Verkamaðurinn - 22.01.1960, Page 1
VERKflmflÐin
XLIII. árg.
Akureyri, íöstudaginn 22. janúar 1960
Öviðunandi ósamræmi í greiðslum bóta
vegna dauðaslysa
Atriði, sem taka verður til athugunar og lag-
færingar á Alþingi í vetur
í lögum um almannatryggingar
er svo ákveðið, að launþegar, sem
verða fyrir slysi við vinnu sína
eða á leið milli vinnustaðar og
heimilis eða matstaðar, skuli eiga
rétt til slysabóta, ef þeir slasast,
svo að þeir verða óvinnufærir um
lengri eða skemmri tíma. Sömu-
leiðis skulu aðstandendur þeirra,
er farast af slysum, hljóta dánar-
bætur, samkvæmt sérstökum
reglum, ef menn farast af slysum
við tryggingarskyld störf. Sömu
réttinda og hér er getið njóta
einnig fleiri menn eða starfshóp-
ar í vissum tilfellum, enda greiða
þeir sjálfir, eða aðrir vegna
þeirra, þá áhættuiðgjöld vegna
starfa þeirra.
Hér verður ekki, að þessu
sinni, rætt um hinar almennu
slysabætur, heldur einungis bæt-
ur þær, sem greiðast vegna
dauðaslysa, hinar svonefndu dán-
arbætur, sem aðstandendum
greiðast í eitt skipti fyrir öll.
Enginn mun draga í efa rétt-
mæti slíkra bótagreiðslna, þegar
um það er að ræða, að fyrirvinna
þeimjlis fgljur fpg, enda nepga
dánarbætur ekki teljandi upp-
hæð í öðrum tilfellum. Öllum
hlýtur að vera það ljóst, hversu
mikil röskun verður t. d. á hög-
um eiginkonu og barna, þegar
maðurinn, sem verið hefur fyrir-
vinna heimilis fellur skyndilega
frá. Skal ekki frekar um það
atriði rætt, svo augljóst má það
vera hverjum manni. Tilgangur
löggjafans með ákvörðun um
dánarbætur hefur líka verið sá,
að koma með því í veg fyrir, að
heimilin yrðu bjargarlaus í slík-
um kringumstæðum og létta eft-
irlifendum erfiða lífsbaráttu.
En við athugun laganna vekur
það eftirtekt, hversu misjafnt
fólki er gert, eftir því, hvort við-
komandi ferst af völdum slyss á
landi eða sjó, þ. e. a. s. ef skip
það eða bátur, sem maðurinn
ferst af er 12 tonn að stærð eða
meira.
Það má öllum ljóst vera, að af-
komumöguleikar þeirra heimila,
sem missa fyrirvinnu sína af
völdum slyss verða jafn erfiðir,
hvort sem slysið verður á sjó
eða landi. Það skiptir alls engu
máli hvað því viðvíkur, hvar eða
hvernig slys verður. Heimili
manns, sem ferst í bílslysi eða
hrapar í fjalli verður alveg jafn
illa sett eins og heimili þess, sem
ferst í sjó. Þess vegna ættu dán-
ardætur að vera jafnháar, hver
sem orsök slyssins er.
Á árinu 1954 var sú breyting
gerð á almannatryggingalögun-
um, að dánarbætur lögskráðra
sjómanna voru ákveðnar stórum
mun hærri en bætur vegna ann-
arra dauðaslysa. Þá skapaðist það
mikla ósamræmi, sem ríkir í
þessum efnum. Og það ósamræmi
var ennþá aukið á sl. ári, þegar
dánarbætur vegna lögskráðra
sjómanna voru hækkaðar uni
100% frá því, sem áður var, án
þess að nokkrar breytingar væru
gerðar á dánarbótum í öðrum til-
fellum.
Því fer þó fjarri, að dánarbæt-
ur þær, sem aðstandendum lög-
skráðra sjómanna, sem farast,
eru greiddar, séu nú of háar. En
aðrar dánarbætur eru of lágar.
Og alveg sérstaklega vekur það
eftirtekt, að ekki skuh öllum
sjómönnum, eða réttara sagt að-
standendum allra sjómanna, gert
jafnhátt undir höfði.
Framhald d 4. siðu.
3. tbl.
Aðalfundur
V erkaman naf élagsins
vesður haldinn n.k. sunnudag kl.
1.30 í Alþýðuhúsinu. Þar verður,
auk venjulegra aðalfundarstarfa,
rætt um kjaramálin og þau við-
horf, sem gera má ráð fyrir, að
skapist við efnahagsaðgerðir þær,
sem væntanlegar eru frá ríkis-
stjóm og Alþingi. Fonnaður fé-
lagsins, Björn Jónsson, flytur
framsöguræðu um þessi mál.
Er nauðsynlegt að félagar fjöl-
menni á fundinn til að marka af-
stöðu til nýrra kjarasamninga.
Afli Húsavíkurbáta
Húsavík í gær.
Héðan róa nú 5 þilfarsbátar og
7 opnir vélbátar. Afli bátanna frá
áramótmn til 15. janúar var alls
187 lestir miðað við slægðan fisk
með haus, eða 293 skippund. —
Mestan afla hefur Hagbarður, en
hann er líka stærsti báturinn.
Afli einstakra báta var sem hér
segir á þessu tímabili:
Hagbarður 91 skpd. í 12 róðrum.
Njörður 59 skpd. í 14 róðrum.
Hrönn 44 skpd. í 12 róðrum.
Grímur 34% skpd. í 12 róðrum.
Sæborg 14% skpd. í 6 róðrum.
Ver 10 skpd. í 7 róðrum.
Gylfi 9 skpd. í 7 róðrum.
Guðrún 8 skpd. í 7 róðrum.
Kristján 6% skpd. í 6 róðrum.
Fram 6 skpd. í 5 róðrum.
Ásg. Kristj. 4% skpd. í 5 róðrum.
Sægammur 4 skpd. í róðrum.
Fimm þeir frysttöldu eru þil-
fgrsbátar, en hitt trillur. Alls eru
á þessum bátum 44 menn.
Á síðasta ári luku Akureyringar bygg-
ingu 50 íbúðarhúsa með 89 íbúðum
Samkvæmt skýrslu byggingafulltrúans á Akureyri um
byggingaframkvæmdir í bænum, var á árinu 1959 lokið
byggingu 50 íbúðarhúsa með samtals 89 íbúðum. Þá voru í
byggingu og komin undir þak 61 hús með samt. 106 íbúðum,
og auk þess var á árinu byrjað á 30 húsum með 36 íbúðum.
Fullgerð hús.
Sem áður segir voru 50 íbúðar-
hús fullgerð á árinu, og eru í
þeim 89 íbúðir. Samanlagt grunn-
mál er 6130 m2 og rúmmál 35.986
m:i. Af þessum húsum eru 24 ein-
býlishús og 22 tvíbýlishús, 1 rað-
hús með 7 íbúðum og 1 með 4
íbúðum og tvö fimm íbúða hús,
sem Byggingafélag verkamanna
byggði. Að meðaitali eru 4,1 her-
herbergi í hverri íbúð.
Auk íbúðarhúsa var á árinu
lokið við ýmsar aðrar byggingar,
að rúmmáli samtals 9929 m:t,
Þær byggingar eru í skýrslu
byggingafulltrúans taldar þess-
ar: Geymsla fyrir Skinnaverk-
smiðjuna Iðunni, Leikskóli
Barnaverndarfélagsins, Vél-
smiðja Valmundar Guðmunds-
sonar, Leikfangagerð Baldvins
Ásgeirssonar, Geymsla Skelj-
ungs h.f., Skipasmíðastöð KEA,
Landsmenn keyptu áfengi fyrir 176
milliónir króna síSasla ár
en salan á Akureyri síðasta ársf jórðung
stórum minni en áður
Heildarsala áfengis frá Áfeng-
isverzlun ríkisins nam á síðasta
ári rúmum 176 millj. króna,
þannig að hvert mannsbarn á
landinu hefur til jafnaðar keypt
þar áfengi fyrir 1035 krónur.
Til samanburðar er þess að
Verkamannafélagið og Eining
halda sameiginlega árshátíð
Eins og oft áður hafa Verka-I skuggamynda, upplestur og
mannafélag Akureyrarkaupstað- skemmtiþáttur, sem hinn vinsæli
ar og Verkakvennafélagið Eining I leikari Karl Guðmunsdson ann-
ákveðið að halda árshátíð félag-
anna sameiginlega, og verður há-
tíðin að þessu sinni haldin laug-
ardagskvöldið 23. janúar, eða
annað kvöld, í Alþýðuhúsinu.
Mjög vel hefur verið vandað til
skemmtiatriða, en þau verða m.
a.: Gamanþáttur, sýning lit-
ast, en hann er einhver mesti eft-
irhermusnillingur, sem nú er
uppi í landinu.
Sala aðgöngumiða að árshátíð-
inni hefst kl. 3 í dag á skrifstoíu
verkalýðsfélaganna. Verði að-
göngumiða er mjög í hóf stillt, og
kosta þeir aðeins kr. 40.00.
geta, að heildarsala Áfengisverzl-
unar ríkisins 1958 var tæpar 148
millj. kr., 1957 rúmar 129 millj.,
1956 98 millj og 1955 89 millj. kr.
Stafar þessi hækkun að verulegu
leyti af hækkuðu söluverði
Sé áfengissölunni jafnað niður
á hvert mannsbarn í landinu
kemur í ljós að hún hefur hækk-
að úr 886 kr. á árinu 1958 í 1035
kr. á sl. ári, sem fyrr segir. 1957
nam áfengissalan á hvern íbúa
landsins 778 kr., 1956 609 kr. og
1955 566 kr.
Á fjórða fjórðungi sl. árs var
heildarsala á landinu öllu 51.5
millj. kr., þar af var selt í Rvík
fyrir 43.6 millj., á Akureyri fyrir
4.2 millj., ísafirði 1.5 millj., Siglu-
firði 1.1, Seyðisfirði röska millj.
kr. Sala í pósti til Vestmannaeyja
frá aðalskrifstofu í Reykjavík
nam 769 þús. kr.
Sala áfengis til veitingahúsa
nam á síðasta ársfjórðungi 1.3
millj. kr., en það er um hálfri
millj. kr. minni sala en á sama
tímabili ársins 1958. Sala áfengis
í þessum ársfjórðungi á Akureyri
varð einnig allmiklu minni nú en
árið 1958, eða svo að munar 1.5
millj. kr., að magni til munar þó
hlutfallslega meiru vegna verð-
hækkunarinnar.
Skákþing Norðlendinga
Skákþing Norðlendinga hefst á
Akureyri á sunnudaginn kemur
kl. 1.30 að Hótel KEA.
Samkvæmt upplýsingum Jóns
Ingimarssonar, formanns Skák-
félags Akureyrar, verður teflt í
þrem flokkum: meistaraflokki,
fyrsta fl. og öðrum fl.
Þátttaka er allgóð og utanbæj-
armenn meðal þátttakenda í öll-
um flokkum. Stjórn Skákfélags-
ins hefur fengið Freystein Þor-
bergsson, Rvík, til að keppa sem
gest á móti þessu. Keppt verður
um titilinn skákmeistari Norður-
lands.
Formaður Skákfélagsins gerir
ráð fyrir að teflt verði á hverju
kvöldi þar til þinginu lýkur og
vonar að bæjarbúar líti inn og
fylgist með keppninni.
Frystihús KEA og Vélsmiðjan
Oddi h.f. Margt af þessu eru, eins
og bæjarbúar þekkja, viðbótar-
byggingar fyrir viðkomandi fyr-
irtæki.
Hús í smíðum.
íbúðarhús, komin undir þak á
árinu, en ófullgerð, eru talin 61
með 106 íbúðum. Samanlagt rúm-
mál 43.260 m3, og íbúðarhús, sem
byrjað var á, en ekki voru komin
undir þak, eru 30 með 36 íbúð-
um. Samanlagt rúmm. 15.950 m3.
Onnur hús en íbúðarhús, sem
komin voru undir þak fyrir ára-
mót, en ekki fullgerð, eru þessi:
Sprautuverkstæði Þórshamars
h.f., Verzlimarhús Tómasar
Björnssonar við Glerárgötu,
Timburskýli KEA, einnig við
Glerárgötu, Verzlunarhús Bygg-
ingavöruverzlunar Akureyrar
við Glerárgötu, Skíðaskáli Ferða-
málafélagsins, Hraðfrystihús U.
A., Heimavist M. A., Félagsheim-
ili Sjálfsbjargar, Hús Steinsteypu
verkstæðis Akureyrar, Trésmíða-
verkstæði Ágústs Jónssonar og
Trésmíðaverkst. Stefáns Reykja-
lín. Sum þessarra húsa hafa ár-
um saman verið í byggingu, en á
öðrum var byrjað á árinu.
Ennfremur var á árinu hafin
vinna við eftirtaldar byggingar:
Fiskverkunarhús Leós Sigurðs-
sonar, Flugstöðina við Flugvöll-
inn, Slökkvistöðvarhús Akureyr-
arbæjar, Steypuverkstæði Malar
og Sands h.f., Blikksmiðjuna,
Verzlunarhús Amaro h.f., Súkku-
laðiverksmiðjuna Lindu h.f. og
búningsklefa við íþróttavöllinn.
Langstærst af þessum bygging-
um verður verksmiðjuhús Lindu
h.f., 975 ferm. og 9.650 rúmm.
Næsta að stærð verður verzlunar-
hús Amaro h.f., 7984 rúmm. og
þriðja Slökkvistöðvarbyggingin
6745 rúmm.
Kirkjan. Messað í Akureyrar-
kirkju kl. 2 e. h. á sunnudaginn
kemur. Sálmar nr.: 23 — 327 —
[112 — 318 — 203. — P. S.
t