Verkamaðurinn - 26.05.1956, Síða 1
VERHHmflÐURinn
XXXIX. árg.
Akureyri, laugardaginn 26. maí 1956
20. tbl.
1169
er sími Alþýðubanda-
lagsins
í ráði er að 2-3 togarar Útgerðarfélags Akureyringa fari á karfaveiðar
Munu leggja karfann upp í Krossanesverksmiðjunni til bræðslu
Vaxandi vandræði úigerðarinnar vegna
fryslihússleysisins
Að undanförnu hafa farið fram
viðræður milli stjórnar Útgerðar-
félags Akureyringa og stjórnar
Krossanesverksmiðjunnar um
möguleika á að 2—3 togarar út-
gerðarfélagsins fari á karfaveiðar
og leggi upp í bræðslu í verk-
smiðjunni.
I þessum viðræðum kom fram,
að nokkuð skortir á að verksmiðj-
an geti greitt það verð fyrir karf-
ann, sem Ú. A. telur sér nauðsyn-
legt að fá, ef von ætti að vera til
að þessi útgerð bæri sig. Taldi
stjórn Krossanesverksmiðjunnar
ekki unnt að greiða meira en 52
aura fyrir kg. af karfa, þótt ekkert
væri gert fyrir sliti á verksmiðj
unni og ýmsum öðrum föstum út-
gjaldaliðum, en stjórn Ú. A. taldi
sig þurfa minnst 55 aura f. kg. og
Framboð Alþýðubanda-
lagsins
Alþýðubandalagið hefur nú
ákveðið framboð í öllum kjör-
dæmum landsins. Auk þeirra,
sem áður hefur verið getið,
hafa eftirtalin framboð verið
birt:
I Vestur-Húnavatnssýslu:
Sigurður Guðgeirsson, prent-
ari.
í Barðastrandasýlu: Krist-
ján Gíslason, framkvæmda-
stjóri.
í Norður-Þingeyjarsýslu:
Rósberg G. Snædal, verka-
maður.
í Vestur-ísafjarðarsýslu Hall-
dóra Ó. Guðmundsdóttir,
netagerðarkona.
I Dalasýslu: Ragnar Þor-
steinsson, kennari.
í Suður-Þingeyjarsýslu: Jón-
as Árnason, kennari.
f Borgarfjarðarsýslu: Ingi
R. Helgason ,lögfræðingur.
Efstir á lista Alþýðubanda-
lagsins í Norður-Múlasýslu
eru: Jóhannes Stefánsson,
framkvæmdastjóri og Þórður
Þórðarson, bóndi.
10 efstu menn á lista Al-
þýðubandalagsins í Rvík eru:
Einar Olgeirsson, alþingism.,
Hannibal Valdimarsson, al-
þingism., Alfreð Gíslason,
læknir, Eðvarð Sigurðsson,
varaforseti ASÍ, Adda Bára
Sigfúsdóttir, veðurfræðingur,
Snorri Jónsson, jámsmiður,
Eggert Ólafsson, sjómaður, og
Hólmar Magnússon, sjómað-
ur.
taldi sig hafa nokkra von um að
geta fengið það verð annarsstaðar.
Mál þetta kom svo til umræðu
aukafundi bæjarstjórnar sl.
föstudag. Samþykkti bæjarstjórn
Dar að lyktum tillögu frá Birni
Jónssyni og Helga Pálssyni um að
heimila Krossanesstjórn að greiða
allt að 55 aurum fyrir kg. hráefnis
af karfa ,enda greiddi bæjarsjóður
3 aura á hvert kg., ef tap verk-
smiðjunnar næmi því eða meiru.
ATVINNA FYRIR 35—40
MENN.
Þar sem bæjarstjórn hefur þann-
ig gengið að þeim skilmálum, sem
Ú. A. setti upp um verð, má telja
víst að það sendi a. m. k. tvo tog-
ara sína til þessara veiða um eða
úr næstu mánaðamótum, en hinir
fari á veiðar í ís og legi þá senni-
lega upp afla sinn í frystihús
í Vestmannaeyjum.
Karfaveiðarnar, ef úr þeim
verður, munu veita um 15 mönn-
um atvinnu í verksmiðjunni og um
20 mönnum meðan löndun stend-
ur yfir. Hér er því um verulegt at-
vinnumagn að ræða, þótt smá-
vægilegt sé hjá því, ef um starf-
rækslu frystihúss væri að ræða,
og byggist stuðningur bæjarins að
sjálfsögðu fyrst og fremst á því
atriði. Er sennilegt að vinnulaun í
landi, ef togararnir stunda þessar
veiðar til hausts, geti numið 700
—1000 þús. kr. Hefði verið illt
til þess að hugsa, að slík atvinna
hefði algerlega verið flutt úr bæn-
um.
VAXANDI VANDRÆÐI
ÚTGERÐARINNAR VEGNA
ÞESS AÐ FRYSTIHÚSIÐ ER
EKKI TEKIÐ TIL STARFA.
Vandræði Útgerðarfélagsins á
mörgum sviðum fara nú sívaxandi
vegna þess hve seint var hafizt
handa um byggingu hraðfrysti-
hússins og allar tillögur sósíalista
hunzaðar þar að lútandi af bæjar-
stjórnarafturhaldinu. Tap útgerð-
arinnar nemur þegar milljónum
króna af þessum sökum og stöðug
vandræði hafa steðjað að félaginu
með það hvaða veiðar skipin
gætu stundað. Á sl. ári gátu þeir t.
d. ekki um langt skeið komizt að í
frystihúsum og urðu því að sæta
þeim afarkostum að fara fleiri
söluferðir en flestir eða allir aðrir
togarar til Þýzkalands og selja þar
afla sinn með stórfelldu tapi,
jafnvel fyrir svo lítið, að salan
nægði ekki fyrir nauðþurftum við-
komandi skips í einni söluferð.
(Framhald á 4. síðu).
Irtgibjörg EiríksdóttÍT.
Aðalfundur Kvenfélags
sósíalista
var haldinn sl. þriðjudag. í stjórn
félagsins voru kjörnar: Formaður
Ingibjörg Eiríksdóttir, ritari Mar-
grét Sigurðardóttir og gjaldkeri
Sigríður Þorsteinsdóttir. Varafor-
maður var kosin Theódóra Þórðar-
dóttir.
Á fundinum var rætt um kosn-
íngarnar og fleira. Var mikill
áhugi ríkjandi fyrir sigri Alþýðu-
bandalagsins og félagskonur
ákveðnar í að leggja alla krafta
sína fram í kosningabaráttunni.
Félagið samþykkti að leggja
1000.00 kr. úr sjóði sínum í kosn-
ingasjóð Alþýðubandalagsins.
Kristinn Jónsson og Sigursfeinn
Magnússon
efstir á lista Alþýðubandalagsins í
Eyjafjarðarsýslu
Héraðsnefnd Alþýðubandalags- 20 ára bil. Hann hefur átt sæti í
ins í Eyjafjarðarsýslu hefur ein-
róma ákveðið að framboðslisti
þess verði þannig skipaður:
1. Kristinn Jónsson, oddviti, Dal-
vík.
2. Sigursteinn Magnússon, skóla-
stjóri, Olafsfirði.
3. Ingóifur Guðmundsson, bóndi,
Fornhaga.
4. Jóna Jóhannsdóttir, húsfrú, Dal-
vík.
Kristinn Jónsson er fæddur í
Haafnsstaðakoti i Svarfaðardal 21.
sept. 1896, sonur hjónanna Jónas
Jónssonar, bónda þar, og konu
hans, Guðrúnar Guðmundsdóttur.
Keflavík - Akureyri
I dag kl. 5 e. h. keppa úr-
valslið Akureyringa og Kefl-
víkinga í knattspymu á nýja
íþróttavellinum. Kl. 6.30 3.—
4. fl. og á morgun kl. 11 3.-4.
fl. og kl. 2 úrvalsl. Keflavíkur
og B-lið Akureyringa.
Kristinn Jónsson.
Tólf ára gamall lærði hann sund
og var fljótt mikill áhugamaður
um sundíþrótt. Hann var aðeins
16 ára, er hann hóf sundkennslu í
Svarfaðardal, og í samfleytt 30 ár
var hann sundkennari í Svarfaðar-
dal og Siglufirði. Hann var aðal-
hvatamaður að bygginu Sundskála
Svarfdæla og kom þar á sund-
skyldu, fyrst allra héraða landsins,
að Vestmannaeyjum einum undan-
skildum.
Kristinn tók snemma þátt í ým-
iss konar félagsmálum. Hann var
einn af stofnendum Verkalýðsfé-
lags Dalvíkur og var ýmist for-
maður þess eða meðstjómandi um
Frá kosningaskrifsfofunni
Skrifstofa Alþýðubandalags-
ins er í Verkalýðshúsinu og er
opin daglega kl. 4—7 e. h. —
Sími 1169.
Allir stuðningsmenn Al-
þýðubandal., sem vita um
fjarverandi kjósendur eða
geta gefið aðrar upplýsingar,
sem að gagni mega koma,
eru eindregiið hvattir til að
hafa samband við skrifstofuna
nú þegar eða næstu daga. —
U tankjörstaðaatkvæðagreiðsla
hefst á morgun, 27. þ. m., og
er mjög áríðandi að allir kjós-
endur Alþýðubandalagsins,
sem utanbæjar dvelja eða ætla
í brott til langdvalar kjósi sem
allra fyrst. Allar upplýsingar
varðandi utankjörstaðatkvæða
greiðslu eru veittar í skrifstof-
unni.
Kosningabaráttan krefst
mikils fjármagns og Alþýðu-
bandalagið verður í því efni
að treysta einvörðungu á fóm-
fýsi stuðningsmanna sinna. —
Allir áhugamenn verða því að
vinna að þeim þætti starfsins
og taka söfnunargögn.
Látum ekkert tækifæri ónot-
að til að vinna að glæsilegum
sigri Alþýðubandalagsins! —
Tryggjum því úrslitavald á
Alþingi! — Heil til starfa!
Framkvæmdanefndin.
hreppsnefnd í samfleytt 18 ár, og
eftir síðustu kosningar var hann
kjörinn oddviti Dalvíkurhrepps.
Hann hefur ýmist verið formaður
eða framkvæmdastjóri Kaupfélags
Neytenda (áður Pöntunarfélag
Dalvíkur) á Dalvík í 21 ár. For-
maður hafnarnefndar hefur hann
verið í mörg ár, stjómskipaður
formaður Byggingafélags verka-
manna á Dalvík frá stofnun þess,
auk margra annarra trúnaðar-
starfa.
Kristinn hefur unnið við margs
konar störf, bæði til lands og
sjávar. Lengst af hefur hann unnið
að netagerð á Dalvík og Siglufirði
og rekið eitt af stærstu netaverk-
stæðum landsins í 36 ár, um nokk-
urt árabil í sameign við menn þá,
er unnu á verkstæðinu.
Kristinn er frábær félagsmaður,
samvinnuþýður og vel látinn af
óllum, er til hans þekkja, og jafn-
an viðbúinn að miðla málum, þeg-
ar um ágreining er að ræða.
Sigursteinn Magnússon er fædd-
ur í Olafsfirði 17. ágúst 1902.
Sonur hjónanna Magnúsar Sölva-
sonar, bónda í Ólafsfirði, og konu
hans, Halldóru Þorsteinsdóttur.
Hann lauk kennaraprófi frá Kenn-
araskólanum 1921 og stundaði síð-
an framhaldsnám í eitt ár í Kaup-
mannahöfn. Hefur síðan stundað
kennslu óslitið, fyrst í Súðavík við
ísafjarðardjúp, en síðan skóla-
stjóri í Ólafsfirði frá 1934. Sigur-
steinn hefur mikið sinnt félagsmál-
um. Hann hefur verið fulltrúi só-
síalista í bæjarstjóm Ólafsfjarðar
tvö kjörtímabil og í stjórn Sósíal-
istafélags Ólafsfjarðar frá stofnun
>ess. Stofnandi og stjórnarmeð-
limur Byggingafélags verkamanna
o. fl.
Sigursteinn hefur gefið sig æði
mikið að ritstörfum og gefið út
eina Ijóðabók: „Eg elska þig,
jörð.“
Ingólíur Guðmundsson er fædd-
ur að Ásláksstöðum í Hörgárdal
19. des. 1908. Sonur hjónanna
Guðmundar Magnússonar, bónda
þar, og konu hans, Sesselju Jóns-
dóttur. Ingólfur er gagnfræðingur
frá Menntaskólanum á Akureyri
og kennaraprófi lauk hann við
Kennaraskóla íslands 1930. Síðan
stundaði hann lengi kennslu í
Hörgárdal, Hólmavík og víðar.
Hann er kvæntur Herdísi Páls-
dóttur frá Fomhaga, og hófu þau
búskap að Fornhaga 1939, og hafa
búið þar síðan, að undanteknum
þrem árum, er Ingólfur stundaði
kennslu utan sveitarinnar.
Hann hefur lengi verið áhuga-
maður um félagsmál og jafnan
skipað sér í sveit með .þeim, sem
trúastan vörð hafa staðið um hags-
munamál hinna vinnandi stétta.
Hann átti sæti á framboðslista
Sósíalistaflokksins í Eyjafjarðar-
sýslu 1942 og við hverjar kosning-
ar síðan.
Jóna Jóharmsdóttir er fædd 4.
sept. 1913 að Skriðulandi í Amar-
neshreppi. Dóttir hjónanna Jó-
hanns Páls Jónssonar, er þá bjó að
(Framhald á 4. síðu).