Verkamaðurinn


Verkamaðurinn - 16.09.1960, Síða 1

Verkamaðurinn - 16.09.1960, Síða 1
VERKflmnDURinn Ritstj.: Þorsteinn Jónatansson. Útg.: Sósíalistafélag Akureyrar. Skrifstofa Hafnarstræti 88. Sími 1516. Áskríftarverð kr. 50.00 árg. Prentverk Odds Bjömssonar h.f. XLIII. árg. Akureyri, íöstudaginn 16. september 1960 31. tbl. Ávarp til Islendinga frá Þingvallalundinum Vér höfum komið hér saman til að andmæla hersetu í landi voru og vara þjóð vora við hinni geigvænlegu tortímingar- hættu sem oss stafar af herstöðvum. 1 rúm tuttugu ár höfum vér búið að landi voru í tvíbýli við erlendan her, öllu þjóðlífi voru til meins. Erlend herseta er ekki samboðin frjálsu þjóðfélagi. Áhrif hennar eru djúptæk á mál, menningu og siðferði þjóðarinnar, og má þegar sjá greinileg merki þess í aukinni lausung, fjármálaspillingu og málskemmdum. Annarlegar tekjur af dvöl hersins og við- skiptum við hann hafa komið gjörvöllu fjármálakerfi lands- ins úr skorðum. Stórfelld gjaldeyrissvik og smyglmál, sem rekja má beint eða óbeint til víghreiðursins í Keflavík, eru orðnir svo hversdagslegir viðburðir, að almenningur er hætt- ur að bregðast við þeim sem skyldi. Siðgæðisvitund þjóðar- innar er að verða hættulega sljó, og æ fleiri ánetjast spilling- unni og gerast samábyrgir um hana. Islenzk þjóð og erlendur her geta ekki búið saman í land- inu til frambúðar, annar hvor aðilinn hlýtur að víkja, nema báðum verði útrýmt samtímis. íslendingar hafa aldrei borið vopn á neina þjóð, né lotið heraga. Þá sérstöðu vora meðal þjóða heimsins er oss bæði skylt og annt um að varðveita. Sjálfstæði vort unnum vér án vopna, og án vopna munum vér bezt tryggja öryggi vort á tímum sem þessum, þegar langdrægar eldflaugar og vetnis- vopn hafa gert allar varnir úreltar. Erlend herseta býður heim geigvænlegri tortímingarhættu, ef til átaka kemur milli stórvelda. Á einni svipstund er unnt að granda lítilli þjóð sem oss íslendingum, eins og vopnabún- aði er nú háttað. Og sérfróðir menn fullyrða, að styrjöld með vetnisvopnum geti jafnvel hafizt fyrir einskæra slysni eða misskilning. Þingvallafundurinn 1960 — skipaður kjörnum fulltrúum herstöðvaandstæðinga úr öllum héruðum landsins, úr öllum stéttum og flokkum — brýnir fyrir íslenzku þjóðinni að gera sér ljóst, að sjálf tilvera hennar og menning er í veði, ef her- stöðvasamningnum við Bandaríkin verður ekki sagt upp hið bráðasta. Vér brýnum fyrir henni að gera sér ljóst, að hún er ekki lengur óhult í landinu, við friðsöm störf sín til sjávar og sveita, heldur er land hennar orðið hemaðaraðili í átökum stórvelda og skotspónn í fremstu víglínu, ef til styrjaldar dregur. Vér bendum á að þung ábyrgð hvílir á þeim mönn- um, sem beita sér gegn því, að þessarri ógnþmngnu hættu sé bægt frá þjóðinni. Vér skomm á Alþingi og ríkisstjórn íslands að segja upp „herverndarsamningnum“ svonefnda við Bandaríkin þegar í stað og leyfa ekki framar herstöðvar á íslandi. Vér skomm á alla Islendinga að sameinast um kröfuna um brottför hersins og ævarandi hlutleysi íslands. Vér, íslenzkir karlar og konur, úr öllum stéttum, úr öllum flokkum, strengjum þess heit á helgasta sögustað landsins, Þingvelli, að beita til þess kröftum vomm og áhrifum, hvert í sínu byggðarlagi, að sú krafa nái fram að ganga sem allra fyrst. iittiittiiiiiiiiiitiiiiiiiitiiiiiiitiiiaiitiiiaiiiaaiiiiiiiavaiiiiBiiiiiiiaiiiiiiiiiiiiiiiiiiatiiaiiitiiiiiiiiiiitiiiiiitiiiiiiiatiitiiiiiiii« Krata-réttlæti Samtök hernámsandstæðiiiga ' stofnuð á f jölmennum og glæsilegum Þingvallafundi VERÐHÆKKANIR LANDBÚNAÐARVARA Nýtt verð á landbúnaðarvörum hefur nú verið ákveðið og aug- lýst. Verulegar hækkanir verða á ýmsum tegundum þeirra í útsölu, en aðrar eru greiddar niður af ríkisfé, og í sumum tilfellum er um hvort tveggja að ræða. Aukn- ar niðurgreiðslur nema mörgum milljónatugum á ári. Niður- greiðslukerfið þenst út. Og á eft- ir fylgir aukin skattheimta. Ymislegt einkennilegt gerist sambandi við þetta kerfi. Þannig er verð á smjöri og osti orðið sem næst það sama í útsölu. Kíl- óið af smjörinu kostar kr. 55.75, en af 45% osti kr. 55.40. Enda þó að osturinn sé góð fæða, er hætt við að flestir muni fremur kaupa smjör en ost fyrir sama verð. — Svo verður bara að smyrja þykkt eða þunnt eftir því, sem ástæður segja til um. Trúlega verður víð- ast þunnt smurt á næstunni, a. m. k. þar til kaup launafólks hækkar. Hækkanir á útsöluverði kjöts eru almennt um 15%. Sú hækk- un veldur örugglega samdrætti í kjötsölu meðan sakir standa svo sem nú er. Hækkun verður hins vegar ekki á útsöluverði mjólkur, en rjómi, skyr, smjör og ostur hækkar talsvert. Gylfi skipaði Odd, þvert gegn vilja fræðsluráðs og allra skóla- kennaranna. Gylfi Þ. Gíslason hefur nú látið sig hafa það að skipa Odd A. Sigurjónsson, flokksbróður frá Neskaupstað, skólastjóra við Gagnfræðaskólann í Kópavogi. Um stöðuna sóttu fimm aðrir og einn þeirra, Ingólfur Þor- kelsson, sem veríð hefur yfir- kennari skólans og búinrx að starfa við hann í 10 ár, hlaut meðmæli fjögurra af 5 í Fræðslu ráði Kópavogs og eindregið fylgi allra kennara skólans, en Oddur var ekki nefndur til \ neins. I Það er ekki feitt á því búinu, = sem kratinn hrifsar ekki til sín. 1 iiiMMinitiiiitiiiiiiiiiiiiiiiiMiMiiiiMiiiMiiiiiiiiiiiiiiiimmiiii* Eins og sagt var frá í síðasta blaði, efndu herstöðvaandstæð- ingar til fundar á Þingvöllum dagana 9. og 10. þ. m. Fyrri dag- inn, föstudag, og fyrri hluta laug- ardags, var fulltrúafundur í Val- höll og sátu hann 260 fulltrúar frá öllum kaupstöðum og kaup- túnum og nær öllum hreppum á landinu. Var fimdur þessi mjög glæsilegur og mikill einhugur og áhugi ríkjandi fyrir því að losa landið og þjóðina sem fyrst við smánarblett hemámsins. Á þesS' um fvmdi var rætt um stofnun þjóðarsamtaka gegn herstöðvum í landinu og fyrir hlutleysis- stefnu íslands á alþjóðavettvangi. Samtökin nefnast Samtök her- námsandstæðinga, og náðist ein huga samkomulag um starfsregl- ur og stjóm þeirra. Fundurinn tilnefndi 76 menn í landsnefnd samtakana, en sérstök fram- kvæmdanefnd starfar í hverju kjördæmi, en nefndarmenn í Reykjavík og Reykjaneskjör- dæmi, 34 að tölu, skipa svokall- aða miðnefnd, sem fer með fram- kvæmdavald milli funda lands- nefndar allrar, sem kemur saman einu sinni á ári. Síðari fundardaginn var úti- fundur á Þingvöllum, en sá fund- ur samþykkti tillögur fulltrúa- Ætlar verkalýðshreyfingin að horfa á það þegjandi, að 8 stunda vinnudagurinn sé lagður í rúst? Það var á sínum tíma eitt höf-1 aftur hlutskipti verkafólksins. — uðbaráttumál verkalýðsstéttar- innar hér á landi, sem í öðrum löndum,, að stytta vinnudaginn niður í 8 stundir, og þegar það tókst, eftir langa og harða bar- áttu, þótti, og það með réttu, að mikill sigur hefði unnist. í dag blasir við oss sú ömurlega stað- reynd, að 8 stunda vinnudagur- inn er í raun og veru horfinn, mjög mikill hluti verkalýðsstétt- arinnar vinnur nú j0—11 stundir á dag, það er jafnvel svo komið, að menn neita starfi nema svo og svo mikil yfirvinna sé í boði. Hér er alvarleg vá fyrir dyr- um, sem verkalýðshreyfingin verður að gjalda varhug við áður en í fullkomið óefni er komið. ■ Verkalýðshreyfingin má ekki horfa á það þegjandi að jafn dýr- mæt réttindi og 8 stunda vinnu- dagur sé að engu gerr og þræl- dómur „myrkranna á milli“ verði Nú þegar verða verkalýðssam tökin að hefjast handa og láta ekki staðar numið fyrr en þau hafa tryggt öllum vinnandi mönnum í landinu mannsæm- andi kjör með mannsæmandi vinnudegi. í næstu nágrannalöndum okk- ar þykja þetta svo sjálfsögð rétt- indi, að sá maður væri talinn eitthvað undarlegur, sem léti sér detta í hug að krefjast lengri vinnu, og í sósíalisku löndunum í Austur-Evrópu er nú talað um að stytta vinnudaginn niður í 6— 7 stundir alveg á næstunni. Er það meining íslenzkrar verkalýðshreyfingar að vera í þessu efni eftirbátar og horfa upp á það þegjandi að þurfa að strita fyrir brauði sínu jafnvel helmingi lengur dag hvem en stéttarbræður hennar í öðrum löndum? fundarins einróma. Þann fund sóttu um 3500 manns, þrátt fyrir kalsaveður og rigningu. —Aðal- ræðumenn á þeim fundi vom þeir Sverrir Kristjánsson sagnfr. og Gils Guðmundsson, fyrr. al- þingismaður. Fundur í Reykjavík. Síðastliðinn sunnudag efndu svo hinu nýstofnuðu samtök til útifundar í Reykjavík, og var hann geysifjölsóttur og fór í alla staði vel og virðulega fram. Auðséð er af því, hve Þing- vallafundurinn tókst vel, jafnvel betur en þeir bjartsýnustu höfðu vonað, að landsmenn eru nú al- mennt að vakna til meðvitundar um þann voða, er herstöðvamar bjóða heim og þann þjóðfélags- lega og siðferðilega hnekki, sem þjóðlíf okkar býður og spilling- arbælin á Keflavíkurflugvelli. Fyrstu og stærstu verkefni hinna nýju samtaka verður að fylkja þjóðinni saman til mót- mæla og safna undirskriftum með kröfu um að þjóðaratkvæða- greiðsla verði látin fram fara hið fyrsta, svo að landsmönnum sjálf- um gefizt kostur á að segja meiningu sína um herstöðvar í landinu. í landsnefndinni eiga þessir sæti fyrir Norðurlandskjördæmi eystra: Björn Halldórsson, Akureyri. Bjöm Stefánsson, Ólafsfirði. Hjörtur Eldjám, Tjörn, Svarfað- ardal. Rósberg G. Snædal, Akureyri. Páll Kristjánsson, Húsavík. Þórarinn Haraldsson, Laufási, Kelduhverfi. Þráinn Þórisson, Baldursheimi, Mývatnssveit. Varamenn: Vilhjálmur Guðmundsson, Lóni, Norðiir-Þingeyjarsýslu. Ingi Tryggvason, Kárhóli, Suð- ur-Þingey j arsýslu. Júdit Jónbjörnsdóttir, Akureyri. Hjalti Haraldsson, Garðshorni, Svarfaðardal. írland - ísland 2:1 Á sunnudaginn var fór fram landsleikur í knattspyrnu milli íra og íslendinga og unnu Irar með tveim mörkum gegn einu. — Á fimmtudag keppti ísl. lands- liðið við atvinnumenn úr tveim I. deildarhðum í Cork. Fóru leik- ar svo að landinn vann 4:2. Tveir Akureyringar hafa keppt í þessum leikjum, Stein- grímur Björnsson í fyrri leiknum og Jakob Jakobsson í þeim síð- ari. 1111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111

x

Verkamaðurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verkamaðurinn
https://timarit.is/publication/215

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.