Alþýðublaðið - 25.04.1921, Page 1

Alþýðublaðið - 25.04.1921, Page 1
Alþýðublaðið GTefið tit af Alþýðuflokknum. 1921 Mánudaginn 25. apríl. Síldarmálið. I. Hitt eð fyrra sunaar seldu út- gerðarmenn ekki , síld sína, og fengust þó ágæt boð í hana. En þeir voru ekki ánaegðír með að fá mikið, þeir vildu fá ennþá meira, og drógu að selja þar til i alt var komið i óefni og síldin var orðin óseljanleg. MikiII htuti síldarinnar varð ónýtur, en tjónið sem íslenzka þjóðfélagið beið nam 5 til 6 miljónum króna, sem top uðust af því að síldareigendur voru ®f áfjáðir í að græða meira en mikið. En hvernig á nú að koma í veg fyrir að slíkt endurtaki sig? Síldarmálið — það er hvernig eigi að koma í veg fyrir að þetta endurtaki sig. En þetta er ekki síldarmálið alt. í fyrra drógu útgerðarmenn ekki að selja. En kaupendur gerðu samtök á móti þeim og feldu síldarverðið niður fyrir það, sem "*• upprunalega hafði verið samið um. Kaupendurnir stóðu sameináðir, útgerðarmenn voru sundraðir. — Sundraðir mega áín lítið móti sameinuðum. Þetta er annar 'hluti sildarmálsins. a Vöruvöndun er afarlítil hvað síld viðvíkur. Matið er að miklu leyti kák eitt. ísienzká síldin er því oft mjög ill vara, þegar á er- lendan markað er komið. Er það enn leiðinlegra en ella, þegar litið er á, að íslenzka síldin er einhver bezta síld sem fæst, og hefir því skilyrði til þess að verða bezta verzlunarvara. Enn er eitt ótaiið: Markaðurinn fyrir íslenzku síldina er mjög tak- markaður; líklegast ekki nema fyrir 120 þús. tunnur, en veiðin er oft helmingi meiri en þáð. Þetta alt til samans er þá sild- armálið. 11. Útgerðarmenn hafa sent sjávar- útvegsnéfndum alþingis frumvarp til kga urn siidarmálið. Aðalinni- hald frumvarpsins er þetta: Síld má aðeins veiða af íslenzkum skipum, aðeins þeir, sem hafa leyfi stjórnarráðsins, mega veiða sild, og ailir þeir, sem leyfi hafa mynda með sér félagsskap, er hefir síldarsöluna á hendi (einka- sölu). Það er eins gott að segja það stráx: Aiþýðan hlýtur að vera algerlega á móti frumvarpi þessu. í fyrsta lagi hýtur alþýðan að setja sig algerlega á móti því, að útlendingum séu bannaðar veiðar. Það er alveg óvfst að síldarmark- aðurinn batni nokkuð við það, en hitt er aftur alveg víst, að atvinna minkar mikið við það. Og ástand ið hjá verklýðnum er ekki þannig, að hann standi sig við að þess- konar tilraunir séu gerðar, tilraun- ir, sem lang sennilegast ekki koma að nokkru haldi. Að ætla að lögleiða það, að leyfi til síldveiða þurfi að sækja í stjórnarráðið, er hreint og beint fásinna, nema tilgangurinn sé bein- línis sá, að draga hlunnindi að vinum stjórnðrinnar og gefa henni tækifæri til að ofsækja fjárhags- iega óvini sína. Það er í sjálfu sér máske ekk- ert á móti því, að allir þeir, sem *.síldarútveg reka, myndi sameigi'n- iegan félagsskap, og að sá félags- skapur hafi einkasölu á sííd. En það nær engri átt, að láta út- gerðarmenn eina um hvernig þeir kæmu sikum félagsskap fyrir. Þeir gætu hæglega misbrúkað einka- leyfið herfilega; misbrúkað það á kostnað landsins, og misbrúkað það á kostnað alþýðunnar. Það þarf að koma einkasaia á sild, en félag það, sem hefir hana með h'öndum, verður að vera að nokkru leyti undir stjórn landsins, og að nokkru Ieyti undir stjórn alþýð- unnar, engu síður en útgerðar- manna. 92. tölubl, jfýtízkn gulsþjðnusta. Það hefir þótt hlýða fram að þessu, að halda messugerð síð- asta sunnudag i vetri, enda gleymd- ist það ekki í þetta sinn, sem betur fór. En hver var það sem messaði í Fríkirkjunni hér, hinn jsíðasta drottinsdag? Þáð var stjórn safn- aðarins, að tilhlutun prestsins. Þar ■ var ekki lesið hið gamla góða guðspjall dagsins, heldur var það nýtt, og svohljóðandi: Stjórnin hefir litið svo á, sem bráð nauðsyn bæri til þess að hækka laun prestsins um tvö þús- Und, í viðbót við þau 5 þúsund sem þau áður voru, og auk þess 10 prósent af nettótekjum kirkj- unnar. Þetta getur nú alt verið gott og blessað, en mörgum mun finn- ast fátt um það, sem hér fer á eftir, sem sé þetta: Öll gjöld eru hækkuð. Og hvern blæðir? Það gerir hvern einasta safnaðarmeð- lim. Þess skal getið að á eftir stjórninni hélt prestur langa og hjartnæma / ræðu, af mikilli anda- gift, þótt ég, sem viðstaddur var, sæi nú fáa vikna, þó ístöðulitið sé sumt af þessu fólki er þarria var, en hann komst nú líka Iftið inn á eilífðarmálin. Með þessari óhæfu sem ég kalla, töluðu tveir menn. Annar þeirra er í Vfsis liðinu; sá er skrifaði hina alræmdu grein í blaðið Vísi í vetur, um að það væri óhjá* kvæmilegt að alt verkakaup þyríti að lækka mikið. Hinn maðurinn var einn heildsaiaþjónn hér í bæn- um. Hvorugur þessara manna setti sig að því er virtist inn f kjör mín, né annara fátækra dag- launamanna. Á eftir töluðu tveir góðir menn og ávítuðu gerðir stjórnarinnar, töldu hennar framkomu óbæriiega gagnvart fátækasta fólki bæjar- ins, sem er ómótmælandi sanc- leikur, að mikill meiri hluti þess;

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.