Verkamaðurinn - 15.06.1956, Síða 1
VERKHimmiin
XXXIX. árg. Akureyri, föstudaginn 15. júní 1956 23. tbl.
1169
er sími Alþýðubanda-
lagsins
Glæsilegur lundur Alþýðubandalagsins
Lúsugur uppfræðari
Hinn almenni kjósendafundur,
sem Alþýðubandalagið hélt hér í
Alþýðuhúsinu á Akureyri síðastl.
sunnudag var enn einn vottur þess
að Alþýðubandalagið á vaxandi
vinsældum og fylgi að fagna —
var fundarhúsið troðfullt.
Fyrstur tók til máls frambjóð-
andi Alþýðubandalagsins hér á
Akureyri, Bjöm Jónsson, formað-
ur Verkamannafélags Akureyrar-
kaupstaðar. Flutti hann ýtarlega,
rökstudda og snjalla ræðu. Er
kafli úr henni birtur hér í blaðinu
í dag. Að lokinni ræðu hans fluttu
þeir Alfreð Gíslason læknir og
Jónas Árnason, rithöfundur, einnig
ágætar ræður.
Sjálfboðaliðar
sem vilja vinna að ;
undirbúningi kosn-
inganna fyrir Alþýðu-
bandalagið eða á kjör-::
degi eru vinsamlega ;|
beðnir að hafa sem :;
allra fyrst samband |
við skrifstofuna íi;
Verkalýðshúsinu — :;
SÍMI 1169.
Það er afar áríðandi,:;
að allir, sem tekið hafa |
könnunarlista haf i
strax samband við
skrifstofuna og gefi ;|
nauðsynlegar upplýs- ;|
ingar um fjarverandi :;
kjósendur o. fl.
Skrifstofan verður l;
framvegis opin dag-:;
lega kl. 1—7 og kl-
8-10 e h.
Framkvæmdanefndin. ;|
Var öllum framsöguræðunum
fagnað með dynjandi lófataki.
Er það almennt viðurkennt, að
þessi fundur Alþýðubandalagsins,
eins og fyrri fundir þess hér, hafi
sýnt það rækilega, að alþýða
manna fylkir sér um Alþýðu-
bandalagið — enda mun nú flest
alþýðufólk, og vinstri menn yfir-
leitt, vera orðið allþreytt á loforð-
um og svikum stjórnarflokkanna
og síhækkandi álögum þeirra.
Til stuðningsmanna
Alþýðubandalagsins!
Þeir, sem hafa könn-
unarlista eru beðnir að
hafa strax samband við
kosningaskrifstofu Al-
þýðubandal., Strandg- 7
(Verkalýðshúsinu). —
Sími 1169.
Herinn fer ekki nema Alþýðu
bandalagið sigri glæsilega
Dr. Kristinn, utanríkisráðherra,
hefur loksins orðið við kröfunum
um að tilkynna bandarískum
stjómarvöldum um ákvörðun Al-
þingis 28. marz sl., í hernémsmál-
unum.
Bandarískir halda látlaust áfram
hergagnaflutningum til landsins.
Það er ekkert fararsnið á þeim,
síður en svo. Þeir telja víst að
Framsókn og rófan á þeim, hægri
kratarnir, muni svíkja sína eigin
samþykkt nema Alþýðubanda-
lagið vinni mikið á í kosningun-
um.
Yfirherstjórn Bandaríkj-
anna bíður úrslita Alþingis-
kosninganna á Islandi 24.
júní í ofvæni, segir Hanson
W. Baldwin, hermálasér-
fræðingur bandaríska stór-
blaðsins New York Times.
„Ef úrslit kosninganna verða
þau, að kommúnistar fá úr-
slitaaðstöðu á Alþingi íslend-
inga, neyðist bandaríska her-
liðið, sem nú mannar herstöð
sem hefur kostað Bandaríkin
150 milljónir dollara (2450
milljónir króna), að öllum
líkindum til að hverfa á
brott,“ segir Baldwin í blaði
sínu 29. maí.
Rifrildi utanríkisráðherra og
forsætisréðherra í útvarpinu og
Tímans og Morgunblaðsins um
brottför hersins, er eingöngu sett á
svið til að blekkja kjósendur,
þyrla ryki í augu þeirra, svo að
þeir komi ekki auga á kjarna
þessa máls.
r#############################^. t
■i Verðlaunagetraun
;; Alþýðubandalagið hér á;j
jjAkureyri hefur efnt tiljj
verðlaunagetraunar. Hefur j!
það látið prenta getrauna-j!
seðla, sem fást á kosninga-!;
skrifstofu Alþýðubandalags!;
ins. ;j
Hvað fær Alþýðubanda-jj
lagið mörg atkvæði á Akur-;j
eyri í kosningunum 24. ji
þ. m.? jj
Sá, sem kemst næst hinni j!
réttu atkvæðatölu fær kr.!;
500.00 — fimm hundruð:;
krónur — í verðlaun. :;
#############################« i
í „Degi“ 6. þ. m. var komist svo
að orði:
„Sjálfstæðisflokkurinn gegnir
svipuðu hlutverki á þjóðarlíkam-
anum og blóðsugurnar. Hans ver-
aldlega velferð byggist á því, að
hann hafi ávallt nóg, og honum
hefur tekizt að hreiðra þar um sig,
sem auðveldast er um fæðuöflun.
Þetta er honum þó engan veginn
nægilegt, því að hann þarf mikið á
sig að leggja til að sýnast ekki
vera það sem hann raunverulega
er.
Sjálfstæðismenn þurfa líka að
hugsa fyrir morgundeginum og
leita nýrra fanga. Þeir læðast eins
og lús með saum í kringum sam-
vinnufélög landsins, rógbera þau
og svívirða á allan hátt, eftir því
sem vit þeirra nær til, og koma
aftur og aftur, fram á ritvöllinn og
í ræðustólana.
Hér er því sem sagt blákalt
haldið fram, að Sjálfstæðismenn
séu blóðsugur og lýs. Með þessum
þokkalegu kvikindum hefur ma-
dama Framsókn haft samstarf í
ríkisstjórn og hefur enn, og auk
þess í bæjarstjórn Akureyrar og
víðsvegar um land.
Það er því engin furða þó því
alþýðufólki, sem hefur hingað til
fylgt Framsókn finnist hún nú
vera orðin morandi af lús.
Það er augljóst, að líðan ma-
dömu Framsókn fer nú daglega
versnandi. Greinin „Vel er nú
sungið, piltar“, sem birtist í „Degi“
13. þ. m„ ber ótvíræðan vott um
að líðan Framsóknarmadömunnar
er að verða óbærileg. Grein þessi
mun vera skrifuð af kennarakreist-
ingi Framsóknar.
Skulu hér birt nokkur sýnishorn
af munnsöfnuði þessa uppeldis-
frömuðar Framsóknar. Þetta and-
lega og líkamlega peð hefur hér
með orðið: „með froðufalli og
andlegum nektarsýningum". —
„Ein slík nektarsýning er haldin í
síðasta tbl. „Verkamannsins" hér
í bæ. Tvær nafngreindar, en ekki
nafnkunrtar, konur — sjálfsagt all-
föngulegar utan um sig sálar-
lega. . . . “
„. .. . en á hinn bóginn skringi-
látum æsitrúarmanna með tilheyr-
andi „vitnunum" og froðufalli. . .“
....alblóðug böðulshönd harð
stjórans". „. . . . hafa leitt þig svo
ljúflega og viðnámslaust á manns-
eyrunum þínum stóru út í forað
þeirra blekkinga og erkilygi, sem
þú og þeir eruð nú að reyna að
krafla ykkur upp úr með svo veik-
um burðum og skömmustulegum
látalátum, heldur einnig á tak-
markalausa trúgirni, vanþekkingu
og heimsku þeirra, sem þú ætlar
að lesa slíkar ritsmíðar."
Þessar tilvitnanir nægja og
meira en það. Rétt er að vekja á
því athygli, að hugrekki kennara-
kreistingsins er í réttu hlutfalli við
líkamlega stærð og greind hans —
því að hann brestur hug til að
setja nafn sitt undir þessi prúð-
mannlegu skrif um þá greinarhöf-
unda, sem hann ræðst á eins og
blóðsuga og lús fyrir að birta
prúðmannlega skrifaðar greinar í
„Verkam.“ undir fullu nafni.
Þessi „fræga“ „Dags“grein ber
greinilegan vott um æðisgenginn
ótta þeirra Hræðslubandalags-
manna — og munu stuðningsmenn
Alþýðubandalagsins svara henni
við kjörborðið 24. þ. m. — ó eftir-
minnilegan hátt.
Alþýðubandalagið mun þá gefa
Framsóknarmadömunni það þrifa-
bað, sem væntanlega dugir til að
lækna hana og uppfræðara hennar
af lúsinni.
X BJÖRN JÓNSSON
Hvom brestur minnið?
Síðasti íslendingur heldur þvi
fram, að sagan um baráttu fyrir
togaraútgerð héðan, hafi hafizt á
fundi í Sjálfstæðisfélagi Akureyr-
ar 5. marz 19451 og telur mig mis-
minna hrapallega, er eg sagði á
fundi sl. sunnudag, að verkalýðs-
hreyfingin (kommúnistar á máli
ísl.) hafi átt frumkvæði að togara-
útgerð héðan.
Þegar ritstj. ísl. hefur tíma til
ætti hann að líta í fundargerð bæj
arstjórnar frá 17. nóv. 1936, en
hún ber með sér, að bæjarfulltrúar
sósíalista báru þar fram eftirfar-
andi tillögu:
„Fundmim samþykkir að kjósa
rtefnd, sem gpri sem ýtarlegasta
áætlun um rekstur o£ afkomu-
möéuleika togaraútéerðar héðan
oé afli ábyééiieéra upplýsinéa eða
tilboða um verð oé væntanleéa
éreiðsluskilmála á einum til tveim-
ur toéurum, sem hæfileéir væru
til hvers konar veiðiskapar héðan
frá Akureyri. Skili rtefndin áranéri
af störfum sínum svo fljótt sem
möéuleét er. — Nauðsynleéur
kostnaður af störfum nefndarinnar
éreiðist úr bæjarsjóði.“
Milli 17. nóv. 1936 og 5. marz
1945 eru 8 ár og rúmir 3 mánuðir.
Það er sá tími, sem íhaldið þurfti
til að skilja rök verkalýðshreyfing-
arinnar fyrir nauðsyn togaraútgerð
ar héðan, og þó ekki nema að
nokkru. Hverjir samþykktu t. d. á
bæjarstjórnarfundi 28. nóv. 1945,
að afturjcalla umsókn um annan
þeirra togara, sem ákveðið hafði
verið að fá? Eða er annars vert að
reyna meira á minni Isl? — Það
er þó ekki nema sjálfsagt, ef hann
óskar.
Björn Jónsson.
Vinslri menn, Akureyri! kjósið björn jónssoni