Verkamaðurinn - 25.03.1960, Síða 1
ÞJÓÐVILJINN
er dagblað íslenzkrar al-
þýðu. Á þeim örlagaríku
tímum, sem nú eru fram-
undan, verða allir að lesa
ÞJÓÐVILJANN.
XLIII. árg.
Akureyri, föstudaginn 25. marz 1960
12. tbl.
XILÞING SÖSIALISTAFLOKKSINS
Einar Olgeirsson endurkjörinn formaður flokksins og
Lúðvík Jósefsson varaformaður
XII. þing Sameiningaiflokks alþýðu — Sósíalistaflokksins
— var háð í Reykjavík um síðustu helgi. Þingið sátu um 120
fulltrúar frá 24 Sósíalistafélögum og Æskulýðsfylkingunni.
Auk þess nokkrir áheyrnarfulltrúar. Er þetta fjölmennasta
þing, sem flokkurinn hefur háð frá því að hann var stofnaður.
Leið íhaldsins fil „betri lifskjara”
Gengislækkun, söluskattur, minni atvinna
Þinghaldið fór fram í húsa-
kynnum flokksins að Tjarnargötu
20, og fór þingsetning fram þar
síðdegis á föstudag. Formaður
flokksins, Einar Olgeirsson,
flutti þingsetningarræðu, og rakti
þróun stjórnmálanna í landinu
frá því að síðasta flokksþing var
haldið í nóvember 1957. Hann
benti á þá staðreynd, að á ýms-
um sviðum hefur miðað í aðra
átt, en æskilegt hefði verið, þar
sem nú er tekin við völdum í
landinu hreinræktuð afturhalds-
stjórn, en því fylgdi þó sá kost-
ur, að hér eftir yrði afturhaldinu
erfiðara um að villa á sér heim-
ildir. Hann hvatti fulltrúa til
bjartsýni, og komst m. a. svo að
orði: Við flokki okkar blasa
miklir möguleikar, ef hann er
fær um að móta rétta stefnu og
framfylgja henni. í síðustu þing-
kosningum auðnaðist Alþýðu-
bandalaginu að auka fylgi sitt.
Fólkið er að vakna.
Einar vék einnig að ástandinu
á sviði alþjóðamála, og taldi mun
bjartara yfir á þeim vettvangi en
verið hefði 1957: f nóvember
1957 stóð yfir eitt af hretum
Sigursveinn D. Kristinsson.
SIGURSVEINI
ÞAKKAÐ
Á þingi Sósíalistaflokksins um
síðustu helgi var samþykkt með
lófataki að senda Sigursveini D.
Kristinssyni heillaóskir þingsins
með þakklæti fyrir ómetanlegt
framlag hans til menningarmála.
Kom það fram í ræðum manna,
að þar væri sérstaklega og jöfn-
um höndum átt við hið frábæra
starf hans að tónlistarmálum á
Siglufirði og stofnun Sjálfsbjarg-
arfélaganna.
kalda stríðsins. Nú hefur birt til
í alþjóðamálum. Fólkið eygir
friðarvonina nær en nokkru
sinni fyrr. Því valda yfirburðir
sósíalismans yfir auðvaldsskipu-
lagið. Á þessum degi, 18. marz,
sigurdegi fyrstu verkalýðsbylt-
Einar Olgeirsson.
ingarinnar, Parísarkommúnunn-
ar, fyrir 89 árum, skín sól sósíal-
ismans bjartar en nokkru sinni
áður.
Er Einar hafði lokið setningar-
ræðu sinni fór fram skipun kjör-
bréfanefndar og nefndanefndar,
og samþykkt var að senda Elísa-
betu Eiríksdóttur, sem nú liggur
á Landsspítalanum í Reykjavík,
kveðju frá flokksþinginu með
ósk um góðan bata henni til
handa.
Að loknu kvöldverðarhléi voru
kjörbréf lesin og samþykkt og
kosnir starfsmenn þingsins. For-
seti þess var kjörinn Þóroddur
Guðmundsson frá Siglufirði og
varaforsetar þeir Eðvarð Sigurðs-
son og Steinþór Guðmundsson
úr Reykjavík.
Þá barst skeyti frá Málfunda-
félagi jafnaðarmanna í Reykja-
vík, þar sem það þakkaði Sósíal-
istaflokknum gott samstarf innan
Alþýðubandalagsins og óskaði
þinginu heillaríks starfs í þágu
lands'og þjóðar.
Að loknum formsatriðum og
nefndakosningum flutti Einar
Olgeirsson skýrslu miðstjómar
um starf flokksins og stefnu á
liðnu kjörtímabili, árangurinn
af samfylkingarbaráttu alþýð-
unnar og næstu verkefni Sósíal-
istaflokksins og Alþýðubanda-
lagsins. Var ræða hans jafnframt
framsöguræða fyrir því uppkasti
að stjórnmálaályktun, sem
miðstjórn lagði fyrir þingið.
Á laugardaginn hófst þing-
'fundur eftir hádegi og stóðu um-
ræður um skýrslu miðstjórnar
og stjórnmálaályktunina allan
þann dag, en lauk nokkru eftir
miðnætti.
Á sunnudag hófst fundur enn
eftir hádegi, og voru þá mörg
mál tekin til umræðu og af-
greiðslu, og störfum þingsins
lauk með kosningu miðstjórnar
og flokksstjórnar á fjórða tíman-
um aðfaranótt mánudagsins. —
Einar Olgeirsson var einróma
endurkjörinn formaður flokksins
Lúðvík Jósepesson.
og Lúðvík Jósepsson varaformað-
ur. Allir aðrir stjórnarmenn voru
einnig einróma kjörnir. Allar
samþykktir og ályktanir þingsins
voru ennfremur afgreiddar með
samhljóða atkvæðum.
í þinglok ávarpaði þingforseti,
Þóroddur Guðmundsson, þing-
fulltrúa og þakkaði þeim ágæt
störf og ágæta samvinnu, og for-
maður flokksins flutti síðan
lokaræðu, þar sem hann kvaðst
fullviss um mikinn árangur af
störfum þessa þings og hvatti
fulltrúa, hvern og einn, til að
hjálpast að því að gera flokknum
kleyft að leysa þau stóru verk-
efni, sem framundan biðu í þjóð-
málabaráttunni. Þau verkeffni
væru stór og kannski dálítið erf-
ið, en hann kvaðst samt trúa því,
að flokkurinn væri nógu sterkur
og þróttmikill til að leysa þau.
Að lokum risu fulltrúar úr sæt-
um og sungu alþjóðasönginn.
Á mánudagskvöldið var haldið
kveðjuhóf þingfulltrúa í Þjóð-
leikhúskjallaranum, og var það
hin ánægjulegasta samkoma.
BARNASKEMMTUNIN.
Um síðustu helgi héldu skóla-
börnin í Barnaskóla Akureyrar
hina árlegu skemmtun sína til
ágóða fyrir ferðasjóð sinn. Var
skemmtunin margtekin og mjög
vel heppnuð. — Skemmtiatriði
voru mörg og fjölbreytt og
skemmtunin öll skólanum, nem-
endum og kennurum til
sóma.
Söluskattsfrumvarpið illræmda
var afgreitt sem lög frá Alþingi
á þriðjudaginn, staðfest samdæg-
urs af forseta og tók gildi þegar
í stað. Þar með er komin til
framkvæmda stórkostlegasta
skattheimta, sem nokkru sinni
hefur þekkzt í sögu þessarrar
þjóðar. Eins og oftar, þegar verið
er að leggja á nýja skatta, ber
mönnum ekki vel saman um það,
hversu miklu fé skatturinn muni
skila. Ríkisstjórnin, sem vafa-
laust reiknar mjög varlega tekj-
urnar, gerir ráð fyrir, að með
þessum skatti fáist 507 milljónir
kr. á ári, aðrir nefna 610 milljón-
ir og jafnvel ennþá hærri upp-
hæðir.
En jafnvel þó að reiknað sé
með lægstu tölunni, 507 milljón-
um, þá má bezt sjá um hve stór-
fellda skattheimtu er að ræða,
ef á það er litið, að þetta er
hærri upphæð en allir tollar og
skattar til ríkissjóðs voru á ár-
inu 1956. Sé reiknað með því, að
íslendingar séu 175 þús. verður
söluskatturinn á hvert manns-
barn, þó að aðeins sé reiknað
með lægstu áætlunarupphæð,
2900 krónur, eða 14.500 kr. á
hverja fimm manna fjölskyldu.
Auk þessa ber svo að gera sér
grein fyrir því, að sá söluskatt-
ur, sem innheimtur verður af
neytendum, verður til muna
hærri en það, sem til skila kem-
ur í ríkiskassann. Sú hefur alltaf
orðið reyndin, og enginn efast
um, að þannig verður það enn í
dag. Það hefur mikið verið talað
um skattsvik í sambandi við
tekjuskatt og útsvör, og skal síð-
ur en svo gert lítið úr því hér, en
svo mikið er óhætt að fullyrða,
að hvergi hafa þó átt sér stað
meiri skattsvik en einmitt í sam-
bandi við söluskattinn. Það er
því engan veginn fjarstæðukennt
að ímynda sér, að ef ríkiskassinn
fær í sinn hlut 507 milljónir, þá
verði í heild tekið af neytendum
allt að 700 milljónum.
500 milljónir, eða 700 milljón-
ir, þetta eru stórar tölur, og sér
Frá íslandsmóti í körfu-
knattleik
Sjö lið frá 6 félögum taka þátt
í íslandsmóti í körfuknattleik, er
stendur nú yfir í Reykjavík. —
Keppt er í tveim riðlum. Akur-
eyringar tóku nú þátt i mótinu í
annað sinn og hafa lokið keppni
sinni. Kepptu þeir við K. F. R.,
A-lið, sl. föstudag og töpuðu
með 81: 44 stigum, og á sunnu-
daginn við Ármann og töpuðu
með 58 : 44 stigum. För þessi var
hin ánægjulegasta og hafa Akur-
eyringarnir lært mikið á henni.
hver og einn í hendi sér, að af-
leiðingin verður feiknarleg verð-
bólga í landinu. Samt sem áðúr
er ekki gert ráð fyrir af hálfu
stjórnarvalda, að launþegum
verði bætt með hækkuðum laun-
um. Þau eiga að vera óbreytt.
Vísitalan er þurrkuð burtu. Hún
skal ekki lengur vera launþegun-
um sú vörn gegn kjaraskerðing-
um, sem áður var. Allar álögur
skulu greiddar án bóta.
Stjórnarandstaðan á Alþingi
beitti sér mjög ákveðið gegn
þessarri lagasetningu og gífur-
legu skattheimtu, en stjómarlið-
ið knúði hana fram í krafti síns
litla meirihluta á þingi. Þetta,
eins og aðrar álögur á þjóðina,
sem nú hafa verið samþykktar og
eru að koma til framkvæmda, eru
afleiðingar þess, að meirihluti
ajóðarinnar fól íhaldsflokkunum,
Sjálfstæðisflokknum og Alþýðu-
flokknum, umboð sitt við síðustu
Alþingiskosningar, valdi leið
íhaldsins til „betri lífskjara“. —
Þetta er sú leið í framkvæmd.
r
Oréttlátasti skattur,
sem hugsazt getur
Þegar söluskattsfrumvarpið var
til meðferðar í efri deild Alþing-
is skilaði Bjöm Jónsson ýtarlegu
nefndaráliti og flutti margar
breytingartillögur við frumvarp-
ið. Allar tillögur hans voru
felldar.
Hér fer á eftir síðasti hlutinn
af nefndaráliti hans:
„Þeirri gífurlegu nýju skatt-
heimtu, sem með frv. þessu er
fyrirhuguð, og því flóði dýrtíðar,
sem af henni leiðir, er skellt yfir
almenning í landinu í skjóli þess,
að lögbannað hefiu' verið, að
launamenn fái aukna dýrtíð
borna uppi að nokkru með verð-
lagsuppbótum á laun. Söluskatt-
urinn er auk þess lagður alger-
lega jafnt á brýnusti^ nauðþurftir
sem óþarfa eyðslu og kemur því
harðast niður á þeim, sem sízt
skyldi, þeim, sem áður höfðu
ekki meira en til hnífs og skeið-
ar. Hann er því einn óréttlátasti
skattur, sem hugsazt getur, og
þó alveg sérstaklega við þær að-
stæður, sem nú hafa skapazt eft-
ir gengisfellinguna og eftir af-
nám vísitölunnar. Auk þess er
löggjöfin sjálf illa undirbúin, fel-
ur í sér miklar hættur á gerræði,
skattsvikum og hvers kyns spill-
ingu. Loks er stofnað til víðtækr-
ar skriffinnsku, bæði í hvers
konar atvinnurekstri og verzlun
og í skattheimtukerfi ríkisins,
sem reynast inun almenningi og
þjóðinni allri dýr áður en lýkur.
Eg er andvígur þessu frv. og
legg til, að það verði fellt“