill mann-
fjöldi, sennilega mikið á annað
þúsund manns. Er það mál manna
að sjaldan eða aldrei hafi fleiri
verið á útifundi verkalýðssamtak-
anna 1. maí. Útifundúrinn hófst
með leik Lúðrasveitar Akureyrar,
en Jón Ingimarsson stjórnaði
.fundinum.
þingi. Þar væri betra að hafa
„mennina á bak við skrifborðin,
lögfræðinga og hagfræðinga.“ Þeir
mundu leysa vanda alþýðunnar,
en hvorki „útifundir, kröfugöngur
eða verkföll."
Braga munaði þannig ekki um
að kasta fyrir borð allri þeirri
grundvallarstefnu sem Alþýðu-
flokkurinn hefur talið sig byggja á
til þessa: hæfni og getu alþýðunn-
ar til þess að byggja sjálf upp
Framboð Alþýðu-
bandalagsins
Héraðsnefndir og mið-
stjórn Alþýðubandalagsins
hafa ákveðið að Finnbogi
Rútur Valdimarsson, alþing-
ismaður og bæjarstjóri í
Kópavogskaupstað, verði í
kjöri fyrir Alþýðubandalagið
í Gullbringu- og Kjósarsýslu
og frú Sólveig Ólafsdóttir í
N orður-f safjarðarsýslu.
Merkur tónlistarviðburður í vændum:
Sinfóníuhljómsveit íslands heim-
sækir Akureyri á 2. hvítasunnudag
Eins og kunnugt er hefur sinfón-
íuhljómsveit verið endurstofnuð
í Rvík, eftir að starfsemi hennar,
sem hófst fyrir fáum árum hafði
lagst niður vegna f járskorts.
Hín endurreista hljómsveit hlaut
nafnið Sinfóníuhljómsveit íslands
og er hún rekin með fjárstyrkjum
frá ríkinu og Reykjavíkurbæ, auk
þess sem hún nýtur greiðslu frá
Ríkisútvarpinu og Þjóðleikhúsinu
fyrir störf í þeirra þágu og einnig
fær hún hluta af skemmtanaskatti.
Til stuðningsmanna
Alþýðubandalagsins
Kosninganefnd Alþýðu-
bandalagsins óskar eftir því
við stuðningsmenn banda-
lagsins, að sem flestir
þeirra, sem vinna vilja að
undirbúningi kosninganna
mæti til viðtals í Verkalýðs-
húsinu í kvöld kl. 8.30.
Sérstakt hljómsveitarráð hefur
forustu fyrir sveitinni, en fram-
kvæmdastjóri hennar er Jón Þór-
nsson tónlistarráðunautur út-
varpsins.
I viðtali við blaðamenn hér í
bænum, sl. sunnudag, skýrði Jón
frá því að fyrirhuguð væri hljóm-
leikaför hingað til bæjarins og
mundi sveitin leika hér á 2. dag
hvítasunnu og fyrr sama dag að
Skjólbrekku í Mývatnssveit.
Viðfangsefni sveitarinnar í för
þessari eru verk eftir Mendelsohn
(Næturljóð og Brúðarmars úr
söngleiknum Jónsmessudraumur),
klarinettkonsert eftir Mozart með
einleik Egils Jónssonar, hins mikla
klarinettsnilling, og Sinfónía nr. 1
eftir Beethoven.
Koma hljómsveitarinnar hingað
er einstæður viðburður í tónlistar-
lífinu hér og þarf ekki að efa að
bæjarbúar og héraðsbúar meti
hann að verðleikum og fylli kirkj-
una á 2. dag hvítasunnu.
® Ræðumenn á útifundinum voru
Guðrún Guðvarðardóttir, formað-
ur Fulltrúaráðs verkalýðsfélag-
anna, Bragi Sigurjónsson ritstjóri
og Björn Jónsson, formaður
Verkamannafélags Akureyrarkaup
staðar. Var ræða Guðrúnar hin
snjallasta og vakti mikla hrifn-
ingu. Verður hún væntanlega birt
í næsta blaði Verkam. Blaðið birt-
ir í dag ræðu Bjöms. Ræðum
þeirra Guðrúnar og Björns var
ágætlega tekið af áheyrendum.
Bragi Sigurjónsson virtist hafa
villst á því að honum hafði verið
falið að tala á hátíðisdegi verka-
lýðsins en ekki á kosningafundi
hræðslubandalagsins. Var mikill
hluti ræðu hans rógkennd árás á
yinstri menn í verkalýðshreyfing-
unni og ódulbúinn áróður fyrir at-
kvæðabraski hægri klíku Alþýðu-
flokksins og Framsóknar, sem
hann taldi hina einu og sönnu
verkalýðsbaráttu og alþýðan ætti
að sanna manndóm sinn í að
styðja! Einhvern grun mun hann
þó hafa haft um það að ekki væri
auðvelt fyrir alþýðu manna að
sýna „manndóm" sinn á þennan
hátt, því að hann sagði „að það
væri erfitt að vera maður og
hvergi erfiðara en í verkalýðs-
hreyfingunni.“ Þá hélt Bragi því
fram að alþýðan ætti EKKI að
velja sér fulltrúa úr sínum hópi til
þess að fara með mál sín á Al-
þjóðfélagsskipan sína. En mikið
skal til mikils vinna að hljóta
stuðning Framsóknar.
Aheyrendum til verðugs hróss
skal þess getið, að þessi einstæða
ræða hlaut því nær engar undir-
tektir annarra en 5—10 Varðar-
unglinga sem klöppuðu fyrir hon-
um.
Guðrún Guðvarðardóttir
flytur ræðu sína.
Að útifundinum loknum var
farið í kröfugöngu. Gengið suður
Skipagötu, norður Hafnarstræti,
Brekkugötu, austur Gránufélags-
götu, suður Norðurgötu og vestur
Strandgötu að Verkalýðshúsinu.
Gangan er almennt-talin sú fjöl
mennasta sem hér hefur verið far-
in og sýndi sig greinilega að til
raunir Braga til að^spilla þar fyrir
þátttöku báru engan árangur.
Um kvöldið var fjölsótt kvöld-
skemmtun að Skálaborg og dans-
leikir þar og í Alþýðuhúsinu.
Frá kosningaskrifstofunni
Kosningaskrifstofa Alþýðubandalagsins fyrir Akureyri er í
Verkalýðshúsinu, Strandgötu 7, og er opin kl. 4—7 síðdegis
daglega.
Stuðningsmenn Alþýðubandalagsins eru eindregið hvattir
til að hafa sem oftast samband við skrifstofuna. Sérstaklega
er áríðandi að menn fullvissi sig um, að þeir séu á kjörskrá
og gefi upplýsingar um fjarverandi kjósendur.
Munið einnig fjársöfnunina í kosningasjóðinn, og að þau
framlög sem koma fljótt eru sérstaklega mikilvæg.
Heil til starfa fyrir sigri Alþýðubandalagsins.
Allt skal falt, nema -
Einn af framámönnum Fram
sóknarflokksins, Alþýðuflokks-
maðurinn, dr. Gunnlaugur
Þórðarson, sagði nýlega að
„verkamenn eru svo illa upp-
lýstir, að þeir þurfa að hafa
menntaða menn til að hugsa
fyrir sig.“ Þetta mat á mann-
gildi íslenzkrar alþýðu virðist
síður en svo bundið við skoð-
anir Gunnlaugs einar, heldur
er hér orðið um hreint stefnu-
mál hins fyrrverandi verkalýðs-
flokks, Alþýðuflokksins, að
ræða. Fremsti maður Alþýðu-
flokksins hér í bæ, Bragi rit-
stjóri Sigurjónsson, áréttaði
þessa stefnu meira að segja á
hátíðisdegi verkalýðsins, 1.,
maí, úr ræðustól, sem verká-'
lýðsfélögin höfðu trúað honum J
fyrir. Hann sagði að Alþingi '
ætti ekki að vera skipað verka- J
mönnum, „mennirnir á bak við \
skrifborðin", „lögfróðir menn;
og hagfræðingar“ mundu hæf-
astir til að leysa vanda alþýð-
; unnar þar.
Já, góðir hálsar. Svona er
komið fyrir flokknum sem
samkvæmt stefnuskrá sinni
byggir á marxismanum og
kenniingunni um að „frelsun
verkalýðsins verður að vera
hans eigið verk.“ Svona er
komið fyrir verkalýðsflokkn-
uf, sem þeir stofnuðu Jón Bald-
vinsson og Ottó N. Þórláksson,
flokknum, sem vann brautryðj-
endastarf sitt og stærstu sigra
undir forustu sjálfmenntaðs
! iðnaðarmanns, flokknum, sem
; hefur verið borinn uppi af í»-
! lenzkum verkamönnum og sjó-
; mönnum, þangað til þeir vökn-
! uðu við það að klika bitlinga-
| sjúkra skrifborðsmanna í feit-
um embættum var búin að
taka öll völd flokksins-i sínar
hendur og skoðaði hann sem
.sína einkaeign til þess eins
;; þénlega að veita þeim fín emb-
ætti og fallega titla.
Það er jafnt á borði sem í
orði, að Alþýðuflokkurinn af-
neitar því að hann sé verka-
lýðsflokkur lengur. Tengsl;;
hans við verkalýðshreyfinuna
nafa verið slitin hvert af öðru.
n.ftir síðasta AlþýðusamDands-
ping átti flokkurinn 7 af 9
monnum í miðstjórn Alþýðu-
sambandsins. Flestir þeirra, ef
ekki allir, hafa nú verið reknir
ur flokknum, og þ. á. m. forseti
■sambandsins og ritari þess. j
; A Alþingi átti flokkurinn 6 !
| pingmenn, þar af 4 embættis-;
j menn og tvo úr verkalýðsstétt,!
| f orseta A. S. I. og Egert Þor-
i steinsson, formann Múrarafé-
| fags Reykjavíkur, ungan og
i narðduglegan iðnaðarmann. —
norseti A. S. í. var rekinn og
Eggert Þorsteinsson hefur ver-
ið látinn standa upp úr kjör-
dæmi sínu fyrir Framsóknar-
kaupf élagsstjóra, sem aldrei
hefur nálægt málefnum verka-
lýðsins komið. Einn vel mennt-
!ur iðnaðarmaður, sem hafði
; unnið sér orð sem einn dugleg-
! asti og hæfasti þingmaður
flokksins, var of mikið fyrir
verkalýðsflokkinn. — Ekkert
nema „fínir“ menn, doktorar,
forstjórar, bæjarfógetaar skulu
fylla hinn þunnskipaða þing-
tlokk, ef nokkur verður.
Auðvitað er þessi þróun og
kenningin um „fínu“ mennina
sem frelsara verkalýðsins eng-
in tilviljun. Alþýðuflokkurinn
hefur gefist upp við sjálfstæða
tilveru og foringjar hans vinna
markvisst að því að innlima
hann í Framsóknarflokkinn og
eru raunar þegar búnir að því.
(Framhald á 4. síðu.)
r*****»*****><w#ww####f#;