Verkamaðurinn


Verkamaðurinn - 12.10.1956, Qupperneq 1

Verkamaðurinn - 12.10.1956, Qupperneq 1
VERKmURiíin XXXIX árg. Akureyri, föstudaginn 12. október 1956 33. tbl. HAPPDRÆTTIÐ! Miðar eru seldir í skrif- stofu Sósíalistafélags Ak- ureyrar og hjá ýnisum einstaklingum. Bófagreiðslur alvinnuleysisfrygginga hafnar A 3. síðu blaðsins í dag birtist síðasti hluti frásagnar Steinunnar Bjarman af ferð kvennanefndarinnar til Sovétríkjanna á sl. sumri. A myndinni sjást þátttakendur í ferðinni fyrir framan innganginn að bandbúnaðarsýningunnl i Moskva, Frá MIR Akureyrardeild MÍR er nú að hefja vetrarstarfsemi sína. N.k. sunnudag verður félagsfundur í Ásgarði og verða þar sagðar fréttir af ráðstefnu MÍR í Reykja vík og á eftir sýnd hin ágætasta kvikmynd um rússneskan ballett. Á mánudagskvöld verður svo kvikmyndasýning og sýnd mynd- in Maximka —- bráðskemmtileg mynd, — Er ætlunin að hafa kvikmyndasýningar á hverju mánudagskvöldi fyrst um sinn. Kvikmyndasýningar Akureyr- ardeildar MÍR undanfarna vetur hafa notið vinsælda, enda hefur yfirleitt verið boðið upp á úr- valskvikmyndir. Blaðið vill vekja athygli á þessari starfsemi deildarinnar og hvetja fólk til þess að sækja vel myndasýningar og annað sem deildin býður upp á. Víðtækari viiiiiumiðlun en áður liefur þekkst hér A grundvelli samkomulags þess, er gert var við lok verkfallsins vorið 1955, setti Alþingi lög um atvinnuleysistryggingar á sl. vetri. Ákvæði laganna um greiðslu atvinnuleysisbóta eru nú komin til framkvæmda. Jafnhliða atvinnuleysistryggingalög- unum og í beinu sambandi við þau var einnig sett löggjöf um víðtækari og fjölþættari vinnumiðlun en áður hefur þekkst hér á landi. íhaldið féll í Hreyfli Á þriðjudag og miðvikudag fór fram allsherjaratkvæðagreiðsla í bifreiðastjórafélaginu Hreyfli í Reykjavík um kjör fulltrúa á 25. þing ASÍ, Úrslit urðu þau, að vinstri menn unnu kosninguna, en Hreyfill hefur um langt skeið verið öflugasta vígi íhaldsins í verkalýðshreyfnigunni. Er hér um mikinn sigur að ræða fyrir vinstri öflin og sýnir, að verka- lýður landsins er staðráðinn í að láta íhaldinu ekki verða að þeirri ósk sinni að eyðileggja verka- lýðshreyfinguna innan frá. Listi vinstri manna í Hreyfli hlaut 258 atkvæði, en íhaldslist- jn 236. Fulltrúar Hreyfils eru sjö, Kosningar iij jiings ASl Happdrætti þjóðviljans Dregið verður 2. nóv. Er því aðeins rúmur hálfur mánuður til gtefnu, en takmarkið er að selja alla miða. Til að ná því marki verða allir velunnarar blaðsins að leggjast á eitt og nú er tíml kominn að hefja lokasóknina. Þjóðviljinn á 20 ára afmæli þann 31. þ. m. Vinnum öll saman að því að færa honum góðar af- mælisgjafir með því að selja hvern miða í happdrættinu og afla nýrra kaupenda. Happdrættisbiokkir og miðar er afgreift frá skrifstofu Verka- mannsins í Hafnarstræti 88 alla virka daga. V er kamannafélag Akureyrarkaupstaðar. I Verkamannafélaginu yar framboðsfrestur útrunninn sl. sunnudag. Aðeins einn listi kom fram og var hann því sjálfkjör- inn. Var sá listi borinn fram af stjórn og trúnaðarmannaráði fé- lagsins, og þannig skipaður: Björn Jónsson, Haraldur Þorvaldsson, Þorsteinn Jónatansson, Hallgrímur Stefánsson og Torfi Vilhjálmsson. Varamenn; Ólafur Aðalsteinsson, Björgvin Einarsson, Árni Jónsson, Gunnar Aðalsteinsson og Árni Þorgrímsson, Bílstjórafélag Akureyrar, í Bílstjórafélaginu varð einnig sjálfkjörið. Kom aðeins fram einn listi og var hann borinn fram af stjórn og trúnaðarráði félagsins Samkvæmt því verða fulltrúar Bílstjórafélagsins þessir: Höskuldur Helgason og Jón B. Rögnvaldsson. Til vara: Garðar Svanlaugsson og Baldur Svanlaugsson. Félag verzlunar- og skrifstofiifólks, Einnig þar var sjálfkjörið, og eru íulltrúar félagsins þeir Jón Samúelsson og Kolbeinn Helgason. Tfi vara; óli D, Friðbjörnsson og Björn Þórðarson, Eiga nú aðeins tvö félög á Ak- ureyri effir að kjósa fulltrúa sína, en það eru Sjómannafélag Akur- eyrar og Vélstjórafélag Akureyr- ar, I báðum þessum félögum mun kosning væntanlega fara fram n.k. sunnudag. Eyjamenn kveða íhaldið í kútinn í verkalýðsfélögunum í Vest- mannaeyjum, eins og víðar um land, hefur íhaldið mjög haft sig í frammi í kosningunum tU Al- þýðusambandsþings. En verka- menn og sjómenn í Eyjum hafa veitt því viðeigandi útreið. f öll- um, þremur, félögum verka manna og sjómanna í Eyjum fór fram allsherjaratkvæðagreiðsla, og urðu úrslit sem hér segir: í Verkalýðsfélagi Vestmannaeyja fengu vinstri menn 90 atkvæði en íhaldið 50. í Vélstjórafélagi Vest- mannaeyja fengu vinstri menn 81 atkvæði ep íhaldið 61 og í Sjó- mannafélaginu Jötni fengu vinstri menn 81 atkvæði en íhaldið aðeins 21. Er mjög til fyrirmyndar, hve rækilega Eyjamenn hafa rekið íhaldið af höndum sér. Bótagreiðslur. Stjórn atvinnuleysistrygginga- sjóðs hefur ákveðið, að ákvæði laganna um bótagreiðslur komi til framkvæmda frá og með 1. október sl. Sérstök úthlutunar- nefnd annast úthlutun bóta fyrir hvert verkalýðsfélag eða félaga- samband, þar sem fleiri félög eru á sama stað og þau verða ásátt um skipun sameiginlegrar nefnd- ar. í hverri útflutunarnefnd eiga sæti fimm menn, þar af eru þrír tilnefndir af verkalýðsfélagi eða félögum og tveir tilnefndir af fé- lögum atvinnurekenda. Hér í bæ hafa verkalýðsfélögin samþykkt að hafa eina úthlutun- arnefnd fyrir öll félögin, og hafa þau fyrir nokkru kosið fulltrúa sína í nefndina, en þeir eru: Jón Ingimarsson, starfsmaður verka lýðsfélagaxma, Gunnar Aðal- steinsson frá Verkamannafélagi Akureyrarkaupstaðar og Sigui'ð- ur Rósmundsson frá Sjómanna félagi Akureyrar. Varamenn eru: Jón B. Rögnvaldsson frá Bíl- stjórafélagi Akureyrar, Elísabet Eiríksdóttir frá Verkakvennafél. Einingu og Arnfinnur Arnfinns- son frá Iðju. Fulltrúar atvinnurekenda i nefndina munu enn eigi hafa verið skipaðir, en verða það væntanlega mjög fljótlega, svo að nefndin geti tekið til starfa. Fyrsta verk nefndarinnar verður að setja sér reglugerð til að fara eftir við úthlutun bótanna, en stjórn atvinnuleysistrygginga- sjóðs hefur þegar samið uppkast að slíkri reglugerð fyrlr nefnd- irnar ,sem þær svo þurfa að end urskoða og ganga frá eftir því sem við á á hverjum stað. Vinnumiðlun. Til þess að geta orðið aðnjót- andi atvinnuleysisbóta, þarf hver umsækjandi um þær að leggja fyrir úthlutunarnefnd vottorð frá vinnumiðlun á staðnum um at vinnuleysistíma og fleira. Um leið og atvinnuleysistrygg- ingalögin voru sett, voru því einnig sett lög um vinnumiðlun, sem mæla svo fyrir, að sveitar stjómir í hverju kauptúni eða kaupstað, sem telur 300 íbúa eða fleiri, skuli starfrækja vinnu- miðlun. Fyrri lög um vinnumiðl- un voru aðeins heimildarlög. Auk þess er starfssvið þeirrar vinnu- miðlunar, sem nú er ákveðin all- miklu víðtækara en áður hefur verið, einkum vegna þess, að á starfi hennar og skrásetningu manna þar byggist úthlutun at- vinnuleysisbóta. Framkvæmd at- vinnuleysistryggingalaganna velt ur því fyrst og fremst á því, að störf vinnumiðlunarinnar séu í góðu lagi. Aðalatriði regl ugerðarinnar um vinnumiðlun eru rakin annars staðar hér í blaðinu, og verður því ekki farið frekar út í það hér. Fullvíst má telja, að hér verði sett upp sérstök vinnumiðlunar- skrifstofa, því að öðrum kosti er útilokað, að þau störf, sem vinnu miðluninni eru ætluð, verði rækt svo sem vera á og vera þarf. Einmitt á slíkum stöðum sem hér, þar sem verulegt atvinnu- leysi er landlægt langan tíma úr árinu, er brýn þörf, að starfsemi vinnumiðlunar sé í góðu lagi, bæði til að tryggja réttláta fram- kvæmd atvinnuleysistrygginga- laganna og til þess, að vinnu- miðlunin verði raunhæfur milli- liður milli verkamanna og at- vinnurekenda. Þess eru mýmörg dæmi hér, að á sama tíma og verkamenn hafa gengið atvinnulausir hefur at- vinnurekendur skort vinnuafl. Ástæðan er einfaldlega sú, að hvorugur aðili hefur vitað af hinum. Verkamennimir hafa alls ekki vitað, hvar vantaði menn til vinnu, og atvinnurekendurnir ekki, hverjir voru vinnulausir. Sé virk vinnumiðlun fyrir hendi á slíkt ekki að geta komið fyrir. Þeir verkamenn, sem atvinnu- lausir eru, láta þá skrá sig hjá vinnumiðluninni og atvinnurek- endur leita þangað, þegar þá vant ar menn til vinnu. Er ekki ósenni legt, að áður en langir tímar líða fari verulegur hluti af vinnu- ráðningu lausráðinna verka- manna fram fyrir milligöngu vinniuniðlunarinnar. (Framhald á 4. síðu.)

x

Verkamaðurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verkamaðurinn
https://timarit.is/publication/215

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.