Verkamaðurinn


Verkamaðurinn - 18.03.1960, Side 1

Verkamaðurinn - 18.03.1960, Side 1
ÞJÓÐVILJINN er dagblað íslenzkrar al- þýðu. A þeim örlagaríku tímum, sem nú eru fram- undan, verða allir að lesa ÞJÓÐVILJANN. XLIII. árg. Akureyri, föstudaginn 18. marz 1960 11. tbl. TILLÖGUR Alþýðubandalagsins í bæjarstjórn Á fundi bæjarstjórnar Ak- ureyrar á þriðjudaginn, þegar fjárhagsáætlun bæjarins fyrir þetta ár var til lokaafgreiðslu, lagði Jón B. Rögnvaldsson fram eftirfarandi tillögur: „Bæjarstjórn samþykkir, að af framlagi til Framkvæmda- sjóðs verði tilskilið, að kr. 1.000.000.00 renni til byggingar togaradróttarbrautar.“ Tillagan vai felld með 9 at- kvæðum gegn 2. „Bæjarstjóm samþykkir, að tekinn verði upp á fjárhags- áætlun nýr liður: Til íbúða- bygginga til útrýmingar heilsuspillandi húsnæði kr. 500.000.00. Framlag til Fram- kvæmdasjóðs lækki um sömu upphæð.“ Tillagan var felld með 9 at- kvæðum gegn 2. „Bæjarstjóm samþykkir, að bundið verði í fjárhagsáætlun yfirstandandi árs, að af fram- lagi til Framkvæmdasjóðs skuli kr. 1.000.000.00 varið til kaupa á togurum eða öðrum fiskiskipum." Tillagan var felld með 9 at- kvæðum gegn 2. „Liður X, g^tnagerð og skipulag, hækki um kr. 500.000.00, er skiptist til helm- inga á undirliði 4 og 5.“ (Þ. e. viðliald vega og nýjar götur.) Tillagan var felld með 9 at- kvæðum gegn 2. „Styrkur til Ferðamálafélags Akureyrar, liður XIII, undir- liður 15, falli niður.“ Tillagan var felld með 9 at- kvæðum gegn 1. Allir fulltrúar íhaldsins, kratinn og Framsóknarmenn- irnir sameinuðust um að fella þessar tillögur, og sýndu með því hug sinn til framkvæmda á vegum bæjarins. Þessi mynd er af Helga Fló- ventssyni, nýja bátnum, sem kom til Húsavíkur í byrjun mánaðarins. — Innsett í annað hornið er mynd af skipstjóran- um, Hreiðari Bjamasyni. Skip og skipstjóri stunda nú veiðar frá Keflavík, og í fyrsta róðrinum kom báturinn með meiri fisk að landi en aðrir gerðu þann dag. ©----------------------------• Jónas Halldórsson skák- meistari Norðurlands Þá eru loksins fengin úrslit í keppninni um titilinn Skák- meistari Norðurlnads 1960. Eins og menn minnast urðu þrír keppendanna efstir og jafnir að vinningúm á Skákþingi Norð- lendinga í vetur, þeir Jóhann Snorrason, Margeir Steingríms- son og Jónas Halldórsson. Var ákveðið, að þeir skyldu síðar keppa til úrslita um meistaratit- ilinn. Sú keppni hófst hér fyrir nokkru. í fyrstu atrennu urðu allar skákirnar jafntefli, en í annarri umferð bar Jónas Hall- dórsson sigur úr býtum, hann vann Jóhann og gerði jafntefli við Margeir, Jóhann vann Mar- geir. . Jónas Halldórsson er því Skák- meistari Norðurlands 1960. Jónas er kornungur maður frá Leys- ingjastöðum í Austur-Húnavatns- sýslu. VAXANDI AFLI Afli hefur mjög glæðst að und- anförnu, bæði hjá togurunum og togbátunum, sem veiðar stunda hér fyrir Norðurlandi og leggja afla sinn upp í Ólafsfirði, Hrísey og Dalvík, t. d. landaði Sigurður Bjarnason í Hrísey í vikunni 111 tonnum úr einni veiðiferð. Kaldbakur landaði hér í hrað- frystihúsið á miðvikudag og fimmtudag ca. 250 tonnum og Harðbakur var væntanlegur í nótt, einnig með góðan afla. — Svalbakur hefur verið í Slipp í Reykjavík, en er væntanlegur næstu daga og heldur þá strax á veíðar. Sléttbakur er á veiðum. BRETINN Á UNDANHALDI Englendingar hafa nú gefizt upp við að láta herskip sín halda vörð um togara sína að ólöglcg- um veiðum innan íslenzkrar landhclgi. Sl. þriðjudagskvöld tilkynntu herskipin ensku togur- unum, að þeir yrðu ekki lengur verndaðir innan landhelgi Is- lands og héldu síðan á brott. — Togaramir fóru einnig allir út fyrir línu, enda þó búast megi við, að þeir reyni framvegis að stelast inn fyrir línu, eins og enskir togarar hafa jafnan reynt hér við land. En þá verður auð- veldara að ná þeim, þegar her- skipir eru ekki lcngur annars vegar. Af enskra hálfu er því haldið fram, að þeir hafi hætt herskipa- vemdinni til þess að hafa betri vígstöðu á haflagaráðstefnunni, sem nú er hafin í Genf. Verður þó varla séð, að aðstaða þeirra sé nokkru betri þó að þeir hætti að stela á meðan ráðstefnan stend- ur. Enda mun það sönnu nær, að raunveruleg ástæða sé sú, að þeir séu orðnir fullþreyttir á hernaði sínum hér og hafi nú fundið tylliástæðu til að hætta honum um sinn a. m. k. Er því full ástæða til að fagna sigri. Þó að hér sé ekki um endanlegan sigur í landshelgisstríðinu að jræða, þá er þetta stórsigur. Fjárhagsáætlun hæjarsjóðs Akureyrar er í heild óraunhæf Ekkert tillit er tekið til þeirrar miklu útgjalda- aukningar, sem hlýtur að verða vegna gengis- lækkunarinnar, söluskattsins og vaxtaokursins Fjárhagsáætlun bæjarsjóðs Akureyrar var endanlega sam- þykkt á fundi bæjarstjómarinnar sl. þriðjudag. Niðurstöðu- tölur fjárhagsáætlunarinnar tekna- og gjaldamegin em kr. 25.208.700.00, eða rúmlega þremur milljónum króna hærri en í áætlun liðins árs. Útsvör em nú áætluð kr. 17.772.700.00, og lækkra frá fyrra ári um 5,7%, eða röska milljón króna. Áður en áætlunarfrumvarpið kom til 2. umræðu fjallaði bæj- arráð um það og gerði nokkrar tillögur til breytinga, sem allar voru samþykktar af bæjarstjóm, en þær voru helztar, að inn kem- ur nýr tekjuliður, sem er hluti bæjarins af söluskatti, áætlaður 2,8 millj. kr. á árinu, hækkun verður á fjárveitingum til trygg- inga- og framfærslumála, alls 530 þús., framlag til Framkvæmda- sjóðs lækkar um 500 þús. og lækkun á heildarupphæð útsvara verður 2 millj. 738 þús. kr. frá því, sem var í upphaflegu áætl- uninni. Tillagan um lækkun framlags til Framkvæmdasjóðs var samþykkt með 6 atkv. íhalds og Braga, en Framsóknarmenn- irnir greiddu atkvæði gegn lækk uninni og fulltrúar Alþýðu- bandalagsins greiddu ekki at- kvæði. . — . . Tillögur Alþýðubandalagsins um skiptingu á fé Framkvæmda- sjóðsins hlutu ekki samþykki í bæjarráði, og annars staðar hér á síðunni er greint frá, hverjar móttökur þær hlutu, er þær voru aftur teknar upp í bæjarstjórn lítið breyttar. En þær, ásamt öðrum tillögum fulltrúa Alþýðu- bandalagsins, voru allar felldar. í umræðum á bæjarstjórnar- fundinum á þriðjudaginn lögðu bæjarfulltrúarnir Jón B. Rögn- valdsson og Jón Ingimarsson mikla áherzlu á það, að fjárhags- áætlunin í heild væri óraunhæf og myndi valda mjög miklum samdrætti um atvinnu og fram- kvæmdir hjá bænum og auk þess væri stórhætta á því, að síðar á árinu yrði að grípa til þess neyð- arúrræðis að láta fara fram auka- niðurjöfnun útsvara. Gagnrýndu þeir það mjög ákveðið, að ekki skyldi neitt tillit vera tekið til þeirra stórfelldu hækkana á út- gjöldum, sem sú dýrtíðaralda, sem nú hefur verið steypt yfir þjóðina, hlýtur að hafa í för með sér fyrir bæjarfélagið jafnt sem einstaklinga. Auk þeirra vöru- verðshækkana, sem nú eru að verða fullljósar, bentu þeir á, að óhjákvæmilega hlytu- að verða miklar hækkanir á almennú kaupgjaldi. Á 4. síðu blaðsins er nánar sagt frá gangi umræðna á fundinum. Við atkvæðagreiðslu um fjár- hagsáætlunina í heild greiddu fulltrúar Alþýðubandalagsins ekki atkvæði, en Jón Rögnvalds- son gerði grein fyrir afstöðu sinni á þessa leið: „Eg greiði fjárhagsáætlun fyrir Akureyrarkaupstað árið 1960 ekki atkvæði af eftirfarandi ástæðum: Eg tel áætlunina í heild óraunhæfa, þar sem ýmsir útgjaldaliðir hennar hljóta að fara langt fram úr áætlun vegna þeirra aðgerða í efnahagsmálum, sem ýmist hafa þegar verið sam- þykktar eða gert er ráð fyrir, að samþykktar verði á Alþingi næstu daga. Ennfremur er eg ósammála afgreiðslu ýmissa þýð ingarmikillt liða í áætluninni, svo sem því, að lagt sé mikið fé í svonefndan Framkvæmdasjóð án þess að jafnhliða sé ákveðið, hvemig því verði ráðstafað.“ Góður loðnuafli á Húsavík Húsavík 16. marz. — Hér hef- ur verið indæl veðrátta að und- anförnu og gæftir góðar. Fiskafli hefur þó verið lélegur, en mikið hefur aflast af loðnu og hefur Fiskiðjusamlagið keypt hana til frystingar. Rauðmagaveiði hefur einnig verið ágæt, og Fiskiðju- samlagið kaupir þann afla einn- ig. Menn eru að vona, að fisk- ganga komi í kjölfar loðnunnar. XII. ÞING Sósíalistaflokksins Tólfta þing Sameiningarflokks alþýðu — Sósíalistaflokksins — verður sett í Reykjavík kl. 4 í dag. Þingið sækir fjöldi fulltrúa frá Sósíalistafélögunum víðs vegar um land. Sósíalistafélag Akureyrar sendir 9 fulltrúa á þingið. Sumir þeirra fóru suður í gær, en hinir fara í dag. Gert er ráð fyrir, að þingfundir verði á laugardag og sunnudag og þingslit á sunnudagskvöld.

x

Verkamaðurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verkamaðurinn
https://timarit.is/publication/215

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.