Verkamaðurinn - 01.12.1961, Side 8
Frá fnndi Varðbergspilta
Ungir áhugamenn eins og Bernharð, Sólnes og Bjarni úrsmiour.
Verkamaðurinn
Glæ:sileg:ir tónleikar
íilenzkra listamanna
Varðberg, félag ungra áhuga-
manna um vestræna samvinnu,
boðaði til fundar í Borgarbíói sl.
mánudagskvöld. Ég fór þangað
til að fræðast um markmið og
stefnumál þess félagsskapar. Ég
bjóst nú ekki við miklu, enda
varð sú raunin á.
Þarna var slangur af fólki, og
flestir ákaflega hræddir við
kommúnista. Þetta var strax auð-
heyrt, eftir að þessir ungu menn,
þeir Matthías Á. Matthíasen, Jón
Skaftason og Benedikt Gröndal
byrjuðu að tala. Annars fannst
mér Jón ekki eiga þarna heima.
Hann var ekki alveg eins for-
stokkaður að staðhæfa firrurnar
og hinir.
Það er aumt hlutskipti ungra
og að mörgu leyti vel gerðra
manna að byrja sinn pólitíska
feril með því að tyggja upp hinn
Tómstunda-
verzlun
Anægjuleg nýjung.
í dag verður opnuð ný verzlun
í Strandgötu 17, þar sem raf-
tækjavinnustofa Gústafs Jónas-
sonar hefur verið til skamms tíma.
Þessi nýja verzlun er á vegum
Jens Sumarliðasonar handavinnu-
kennara, og mun hún hafa á boð-
stólum tæki og efni til tómstunda-
iðju og föndurs. Er þetta fyrsta
tómstundabúðin utan Rvíkur.
Væntanlega kemur þessi tóm-
stundabúð í góðar þarfir, og það
er einkar heppilegt að maður,
sem oft hefur leiðbeint um tóm-
stundaiðju, skuli veita henni for-
stöðu. Mun hann einnig gefa góð
ráð, eftir því sem tími vinnst til,
um þær vörur, sem þarna fást.
Auk tóla og efnis verða þarna
sýnishorn af gripum, sem hand-
lægnir unglingar geta hæglega
búið til. Eru þeir hinir margvís-
legustu, svo sem alls kyns skraut-
gripir úr horni, beini og harðvið,
skermar og körfur úr basti og
plasti, smá veggmyndir úr filt-
pjötlum og striga o. s. frv.
Með þessari verzlun skapast
allt önnur og betri aðstaða til
tómstundaiðju fyrir unglinga á
Akureyri og í grennd, heldur en
verið hefur. Slík verzlun styður
uppeldisviðleitni skóla og heimila,
en eyðileggur hana ekki eins og
allar þær íssjoppur og jórturbar-
ar, sem einkaframtakið heldur
annars mest að unglingunum. Það
er ánægjulegt að hitta á svona
undantekningu.
bandaríska lygaáróður um það,
að íslendingar geti ekki lifað í
landinu nema hafa her.
Benedikt var auðheyrilega að-
altrompið, enda talaði hann sig í
töluverðan hita og skýrði mjög
tvítekningar sínar með handa-
blaki. Hann kom með alveg stór-
furðulegar skoðanir, svo sem að
Svíþjóð væri hlutlaus vegna
Finna og það gegndi allt öðru
máli með hana en Noreg, þar eð
hún lægi að innhafi en Noregur
að úthafi. Svo henti hann okkur
á (alltaf eins og hann væri að
tala til barna), að enginn mundi
láta sér detta í hug að fara með
her yfir Alpafjöll og því væri
Sviss hlutlaus. Þetta er nú ekki
nein smáspeki, enda klöppuðu
fundargestir mjög fyrir henni.
Þá talaði Benedikt um sérstöðu
okkar um það, að hér væru engin
árásarvopn (hvað er þá í her-
stöðinni?) og þess vegna engin
árásarhætta, slík vopn væru í
Skotlandi, og þar væri sennilega
aðalhættan. Kemur í ljós, að
aumingja Benedikt hefur slíka
tröllarú á Rússum, að halda að
þeir hlífi okkur við árásum. Rétt
áður var hann búin að segja, að
það væri ekki nokkurt vit í því að
vera hlutlaus, vegna þess ef til
styrjaldar drægi, yrði barizt um
landið. Það væri eins og skamm-
byssa, sem hægt væri að miða
bæði í austur og vestur.
Ætli nokkur maður sé svo
grunnhygginn að trúa því, að
herstöð sé hlíft í styrjöld, hvar í
landi sem hún er og hver sem
hana hefur? Ég er viss um, að
jafnvel þessir þrímenningar trúa
því ekki sjálfir.
Bernharð Stefónsson tók til
máls og lýsti sérstakri ánægju
RÍKISSTJÓRNIN hefur feng-
ið enn einn ráðunautinn frá
Noregi. Nú er það hershöfðingi
að nafni Holtermann, og á að
segja Bjarna Ben. og Guðmundi
I. hvar þeir eigi að leynast ef til
styrjaldar kemur. Morgunblaðið
hefur það eftir þessum Holta-
Þóri sínum, að komi til styrjald-
ar „yrði fyrst og fremst stefnt að
því að eyðileggja stjórnarað-
setur og koma leiðtogum þjóð-
arinnar fyrir kattarnef“.
Er ekki að efa, að við þessi
ummœli hershöfðingjans hafa
vinirnir orðið harla hrœddir,
enda stungu þeir strax upp á því
að bora Arnarhól innan og gcra
þar loftvarnarbyrgi. Er augljóst
sinni með þá nýlundu, að þrír
ungir þingmenn úr þrem flokkum
gætu verið sammála. Þetta hefði
ekki viðgengizt í sinni tíð. Hon-
um þótti rétt að taka það fram,
að hann hefði ekki trú á neinum
vörnum í kjarnorkustyrjöld og
hélt að við gætum jafnvel verið
drepnir, þó að hér félli engin
sprengjan.
Fyrirspurn um stækkun sjón-
varpsstöðvarinnar á Keflavíkur-
flugvelli svöruðu þeir Benedikt og
Matthías jákvætt. Matthías sagð-
ist hafa unnið í herstöðinni og
þekkti sjónvarpið og líkaði ágæt-
lega, en Benedikt sagðist vera á
móti öllum höftum og bönnum,
líka því að banna hernum eitt-
hvað. Svona var skriðdýrsháttur-
inn alger hjá þeim, en Jón var
á móti ameríska sjónvarpinu og
taldi engin rök hafa komið fram,
sem réttlættu þessa stækkun.
Jakob íslendingsritstjóri vildi
fá að vita það, hvort eðli Atlants-
hafsbandalagsins væri eitthvað
breytt, úr því að frummælendur
hefðu tekið upp orðalag Þjóðvilj-
ans um hernaðarbandalag. Það
upplýstist, að Atlantshafsbanda-
lagið hefur æfinlega verið hern-
aðarbandalag, og er vonandi að
ritstjóranum hafi létt við að heyra
það.
Frammi lá skjal til þess að gefa
mönnum kost á því að innrita sig
í Varðberg, og notfærðu sér það
nokkrir ungir áhugamenn eins og
Jón Sólnes bankastjóri og Bjarni
úrsmiður.
Um fundinn í heild vil ég segja
það, að mér finnst svona einhliða
áróður fyrir hernámi jafngilda
landráðum, og ég get ekki annað
en kennt í brjósti um þá menn,
sem leggjast svo lágt. N.
af þessu að ráðherrarnir eru
fyrst og fremst að hugsa um
varnir fyrir sig, þ. e. að fá loft-
varnarbyrgi sem nœst stjórnar-
ráðunum.
Það er Ijótt að gera gys að
hrœddum mönnum, en þarna er
þó um sjálfskaparvíti að rœða,
og ekki hœgt annað en minna þá
hrœddu á það. Ríkisstjórn ís-
lands hefði aldrei þurft að láta
hola innan hóla eða fjöll í
„varnarskyni“ ef hún hefði að-
eins breytt í samræmi við vilja
almennings og sjálfstœði lands-
ms, oldrei leyft Nató að koma sér
upp víghreiðrum i Hvalfirði og
Keflavik, til að verpa þar sinum
gaukseggjum.
Þriðjudaginn 28. nóv. síðast-
liðinn fóru fram í Borgarbíó á
Akureyri fiðlu- og píanóhljóm-
leikar á vegum Tónlistarfélags Ak-
ureyrar. Það voru þeir Björn 01-
afsson fiðluleikari og Arni Kristj-
ánsson píanoleikari, sem þar komu
fram.
Akureyringar hafa oft áður
haft tækifæri til að hrífast af frá-
bærri list þessara ágætu tónsnill-
inga, sem hafa jafnan sannað sí-
vaxandi listarþroska sinn. Þó
hlýtur öllum, sem skyn bera á tón-
list og hlýddu nú á leik þeirra, að
bera saman um það, að í þetta
skipti hafi list þeirra komizt hæst,
verið tæknilega fullkomnust, dýpst
og víðfeðmust.
Fyrst á efnisskránni var Són-
ata fyrir fiðlu og píano, A-dúr,
op. 47, eftir Beethoven (hin fræga
Kreutzersónata). Borgarbíó er lítt
þekkt sem hljómleikasalur; og
mátti merkja það í byrjun þessa
tónverks, að listamennirnir voru í
nokkrum efa um, hvernig þetta
hús flytti list þeirra, en það lag-
aðist þegar í stað, og komust þeir
í hið bezta samræmi við hljóm-
burð salarins. Á þeim stað í saln-
um, þar sem ég sat, naut hver íónn
og blæbrigði laganna sín fullkom-
lega, svo sem bezt verður á kosið,
og ef svo hefir verið um allan sal-
inn, sem ég tel líklegt, má telja
hann vel til hljómleika fallinn. Var
þetta óviðjafnanlega snilldarverk
Beethovens ákaflega áhrifamikið.
Annað verkefnið á efnis-
skránni var hin undurfagra og á-
takanlega Sónata, b-moll op. 35
eftir Chopin, eitt af ágætustu verk-
um þessa mesta tónskálds slag-
hörpunnar, sem enn hefir uppi
verið. Einleik Árna í þessu mikla
listaverki reyni ég ekki að lýsa.
Menn verða að heyra hann til
þess að geta skilið hann. Árni er
einn af þeim fáu meisturum, sem
ég hefi heyrt túlka mikilleika
Chopins fullkomlega, og ég vildi
óska, að hann sæi sér fært að
halda sem fyrst sjálfstæða Chop-
in-tónleika.
Þriðja verkið á efnisskránni
var Sónata fyrir fiðlu og píanó,
g-rnoll, eftir Débussy. Þetta merki-
lega frakkneska tónskáld, sem í
skáldlegum tónamálverkum úr
ríki náttúrunnar á engan sinn
jafningja, gerir ákaflega miklar
kröfur til þeirra, sem túlka list
hans. Þeim er ekki nægilegt að
hafa fullkomnustu tækni til að
bera. Þeir verða að geta flutt á-
heyrendur sína inn í dýrðarheima
náttúrunnar, látið þá sjá, heyra og
finna alla þá töfra, sem hið mikla
tónskáld lýsir í verkum sínum. Og
þessa erfiðu þraut leystu þeir
Björn og Árni með ágætum. Þeir
sýndu áheyrendum inn í skógar-
fylgsnin, létu þá sj á litskrúð blóm-
anna og finna angan þeirra, heyra
skógarþytinn, lækjaniðinn, fugla-
sönginn, öldufall á sólgylltu sundi,
birtu þeim himin, haf og jörð í
hvers kyns veðrabrigðum. Það
var furðulegt afrek.
Síðast voru á efnisskránni fj ög-
ur smærri lög eftir Schubert, Men-
delssohn, Paganini og Moszkow-
ski, útsett af heim.sfrægum snill-
ingum, öll leikin af sömu snilld og
stærri tónverkin.
Áheyrendur virtust kunna vel
að meta þessa frábæru hljómleika
og fögnuðu með áköfu lófataki,
og léku listamennirnir aukalög,
bæði Árni einleik og þeir báðir
saman. Þeim voru og færð blóm.
Eg tel þessa hljómleika hiklaust
í tölu þeirra beztu, sem hér liafa
verið fluttir, og listamönnunum
og íslenzku þjóðinni til mikils
sóma. Fátt er okkur Islendingum
nú nauðsynlegra en heilbrigður
þjóðarmetnaður, og íslenzkuin
listamönnum, sem með miklum af-
rekum stuðla að slíkum þjóðar-
metnaði, verður aldrei fullþakk-
að. Það eru þeir, sem öllum öðr-
um fremur sanna bæði þjóðinni
sjólfri og öllum umheimi tilveru-
rétt hennar.
Um leið og ég flyt þessum
glæsilegu fulltrúum íslenzkrar list-
menningar mínar innilegustu
þakkir og árnaðaróskir, vil ég
láta í ljósi þá von, að fá að heyra
þá flytja sem fyrst eitthvað af
verkum okkar ágætu íslenzku tón-
skálda.
Áskell Snorrason.
Litlar skemmdir í Mrísey.
Fréttaritari okkar í Hrísey sagði, ei'
hann leit við hjá okkur, að engar stór-
skemmdir hefðu orðið í eynni um dag-
inn. Sjógangur var óhemjumikill, en
ekkert ofsalegt rok. — Einhverjai
skemmdir munu hafa orðið á Beina-
mjölsverksmiðjunni og í Lifrarbræðsl-
unni. I bryggjunni sprengdust upp
nokkrir piankar. Menn brosa mjög að
frétt, sem birtist í Morgunblaðinu sl.
sunnudag, þar sem stóð, að um lág-
lendi eyjarinnar væri nú siglt á trillu-
bátum! í'yrr hefði nú mátt vera hafról
og flóðbylgja! — Sjósókn liggur nú
niðri að mestu. Gæftir hafa annars ver-
ið sérstaklega stirðar í allt haust og
vetur.
Skelfdir menn vilja skríða inn í hólinn