Verkamaðurinn - 03.06.1960, Side 1
UERKfllflÐUR Hffl
] Ritstj.: Þorsteinn Jónatansson.
Útg.: Sósíalistafélag Akureyrar.
i Skrifstofa Hafnarstræti 88.
Sfmi 1516.
Áskriftarverð kr. 50.00 árg.
Prentverk Odds Björnssonar h.f.
XLIII. árg.
Akureyri, föstudaginn 3. júní 1960
22. tbl.
Einróma samþykkt ráðstefnu A.S.I.
Það verður að hækka kaupgjald
og hrinda kjaraskerðingunni
Á ráðstefnu þeirri, sem Alþýðusamband íslands boðaði til
um síðustu helgi, voru mættir fulltrúar frá velflestum verka-
lýðsfélögum á landinu eða alls nokkuð á annað hundrað.
Aðalverkefnið var að ræða viðhorfin í kjaramálunum nú
eftir þá stórfelldu kjaraskerðingu, sem orðin er og vex nteð
hverjum degi, vegna efnahagsráðstafana ríkisstjórnarinnar og
Alþingis. Nokkrar tillögur voru samþykktar á ráðstefnunni
og undantekningarlaust með samhljttða atkvæðum fundar-
manna.
um verkafólks sé nú svo komið,
að óhjákvæmilegt sé fyrir verka-
lýðsfélögin að láta til skarar
skríða og hækka kaupgjald og
hrinda þannig þeirri kjaraskerð-
ingu, sem orðið hefur. Jafnframt
Aðalályktunin, sú, sem fjallar
um kaupgjalds- og kjaramálin
og hvernig bregðast beri við
kjaraskerðingunni, er svohljóð-
andi:
„Ráðstefna Alþýðusambandsins
um kjaramál, haldin í Reykjavík
28. og 29. maí 1960, ályktar eftir-
farandi:
Frá því að verkalýðsfélögin
hækkuðu almennt kauptaxta sína
á árinu 1958 hafa kaupgjalds-
ákvæði í samningum þeirra tví-
vegis verið skert með lagaboði,
og nú síðast með því að afnema
með öllu rétt launþega til að fá
kauphækkanir eftir vísitölu í
vaxandi dýrtíð. Ráðstefnan telur,
að með þessum ráðstöfunum hafi
samningsbundinn réttur verka-
lýðsfélaganna yerið freklega
skertur og mótmælir því harð-
lega.
Afleiðingar gengisfellingar og
annarra ráðstafana eru þær, að
nýju dýrtíðarflóði hefur verið
hleypt af stað. Verðhækkanir á
flestum sviðum eru nú meiri en
dæmi eru til, að komið hafi í
einu, og þegar sjáanlegt, að þær
verða meiri en gert var ráð fyrir
í byrjun.
Allt launafólk hefur því þegar
orðið fyrir mikilli kjaraskerðingu
og augljóst, að sú skerðing muni
enn aukast mikið. Hætta er á, að
ríkjandi stefna inuni, ásamt
minnkandi kaupmætti, leiða til
samdráttar í frainleiðslu og fram
kvæmdum, og þar af leiðandi til
minnkandi atvinnu og jafnvel at-
vinnuleysis, verði ekki að gert í
tíma.
Launakjör verkafólks hafa um
langt skeið verið með þeim hætti,
að ókleyft hefur verið að lifa af 8
stunda vinnudegi og er kaupgjald
íslenzkra verkamanna orðið mun
lægra en stéttarbræðra þeirra á
Norðurlöndum.
Ráðstefnan álítur, að kjaramál-
lýsir ráðstcfnan yfir, að hún tel-
ur að fyllilega sé unnt að verða
við réttlátum kröfum verkafólks,
án þess að verðbólgan vaxi, ekki
sízt ef um leið er framkvæmdur
sparnaður í ríkiskerfinu og fram-'
leiðsla landsmanna aukin og gætt
meiri hagsýni um rekstur fram-
leiðslutækja þjóðarinnar.
Ráðstefnan telur því nauðsyn-
legt, að hvert verkalýðsfélag hefji
nú undirbúning að þeirri bar-
áttu, sem óhjákvæmilega er
framundan, og felur miðstjórn
Alþýðusambandsins að samræma
kröfur félaganna og baráttu
þeirra og hafa um það samráð við
verkalýðsfélögin, eftir þeim leið-
um, sem hún telur heppilegast-
KNATTSPYRNAN í SUMAR
Akureyringar keppa í I. deild - Hafa
æft vel allt frá áramótum
Karlakórinn Þrymur
frá Húsavík er nú að hefja söng-
för um Suður- og Vesturland, og
mun kórinn syngja víða. Söng-
stjóri er Sigurður Sigurjónsson,
en undirleikari Ingibjörg Stein-
grímsdóttir. 1 Reykjavík syngur
kórinn á þriðjudaginn kl 7..15
Gamla-Bíó.
Knattspyrnuráð Akureyrar
kynnti fréttamönnum nú í vik-
unni, hvað helzt væri á döfjnni
hjá knattspyrnumönnum bæjar-
ins nú í sumar.
Eins og þeir vita, sem ejtthvað
fylgjast með knattspyrnumálum,
þá keppir nú lið Akureyringa í I.
deild í íslandsmeistaramótinu, og
verður sú keppni auðvitað lang-
samlega fyrirferðamest og tekur
mestan tíma knattspyrnumann-
anna. í fyrstu deildar keppninni
taka þátt 5 hð, auk Akureyrar-
liðsins, eru það lið Akurnesinga,
Keflvíkinga og Reykjavíkurfé-
laganna Vals, KR og Fram. Liðin
leika tvo leiki hvert við annað,
annan heima en hinn heiman.
Fjórir fyrstu leikir Akureyr-
inganna verða á heimavelli: 12.
júní við Keflavík, 19. júní við
Akranes, 26. júní við Val og 10.
júlí við KR. Síðan koma fimm
leikir í júlí og ágúst á heimavöll-
hinna félaganna, og síðasti
leikur Akureyringanna í þessarri
keppni verður hér heima 26
ágúst á móti Fram.
Red Boys.
Þá mun knattspyrnuliðið Red
Boys frá Luxemburg komahingað
dagana 1. til 5. júlí og leika hér
tvo leiki við lið Akureyringa. Lið
þetta kemur til landsins á vegum
Þróttar í Reykjavík, en góð sam
vinna er milli Knattspyrnuráðs
Akureyrar og Þróttar, og er í at-
hugun, að knattspyrnumenn héð-
an ásamt Þróttarmönnum heim-
sæki Luxemburg í haust.
Þá er einnig í athugun, að
koma á samskiptum við vinabæ-
ina á Norðurlöndum á þessu
sviði, en ekki er ennþá vitað,
hvern árangur það ber á þessu
sumri.
Bæjakeppni og Norðurlandsmót.
Þá er mjög sennilegt, að bæja-
keppnjr verði í sumar háðar við
Framhald d 4. siðu.
MÁLVERKASÝNINGAR eru
ekki daglegur viðburður hér
Norðanlands, og það eru mjög
fáir málarar, sem hafa sýnt Ak-
ureyringum eða öðrum Norð-
lendingum þá virðingu að bjóða
þeim að sjá verk sín. Og allt til
þessa hefur enginn þeirra mál-
ara, sem eingöngu fást við ab-
straktverk, haldið hér sýningu.
Fiðlutónleikar
EINAR SVEINBJÖRNSSON
er ungur fiðluleikari, sem stund-
að hefir tónlist fyrst í Tónhstar-
skólanum í Reykjavík og síðan
nokkur ár í Vesturheimi. Hann
hélt hljómleika í Nýja-Bíó á Ak-
ureyri 31. maí síðastl. á vegum
Tónlistarfélags Akureyrar, og
voru það fyrstu tónleikar félags-
ins á þessu ári.
Jón Nordal, tónskáld, aðstoð-
aði fiðluleikarann með píanóleik.
Þessi tónverk voru á hljórp-
leikaskránni.
1. Fr. Kreisler; Tilbrigði um
stef eftir Tartini,
2. César Franck: Sónata í A
fyrir fiðlu og píanó.
3. Eugéne Ysaye: Sónasta op.
27 nr. 3 fyrir einleiksfiðlu.
4. H. Vieniavskij: Scherzo-
Tarantelle, op. 16.
5. M. Ravel: Tzigane.
Listamennirnir fluttu öll þessi
lög með miklum glæsibrag, ör-
yggi, leikni og skaphita.
Einar Sveinbjörnsson er
óvenjulega efnilegur fiðluleikari,
ÞINGSLIT
Loks mun að því komið, að Al-
þingi ljúki störfum, og mun búizt
við þingslitum í dag. Ekki mun
þing þetta fá góð eftirmæli hjá
alþýðu manna. Þess mun lengi
minnst sem eins hins mesta
óhappaþings í sögu þjóðarinnar.
sem áreiðanlega á glæsilega fram
tíð fyrir sér, ef engin óvænt
óhöpp henda. Tónn hans er fág-
aður, hlýr og bjartur, á köflum
voldugur, tæknin örugg, skapið
eldlegt.
Jón Nordal er afburðagóður
píanóleikari, og stuðlaði píanó-
leikur hans eigi lítið að því, hve
mikil áhrif þessir hljómleikar
höfðu á áheyrendur. Á köflum
lék hann eins og sá, sem vald
hefir, einkum í hinni mikilfeng-
legu Sónötu Francks, en þar er
hlutverk píanósins öllu meira en
fiðlunnar, sem einnig skilaði sínu
hlutverki glæsilega, svo að þetta
fagra og volduga tónverk varð
mjög áhrifamikið.
Annars er ekki hægt að gera
upp á milli laganna, hvert þeirra
var bezt flutt, því þau eru svo
,ólík hvei’t öðru, en hvert þeirra
ágætlega flutt á sinn hátt, af
næmum skilningi.
Áheyrendur tóku listamönnun-
um forkunnar vel, og urðu þeir
að leika aukalag.
Ég vil að endingu þakka þess
um ágætu listamönnum fyrir
ógleymanlega kvöldstund og
óska þeim mikils frama og full-
komnunar í þeirri göfugu list
sem þeir iðka.
Einnig vil ég votta Tónlistar-
félagi Akureyrar beztu þakkir
og ámaðaróskir. Á. S.
Hér hafa slík verk því meira
verið þekkt af afspurn en eigin
sjón og mati,
En nú hefur ungur málari,
Hafsteinn Austmann, ákveðið að
brjóta ísinn og opna hér sýningu
abstraktverka á morgun í Gagn-
fræðaskólanum. Hafsteinn hafði
nú nýskeð sýningu í Reykjavík,
og þau verk, sem hann sýnir hér
eru mörg hin sömu, en þó hafa
verið teknar burtu þær myndir,
sem seldust syðra, og nýjar sett-
ar í þeirra stað. Þetta eru flest
vatnslitamyndir, en nokkur olíu-
málverk, og hafa þau ekki verið
sýnd fyrr en hér.
Hafsteinn Austmann hefur áð-
ur sýnt á mörgum samsýningum,
bæði í Reykjavík og erlendis, og:
einstaklingar og söfn hafa keypt
mikið af myndum hans. Meðal
annarra hefur Listasafn ríkisins
keypt af honum. Verk Hafsteins
hafa jafnan hlotið góða dóma
jeirra, sem á annað borð meta
abstraktlist einhvers, og fyrir
sýninguna syðra nú á dögunum
hlaut hann mikið lof. Þess er því
að vænta, að Akureyringar sæki
vel þessa sýningu, sjái hvað það
er, sem þeir hæla syðra, og leggi
sjálfstætt mat á gildi þessarra
vei'ka.
Sýningin verður opnuð almenn-
ingi kl. 6 síðd. á morgun, laugar-
daginn 4. júní, og verður þá opin
til kl. 10 og síðan næstu daga frá
kl. 2 til 10.
Glerárskóli endur-
bættur
Fræðsluráð Akureyrar og bæj-
arstjórn hafa ákveðið, að láta
fram fara nokkrar endurbætur á
barnaskólanum í Glerárþorpi í
sumar. Verður byggð við núver-
andi skólahús nokkur viðbót, þar
sem gert er ráð fyrir að komið
verði fyrir handavinnustofu,
kennarastofu og snyrtingum
ásamt auknu gangarými.