Verkamaðurinn - 14.12.1956, Qupperneq 2
2
VERKAMAÐURINN
Föstudaginn 14. des. 1956
vERKflnwÐURinn
Ritstjóri: ÞORSTEINN JÓNATANSSON.
Útgefandi: Sósíalistafélag Akureyrar.
BlaÖstjórn: Björn Jónsson, Einar Kristjánsson, Jakob Ámason.
Afgreiðsla: Hafnarstraeti 88. Simi 1516. Pósthólf 21.
Áskriftarverð 40 krónur árg. Lausasöluverð 1. kr. eintakið.
Akureyri. — Prentverk Odds Björnssonar h.f.
JOLAGJAFIR:
Náttkjólar
Undirföt
Undirkjólar
- Hverjir rufu eininguna
(Framhald af 1. bls.).
þeim, sem þegar höfðu getið sér
góðan orðstý í starfi fyrir ASÍ.
Og benda má á það, til að sýna,
að Alþýðuflokknum var ekki gert
lægra undir höfði en Sósíalista-
flokknum, að í hópi fyrrverandi
stjórnarmeðlima, sem gert var
ráð fyrir að endurkjósa, voru að-
eins tveir meðlimir Sósíalista-
flokksins, en hér var gert ráð
fyrir að Alþýðuflokkurinn fengi
þrjá „flokksbundna".
En þessu boði neituðu Al-
þýðuflokksmennirnir. Og hvers
vegna gerðu þeir það?
Ástæðan getur engin önnur
verið en sú, að þeir hafi enga
samvinnu viljað. Þeir hafi aðeins
verið að „gera sig fallega í fram-
an“ með því að látast vilja hafa
samvinnu um kjör sambands-
stjórnar, en hafi verið fyrirfram
ákveðnir í að þiggja ekkert sam-
vinnuboð. Hitt var gott til að
auglýsa á eftir, að þeir hefðu vilj-
að hafa frið og einingu, vegna
þess að það var það, sem öll al-
þýða vildi.
m
En kratarnir réttu ekki fram
neina einingarhönd, heldur neit-
uðu þeir að taka í þá hönd, sem
að þeim var rétt til samstarfs um
stjórn ASÍ og velferðamál al-
þýðusamtakanna.
Ummælin í niðurlagi greinar
„Alþm.“, þar sem rætt er um
Björn Jónsson, þurfa ekki svars
við. Um þau gildir hið sama og
fleiri skrif Braga Sigurjónssonar,
sem í þeim dúr eru skrifuð, að
þau dæma sig dauð og ómerk
jafnskjótt og þau hrökkva úr
penna hans.
Saar aftur þýzkt
Franska þingið samþykkti á
miðvikudaginn með 354 atkvæð-
um gegn 225 samning Frakklands
og V.-Þýzkalands um að Saarhér-
aðið verði innlimað í V.-Þýzka-
land. Samningurinn tekur gildi um
áramótin.
Akið aldrei undir áhrifum
áfengis. — Forðist slysin. —
Nærföt
Sokkar
Hanzkar
Manchettskyrtur
Sportskyrtur
Bindi
Slaufur
Sokkar
Nærföt
V efnaðarvörudetld.
TILVALDAR JÓLA6JAFIR:
Herrasloppar
Úlpur á börn
Úlpur á fullorðna
Skíðabuxur, kvenna
Skíðabuxur, karla
Drengjabuxur
Karlmannabuxur
GEFIÐ NYTSAMAR
JÓLAGJAFIR.
SAUMASTOFA GEFJUNAR
RÁÐHÚSTORGI 7.
Bifreiðaeigeudur!
Hver dropi af ESSO smurnings-
olíum eykur afköst og
minnkar vélaslit.
MUNIÐ
að það bezta er aldrei
of gott.
OLÍUSÖLUDEILD
KEA
Símar: 1860 og 1700.
Ekki tollahækkun
að sinni
Eisenhower Bandaríkjaforseti
skýrði frá því í gær, að hann væri
ósamþykkur tillögu bandarísku
tollanefndarinnar um hækkaðan
verndartoll á innfluttum fiskflök-
um.
Nefndin samþykkti tillögu þessa
efnis einróma í haust að undir-
lagi útgerðarmanna á austur-
strönd Bandaríkjanna, sem lengi
hafa borið sig illa irndan erlendri
samkeppni á bandaríska markað-
inum.
Eisenhower sagðist ekki vera
þeirrar skoðunar, að hækkim
verndartollsins væri til þess fall-
in að leysa á varanlegan hátt úr
vandræðum sjávarútvegsins í
Bandaríkjunum.
Þrátt fyrir yfirlýsingu Eisen-
howers er talið víst, að nefndin
flytji tillögu sína á ný að haustL
Væntanlegt:
Rauðkál
Hvítkál
Rauðrófur
Gulrætur
Laukur
Tökum á móti
pöntunum.
KJÖT & FISKUR