Verkamaðurinn - 04.03.1960, Page 1
VERKflmflÐURinn
XLIII. árg.
Akureyri, föstudaginn 4. marz 1960
ÞJÓÐVILJINN
er dagblað íslenzkrar al-
þýðu. Á þeim örlagaríku
tímum, sem nú eru fram-
undan, verða allir að lesa
ÞJÓÐVILJANN.
9. tbl.
„Gegn betri vitund og samvizku”
Körfuknattleikur
Á morgun er væntanlegt hing-
að til bæjarins keppnislið frá
Körfuknattleiksfél. Reykjavíkur
og keppir það við lið íþrótta-
bandalags Akuryerar á laugar-
dag kl. 4 og við A-lið KA á
sunnudaginn kl. 3. Keppnin fer
fram í íþróttahúsi Menntaskól-
ans. Lið frá þessu sama félagi
kom hingað á síðastliðnu ári og
vann þá alla sína leiki, en fróð-
legt verður að sjá hversu nú fer.
Þá hefur verið ákveðið, að lið
ÍBA taki þátt í íslandsmóti í
körfuknattleik, sem fram fer í
Reykjavík síðar í þessum mán-
uði. Þar þetta alls 7 lið í tveim-
ur riðlum, og vafalaust að sú
þátttaka verði liði Akureyringa
til mikils gagns og lyftistöng fyr-
ir þessa íþróttagrein hér, sem því
Bæjarfulltrúar íhalds og krata urðu sér til
skammar og athlægis
Á fundi bæjarstjórnar Akureyrar síðastliðinn þriðjudag
bar það til tíðinda, að meirihluti bæjarstjórnarinnar, full-
trúar íhaldsins og krata, samþykktu þakkarávarp til ríkis-
stjórnarinnar og meirihluta Alþingis fyrir árásirnar á af-
komumöguleika bæjarbúa og annarra landsmanna.
Frá aðalfundi Bílstjórafélags Ak.
Jón B. Rögnvaldsson einróma endurkjörinn
Tillagan var undirrituð af öll-
um viðstöddum fulltrúum þessarra
tveggja flokka og samþykkt af
þeim gegn atkvæðum bæjarfull-
trúa Alþýðubandalagsins og Fram
sóknarmanna. Voru þannig sex at-
kvæði með þakkarávarpinu en
fimm á móti. Þeir, sem samþykkiu
þakkir iyrir allar flerrgingarnar
voru: Jón G. Sólnes, Helgi Páls-
son, Jón Þorvaldsson, Gísli Jóns-
son, Bjarni Sveinsson og Bragi
Sigurjónsson.
Jón Sólnes hafði orð fyrir til-
miður hefur til þessa ekki hlotið lögumönnum og talaði af miklum
verðskuldaða eftirtekt. | móð. Lýsti hann því fyrst mjög
Húsbygging Sjálfsbjargar
má ekki stöðvast
Eins og flestum Akureyringum
og fleirum mun kunnugt réðist
Sjálfsbjörg, félag fatlaðra á Ak-
ureyri og nágrenni, í það stór-
virki á síðastliðnu ári, að hefja
byggingu myndarlegs húss, sem
ætlað er að verða bækistöð fyrir
starfsemi félagsins, félagsheimili
og vinnuheimili fyrir fatlað fólk.
Það bar óneitanlega miklum
stórhug vitni, að þetta félag, svo
ungt sem það er, skyldi ráðast í
þessa framkvæmd, en félagsmenn
irnir voru sannfærðir um, að ein-
mitt þetta þyrftu þeir að gera til
þess að félagið gæti náð þeim til-
gangi, sem þyí er ætlaður. Þeir
settu jafnframt traust sitt á fyrir-
greiðslu og aðstoð þess opinbera,
og í fullri vissu þess, að hálfnað
er verk þá hafið er, var byggingin
hafin. Og það reyndist vissulega
rétt, að mikið er unnið, þegar af
stað er komið, jafnvel þó að sum-
um kunni að hafa þótt stórhugur-
inn og bjartsýnin einum um of.
Nú er verkið hálfnað og vel
það. Húsið, sem stendur við
Hvannavelli 10, reis af grunni á
liðnu sumri og varð fokhelt fyrir
áramót. Meginhluta þess fjár-
magns, sem þegar er komið í
húsið, fékk félagið frá Erfðafjár-
sjóði, að nokkru sem styrk, en
meira þó að láni. En félagið sjálft
hefur einnig getað lagt talsvert til
byggingarinnar, og er það bæði
að þakka fórnfúsu starfi félags-
mannanna og því, að margir hafa
rétt því hjálparhönd og fært því
smáar, en safnast þegar saman
kemur.
Nú er orðið þröngt um fjárhag-
inn og framkvæmdir liggja að
mestu niðri af þeim sökum. En
félagsmennirnir eru samt vongóð-
ir um að úr rætist, þeir vita, að
hér er unnið að góðu málefni og
treysta því ósmeykir á góðra
manna aðstoð. Leitað hefur verið
í ýmsa ráttir í þeirri von, að fá fé
til byggingarinnar, m. a. til Al-
þingis, og eru mestar vonir
bundnar við það, að þingmenn
hlaupi hér myndarlega undir
bagga og veiti ríflegan styrk til
byggingarinnar. Það er margt
styrk af ríkisfé, en fátt á þó meiri
siðferðilegan rétt til að njóta
styrkveitingar þaðan, en einmitt
framkvæmdir, sem þessi. Auk
þess hefur verið leitað til bæjar-
ins, og standa vonir til, að bæjar- 1
fulltrúar reynist félaginu vel. —
Ekki er heldur ósennilegt, að
ýmsir einstaklingar eða fyrirtæki
sjái sér fært að veita félaginu
stuðning. Þó að ekki sé um stór
framlög að ræða munar það
fljótt.
Húsið, sem á að verða framtíð-
arheimili Sjálfsbjargar er 13x15
m. að grunnfleti, en síðan er ætl-
unin að stækka það um 6x15 m.
Með tilkomu þessa húss skapast
alveg ný aðstaða fyrir margt af
því fólki, sem vegna fötlunar
sinnar getur ekki stundað al-
menna vinnu, og þess vegna má
það ekki koma fyrir, að húsbygg-
ingin strandi nú, þegar hún er svo
átakanlega, hvernig „efnahagslífi
þjóðarinnar hefði verið að blæða
út“ og hvernig stjórnarflokkarnir
hefðu nú bjargað málunum í heila
höfn á allra síðustu stundu. Þá
kvað hann það eitt hið mikilvæg-
asta atriði hinna nýju aðgerða, og
það, sem öðru fremur bæri að
fagna, að „kapphlaupið milli
kaupgjalds og verðlags verður nú
stöðvað í landinu." En því næst
sagði hann, að ekki yrði komist
hjá allmiklum verðhækkunum. Og
loks kvað hann sérstaka ástæðu
til að fagna hinum nýja söluskatti
af því að bæjarfélögin ættu að fá
hluta af honum.
Jón Ingimarsson talaði næstur.
Hann hóf mál sitt á því að benda
á, að með því að samþykkja þessa
tillögu gerði bæjarstjórnin sig að
athlægi í allra augum, og þá
myndi afsannast sú kenning
Mánudagsblaðsins, að Akureyr
ingar kynnu ekki að hlæja. Nú
hlytu þeir að hlæja að bæjar-
stjórninni sinni. Síðan rakti hann
ýmis atriði gengislækkunarlag-
anna og sýndi fram á hversu
óþyrmilega væri með þeim
þjarmað að kjörum almennings.
Framhald d 4. síðu.
Aðalfundur Bílstjórafélags Ak
ureyrar var haldinn á mánudags
kvöldið. Þar fór fram stjórr"'
kosning, og var Jón B. Rögnvalds-
son einróma endurkjörinn formað-
félagsins. Aðrir stjórnarmenn
voru kosnir Baldur Svanlaugsson,
Anton Valdimarsson, Björn Brynj-
ólfsson og Davíð Kristjánsson.
JÓN B. RÖGNVALDSSON
form. Bílstjórafél. Akureyrar.
I trúnaðarráð félagsins hlutu
kosningu Ragnar Skjóldal, Guð-
jón Njálsson, Haddur Júlíusson
og Friðgeir Valdimarsson.
Skuldlaus eign félagsins um síð-
ustu áramót nam 130 þús. kr. og
hafði vaxið um liðlega 19 þús. kr.
Kristján Vigfússon.
EFNAHAGSLOGUM
MÓTMÆLT.
I tilefni af hinni nýju efna-
hagsmálalöggjöf Alþingis var svo-
hljóðandi tillaga samþykkt með
samhljóða atkvæðum nær allra
fundarmanna:
„Aðalfundur Bílstjórafélags Ak-
ureyrar, haldinn 29. febrúar 1960,
varar mjög alvarlega við þeirri
stefnu í efnahagsmálum, sem upp
hefur verið tekin með samþykkt
svonefnds efnahagsmálafrumvarps
á Alþingi fyrir fáum dögum. —
Fundurinn lítur svo á, að fram-
kvæmd þessarra laga muni hafa í
för með sér svo mikinn samdrátt
í atvinnulífinu og kjaraskerðingu,
að óviðunandi sé.
Alveg sérstaklega mótmælir
fundurinn þeim stórfelldu álög-
um, sem lagðar eru á bílstjóra-
stéttina umfram hinar almennu
álögur. Sú mikla hækkun á inn-
kaupsverði bíla og almennum
rekstrarkostnaði, sem nú verður,
þar sem gengislækkunarhækkun-
in ein er ekki látin nægja, stefnir
afkomumöguleikum bílstjórastétt-
arinnar í beinan voða. Það verður
ekki sagt, að bílstjórum hafi hing-
að til verið hlíft við álögum af
hálfu hins opinbera, en nú keyrir
um þverbak.“
GÓÐUR GESTUR
í næstu viku er vætanleg hing-
að til bæjarins, í boði Menning-
ar- og friðarsamtaka íslenzkra
kvenna, góður gestur frá Sví-
þjóð, dr. Andrea Andreen, vara-
forseti Alþjoðasambands lýðræð-
issinnaðra kvenna og einn sl
stjórnendum Heimsfriðarráðsins.
Hún flytur hér erindi á almenn-
um fundi, sem Akureyrardeild
MFÍK hefur boðað til í Alþýðu-
húsinu á miðvikudagskvöldið.
Dr. Andrea Andreen er læknir
að menntun og starfaði lengi að
læknisstörfum. Hún átti um
skeið sæti í stjóm sænska
Rauða krossins og hefur á marg-
víslegum vettvangi barizt gegn
vopnajburði og styrjöldxun. Hin
síðari ár hefur hún alveg helgað
starfskrafta sína réttinda- og
baráttumálum kvenna, og þá al-
veg sérstaklega baráttunni fyrir
afvopnun og friðsamlegri lausn
dcilumála.
góðar gjafir, sumar stórar, aðrarjvel á veg komin.
Vinstri menn sjáSfkjörnir í Verka-
mannafélagi Raufarhafnar
Aðalfundur Verkamannafélags
Raufarhafnar var haldinn fyrir
nokkru. Aðeins einn listi kom
fram til stjórnarkjörs og varð
hann því sjálfkjörinn.
Stjórnin er þannig skipuð:
Kristján Vigfússon form., Páll
Árnason varaform., Lárus Guð-
mundsson ritari, Friðmundur
Jóhannesson gjaldkeri og Kaii
Guðmundsson meðstjórnandi.
Allt eru þetta eindregnir
vinstri menn og ríkir nú ágæt
eining í félaginu og félagsmenn
ákveðnir í að láta ekki sitt eftir
liggja til þess að hrinda þeirri
gífurlegu árás, sem nú hefur ver-
ið gerð á lífskjör verkamanna og
annarra launþega.
ENGIN ATVINNA
Ólafsfirði, 1. marz.
Hér hafa verið stöðugar ógæft-
ir og hefur ekki verið farið á sjó
í þrjár vikur. Sá eini fiskur, sem
á land hefur komið, er af Haf-
þóri, sem landaði hér fyrir
nokkru 15 tonnum og 6 til 7
tonnum á laugardaginn, og fór
þetta í hraðfrystihúsið.
Engin atvinna er nú á neinu
sviði fyrir verkafólk.
Snjólétt hefur verið á okkar
mælikvarða og mjólkurflutning-
ar gengið eðlilega úr sveitinni,
og til marks um það má geta
þess, að bændur hafa flutt mjólk
og annan varning á bílum sínum,
þeir sem þá eiga, svo að segja í
allan vetur, en síðustu dagana
hafa þeir þó þurft að nota hesta
og sleða.
Fátt er hér til tilbreytni. Fjöl-
sóttur hjónadansleikur var hald-
inn um fyrri helgi og nú á laug-
ardaginn hélt Rotaryklúbbur
Ólafsfjarðar árshátíð sína, sem
var fjölmenn og góður rómur
gerður að.