Verkamaðurinn - 02.09.1960, Qupperneq 1
VERKflftlflÐURitlll
Ritstj.: Þorsteinn Jónatansson.
Útg.: Sósíalistafélag Akureyrar.
Skrifstofa Hafnarstræti 88.
Sími 1516.
Áskriftarverð kr. 50.00 árg.
Prentverk Odds Björnssonar h.f.
XLIII. árg.
Akureyri, föstudaginn 2. september 1960
29. tbl.
Boðað til Þingvallafundar
Landsfundur hernámsandstæð-
inga verður háður að Þingvöllum
dagana 9. til 11. þ. m. Hvervetna
um land allt er unnið af kappi
að undirbúningi fundarins, og er
þegar vitað, að þátttaka verður
mjög góð víða af landinu.
Héraðsnefndir í hinum ein-
stöku byggðarlögum vinna að
undirbúningum og skipulagningu
Þingvallaferðai'. Hér á Akureyri
var fyrir alllöngu stofnuð sjö
manna nefnd, en hún hefui' nú
verið stækkuð og verksvið henn-
ar einnig aukið, þannig að hún
starfar einnig að þessum málum
í þeim sveitum, sem næst liggja
kaupstaðnum.
Nefndin hefur opnað skrif-
stofu í Verkalýðshúsinu við
Strandgötu og er hún opin á
kvöldin fró kl. 20.30 til 22.00. -—
Þar eru gefnar allar upplýsingar
SKÁKKEPPNI
sú, sem áður hefur verið boðuð
milli skákmanna frá Taflfélagi
Reykjavíkur og skákmanna af
Norðurlandi hefst í Alþýðuhús-
inu á Akureyri kl. 10 f. h. á
sunnudaginn kemur, en sunn-
lenzku skákmeistararnir munu
koma norður á föstudagskvöld
og verða væntanlega sjö talsins,
auk Jóns Þorsteinsonar, sem
keppir með norðanmönnum.
í þessarri keppni verða saman
komnir og leiða hesta sína saman
við skákborðið fleiri af fremstu
skákmönnum landsins en algengt
er að tækifæri gefist til að sjá
hér.
Það lór vel
Akureyringar fjölmenntu venju
frernur til að horfa ó knatt-
spyrnukappleikinn á íþróttavell-
inum hér á sunnudaginn var. Þá
keppti lið íþróttabandalags Ak-
ureyrar við knattspyrnufélagið
Fram úr Reykjavík og á úrslitum
þessa leiks valt það, hvort Akur-
eyringarnir héltu sæti í fyrstu
deild.
Og það voru ánægðir Akuir-
eyringar, sem héldu heim að
leikslokum. Það mátti segja, að
l»á væri gleðisvipur á hverjum
manni. Heimamenn höfðu sigrað
með yfirburðum og óumdeilan-
lega tryggt sér rétt til að keppa
áfram í fyrstu deild næsta sumar.
Akureyringar voru hreyknir af
knattspyrnumönnum sínum þenn
an dag, og leikur liðsins vakti
góðar vonir um, að það eigi eftir
að vinna marga sigra í náinni
framtíð.
Akureyrarliðið á enn eftir einn
leik í fyrstudeildar-keppninni
þessu sxunri. Sá leikur verður
háður hér á sunnudaginn kemur
gegn KB.
varðandi Þingvallafundinn og
ferðir þangað. Einnig gefa með-
limir héraðsnefndarinnar hver
um sig slíkar upplýsingar.
Fjársöfnun.
Kostnaður við landsfundinn
verður sem nærri má geta mikill
og í sambandi við undirbúnings-
Starfið á hverjum stað einnig
talsverður kostnaður. Nú fer
fram um allt land fjársöfnun til
að standa straum af þessum
kostnaði og ber að vona, að nægi-
legt fé safnist áður en fundurinn
verður haldinn til þess að þegar
verði hægt að greiða allan kostn-
að. Ef nógu margir leggjast á eitt
um að greiða þennan kostnað,
>ai'f hver einstakur ekki að
leggja mikið af mörkum, en
margt smátt gerir eitt stórt.
Það er von héraðsnefndarinn-
ar fyrir Akureyri og nágrenni, að
Sem allra flestir treysti sér til að
láta eitthvað af hendi rakna og
komi sem fyrst með framlög sín
til skrifstofu nefndarinnar
Verkalýðshúsinu eða afhendi
»au einhverjum nefndarmanna,
en nöfn þeirra fara hér á eftir.
Héraðsnefnd fyrir Akureyri og
nágrenni:
Arnfinnur Arnfinnsson, iðnverka-
maður, Akureyri.
Björn Halldórsson, lögfræðingur,
Akureyri.
Haraldur Þorvaldsson, verkam.,
Akureyri.
Hlín Stefánsdóttir, frú, Akureyri.
Hólmgeir Þorsteinsson frá Hrafna
gili, Akureyri.
Jón Ingimarsson, skrifstofumað-
ur, Akureyri.
Jónbjörn Gíslason, múrari, Ak.
Gunnlaugur Björnsson, bóndi,
Hraukbæ, Glæsibæjarhreppi.
Júdit Jónbjömsdóttir, kennari,
Akureyri.
Magnús Albertsson, trésmiður,
Akureyri.
Rósberg G. Snædal, rithöf., Ak.
Sigfús Jónsson, bóndi, Hlíð, Ak.
Sigurður Óli Brynjólfsson, kenn-
ari ,Akureyri.
Stefán Halldórsson, bóndi, Hlöð-
um, Glæsibæjarhreppi.
1
Niðursuðuverksmiðja K. Jónsson & Co. h.f. Til hægri er gamla húsið, sem nú hefur verið endurhyggt,
en til vinstri sér hluta af nýja húsinu. Mynd af allri byggingunni var ekki unnt að ná í einu.
Niðursuðuverksmiðja K. Jónssonar & Co
veifir 70-100 manns atvinnu og framleiðir einnig
dýrmæta útflutningsvöru
Það þykir oft við brenna hér á
landi, að framkvæmdir gangi
hægt fyrir sig, og ekki er óal-
gengt, að byggingar standi jafn-
vel árum saman hálfgerðar og
geti ekki gengt því hlutverki,
sem þeim er ætlað. Svo mikið er
a. m. k. víst, að menn eru því
vanastir, að framkvæmdaáætlan-
ir standist ekki. Eln út af þessu
getur þó brugðið.
Þann 6. maí í vor var mælt út
fyrir nýju verksmiðjuhúsi á Odd-
eyrartanga og samdægurs hófst
undirbúningur byggingafram-
kvæmda. Það var Niðursuðu-
verksmiðja K. Jónsson & Co.,
sem þarna hugðist reisa nýja
byggingu fyrir starfsemi sína. Og
það er skemmst frá að segja, að
þremur mánuðum síðar, eða 8.
FRIÐARPRESTUR
Blaðið Dagur skýrir frá því í
vikunni, að meðal þeirra, sem
hyggist sækja um auglýst prests-
embætti hér í bæ, sé Jón Hnefill
Aðalsteinsson guðfræðingur, sem
undanfarið hefur verið einhvers
konar heimilisprestur hjá Morg-
unblaðinu, og m. a. skemmti sér
við það í tilefni af hinum al-
þjóðlega baráttudegi kvenna í
vetur, að hæðast að friðarbaráttu
Menningar- og friðarsamtaka ís-
lenzkra kvenna.
ágúst, hófst vinnsla í hinni nýju
verksmiðjubyggingu, sem þá var
að mestu fullgerð og hafði verið
búin nýtízku vélum til starfsem-
Forsaga.
Fyrirtækið K. Jónsson & Co.
h.f. tók fyrst til starfa 1947, og
hóf þá niðursuðu smásíldar í
Varasjóðurinn eyðist
Á fyrra helmingi þessa árs
varð vöruskiptajöfnuðurinn við
útlönd íslendingum óhagstæður
um 402 milljónir króna á móti
159 millj., sem hann var óhag-
stæður á sama tíma í fyrra. Inn-
flutningurinn nam nú 1345 millj.
kr., útflutningurinn 943 milljón-
um. Síðustu tvo mánuði mun enn
hafa hallast verulega á ógæfuhlið
í þessum efnum, svo að jöfnuður-
inn er orðinn þjóðinni óhagstæð-
ur um eitthvað á sjötta hundrað
milljónir a. m. k. Er því ekki
HJALTI EYMANN
verkstjóri.
litlu leiguhúsnæði á Oddeyrar-
tanga og með ófullkomnum véla-
kosti. Framleiðslan voru síldar-
sardínur fyrir innanlandsmarkað.
Fyrstu árin nam framleiðslan
1500 til 2000 kössum árlega, en
sú framleiðsla fullnægði innan-
landsmarkaði. Siðan hefur árlega
verið haldið áfram og framleiðsl-
an verið aukin eftir því, sem eft-
irspurn hefur leyft. Einnig hefur
annað sýnilegt en mjög taki nú sum árin verið unnið að vinnslu
að ganga á varasjóðinn þann I annarra sjávarafurða, einkum
hinn mikla, er ríkisstjórnin fékk
að láni í vetur sem leið og gengið
var fellt. En hvað skyldi verða
til ráða hjá þeim háu herrum?
Ætli það verði ný gengisfelling
og nýtt lán, sem síðari ríkis-
stjórnum verður svo ætlað að
borga?
Það geta orðið ljótir skulda-
fjötrar, sem þessi eymdarstjórn
bindur þjóðina í áður en lýkur.
hafsíldar, en öll hefur starfsemin
verið smá í sniðum og starf-
ræksla verksmiðjunnar stopul.
Vegna þess hve verksmiðjan
hefur verið ófullkomin og illa
búin að vélakosti hefur ekki ver-
ið unnt að framleiða með útflutn
ing fyrir augum. En á árinu 1958
voru þó 400 kassar af síldar-
sardínum (40 þús. ds.) seldir til
Tékkóslóvakíu til að kanna
markaðsmöguleika þar. Vara
þessi líkaði mjög vel, og 1959
voru 2000 kassar sendir á sama
markað fyrir milligöngu nefndar *
þeirrar, er þá starfaði að því að
athuga um hagnýtingu smásíld-
arinnar í Eyjafirði. Sú nefnd var.
skipuð á grundvelli þingsálykt-
unartillögu er Björn Jónsson og
Friðjón Skarphéðinsson fluttu og
samþykkt var í ársbyrjxm 1959.
Það varð niðurstaðan af störfum
þessarrar nefndar, að hún mælti
með því, að Niðursuðuverk-
smiðja K. Jónsson & Co. yrði
stækkuð það mikið, að hún gæti
framleitt talsvert magn til út-
flutnings, og þannig fengist
reynsla fyrir því, hvort yfirleitt
væri fært að stunda niðursuðu
smásíldar í stórum stíl með út-
flutning fyrir augum.
í framhaldi af þessu fóru eig-
endur verksmiðjunnar að vinna
að undirbúningi stækkunar, eða
réttara sagt byggingu nýrrar
verksmiðju, og höfðu um þann
(Framhald á 4. síðu.)
BÆJARSTJÓRAR
VALTIR í SESSI
II Þá hafa lögfróðir menn úrskurð-
að, að Daníel Ágústínusson skuli
víkja úr bæjarstjóraembætti, þó
að kjörtímabilið sé aðeins rúm-
lega hálfnað, en við á að taka
kratinn Hálfdan Sveinsson. Sam-
kvæmt úrskurði þessum er orðið
næsta lítið atvinnuöryggi bæjar-
stjóra hérlendis, og hvenær sem
er hægt með meirihlutasamþykkt
bæjarstjómar að víkja jieim úr
starfi án þess að um embættisaf-
glöp sé að ræða.
En þó að kratarnir ó Akranesi
hafi haft sitt fram í þessu máli,
er talið, að þeir séu lítt sigur-
glaðir og iðrist fremur verka
sinna. Ástæðan er sú, að alnienn-
igur á Akranesi er mjög andvíg-
ur þessu ráðslagi þeirra. Hins
vegar er forysta Framsóknar-
flokksins mjög ánægð, þar sem
hún reiknar með að geta næstu
tvö árin haft Daníel sem aðaler-
indreka flokksins, en á launum
fró Akraneskaupstað.