Verkamaðurinn - 22.04.1960, Blaðsíða 1
VERKfllflÐUR Hlll
Ritstj.: Þorsteinn Jónatansson.
Útg.: Sósíalistafélag Akureyrar.
Skrifstofa Hafnarstræti 88.
Sími 1516.
Áskriftarverð kr. 50.00 árg.
XLIII. árg.
Akureyri, föstudaginn 22. apríl 1960
16. tbl.
Prentverk Odds Bjömssonar h.f.
Eiga hótanir og mútur að ráða úrslitum á sjóréttarráðstefnunni í Genf?
Island getur aldrei samþykkt
minna en 12 mílur
Nú líður óðum að lokum landhelgisráðstefnunnar í Genf,
og þær fréttir, sem þaðan hafa borizt síðustu dagana, eru
fjarri því að vera hagstæðar málstað okkar íslendinga. Ennþá
er þó ekki séð, hver úrslitin verða.
í nefnd hlaut tillaga Bandaríkjanna og Kanada um 6 plús 6
mest fylgi, og nú er talið hugsanlegt, að sú tillaga verði sam-
þykkt. Það hefur verið unnið af miklu kappi á bak við tjöld-
in að undanförnu, og alveg vafalaust, að þar hefur ver-
ið beitt ýmsum meðulum, sem lítið eiga skylt við heiðarleika
eða frjálsa samninga. Nú eru það hótanir, ógnanir og mútur,
sem Bandaríkjamennirnir treysta á til að fá sitt fram. Það er
ráðið, sem gripið er til, þegar önnur duga ekki, og hér uppi á
íslandi verðum við að vona, að slík ráð dugi ekki heldur.
Heyrzt hefur, að takizt Bandaríkjamönnum og Bretum ekki
að tryggja 6 plús 6 það fylgi, sem þarf til samþykktar, verði
ráðstefnunni e. t. v. frestað til hausts. Til hvers skyldi sá frest-
ur verða notaður? Til þess að gera ógnanirnar alvarlegri og
múturnar stærri. Bandaríkin ætla að kaupa sér stuðning, og
ef þau ekki geta komið þeirri verzlun í kring nú þegar, þá
vilja þau fá frest til að verzla.
En hvað sem gerist í þessum máulm, hvað sem samþykkt
kann að verða á ráðstefnunni í Genf eða ekki samþykkt, þá
megum við hér heima aldrei slaka á kröfunni um óskoraða 12
mílna fiskveiðilögsögu, og hana verðum við að verja eftir því
sem við höfum getu til. Verði í Genf gerð samþykkt um ein-
hvern „sögulegan rétt“, getum við aldrei gerzt aðili að þeirri
samþykkt. Enda vitum við, að fyrir slíkri samþykkt er raun-
verulega ekki meirihlutavilji á ráðstefnunni, hvað þá fylgi
tveggja þriðju. En margar þjóðir greiða slíkri tillögu atkvæði
af því að hún er bundin tillögu um almenna landhelgi, sem
þær þjóðir vilja samþykkja. Og svo koma atkvæði þeirra
þjóða, sem nú er verið að ógna og múta. Atkvæði þeirra ráða
úrslitum, ef tillagan um 6 plús 6 verður samþykkt. Samþykkt
sem þannig er fengin, verður markleysa í augum allra heiðar-
legra manna, og því eðlilegt, að hún verði að engu höfð. Is-
lendingar verða a. m. k. að vera þeir menn, að virða slíka sam-
þykkt að vettugi.
BJÖRGÚLFUR
Síðastliðinn sunnudag kom til
Dalvíkur nýtt fiskiskip, er hlotið
hefur nafnið Björgúlfur. Þetta er
250 lesta skip, síðast í röðinni af
þeim 12 skipum þeirrar stærðar,
sem vinstri stjórnin á sínum
tíma samdi um smíði á í Austur-
Þýzkalandi. Eigandi skips þessa
er Útgerðarfélag Dalvíkur (Dal-
víkurhreppur, KEA og Sigfús
Þorleifsson), en það félag á
einnig Björgvin, sem var eitt hið
fyrsta þessarra skipa til landsins.
Skipstjóri á Björgúlfi er Helgi
Jakobsson, en ákveðið er, að á
síldveiðum í sumar verði Bjarni
Jóhannesson, hinn mikli afla-
kóngur, með skipið.
NARFI, RE 13
Á föstudaginn var, föstudaginn
langa, kom til landsins stærsti
togari, sem fslendingar hafa
eignast til þessa. Er hann nýsmíð-
aður í Vestur-Þýzkalandi og hef-
ur hlotið nafnið Narfi. Hann ber
cinkennisstafina RE 13. Eigandi
er Guðmundur Jörundsson út-
gerðarmaður í Reykjavík.
Akureyrarkirkja: Messað a
sunnudaginn kemur kl. 10,30 f.
h. Sálmar nr. 510, 512, 190, 511,
506.
Lögmannshlíðarkirkja: Mess-
að kl. 2 e. h. Sálmar nr. 507, 176,
506,186, 1.
Karlakór Akureyrar heldur afmælissöngva í Nýja-Bíó í kvöld kl. 9 og á sunnudaginn kl. 2 e. h., en
kórinn átti þritugsafmæli á liðnum vetri, og hélt þá upp á það með myndarlegri afmælishátíð. Söng-
stjórar í kvöld og á sunnudaginn verða Áskell Snorrason og Áskell Jónsson, einsöngvarar Jóhann Kon-
ráðsson og Jósteinn Konráðsson og undirleikari Kristinn Gestsson. Kórinn hefur æft af kappi í vetur
og margir nýir og góðir söngmenn bætzt í hópinn. Má því gera ráð fyrir góðri skemmtun, en lögin
eru eftir innlenda og erlenda höfunda og i tilefni afmælisins cru flest þeirra valin eftir eldri söng-
skrám kórsins frá ýmsum tímum. — Myndin hér að ofan var tekin af kórnum nú í vikunni. •
Ljósmynd: Kristján Hallgrímsson.
Kínversk bréfklippulist.
Gleöilegt sumar!
Byggingahappdrætti Æ. F.
Æskulýðsfylkingin hefur nú
farið af stað með myndarlegt
happdrætti í því skyni að safna
fé í byggingasjóð Fylkingarinnar.
En Æskulýðsfylkingin hefur nú
sett sér það mark, að reisa í
Reykjavík viðunandi húsakynni
fyrir starfsemi sína, þar sem m.
a. yrði stór samkomusalur, sem
notaður yrði fyrir allar meiri
háttar samkomur Fylkingarinn-
ar, Sósíalistaflokksins og Al-
þýðubandalagsins. En skortur á
húsnæði fyrir stærri samkomur
háir nú mjög starfseminni og
nauðsyn, að úr verði bætt.
Sala happdrættismiða fer fram
um land allt. Utan Reykjavíkur
fá viðkomandi héruð eða kjör-
dæmi verulegan hluta af því,
sem inn kemur, til eigin ráðstöf-
unar. Sums staðar verður því
varið til byggingaframkvæmda á
hinum einstöku stöðum, en ann-
ars staðar varið til að halda uppi
erindrekstri Alþýðubandalagsins
eða blaðaútgáfu. Hér í Norður-
landskjördæmi eystra er ætlun-
in, að mest af því, sem kemur í
hlut kjördæmisins af happdrætt-
ishagnaði, renni til að standa
straum af erindrekstri innan
kjördæmisins. Slíkur erindrekst-
ur er mikil nauðsyn í svo víð-
lendu kjördæmi, en jafnframt
kostnaðarsamur, og af litlum
sjóðum að taka. Allir velunnarar
Alþýðubandalagsins ættu því að
taka höndum saman um að gera
árangurinn af sölu þessarra
happdrættismiða sem beztan. —
Hver seldur miði þýðir meiri er-
indrekstur og betra samband um
allt kjördæmið.
Vinningar í Happdrætti
Æ F eru þessir:
1. Flugfar fyrir tvo á Ólympíu-
leikana í Róm, báðar leiðir,
kr. 20.000.00.
2. Borðstofuhúsgögn, kr.
16.000.00.
3. Flugfar fyrir tvo til Ham-
borgar, báðar leiðir, kr.
15.326.00.
4. Dagstofuhúsgögn kr.
14.500.00.
5. Skemmtibátur úr plasti kr.
14.000.00.
I. Flugfar fyrir tvo til Kaup-
mannahafnar, háðar leiðir,
kr. 13.444.00.
7.
Svefnherbergishúsgögn,
13.200.00.
kr.
8. Norðurlandsferð fyrir tvo
með m.s. Heklu kr. 11.400.00.
9. Vegghúsgögn, kr. 10.000.00.
10. Far fyrir tvo með m.s. Gull-
fossi til Kaupmannahafnar,
báðar leiðir, kr. 8.280.00.
11. Segulbandstæki, kr. 8.000.00.
12. Skrifborð og stóll, kr.
6.000.00.