Verkamaðurinn - 11.10.1963, Blaðsíða 6
SVEFNHERBERGISHUSGÖGN
BORÐSTOFUHÚSGÖGN
Sófasett - Sófaborð
SVEFNSTÓLAR
HVÍLDARSTÓLAR
r
Aklæði eftir eigin vali
NÝ SENDING
af útlendum ullargólfteppum
AÐALFUNDUR
SKÁKFÉLAGS AKUREYRAR verður haldinn n. k. mánu-
dagskvöld í Verzlunarmannahúsinu kl. 8,30.
DAGSKRÁ:
Venjuleg aðalfundarstörf.
STJÓRNIN.
Auglýsing imi gjalduntsla
Gjaldmælar fyrir bifreiðir hafa verið settir upp við Hafnar-
stræti milli Kaupvangsstrætis og Ráðhússtorgs og gildir um
þá reglugerð samþykkt af bæjarstjórn 10. sept. s.l. og komu
ákvæðin til framkvæmda mánudaginn 7. október 1963.
Bæjarfógetinn á Akureyri, 4. október 1963.
FRIÐJÓN SKARPHÉÐINSSON.
FUNDARBOÐ
Féfag verzlunar- og skrifstofufólks ó Akureyri
heldur fund í Alþýðuhúsinu mánudaginn 14.
okt. næstkomandi kl. 20,30.
Fundarefni:
1. Kynntar launakröfur.
2. Önnur mál.
Stjórnin.
- Jttómskáld''
(Framhald af 5. síðu).
sem eldri kynslóðin unni í list
— og hins, sem kemur?
— Nei, ég held, að þetta sé
aðeins tímabundið fyrirbæri, ég
held, að listamennirnir og fólk-
ið muni finna hvert annað aftur.
— Getur þú ímyndað þér, að
út komi á þessu hausti eitthvert
það verk, er valdi ámóta hug-
róti og ýmsar bækur okkar beztu
höfunda fyrir stríð?
— Eg veit það ekki, mig
brestur kunnugleik. En mér sýn-
ist, að skóldskapur ungra manna
nú á dögum hafi komið ekki
svo litlu róti á hugi manna, ef
dæma má eftir ýmsum blaða-
skrifum og umræðum manna á
meðal. Margir virðast hafa á-
huga en fæstir þekkingu að
sama skapi.
Annars er það að segja af
okkar yngstu skáldakynslóð, að
hún er varla komin af stað enn-
þá, hún skal því varlega dæmd.
Ekki er þetta þó afsökun, sem
dugir til lengdar.
— En verka ekki lífskjörin
lengur á hugmyndaheima og af-
köst listamanna?
— Jú, skáldin eru nú ekki
annað en menn, sem lúta í aðal-
atriðum sömu lögmálum og ann
að fólk. Annars er það af kjör-
um ungra skálda að segja, að að
staða þeirra til að sinna list
sinni er ekki ósvipuð aðstöðu
vísinda- ,eða fræðimanns, sem
hefði aflað, sér menntunar á á-
kveðnum sviðum, en hvorki
fengið embætti eða styrki til að
helga sig því starfi, er þeir
menntuðu sig til að vinna, og
yrðu því að fara í púlsvinnu eða
slá á götunni fyrir lífsnauðsynj-
um. En ég hefi trú á því, að ef
úr þessum málum væri bætt,
myndi upphefjast hér nýtt
blómaskeið í skáldskap og fögr-
um listum almennt. Eg á ekki
við lúxuslíf, enda langur veg-
ur milli þangað frá því, sem
nú er.
— En hverju og hverjum á
listin að þjóna? Á hún að
vera innlegg í hið stríðandi líf
dagsins, eða fíkibeinstrun handa
nokkrum útvöldum?
— Eg lít svo á, að listin sé
hluti af hinu stríðandi lífi, einn
þáttur þess. Hún hlýtur jafnan
að breytast og byltast í takt við
þann tíma, sem er hverju sinni.
Eg held, að hlutverk listarinn-
ar sé fyrst og fremst tvenns
konar: að vera mönnum baráttu
tæki og nautnabrunnur.
Lífið er hið eina verðmæti,
sem móli skiptir.
— Eg þakka þér þetta rabb,
Jón, og ég er viss um, að orð
þín verka friðandi á þá, sem
hafa séð draug í hverjum kima
nútímalistsköpunar.
Símaskráin
Nýja símaskráin verður afhent símanotendum í afgreiðslusal
stöðvarinnar kl. 8—21 daglega.
Símasijórinn.
M.s. ,Tröllaíoss’
fermir um næstu mánaðamót í Rotterdam og Hamborg vör-
ur til Reykjavíkur og beint til eftirfarandi hafna: Isafjarð-
ar, Akureyrar og Norðfjarðar.
M.s. ,Fjallíoss’
fermir um miðjan þennan mánuð í Kaupmannahöfn og
Gautaborg vörur til Reykjavíkur og beint til eftirfarandi
hafna: Siglufjarðar, Akureyrar og Austfjarðahafna.
HJ. Eimskipaiélag íslands
6) Verkamaðurinn
Föstudagur 11. október 1963