Verkamaðurinn - 01.04.1960, Síða 2
2
VERKAMAÐURINN
Föstudaginn 1. apríl 1960
Ályktun 12. þings Sósíalistafl. um sjávarútvegsmál
12. þing Sameiningarflokks al-
þýðu — Sósíalistaflokksins —
telur sjávarútveginn og gengi
hans vera eina meginstoð þess,
hve greitt gengur að byggja upp
og tryggja góð lífskjör ahnenn-
ings í landinu og að svo muni
það verða a. m. k. í náinni fram-
tíð.
Eftir gengisfellinguna 1950 tók
við mikið kyrrstöðu- og hnignun-
artímabil í sjávarútveginum í
samfellt sex ár.
Mjög mikils vert var því, að
sjávarútvegurinn var efldur
mikið í valdatíð vinstri stjómar-
innar. Ákveðin voru kaup
margra fiskiskipa og sem svar-
aði um 15% skipastólsins. Fiski-
skipunum var haldið meira út til
veiða en áður, og ný tækni hag-
nýtt við veiðarnar, svo sem ný
fiskileitartækii, betri veiðarfæri
o. fl. Ný og fullkomin fiskiðjuver
byggð, og mörg önnur búin nýj-
um vélum og tækjum. Tekin upp
ný stefna í afurðasölumálum
með því að gera stóra sölusamn-
inga til þriggja ára við Sovétrík-
in og fleiri lönd, sem veittu sjáv-
arútveginum aukið öryggi frá
því sem áður var. Kjör sjómanna
voru bætt verulega og hlunnindi
þeirra aukin, svo sem skattfríð
indi, enda fjölgaði íslenzkum sjó-
mönnum á skipunum jafnframt
því, sem útlendum sjómönnum
fækkaði stöðugt. Síðast, en ekki
sízt, er útfærsla fiskveiðiland-
helginnar í 12 mílur sem marka
mun tímamót í sögu íslenzks
sjávarútvegs.
Af hinum nýju fiskiskipum
voru um 20 þeirra, 140 til 250
rúml. ætluð til að hagnýta djúp-
miðin út af Norður- og Norður-
austurlandi, til að auka fram-
leiðslu og atvinnu í sjóþorpun-
um norðanlands. Og einnig voru
þessi skip ætluð til sóknar frá
Austfjörðum og miðunum við
Austur- og Suðausturland. Þessi
skip komu til landsins, og hafa
flest skilað góðum árangri á hin-
um stutta reynslutíma og aukið
framleiðslu viðkomandi sjóþorpa
mjög mikið. Er þessi árangur sér-
staklega mikilv^gur nú, þegar
verið er að gefast upp við rekst-
ur nokkurs konar strandferða-
togara, sem áttu að leggja upp
afla til vinnslu á ýmsum þess-
arra staða. Einnig er það mikils-
vert að hagnýta fiskimiðin svo
sem kostur er allt í kringum
landið, og vinnslumöguleikana, í
stað þess að auka stöðugt sóknina
á miðin við Suðvesturland.
Arangur af uppbyggingu sjáv-
arútvegsins á þessum stutta
tíma, er þegar farinn að færa
þjóðinni ríkulegan ávöxt. Afla-
magnið í heild hefur aukizt um
30%. Einnig hefur íslenzka sjó-
mannastéttin sett nýtt aflamet
með því að skila í land fullum
100 lestum af fiski fyrir hvern
mann sem veiðarnar stunduðu sl.
ár.
Jafnframt því að þessi góði ár-
angur er metinn réttilega, er þó
líka mikil ástæða til að víta þau
brigð samstarfsflokka í vinstri
stjórninni, sem Urðu á því að
staðið væri við gerða samninga
um kaup á nýjum togurum.
Stendur þar autt skarð í upp-
byggingu sjávarútvegsins á þess-
um tíma.
Þrátt fyrir hinn stóraukna afla
og mikla árangur af starfinu á
sjónum voru öll kjör sjómanna
stórlækkuð með lögum Alþýðu-
flokksstjórnarinnar í febrúar-
byrjun 1959, og sækir nú aftur í
það fyrra horf (frá 1953—55) að
sjómenn fara í land af skipun-
um og leitað er víða erlendis
eftir mönnum á skipin. Hafa nú
t. d. 8 til 9 af 43 togurum lands-
ins legið bundnir í höfnum
vegna skorts á sjómönnum. í
kjölfar hinna nýju efnahagsráð-
stafana ríkisstjórnarinnar er
mikil ástæða til að ætla að erfið-
ir tímar bíði nú mikils hluta
sjávarútvegsins.
Flokksþingið telur að eftirfar-
andi verkefni séu nú aðkallandi
að komið verði í framkvæmd til
eflingar sjávarútvegi landsins:
1. Að kjör sjómanna verði bætt
svo, að útvegurinn geti starfað
stöðugt og eðlilega og öll íslenzku
skipin eingöngu mönnuð íslenzk-
um sjómönnum.
2. Að staðið verði áfram órjúf-
andi vörð um 12 mílna fiskveiði-
landhelgina og hún varin til hins
ýtrasta.
3. Að vextir vegna uppbygg-
ingar og reksturs útvegsins verði
þegar lækkaðir í það, sem þeir
voru áður, meðal annars svo að
hægt verði að fullverka sem
mest af aflanum.
4. Að ríkið setji á stofn verzlun
með olíur og vélar með það fyrir
augum að láta útveginum þessar
vörur í té á sannvirði.
5. Að unnið verði kapsamlega
að því, að á næstu 10 árum
verði byggðar — eftir fyrirfram
gerðri áætlun — „lokaðar“ hafn-
ir í öllum þeim veiðistöðum, sem
vel liggja við fiskimiðum, og
veitt verði stóraukið fjármagn til
hafnarframkvæmda frá því sem
verið hefur.
6. Að haldið verði stöðugt
áfram að byggja upp fiskiskipa-
stól landsins. Að sendir verði á
vegum ríkisins einn til tveir vel
reyndir sjómenn til að vera með
einni eða fleiri veiðiferðum á
svokölluðum „skuttogurum" til
að kanna sem bezt hvort skip af
þeirri gerð muni henta fyrir ís-
lenzkan útveg. Ef athugun þessi
leiðir í ljós að svo sé, þá verði á
næsta ári tveir nýjir svokallaðir
„skuttogarar" keyptir, svo að ís-
lendingar geti sem fyrst aflað sér
eigin reynslu um hæfni slíkra
skipa fyrir aðstæður hérlendis.
7. Að niðursuðuiðnaður fyrir
fiskafurðir verði stóraukinn og
að verulegur hluti af síldarfram-
leiðslunni verði lagður niður í
dósir til sölu erlendis. Verði nið-
ursuðuverksmiðjum veitt hag-
kvæm lán til bygginga og véla-
kaupa.
8. Að lán úr Fiskveiðasjóði til
skipakaupa verði veitt fyrir 80%
af kostnaðarverði skipanna og
85% af byggingarkostnaði skipa,
sem byggð eru innanlands.
9. Að komið verði á stofn
„Tæknistofnun sjávarútvegsins“,
er hafi meðal annars þaðhlutverk
að annast leit nýrra fiskimiða,
gera tilraunir með nýjar gerðir
veiðarfæra, tækja, véla og vinnu-
aðferða, bæði á sjónum og við
verkun aflans í landi, fyrir
komulagi á fiskiskipum? gerð
nýrra og betri fiskikorta o. fl. til
umbóta á sjávarútveginum‘‘, og
verði þessarri stofnun séð fyrir
hæfilegum skipakosti í þessi
verkefni.
10. Að hlutatryggingarsjóður
verði efldur og lögunum um hann
breytt í samræmi við fengna 10
ára reynslu síðan hann tók til
starfa, svo að sjóðurinn verði
betur fær um að leysa af hendi
nauðsynlegt hlutverk sitt fyrir
útveginn.
fóri'"
Fermingarmessa í Akureyrar-
kirkju n.k. sunnudag kl. 10 f. h.
Sálmar nr.: 590 — 648 — 594 —
591 — 203. — K. R.
Félag jazzáhugamanna. Nýlega
var stofnað hér á Akureyri félag
jazzáhugamanna. Að stofnuninni
stóðu nokkrir hljóðfæraleikarar
og fleiri áhugamenn um þessi
mál. Tilgangurinn með stofnun
félagsins er, að vinna að auknum
skilningi manna á jazzmúsik, og
að gefa félagsmönnum kost á
fræðslu og kynningu á þessari
tegund tónlistar. Fyrsti fundur
félagsins verður næstkomandi
laugardag kl. 3 e. h. í Alþýðu-
húsinu. Efni fundarins verður
sem hér segir: Inntaka nýrra fé-
laga, lifandi tónlist, plötukynn-
ing, erindi, plötugetraun og
kvikmyndasýning.
Filmía. Á laugardag sýnir
Filmía Manninn frá Aran í Borg-
arbíó. Hún fjallar um líf fólksins
á eynni Aran imdan írlands-
strönd og er talin góð.
Sjálfsbjörg heldur skemmti-
fund sunnudaginn 3. apríl kl. 3.30
e. h. í Alþýðuhúsinu. — Félagar,
fjölmennið. — Stjórnin.
Minningarspjöld. Kvenfélagið
Hlíf hefur látið gera smekkleg
minningarspjöld. Þau verða til
sölu í Bókaverzlun Jóhanns
Valdemarssonar og hjá frú Lauf-
eyju Sigurðardóttur, Hlíðargötu
3. Ágóði minningarspjaldanna
gengur til barnaheimilisins í
Pálmholti. — Stjórnin.
Togaramir frá Akureyri eru
nú allir á veiðum. Þrír þeirra
lönduðu um síðustu helgi: Kald-
bakur á laugardag 130 lestum,
en Harðbakur og Svalbakur á
mánudag ca. 150 og 120 lestum.
Spilakvöld hjá IÐJU
Iðjuklúbburinn verður í
kvöld, föstudag 1. apríl kl.
8.30 í Alþýðuhúsinu. Spiluð
félagsvist, góð kvöldverðlaun.
Dans á eftir.
Hljómsveit hússins leikur.
Helena syngur með hljóm-
sveitinni. — Fjölmennið.
Skemmtið ykkur.
HVERGI MEIRA FJÖR.
STJÓRNIN.
Úr skýrslu Sjómanna- og gesta-
heimilis Siglufjarðar
Stúkan Framsókn á Siglufirði
hefur nú starfrækt Sjómanna- og
gestaheimili Siglufjarðar í 21 ár.
í skýrslu um starfsemina á sl.
sumri er m. a. þessar upplýsing-
ar að finna:
Heimilið starfaði frá 18 .júní
til ágústloka og var opið daglega
frá 10 f. h. til 23.30 e. h. Veiting-
ar voru framreiddar og dagblöð
og tímarit lágu frammi til lestr-
ar, ennfremur höfðu gestir píanó
og orgel til afnota, svo og töfl og
spil. Annast var um móttöku og
sendingu bréfa, peninga og sím-
skeyta. Lesstofuna heimsóttu
margir, lásu blöð og bækur og
skrifuðu bréf. Var þar oft þröngt
á landlegudögum.
í bókasafni heimilisins eru nú
2300 bindi, 200 voru keypt á ár-
inu. Lánaðar voru bækur í skip,
allt að 10 í einu, og einnig voru
bækur lánaðar til verkafólks í
landi. 36 skipshafnir fengu bæk-
ur að láni, og alls voru lánuð út
630 bindi. Aðsókn var mikil að
böðum heimilisins og komust oft
færri að en vildu. Alls voru bað-
gestir 1844.
Gestafjöldi alls varð 5380, þar
af 3420 í júlí og 1960 í ágúst.
Húsakynni heimilisins voru
þau sömu og áður, en þau eru nú
orðin mjög ófullnægjandi og lé-
leg, svo að óhjákvæmilegt er, að
fram fari endurbygging og gagn-
gerð viðgerð. En erfið fjárhagsaf-
koma hefur háð starfseminni hin
síðari ár. Þó hafa margar skips-
hafnir og nokkrir útgerðarmenn
fært heimilinu góðar gjaíir, og
námu þær á síðasta ári alls kr.
22.910.00. Frá ríkissjóði fékk
heimilið 10.000.00 kr. styrk, frá
Siglufjarðarkaupstað 2 þús. og
frá Stórstúku íslands 5 þúsund
kr. Fyrir alla þessa aðstoð kann
stjórn heimilisins hlutaðeigend-
um beztu þakkir.
Tapað
25. marz tapaðist veski með
peningum í á leið frá Stór-
holti 12 að íþróttahúsinu.
Vinsamlegast skilist gegn
fundarlaunum á Lögreglu-
varðstofuna.
Reiðhjól
Sjónaukar
Bakpokar
Svefnpokar
Tjöld
Myndavélar
Myndaalbúm
Veiðistengur
o. m. fl.
Gjörið svo vel og lítið í
gluggana.
JARN- OG GLERVÖRUDEILD
SKRIFSTOFUSTULKA
Stúlka getur fengið starf í skrifstofu landssímans á Ak-
ureyri 1. maí n. k.
Umsóknir sendist mér fyrir 15. apríl n. k.
SÍMASTJÓRINN.
FRÁ LANDSSÍMANUM
Þar sem ákveðið hefur verið að stækka sjálfvirku stöð-
ina á Akureyri um 500 númer, á næstu vikum, eru þeir
sem hafa pantað síma góðfúslega beðnir að endurnýja
pöntun sína fyrir 15. apríl n. k.
Nýjum símapöntunum verður veitt móttaka á skrif-
stofunni kl. 10—16 daglega.
SÍMASTJÓRINN.
Nú er grátur tregur
Nýjar gamanvísur undir vinsælum lögum.
Komnar í allar bókabúðir.
r
Utgefandi