Verkamaðurinn - 12.10.1956, Side 1
VERKmURiíin
XXXIX árg.
Akureyri, föstudaginn 12. október 1956
33. tbl.
HAPPDRÆTTIÐ!
Miðar eru seldir í skrif-
stofu Sósíalistafélags Ak-
ureyrar og hjá ýnisum
einstaklingum.
Bófagreiðslur alvinnuleysisfrygginga
hafnar
A 3. síðu blaðsins í dag birtist síðasti hluti frásagnar Steinunnar
Bjarman af ferð kvennanefndarinnar til Sovétríkjanna á sl. sumri.
A myndinni sjást þátttakendur í ferðinni fyrir framan innganginn
að bandbúnaðarsýningunnl i Moskva,
Frá MIR
Akureyrardeild MÍR er nú að
hefja vetrarstarfsemi sína. N.k.
sunnudag verður félagsfundur í
Ásgarði og verða þar sagðar
fréttir af ráðstefnu MÍR í Reykja
vík og á eftir sýnd hin ágætasta
kvikmynd um rússneskan ballett.
Á mánudagskvöld verður svo
kvikmyndasýning og sýnd mynd-
in Maximka —- bráðskemmtileg
mynd, — Er ætlunin að hafa
kvikmyndasýningar á hverju
mánudagskvöldi fyrst um sinn.
Kvikmyndasýningar Akureyr-
ardeildar MÍR undanfarna vetur
hafa notið vinsælda, enda hefur
yfirleitt verið boðið upp á úr-
valskvikmyndir.
Blaðið vill vekja athygli á
þessari starfsemi deildarinnar og
hvetja fólk til þess að sækja vel
myndasýningar og annað sem
deildin býður upp á.
Víðtækari viiiiiumiðlun en áður liefur þekkst hér
A grundvelli samkomulags þess, er gert var við
lok verkfallsins vorið 1955, setti Alþingi lög um
atvinnuleysistryggingar á sl. vetri. Ákvæði laganna
um greiðslu atvinnuleysisbóta eru nú komin til
framkvæmda. Jafnhliða atvinnuleysistryggingalög-
unum og í beinu sambandi við þau var einnig sett
löggjöf um víðtækari og fjölþættari vinnumiðlun
en áður hefur þekkst hér á landi.
íhaldið féll í Hreyfli
Á þriðjudag og miðvikudag fór
fram allsherjaratkvæðagreiðsla í
bifreiðastjórafélaginu Hreyfli í
Reykjavík um kjör fulltrúa á 25.
þing ASÍ,
Úrslit urðu þau, að vinstri
menn unnu kosninguna, en
Hreyfill hefur um langt skeið
verið öflugasta vígi íhaldsins í
verkalýðshreyfnigunni. Er hér
um mikinn sigur að ræða fyrir
vinstri öflin og sýnir, að verka-
lýður landsins er staðráðinn í að
láta íhaldinu ekki verða að þeirri
ósk sinni að eyðileggja verka-
lýðshreyfinguna innan frá.
Listi vinstri manna í Hreyfli
hlaut 258 atkvæði, en íhaldslist-
jn 236. Fulltrúar Hreyfils eru
sjö,
Kosningar iij jiings ASl
Happdrætti
þjóðviljans
Dregið verður 2. nóv. Er því
aðeins rúmur hálfur mánuður til
gtefnu, en takmarkið er að selja
alla miða. Til að ná því marki
verða allir velunnarar blaðsins
að leggjast á eitt og nú er tíml
kominn að hefja lokasóknina.
Þjóðviljinn á 20 ára afmæli
þann 31. þ. m. Vinnum öll saman
að því að færa honum góðar af-
mælisgjafir með því að selja
hvern miða í happdrættinu og
afla nýrra kaupenda.
Happdrættisbiokkir og miðar er
afgreift frá skrifstofu Verka-
mannsins í Hafnarstræti 88 alla
virka daga.
V er kamannafélag
Akureyrarkaupstaðar.
I Verkamannafélaginu yar
framboðsfrestur útrunninn sl.
sunnudag. Aðeins einn listi kom
fram og var hann því sjálfkjör-
inn. Var sá listi borinn fram af
stjórn og trúnaðarmannaráði fé-
lagsins, og þannig skipaður:
Björn Jónsson,
Haraldur Þorvaldsson,
Þorsteinn Jónatansson,
Hallgrímur Stefánsson og
Torfi Vilhjálmsson.
Varamenn;
Ólafur Aðalsteinsson,
Björgvin Einarsson,
Árni Jónsson,
Gunnar Aðalsteinsson og
Árni Þorgrímsson,
Bílstjórafélag Akureyrar,
í Bílstjórafélaginu varð einnig
sjálfkjörið. Kom aðeins fram einn
listi og var hann borinn fram af
stjórn og trúnaðarráði félagsins
Samkvæmt því verða fulltrúar
Bílstjórafélagsins þessir:
Höskuldur Helgason og
Jón B. Rögnvaldsson.
Til vara:
Garðar Svanlaugsson og
Baldur Svanlaugsson.
Félag verzlunar- og
skrifstofiifólks,
Einnig þar var sjálfkjörið, og
eru íulltrúar félagsins þeir
Jón Samúelsson og
Kolbeinn Helgason.
Tfi vara;
óli D, Friðbjörnsson og
Björn Þórðarson,
Eiga nú aðeins tvö félög á Ak-
ureyri effir að kjósa fulltrúa sína,
en það eru Sjómannafélag Akur-
eyrar og Vélstjórafélag Akureyr-
ar, I báðum þessum félögum mun
kosning væntanlega fara fram
n.k. sunnudag.
Eyjamenn kveða íhaldið
í kútinn
í verkalýðsfélögunum í Vest-
mannaeyjum, eins og víðar um
land, hefur íhaldið mjög haft sig
í frammi í kosningunum tU Al-
þýðusambandsþings. En verka-
menn og sjómenn í Eyjum hafa
veitt því viðeigandi útreið. f öll-
um, þremur, félögum verka
manna og sjómanna í Eyjum fór
fram allsherjaratkvæðagreiðsla,
og urðu úrslit sem hér segir: í
Verkalýðsfélagi Vestmannaeyja
fengu vinstri menn 90 atkvæði en
íhaldið 50. í Vélstjórafélagi Vest-
mannaeyja fengu vinstri menn 81
atkvæði ep íhaldið 61 og í Sjó-
mannafélaginu Jötni fengu
vinstri menn 81 atkvæði en
íhaldið aðeins 21.
Er mjög til fyrirmyndar, hve
rækilega Eyjamenn hafa rekið
íhaldið af höndum sér.
Bótagreiðslur.
Stjórn atvinnuleysistrygginga-
sjóðs hefur ákveðið, að ákvæði
laganna um bótagreiðslur komi
til framkvæmda frá og með 1.
október sl. Sérstök úthlutunar-
nefnd annast úthlutun bóta fyrir
hvert verkalýðsfélag eða félaga-
samband, þar sem fleiri félög eru
á sama stað og þau verða ásátt
um skipun sameiginlegrar nefnd-
ar. í hverri útflutunarnefnd eiga
sæti fimm menn, þar af eru þrír
tilnefndir af verkalýðsfélagi eða
félögum og tveir tilnefndir af fé-
lögum atvinnurekenda.
Hér í bæ hafa verkalýðsfélögin
samþykkt að hafa eina úthlutun-
arnefnd fyrir öll félögin, og hafa
þau fyrir nokkru kosið fulltrúa
sína í nefndina, en þeir eru: Jón
Ingimarsson, starfsmaður verka
lýðsfélagaxma, Gunnar Aðal-
steinsson frá Verkamannafélagi
Akureyrarkaupstaðar og Sigui'ð-
ur Rósmundsson frá Sjómanna
félagi Akureyrar. Varamenn eru:
Jón B. Rögnvaldsson frá Bíl-
stjórafélagi Akureyrar, Elísabet
Eiríksdóttir frá Verkakvennafél.
Einingu og Arnfinnur Arnfinns-
son frá Iðju.
Fulltrúar atvinnurekenda i
nefndina munu enn eigi hafa
verið skipaðir, en verða það
væntanlega mjög fljótlega, svo að
nefndin geti tekið til starfa.
Fyrsta verk nefndarinnar verður
að setja sér reglugerð til að fara
eftir við úthlutun bótanna, en
stjórn atvinnuleysistrygginga-
sjóðs hefur þegar samið uppkast
að slíkri reglugerð fyrlr nefnd-
irnar ,sem þær svo þurfa að end
urskoða og ganga frá eftir því
sem við á á hverjum stað.
Vinnumiðlun.
Til þess að geta orðið aðnjót-
andi atvinnuleysisbóta, þarf hver
umsækjandi um þær að leggja
fyrir úthlutunarnefnd vottorð frá
vinnumiðlun á staðnum um at
vinnuleysistíma og fleira.
Um leið og atvinnuleysistrygg-
ingalögin voru sett, voru því
einnig sett lög um vinnumiðlun,
sem mæla svo fyrir, að sveitar
stjómir í hverju kauptúni eða
kaupstað, sem telur 300 íbúa eða
fleiri, skuli starfrækja vinnu-
miðlun. Fyrri lög um vinnumiðl-
un voru aðeins heimildarlög. Auk
þess er starfssvið þeirrar vinnu-
miðlunar, sem nú er ákveðin all-
miklu víðtækara en áður hefur
verið, einkum vegna þess, að á
starfi hennar og skrásetningu
manna þar byggist úthlutun at-
vinnuleysisbóta. Framkvæmd at-
vinnuleysistryggingalaganna velt
ur því fyrst og fremst á því, að
störf vinnumiðlunarinnar séu í
góðu lagi.
Aðalatriði regl ugerðarinnar um
vinnumiðlun eru rakin annars
staðar hér í blaðinu, og verður
því ekki farið frekar út í það hér.
Fullvíst má telja, að hér verði
sett upp sérstök vinnumiðlunar-
skrifstofa, því að öðrum kosti er
útilokað, að þau störf, sem vinnu
miðluninni eru ætluð, verði rækt
svo sem vera á og vera þarf.
Einmitt á slíkum stöðum sem
hér, þar sem verulegt atvinnu-
leysi er landlægt langan tíma úr
árinu, er brýn þörf, að starfsemi
vinnumiðlunar sé í góðu lagi,
bæði til að tryggja réttláta fram-
kvæmd atvinnuleysistrygginga-
laganna og til þess, að vinnu-
miðlunin verði raunhæfur milli-
liður milli verkamanna og at-
vinnurekenda.
Þess eru mýmörg dæmi hér, að
á sama tíma og verkamenn hafa
gengið atvinnulausir hefur at-
vinnurekendur skort vinnuafl.
Ástæðan er einfaldlega sú, að
hvorugur aðili hefur vitað af
hinum. Verkamennimir hafa alls
ekki vitað, hvar vantaði menn til
vinnu, og atvinnurekendurnir
ekki, hverjir voru vinnulausir.
Sé virk vinnumiðlun fyrir hendi
á slíkt ekki að geta komið fyrir.
Þeir verkamenn, sem atvinnu-
lausir eru, láta þá skrá sig hjá
vinnumiðluninni og atvinnurek-
endur leita þangað, þegar þá vant
ar menn til vinnu. Er ekki ósenni
legt, að áður en langir tímar líða
fari verulegur hluti af vinnu-
ráðningu lausráðinna verka-
manna fram fyrir milligöngu
vinniuniðlunarinnar.
(Framhald á 4. síðu.)