Verkamaðurinn - 23.09.1960, Side 2
2
VERKAMAÐURINN
Föstudaginn 23. sept. 1960
Hér í blaðinu birtist í dag frétt
frá byggingafulltrúa Akureyrar-
bæjar, þar sem frá því er skýrt,
að frá áramótum og fram til miðs
þessa mánaðar hafi verið hafin
bygging 19 íbúðarhúsa í bænum.
í þessum 19 húsum er gert ráð
fyrir alls 28 íbúðum. Á sama
tímabili í fyrra hófst bygging 50
íbúðarhúsa með a. m. k. 80 íbúð-
um. Af þessu sést, að þær bygg-
ingar íbúðarhúsa, sem hafizt hef-
ur verið handa um á þessu ári,
nema ekki nema um það bil
þriðjungi á móti því, sem var í
fyrra.
Þetta segir sína sögu um af-
leiðingar efnahagsráðstafana nú-
verandi ríkisstjórnar og spáir
óneitanlega ekki góðu um at-
vinnuhorfur þeirra, sem bygg-
ingavinnu stunda. Ennþá hefur
samdrátturinn ekki komið nema
óverulega í ljós vegna þess, að
unnið er að því að ljúka bygg-
ingu fjölmargra íbúðarhúsa, sem
byrjað var á á fyrra ári og á ár-
inu 1958. Einnig er nú unnið að
allmörgum stórbyggingum, sem
fyrirtæki og einstakhngar höfðu
unnið að undirbúningi að og í
sumum tilfellum byrjað á áður
en efnahagsráðstafanirnar komu
til framkvæmda. En einnig vinna
við þær dregst fljótlega saman,
þar sem vitað er, að ýmis fyrir-
tæki, sem höfðu í huga að hefja
byggingar, hafa nú hætt við það
í bili a. m. k.
Þetta er aðeins eitt dæmi um
þarvn mikla samdrátt, sem nú er
ýmist orðinn eða væntanlegur í
framkvæmdalífi þjóðarinnar. En
þetta bendir greinilega til þess,
að verði ekki að gert, þá muni
ríkisstjórninni takast að koma á
því „hæfilega atvinnuleysi", sem
er óskadraurriur íhaldsins, og
„verkalýðsflokkurinn" Alþýðu-
flokkur hefur lofað að styrkja
það til að láta rætast.
Til skamms tíma voru stórfelld
fjársvika- og glæpamál næsta fá-
tíð fyrirbæri hér á landi. En hin
síðustu ár hefur hér orðið mikil
breyting til hins verra. Hvert
svika- og glæpamálið hefur rekið
annað, svo að menn eru ríánast
hættir að fylgjast með. Einna
umfangsmest eru um þessar
mundir mál í sambandi við olíu
og frímerki. En fleiri mætti
nefna: Okurmál, þjófnaði á
Keflavíkurflugvelli og smygl
þaðan, Ingimarsmál og ótal margt
fleira, nú síðast mál Jóns Gunn-
arssonar í Hafnarfirði, en sá er
talinn hafa svikið út úr Lands-
bankanum nokkrar milljónlr
króna með því að telja vöru-
birgðir meiri en þær voru. —
Grunur leikur á, að fleiri útgerð-
armenn séu undir sömu sök seld-
ir. I sambandi við þetta mál Jóns
kemur mönnum m. a. í hug mál
Útgerðarfélags Akureyringa h.f.
fyrir tveimur árum síðan, þó að
það færi aldrei fyrir dómstóla.
Svik og svindl í sambandi við
olíuverzlun er það stórfelldasta
og margbrotnasta, sem upp hefur
komizt um þessi ár og í rannsókn
hefur farið. Frímerkjamálin hafa
einnig víða teygt anga sína hér
heima og erlendis einnig. Er nú
ORÐIÐ ER LAUST
svo komið, að margir af æðstu
yfirmönnum póstþjónustunnar
hafa orðið að víkja úr émbættum
og verið dæmdir fyrir þjófnaði
og fleira. Þjófnaðir á Keflavíkur-
flugvelli voru umfangsmikið
mál, þar sem margir, háir og lág-
ir, komu við sögu. Þó er óhætt
að fullyrða, að smygl af Vellin-
um, sem aldrei hefur komizt upp
um, er ennþá stórfelldara, og er
það á vitorði alira landsmanna,
þó að ekki hafi verið stemmt þar
stigu fyrir og verði ekki gert á
meðan herlið er þar til staðar eða
aðrir, sem sérréttindi njóta gagn-
vart tollalögum. Ingimarsmálið
vakti mikla eftirtekt, og þá ekki
sízt dómurinn, þar sem ekki var
að finna orð um það, að sak-
borningurinn, sem reyndist sann-
ur að sök, skyldi skila þýfinu aft-
ur. Venjulega eru þjófar þó
dæmdir til að skila aftur því,
sem þeir hafa stolið. Þessi und-
arlegi dómur bendir vissulega til
þess, að ekki hafi allt verið með
felldu um málssóknina, en dóm-
arar fóta sig á því, að aldrei hafi
verið lögð fram krafa um, að þýf-
inu yrði skilað. Okurmálin voru
stórmál, þó að flestir muni telja,
að aðeins lítill hluti okrara hafi
verið leiddur fyrir réttinn. Nú
eru slík mál væntanlega úr sög-
unni, því að ríkið, meirihluti Al-
þingis og ríkisstjórn, hefur tekið
glæpinn af okrurunum með því
að lögleiða okurvexti hjá banka-
stofnunum.
Hér að framan er aðeins fátt
eitt talið af þeim fjársvikamál-
um, sem hæst hefur borið að
undanförnu. Auk þess hafa verið
mörg mál minni háttar og mjög
stór hluti slíkra mála kemur
aldrei fyrir dómstóla, heldur er
samið um þau a bak við tjöldin.
En tvennt er eftirtektarvert í
sambandi við þessi fjársvikamál.
í fyrsta lagi það, að í augum mik-
ils fjölda fólks er alls ekki litið
á svikarana sem neins konar mis-
indismenn, hvað þá glæpamenn.
Hitt er jafnvel algengara, að
heyra sagt sem svo: Fjandi var
hann óheppinn, að þetta skyldi
komast upp. Eða þá: Sá hefur nú
aldeilis matað krókinn, og svo er
kannski bætt við með nokkurri
hrifningu: Ætli hann hafi nú
ekki komið einhverju undan,
hann er ekki svo vitlaus að hann
hafi látið nappa sig með allt. —
Þannig er það orðið áberandi, að
fjársvikarinn nýtur samúðar og
jafnvel virðingar allmikils fjölda
fólks.
Annað atriði, sem eftirtektar-
vert er, er það, að mjög margt
þessarra mála á upptök sín eða
er á einhvem hátt tengt Kefla-
víkurflugvelli. Hann hefur í þess-
um efnum verið uppspretta hins
illa. í sambandi við herstöðina
hefur verið rekið umfangsmeira
smygl en nokkru sinni hefur átt
sér stað hér á landi, og þátttak-
endur í smyglinu eru ótrúlega |
margir eða hafa verið. Þetta .
smygl hefur verið svo almennt, j
að flestir eru hættir að líta á það
öðruvísi en sem sjálfsagðan hlut,
að hver, sem tök hefur á, smygli
út af Keflavíkurvelli því sem
hann getur við komið. Þetta álit,
sem skapast hefur á löngum her-
setutíma, hefur einnig haft
hættuleg áhrif annars staðar, og
orðið þess valdandi, að almenn-
ingur hefur einnig tekið að líta
mildum augum á annað smygl,
og sumir jafnvel tekið að meta
þá mest, sem mestu hafa getað
smyglað. Og þeir, sem komnir
eru út í smyglið í stórum stíl,
hafa svo smám saman leiðst út í
önnur og stærri fjársvik, gjald-
eyrisbrask og fleira þess háttar,
okurlánastarfsemi og margt,
margt fleira. Samvizka þeirra,
sem farnir eru að víkja af braut
laganna sljóvgast fljótt, og heppn
ist ein svika- eða svindltilraun
vel, þá er gjarna haldið áfram á
sömu braut og aukið við.
Herliðið á Keflavíkurflugvelli
hefur á þessu sviði sem öðrum
verið undirrót og uppspretta
spillingar. Sú spilling, sem her-
setan hefur valdið í fjármálalíf-
inu verður ekki upprætt á stutt-
um tíma, en hana verður samt
að uppræta, ef hún á ekki stöð-
ugt að sýkja út frá sér, þar til
mikill hluti þeirra, sem við fjár-
mál fæst, veit ekki lengur mun
rétts og rangs í viðskiptum.
Það fer ekki á milli mála, að
eitt af því, sem orsakar það, að
hersetan á ennþá allmarga for-
mælendur í landinu, er einmitt
smyglið og fjármálaspillingin,
sem þróast hefur í sambandi við
hersetuna. Þeir, sem meira eða
minna eru orðnir flæktir í því
spillingarneti, vilja hafa herinn
áfram til þess, að þeir geti haldið
áfram að smygla og svindla í
sambandi við hann. Margír hafa
grætt vel á þessu, og þeir vilja
halda áfram að græða. Fullyrf
er, að margir af framámönnum í
viðskiptum og stjórnmálum séu
rammlega flæktir í þessu neti,
og þeir beita öllum brögðum til
þess að halda sem flestum við þá
skoðun, að hersetan sé óhjá-
kvæmileg.
Bandaríkjamönnum, sem hafa
herinn hér, líkar þetta vel, og
þeir hafa síður en svo nokkuð
reynt til að koma í veg fyrir
fjármálaspillinguna í sambandi
við herstöðina. Þeir hafa frá
upphafi gert sér það ljóst, að
ekkert ráð var öruggara til að
tryggja aðstöðu þeirra hér, en
einmitt það, að sem flestir findu !
sig á einhvern hátt háða þeim
fjármálalega eða bindu gróða-
vonir við áframhaldandi her-
setu. Það er gamla sagan um
asnann gullklyfjaða.
Gull Bandaríkjanna hefur jafn-
vel haft svo djúp áhrif á suma
menn, að þeir halda því fram, að
ekki sé lengur lífvænlegt í þessu
landi, nema sú gulllind sé til
staðar. Þjóðin sé ekki fær um að
vinna fyrir sér á venjulegan og
eðlilegan hátt með framleiðslu-
störfum til lands og sjávar.
Sem betur fer eru þeir þó enn-
þá miklu fleiri, sem gullið banda-
ríska hefur ekki náð að spilla.
Ennþá er það mikill meirihluti
þjóðarinnar, sem trúir því, að
þjóðin geti unnið fyrir sér á heið-
arlegan hátt. Ennþá eru þeir
fleiri, sem fyrirlíta fjárglæfra og
fjársvik. En svo lengi sem her-
stöðvar og gulliklyfjaðir asnar
eru hér í landi, heldur það áfram
að sýkja út frá sér. Þess vegna
m. a. verður herinn að fara.
Vinnusvik hafa til skamms
tíma verið óþekkt með þjóð okk-
ar. En þau eru eitt af því illa,
sem erlend setulið hafa flutt inn
í landið. Þjóðin er vinnugefin og
dugleg. Þess vegna er það óeðli-
legt og með ólíkindum, hversu
vinnusvik eru nú orðin algeng í
landi okkar. En þau lærðust
fyrst í Bretavinnunni svonefndu.
Þar var mönnum ljóst, að þeir
voru að vinna þýðingarlítil verk
og auk þess var verkstjórnin oft-
ast léleg eða engin. Það varð á
tímabili e. k. tízka að vera í Breta
vinnu, en beita öllum brögðum
til þess að komast hjá því að
vinna nokkuð, sem heitið gæti.
Fyrir kom, að menn stunduðu
aðra vinnu samtímis, mættu á
morgnana til að láta skrá sig og
á kvöldin til afskráningar, en
voru í burtu og unnu annars
staðar á milli. Þá var það einnig
algengt að vinna af kappi, ef yf-
irmenn birtust, en gera svo ekk-
ert á milli.
Eftir að Bretar fóru komu Kan-
ar. íslendingar fóru einnig í
vinnu hjá þeim, og vinnusvikin
héldu áfram. Hjá Könum var
miklu fremur um einhverja verk-
stjórn að ræða, en mönnum var
eftir sem áður ljóst tilgangsleysi
vinnunnar, og þegar menn sjá, að
vinnan, sem þeir ynna af hendi,
hefur engan jákvæðan tilgang, þá
hafa þeir ekki lengur áhuga fyr-
ir að halda eðlilegum afköstum.
Vinnan hjá Bretum, og síðar
Könum, hefur orðið til þess, að
mikill fjöldi ungs fólks hefur
aldrei lært að bera þá virðingu
fyrir vinnunni, sem hver maður
þarf að tileinka sér. Það er orð-
inn ískyggilega stór hópur fólks,
sem telur það ekkert aðalatriði,
hvort hann skilar eðlilegu dags-
verki eða hangir aðeins á vinnu-
! stað. Þetta er hættulegt. Vinnan
er frumskilyrði þess, að lifað
verði í þessu landi, þess vegna
þarf hver og einn að bera virð-
ingu fyrir henni .Hitt er annað
mál, að vinnutíminn er almennt
alltof langur hér á landi, og hann
þarf að kappkosta að stytta. Það
verður því aðeins gert, að fólk
hafi sæmileg laun fyrir sína
vinnu, þannig að það þurfi ekki
að vera í kapphlaupi um eftir-
vinnu. En hafi fólk sæmileg laun
og hæfilegan vinnutíma verður
líka að krefjast þess, að ekki sé
um vinnusvik að ræða.
Setuliðsvinnan kenndi íslend-
ingum vinnusvik. Meðan slík
vinna er til staðar í landinu
heldur hópur manna stöðugt
áfram að alast upp við tilgangs-
lausa vinnu og lærir þess vegna
ekki að virða vinnuna svo sem
vera á og vera þarf, ef þjóðinni á
vel að farnast. Einnig á þessu
sviði grefur hernámið undan
grunni íslenzks þjóðfélags.
Blöð stjórnarflokkanna hælast
mjög um yfir því um þessar
mundir, að tekjuskatturinn sé úr
sögunni fyrir allan fjölda laun-
þega eða fyrir alla aðra en há-
tekjumenn. Þarna segja stjórnar-
blöðin, að mjög hafi verið bætt-
ur hagur launafólks og þess
vegna þurfi það ekki að kvarta,
þó að vörur hafi hækkað í verði.
Rétt er það, að meirihluti þeirra,
sem áður greiddi tekjuskatt, þarf
nú ekki að greiða hann. En hinu
gleyma stjórnarblöðin jafnan,
þegar þau ræða þetta, að sú upp-
hæð, sem áður var innheimt sem
tekjuskattur, er nú tekin tvöföld
og þreföld sem söluskattur.
Það vita allir, að talsvert er
um skattsvik í þessu landi, og
þess vegna kom ekki alltaf til
tekjuskattsálagningar öll sú upp-
hæð, sem að réttu hefði átt að
vera. Vitað er, að ýmsir þeir, sem
við verzlun fást eða hafa ein-
hvern rekstur með höndum, eiga
hægara með en launamenn að
svíkja undan skatti, ef áhugi er
fyrir hendi. Nú hefur einmitt
þessum aðilum verið falið að
innheimta þann skatt, sem áður
var innheimtur beint, sem tekju-
skattur. En hvað hefur verið gert
til þess að tryggja það ,að þessir
aðilar skili öllum þeim skatti,
sem þeir innheimta, þegar þeir
selja vörur eða þjónustu? Er
ekki mikil hætta á því, að tals-
verður hluti þess, sem tekið er af
fólki sem söluskattur komi aldrei
til skila í ríkiskassann.
Það hefur löngum verið venja,
að lögð hefur verið fram almenn-
ingi til sýnis og athugunar skrá
um tekjuskattsgreiðendur og
hversu mikið hverjum hefur ver-
ið gert að greiða. Slíkt hið sama
hefur aftur á móti ekki verið gert
með söluskattsgreiðendur, en
ætti þó að vera sjálfsagður hlut-
ur. Og þar sem þeir eru miklu
færri en tekjuskattsgreiðendur
voru, væri heldur ekki miklu til
kostað, þó að slík skrá væri birt
a. m. k. einu sinni á ári og helzt
ársfjórðungslega.
Rétt er að bæta því við, eða
leiðrétta það, sem hér stendur að
framan, þar sem talað er um að
birta skrá um söluskattsgreiðend-
ur, þá er ekki átt við að birta
skrá um þá alla, því að það væri
sama og að birta næstum að
segja manntal yfir alla íslend-
(Famhald á 3. síðu.)