Verkamaðurinn


Verkamaðurinn - 01.04.1960, Page 2

Verkamaðurinn - 01.04.1960, Page 2
2 VERKAMAÐURINN Föstudaginn 1. apríl 1960 Ályktun 12. þings Sósíalistafl. um sjávarútvegsmál 12. þing Sameiningarflokks al- þýðu — Sósíalistaflokksins — telur sjávarútveginn og gengi hans vera eina meginstoð þess, hve greitt gengur að byggja upp og tryggja góð lífskjör ahnenn- ings í landinu og að svo muni það verða a. m. k. í náinni fram- tíð. Eftir gengisfellinguna 1950 tók við mikið kyrrstöðu- og hnignun- artímabil í sjávarútveginum í samfellt sex ár. Mjög mikils vert var því, að sjávarútvegurinn var efldur mikið í valdatíð vinstri stjómar- innar. Ákveðin voru kaup margra fiskiskipa og sem svar- aði um 15% skipastólsins. Fiski- skipunum var haldið meira út til veiða en áður, og ný tækni hag- nýtt við veiðarnar, svo sem ný fiskileitartækii, betri veiðarfæri o. fl. Ný og fullkomin fiskiðjuver byggð, og mörg önnur búin nýj- um vélum og tækjum. Tekin upp ný stefna í afurðasölumálum með því að gera stóra sölusamn- inga til þriggja ára við Sovétrík- in og fleiri lönd, sem veittu sjáv- arútveginum aukið öryggi frá því sem áður var. Kjör sjómanna voru bætt verulega og hlunnindi þeirra aukin, svo sem skattfríð indi, enda fjölgaði íslenzkum sjó- mönnum á skipunum jafnframt því, sem útlendum sjómönnum fækkaði stöðugt. Síðast, en ekki sízt, er útfærsla fiskveiðiland- helginnar í 12 mílur sem marka mun tímamót í sögu íslenzks sjávarútvegs. Af hinum nýju fiskiskipum voru um 20 þeirra, 140 til 250 rúml. ætluð til að hagnýta djúp- miðin út af Norður- og Norður- austurlandi, til að auka fram- leiðslu og atvinnu í sjóþorpun- um norðanlands. Og einnig voru þessi skip ætluð til sóknar frá Austfjörðum og miðunum við Austur- og Suðausturland. Þessi skip komu til landsins, og hafa flest skilað góðum árangri á hin- um stutta reynslutíma og aukið framleiðslu viðkomandi sjóþorpa mjög mikið. Er þessi árangur sér- staklega mikilv^gur nú, þegar verið er að gefast upp við rekst- ur nokkurs konar strandferða- togara, sem áttu að leggja upp afla til vinnslu á ýmsum þess- arra staða. Einnig er það mikils- vert að hagnýta fiskimiðin svo sem kostur er allt í kringum landið, og vinnslumöguleikana, í stað þess að auka stöðugt sóknina á miðin við Suðvesturland. Arangur af uppbyggingu sjáv- arútvegsins á þessum stutta tíma, er þegar farinn að færa þjóðinni ríkulegan ávöxt. Afla- magnið í heild hefur aukizt um 30%. Einnig hefur íslenzka sjó- mannastéttin sett nýtt aflamet með því að skila í land fullum 100 lestum af fiski fyrir hvern mann sem veiðarnar stunduðu sl. ár. Jafnframt því að þessi góði ár- angur er metinn réttilega, er þó líka mikil ástæða til að víta þau brigð samstarfsflokka í vinstri stjórninni, sem Urðu á því að staðið væri við gerða samninga um kaup á nýjum togurum. Stendur þar autt skarð í upp- byggingu sjávarútvegsins á þess- um tíma. Þrátt fyrir hinn stóraukna afla og mikla árangur af starfinu á sjónum voru öll kjör sjómanna stórlækkuð með lögum Alþýðu- flokksstjórnarinnar í febrúar- byrjun 1959, og sækir nú aftur í það fyrra horf (frá 1953—55) að sjómenn fara í land af skipun- um og leitað er víða erlendis eftir mönnum á skipin. Hafa nú t. d. 8 til 9 af 43 togurum lands- ins legið bundnir í höfnum vegna skorts á sjómönnum. í kjölfar hinna nýju efnahagsráð- stafana ríkisstjórnarinnar er mikil ástæða til að ætla að erfið- ir tímar bíði nú mikils hluta sjávarútvegsins. Flokksþingið telur að eftirfar- andi verkefni séu nú aðkallandi að komið verði í framkvæmd til eflingar sjávarútvegi landsins: 1. Að kjör sjómanna verði bætt svo, að útvegurinn geti starfað stöðugt og eðlilega og öll íslenzku skipin eingöngu mönnuð íslenzk- um sjómönnum. 2. Að staðið verði áfram órjúf- andi vörð um 12 mílna fiskveiði- landhelgina og hún varin til hins ýtrasta. 3. Að vextir vegna uppbygg- ingar og reksturs útvegsins verði þegar lækkaðir í það, sem þeir voru áður, meðal annars svo að hægt verði að fullverka sem mest af aflanum. 4. Að ríkið setji á stofn verzlun með olíur og vélar með það fyrir augum að láta útveginum þessar vörur í té á sannvirði. 5. Að unnið verði kapsamlega að því, að á næstu 10 árum verði byggðar — eftir fyrirfram gerðri áætlun — „lokaðar“ hafn- ir í öllum þeim veiðistöðum, sem vel liggja við fiskimiðum, og veitt verði stóraukið fjármagn til hafnarframkvæmda frá því sem verið hefur. 6. Að haldið verði stöðugt áfram að byggja upp fiskiskipa- stól landsins. Að sendir verði á vegum ríkisins einn til tveir vel reyndir sjómenn til að vera með einni eða fleiri veiðiferðum á svokölluðum „skuttogurum" til að kanna sem bezt hvort skip af þeirri gerð muni henta fyrir ís- lenzkan útveg. Ef athugun þessi leiðir í ljós að svo sé, þá verði á næsta ári tveir nýjir svokallaðir „skuttogarar" keyptir, svo að ís- lendingar geti sem fyrst aflað sér eigin reynslu um hæfni slíkra skipa fyrir aðstæður hérlendis. 7. Að niðursuðuiðnaður fyrir fiskafurðir verði stóraukinn og að verulegur hluti af síldarfram- leiðslunni verði lagður niður í dósir til sölu erlendis. Verði nið- ursuðuverksmiðjum veitt hag- kvæm lán til bygginga og véla- kaupa. 8. Að lán úr Fiskveiðasjóði til skipakaupa verði veitt fyrir 80% af kostnaðarverði skipanna og 85% af byggingarkostnaði skipa, sem byggð eru innanlands. 9. Að komið verði á stofn „Tæknistofnun sjávarútvegsins“, er hafi meðal annars þaðhlutverk að annast leit nýrra fiskimiða, gera tilraunir með nýjar gerðir veiðarfæra, tækja, véla og vinnu- aðferða, bæði á sjónum og við verkun aflans í landi, fyrir komulagi á fiskiskipum? gerð nýrra og betri fiskikorta o. fl. til umbóta á sjávarútveginum‘‘, og verði þessarri stofnun séð fyrir hæfilegum skipakosti í þessi verkefni. 10. Að hlutatryggingarsjóður verði efldur og lögunum um hann breytt í samræmi við fengna 10 ára reynslu síðan hann tók til starfa, svo að sjóðurinn verði betur fær um að leysa af hendi nauðsynlegt hlutverk sitt fyrir útveginn. fóri'" Fermingarmessa í Akureyrar- kirkju n.k. sunnudag kl. 10 f. h. Sálmar nr.: 590 — 648 — 594 — 591 — 203. — K. R. Félag jazzáhugamanna. Nýlega var stofnað hér á Akureyri félag jazzáhugamanna. Að stofnuninni stóðu nokkrir hljóðfæraleikarar og fleiri áhugamenn um þessi mál. Tilgangurinn með stofnun félagsins er, að vinna að auknum skilningi manna á jazzmúsik, og að gefa félagsmönnum kost á fræðslu og kynningu á þessari tegund tónlistar. Fyrsti fundur félagsins verður næstkomandi laugardag kl. 3 e. h. í Alþýðu- húsinu. Efni fundarins verður sem hér segir: Inntaka nýrra fé- laga, lifandi tónlist, plötukynn- ing, erindi, plötugetraun og kvikmyndasýning. Filmía. Á laugardag sýnir Filmía Manninn frá Aran í Borg- arbíó. Hún fjallar um líf fólksins á eynni Aran imdan írlands- strönd og er talin góð. Sjálfsbjörg heldur skemmti- fund sunnudaginn 3. apríl kl. 3.30 e. h. í Alþýðuhúsinu. — Félagar, fjölmennið. — Stjórnin. Minningarspjöld. Kvenfélagið Hlíf hefur látið gera smekkleg minningarspjöld. Þau verða til sölu í Bókaverzlun Jóhanns Valdemarssonar og hjá frú Lauf- eyju Sigurðardóttur, Hlíðargötu 3. Ágóði minningarspjaldanna gengur til barnaheimilisins í Pálmholti. — Stjórnin. Togaramir frá Akureyri eru nú allir á veiðum. Þrír þeirra lönduðu um síðustu helgi: Kald- bakur á laugardag 130 lestum, en Harðbakur og Svalbakur á mánudag ca. 150 og 120 lestum. Spilakvöld hjá IÐJU Iðjuklúbburinn verður í kvöld, föstudag 1. apríl kl. 8.30 í Alþýðuhúsinu. Spiluð félagsvist, góð kvöldverðlaun. Dans á eftir. Hljómsveit hússins leikur. Helena syngur með hljóm- sveitinni. — Fjölmennið. Skemmtið ykkur. HVERGI MEIRA FJÖR. STJÓRNIN. Úr skýrslu Sjómanna- og gesta- heimilis Siglufjarðar Stúkan Framsókn á Siglufirði hefur nú starfrækt Sjómanna- og gestaheimili Siglufjarðar í 21 ár. í skýrslu um starfsemina á sl. sumri er m. a. þessar upplýsing- ar að finna: Heimilið starfaði frá 18 .júní til ágústloka og var opið daglega frá 10 f. h. til 23.30 e. h. Veiting- ar voru framreiddar og dagblöð og tímarit lágu frammi til lestr- ar, ennfremur höfðu gestir píanó og orgel til afnota, svo og töfl og spil. Annast var um móttöku og sendingu bréfa, peninga og sím- skeyta. Lesstofuna heimsóttu margir, lásu blöð og bækur og skrifuðu bréf. Var þar oft þröngt á landlegudögum. í bókasafni heimilisins eru nú 2300 bindi, 200 voru keypt á ár- inu. Lánaðar voru bækur í skip, allt að 10 í einu, og einnig voru bækur lánaðar til verkafólks í landi. 36 skipshafnir fengu bæk- ur að láni, og alls voru lánuð út 630 bindi. Aðsókn var mikil að böðum heimilisins og komust oft færri að en vildu. Alls voru bað- gestir 1844. Gestafjöldi alls varð 5380, þar af 3420 í júlí og 1960 í ágúst. Húsakynni heimilisins voru þau sömu og áður, en þau eru nú orðin mjög ófullnægjandi og lé- leg, svo að óhjákvæmilegt er, að fram fari endurbygging og gagn- gerð viðgerð. En erfið fjárhagsaf- koma hefur háð starfseminni hin síðari ár. Þó hafa margar skips- hafnir og nokkrir útgerðarmenn fært heimilinu góðar gjaíir, og námu þær á síðasta ári alls kr. 22.910.00. Frá ríkissjóði fékk heimilið 10.000.00 kr. styrk, frá Siglufjarðarkaupstað 2 þús. og frá Stórstúku íslands 5 þúsund kr. Fyrir alla þessa aðstoð kann stjórn heimilisins hlutaðeigend- um beztu þakkir. Tapað 25. marz tapaðist veski með peningum í á leið frá Stór- holti 12 að íþróttahúsinu. Vinsamlegast skilist gegn fundarlaunum á Lögreglu- varðstofuna. Reiðhjól Sjónaukar Bakpokar Svefnpokar Tjöld Myndavélar Myndaalbúm Veiðistengur o. m. fl. Gjörið svo vel og lítið í gluggana. JARN- OG GLERVÖRUDEILD SKRIFSTOFUSTULKA Stúlka getur fengið starf í skrifstofu landssímans á Ak- ureyri 1. maí n. k. Umsóknir sendist mér fyrir 15. apríl n. k. SÍMASTJÓRINN. FRÁ LANDSSÍMANUM Þar sem ákveðið hefur verið að stækka sjálfvirku stöð- ina á Akureyri um 500 númer, á næstu vikum, eru þeir sem hafa pantað síma góðfúslega beðnir að endurnýja pöntun sína fyrir 15. apríl n. k. Nýjum símapöntunum verður veitt móttaka á skrif- stofunni kl. 10—16 daglega. SÍMASTJÓRINN. Nú er grátur tregur Nýjar gamanvísur undir vinsælum lögum. Komnar í allar bókabúðir. r Utgefandi

x

Verkamaðurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Verkamaðurinn
https://timarit.is/publication/215

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.