Verkamaðurinn - 14.09.1956, Síða 4
4
VERKAMAÐURINN
Föstudaginn 14. sept. 1956
Samvinnutryggingar 10 ára
Samvinnutryggingar áttu tíu
ára starfsafmæli um s.l. mánaða-
mót, tóku til starfa 1. september
1946 og var brunatryggingadeild
fyrsta deild félagsins. Skömmu
síðar tóku til starfa sjódeild, og
um áramótin 1946—’47 bifreiða-
deild, sem nú tryggir' rúmlega
helming allra bifreiða í landinu.
Hafa Samvinnutryggingar lagt
mikla áherzlu á fræðslustarf um
umferðar- og öryggismál.
Iðgjaldatekjur Samvinnu-
trygginga námu fyrsta árið
684.000.00 krónum, en voru í
fyrra 31,3 milljónir, og er félagið
nú stærsta tryggingarfélag lands
ins. Það hefur á 10 ára starfsferli
sínum haft samtals 120,5 milljón
króna iðgjaldatekjur, en hefur af
þeirri upphæð skilað aftur til
þeirra tryggðu, sem samkvæmt
lögum félagsins eru eigendur
þess, 9.6 milljónum króna, eða
um 8%.
Framkvæmdastjórar Samvinnu-
trygginga hafa verið tveir á
þestum áratug, Erlendur Einars-
son frá byrjun til ársloka 1955, og
Jón Ólafsson síðar. Eklendur er
nú formaðaur félagsstj., en auk
hans í stjórn Jakob Frímanns-
son, Karvel Ogmundsson, Kjart-
an Ólafsson og ísleifur Högnason.
Stjórnin hefur verið óbreytt frá
byrjun, nema hvað Vilhjálmur
Þór, sem var aðalhvatamaður að
Umferðakennsla
í skólum
Nýlega heyrðist sagt frá því í
útvarpi, að í Reykjavík hafi um-
ferðalögreglunni borizt 1170 kær-
ur um árekstra á ökutækjum á
þessu ári og 5 menn hafi látið lífið
af umferðaslysum. Hér er því þörf
alvarlegra umbóta.
Víðar en hér eru umferðamálin
á dagskrá. I Osló hefur nýlega
staðið yfir námskeið í umferða-
kennslu, fyrir forgöngu Bindindis-
félags ökumanna og Kennarafélags
Noregs. Formaður Bindindisfélags
ökumanna, Steinar Hauge, hefur
verið aðalfrumkvöðull námskeiðs-
ins. Þátttakendur voru 54 kennar-
ar og lögregluþjónar, en þrisvar
sinnum fleiri sóttu um námskeið-
ið. Tilgangurinn með þessu nám-
skeiði er að auka kennslu í um-
ferðamálum í skólunum og gera
kennarana hæfa til að leysa það
verk af hendi. Sem kennslutæki
voru notaðir litlir bílar.
Oruggari umferff.
Þegar umferðanámskeiðinu í
Osló var lokið, gekkst Bindindis-
félag ökumanna fyrir annarri nýj-
ung þar. Var efnt til stórrar sýn-
ingar, sem nefnd var „Tryggere
trafik". Tilgangur sýningarinnar er
að vekja áhuga allra bifreiðasjtóra
og annarra stjórnenda ökutækja
fyrir öruggri umferð. Þar er lögð
áherzla á, að bifreiðastjórinn læri
sem bezt að þekkja bílinn. Og á
sýningunni var sýndur akstur og
gestimir gátu fengið að reyna
hæfni sína.
(Frá Áfengisvarnanefnd
Akureyrar.)
stofnun félagsins, var formaður
til ársloka 1955.
í tilefni af afmælinu hafa Sam-
vinnutryggingar gefið út mynd-
arlegt hefti af riti sínu „Sam-
vinnutrygging“, og eru í því
fjöldi greina, mynda og línurita
varðandi starfsemi félagsins lið-
inn áratug.
Á afmælisdaginn voru afhent
verðlaun í ritgerðasamkeppni
Samvinnutrygginga um umferða
mál, og hlaut Lárus Salómons-
son, lögregluþjónn, fyrstu verð-
laun, en Gunnar M. Magnúss,
rithöfundur, önnur verðlaun.
Einnig var fjöldi ökumanna
sæmdur öryggismerkjum félags-
ins fyrir að valda engu tjóni í 5
ár.
SósíaJistafélag Ak.
heldur hlutaveltu í Alþýðuhúsinu
sunnudaginn 23. þ. m. Félagar og
aðrir, sem kynnu að vilja gefa
muni á hlutaveltuna, eru vinsam-
legast beðnir að koma þeim á
skrifstofuna í Hafnarstræti 88
ekki síðar en á miðvikudagskvöld.
Híutaveltunefnd.
BROTABROT
í fyrri viku hljóp af stokkun-
um í skipasmíðastöð í Bremer-
haven í Þýzkalandi nýr togari,
sem þar er í smíðum fyrir Norð-
firðinga. Togara þessum hefur
verið valið nafnið Gerpir. Þetta
er dieselskip og verður stærsti
togari, sem Islendingar hafa eign-
ast til þessa. Áætlað er að skipið
verði tilbúið og afhent í lok nóv-
embermánaðar.
Á sunnudaginn kemur til
Reykjavíkur, í boði Þjóðleik-
hússins, ballettflokkur, rússnesk-
ur, og mun sýna þar í næstu
viku. í flokknum eru 12 manns.
'—>
Tilkynnt hefur verið, að
menntamálaráðuneyti Sovétríkj-
anna hafi boðið fimm íslenzkum
tónlistarmönnum til Sovétríkj-
anna snemma á næsta ári. Eru
það þau Stefán Islandi og Guð-
rún Á. Símonar, sem ráðgert er
að fari í janúar, og Páll ísólfsson,
Þuríður Pálsdótitr og Rögnvald-
ur Sigurjónsson, sem væntanlega
fara í apríl.
'—>
Kínverjar hafa nú í hyggju að
leggja hið aldagamla myndletur
sitt að mestu til hliðar á næstu
árum, en taka almennt upp notk-
un stafrófs í líkingu við það, sem
hér er notað. Gert er ráð fyrir, að
eftir tíu ár verði stafrófið al-
mennt notað við prentun blaða
og bóka, en þegar er farið að
kynna það og kenna í einstökum
skólum. Það er að sjálfsögðu
mikið átak að breyta þannig rit-
málinu á stuttum tíma, en kost-
irnir eru líka miklir. Lestrar- og
skriftarnám verður leikur hjá
því sem áður hefur verið, bæði
fyrir innfædda og aðra, sem vilja
læra mál fjölmennustu þjóðar í
heimi.
MÍR
Tónleikar sovétlistamanna
í Nýja Bíó, þriðjudaginn 18. þ. m. kl. 9 eftir hádegi.
Einleikur d pitmo: D. BASKÍROFF
Einsöngur: T. LAVROVA
Einleikur á fiðlu: K. AKTJAMOVA
Einsöngur: V. MOROZOV
Undirleikari: FRIEDA BAUER
Aðgöngumiðar seldir á Guilsmíðavinnustofu Sigtryggs
og Eyjólfs og við innganginn, ef [>á verður óselr.
Ný líennslubók í
íslenzkri málfræði
Komin er út ný kennslubók í
íslenzkri málfræði handa fram-
haldsskólum eftir dr. Halldór
Halldórsson, dósent. Útgefandi
er Bókaforlag Odds Björnssonar,
Akureyri, en bókin er gefin út í
samráði við fræðslumálastjóra.
í formála segir dr. Halldór að
efni bókarinnar sé miðað við þær
kröfur, sem nú eru gerðar í mið-
skólum og gágnfræðaskólum um
nám í íslenzkri málfræði. Efnis-
val er því svipað og tíðkazt hefur
í kennslubókum í málfræði fyrir
þetta fræðslustig, einkum bók
Björns Guðfinnssonar.
Dr. Halldór Halldórsson.
Um skýringar hugtaka og verk-
efnaval er bókin hins vegar all-
frábrugðin því, sem tíðkazt hef-
ur, en þar byggir dr. Halldór á
langri kennslureynslu. Þó er
bókin alls ekki róttæk breyting
frá því, sem kennarar eru vanir í
þessum efnum, enda telur dr.
Halldór mjög gagngerar breyt-
ingar ekki æskilegar. „Mér er
nær að halda,“ segir dr. Halldór
í formála að bókinni, „að kenna
megi verulegum hluta íslenzkrar
æsku öll aðalatriði íslenzkrar
málfræði, þau sem skýrð eru í
þessari bók. Eg hef nokkra
reynslu í því að kenna miður
gefnum nemendum íslenzka mál-
fræði, og varð niðurstaða mín sú,
að furðumargt mætti kenna
þeim.“
Þegar dr. Halldór hafði lokið
við að semja Kennslubók í setn-
ingarfræði og greinarmerkjasetn-
ingu, sem út kom í fyrra, taldi
hann nauðsynlegt að semja einn-
ig málfræðibók í samræmi við
hana, ætlaða sömu nemendum
eða némendum á svipuðu stigi.
Bókin er 168 blaðsíður og skiptist
í 9 aðalkafla. Bandið er snoturt
og í sama stíl og bandið á Setn-
ingarfræðinni. Bókin er prentuð
í Prentverki Odds Bjömssonar
h.f., Akureyri.
Fjölþætt frjálsíþrótta-
keppni
Á sunnudaginn, 16. þ. m„ kl. 2
e. h. hefst frjálsíþróttakeppni á
íþróttavellinum hér á Akureyri
milli fjögurra héraðssambanda:
íþróttabandalags Keflavikur, Ung-
mennasambands Kjalarnesþings,
Ungmennasambands Eyjafjarðar
íþróttabandalgs Akureyrar. Keppt
verður í 100 m. hlaupi, 400 m,
1500 m. og 4x100 m. boðhlaupi,
hástökki, langstökki og þrístökki,
kúluvarpi, spjótkasti og kringlu-
kasti.
Þing Æskulýðsfylk-
ingarinnar
hið 15. í röðinni, hefst hér á Ak-
ureyri á morgun og verður sett i
Verkalýðshúsinu kl. 2 e. h.
Allar líkur eru til að þing þetta
verði eitt hið fjölmennasta í sögu
Fylkingarinnar og munu fulltrúar
koma víða af landinu.
Á þinginu verða tekin til með-
ferðar ýmis áhuga- og vandamál
æskulýðsins auk stjórnmála-
ástandsins almennt.
Annað kvöld hafa þingfulltrúar
kvöldvöku að Hótel KEA og er
öllum Fylkingarfélögum og flokks-
félögum heimill aðgangur.
Þinginu lýkur væntanlega á
sunnudagskvöld.
Ólympíuskákmótið:
íslendingar í 2. flokki
Skákmönnum okkar heppnaðist
ekki að komast í 1. flokk á mót-
inu í Moskvu, þrátt fyrir ágæta
frammistöðu í sínum riðli. Efstir
i þeim rðili voru Argentínumenn
með 24 vinninga, næstir Vestur-
Þjóðverjar með 23, þá Bretar með
22 og íslendingar með 20y2 vinn-
ing.
Friðrik tapaði aðeins einni skák
í fyrri umferð, vann 5 skákir og
gerði tvö jafntefli.
Söltun Faxasíldar
Um siðustu helgi var söltun
Suðurlandssíldar komin upp x
93.265 tunnur, en á sama tíma í
fyrra var söltunin orðin 21.043
txmnur.
Afli var mjög lélegur sl. viku,
en fjöldi báta stundaði þó veið-
arnar og varð söltunin alls í vik-
unni tæpar 6 þús. tunnur, eða
5944.
NÝJA-BÍÓ
Aðgöngutmðasala opin kI 7-9,
Sími 1285
j / kvöld kl. 9:
Erfðaskrá og
afturgöngur
; j Spennandi, ný, amerísk j j
:j gamanmynd í litum.
sLouella Parson sagði þessal;
jj mynd vera be/.tu gaman- j!
:j mynd ársins 1954.
Aðalhlutverk: :j
jj DAVID NIVEN
jj YVONNE DE CARLO jj
j: BARRY FITZGERALD :j
Messað í Akureyrarkirkju á
sunnudaginn kemur kl. 2 e. h. —
Sálmar, Nr. 326, 219, 113, 456 og
584. Syngið sálmana. — P. S.
Aðalfundur Kennarafél. Eyja-
fjarðar verður haldinn í Bama-
skólanum á Akureyri laugardag-
inn 22. sept. og hefst kl. 10 ár-
degis. Á þessum fundi verður
minnst 25 ára afmælis félagsins.
Meðal fyrirlesara verða þeir Þór-
arinn Björnsson, skólameistari,
og dr. Matthías Jónasson.
Endurbætur í Nýja-Bíó. Ný-
lega er lokið við að móla and-
dyri og veggi sýningarsalarins
í Nýja-Bíó hér í bæ. Litirnir
eru Ijósir og gefa húsinu við-
felldan svip og bjartari en áð-
ur var.
Hjúskapur. Sl. laugardag voru
gefin saman í hjónaband af séra
Kristjáni Róbertssyni ungfni
Olga Egilsdóttir, saumakona, Víði
völlum 16, Akurevri, og Stéfán
Hallgrímsson, bóndi, Arnalds-
;töðum á Fljótsdal.
Iðnnemar! Munið aðalfund-
inn í Asgarði (llafnarstr. 88)
á föstudagskvöldið kl. 8.30 e. h.
Frá Heilsuverndarstöð Ak.:
Eftirlit með barnshafandi konum fer fram í Heilsuverndar-
stöð Akureyrar (Berklav.stöðinni) vikulega á fimmtudöy-
um kl. 4—5 eftir hádegi.
Þá verður einnig framkvæmd þar bólusetning gegn bólu-
sótt og barnaveiki frá 17. sept. til 17. okt. á mánudögum
kl. 2—3 eftir hádegi.