Verkamaðurinn - 15.11.1963, Qupperneq 8
ÞINGNÁL AIÞYDUBAHDALAGSINS
Verkamaðurinn
Hér á eftir er getið nokkurra an „um skipulega eflingu fram-1
frumvarpa og tillagna, sem þing- leiðslulífsins samkvæmt fyrirfram [
menn A^býðubandalagsins hafa gerðum áætlunum og ríkisvaldinu
lagt fram á Alþingi það sem af er beitt til þess að skipuleggja fram-
% hluta hennar, en ríkið, sem lagt
hefur fram ca. 126 milljónir
króna, telst eiga % hluta.
þingtímanum.
40% hækkun
fryggingabóta
Þingmenn Alþýðubandalagsins
í efri deild lögðu á fyrstu dögum
þingsins fram frumvarp til breyt-
inga á almannatryggingalögun-
um, þar sem gert er ráð fyrir, að
allar bætur samkvæmt lögunum
hækki um 40%, og jafnframt að
allar bótafjárhæðir trygginganna
verði frá næstu áramótum verð-
tryggðar og miðað við vísitölu
framfærslukostnaðar í október
1963.
Tryggingasjóður
íandbúnaðarins
Björn Jónsson, Ragnar Arnalds
og Gils Guðmundsson flytja svo-
fellda tillögu til þingsályktunar:
„Alþingi ályktar að skora á rík-
isstjórnina að undirbúa, í sam-
ráði við Búnaðarfélag Islands og
Stéttarsamband bænda, löggjöf
um tryggingarsjóð landbúnaðar-
ins, er ætlað sé það hlutverk að
bæta bændum tjón, er þeir verða
fyrir, þegar uppskerubrest eða
annað afurðatjón ber að höndum,
svo sem vegna sérstaklega óhag-
stæðs tíðarfars, kalskemmda í
túnum eða náttúruhamfara.
Við undirbúning þessarar lög-
gjafar skal höfð hliðsjón af kjör-
um, sem sj ávarútvegurinn nýtur
samkvæmt lögum um aflatrygg-
ingasjóð sjávarútvegsins.“
Tillaga þessi er samhljóða til-
lögu, er Bjöm og Karl Guðjóns-
son fluttu á síðasta þingi, en þá
varð ekki útrædd.
Áæflurtarróð
Einar Olgeirsson flytur í neðri
deild frumvarp um áætlunarráð
ríkisins, en svipuð frumvörp hef-
ur hann áður flutt á mörgum þing-
um, en þau ekki fengizt afgreidd.
Frumvarp þetta felur f sér, að
tekin verði upp heildarstjórn á
þjóðarbúskapnum í stað þess
glundroða og skipulagsleysis, sem
ríkir á flestum sviðum. Það miðar
að því, að tekið sé höndum sam-
farirnar og raunhæfar, varanlegar
lífskjarabætur almennings, sem j
hlj óta að vera höfuðtilgangur |
framleiðslustarfseminnar.“
|
Rannsókn
verðbréfakaupa
Gils Guðmundsson og Björn
Jónsson hafa lagt fram í efri deild
tillögu um skipun þingnefndar til
rannsóknar á verðbréfa- og víxla-
kaupum banka og annarra lána-
stofnana, sem verðbréf kaupa.
Beinist tillagan einkum að því, að
rannsakað verði „hvort brögð séu
að því, að bankar og aðrar lána-
stofnanir hafi á undanförnum ár-
um átt einhver þau skipti við
verðbréfa- og víxlasala, sem sam-
rýmast ekki eðlilegum viðskipta-
reglum.“
Áburðarverksmiðjan
Einar Olgeirsson flytur frum-
varp um breytingar á lögum um
Áburðarverksmiðjuna, þess efnis,'
að verksmiðjan verði að fullu
eign ríkisins. Eins og nú er háttað
málum teljast nokkrir hluthafar, [
sem lagt hafa fram 4 milljónir|
króna til verksmiðjunnar, eiga
Hvalfjörður
Ragnar Arnalds, Gils Guð-
mundsson, Alfreð Gíslason og j
Einar Olgeirsson lögðu skömmu
eftir að þingið kom saman fram
eftirfarandi tillögu til þingsálykt-
unar:
„Alþingi ályktar að gefnu til-
efni að lýsa yfir því, að óheimilt
er að gera nokkra samninga við
Atlantshafsbandalagið um fram-
kvæmdir í Hvalfirði, nema sam-
þykki Alþingis komi til.“ -— Til-
lagan er að sjálfsögðu framkomin
vegna þess, að vitað er um undir-
búning stórfelldra hernaðarmann-
virkja í Hvalfirði á vegum NATO.
Ororku- og dónarbætur
Geir Gunnarsson og Hannibal
Valdimarsson flytja eftirfarandi
tillögu:
„Alþingi ályktar að skora á
ríkisstjórnina að láta undirbúa og
leggja fyrir þetta þing frumvarp
til laga, er tryggi, að allir sjó-
menn á íslenzkum skipum njóti
sérstakrar slysatryggingar, eigi
lægri en 200 þúsund krónur, mið-
að við fulla örorku eða dauða,
vegna allra slysa, er verða um
borð í skipi eða á landi.“
Hvor eru tokmörhin!
Þegar ríkisstj órn
ins, sem kennir sig við
afturhalds-
„viðreisn“,
var fyrir skemmstu komin á
fremstu nöf með að setja kúgun-
arlög gegn félagslegum mannrétt-
indum verkalýðsins, varð óvenju-
leg ólga með þjóðinni. Hún vakn-
aði eins og segir — við vondan :
draum. Þetta fólst þá undir hinni
hrokagikkslegu viðreisnarskykkju.
Ég sagði ríkisstjóm afturhalds-.
ins, en það eru margir, sem ekki í
virðast skilja við hvað er átt, þeg- ^
ar er talað um afturhald. En þetta ^
er auðvelt að skýra með kenningu
viðreisnarmanna fyrir síðustu
kosningar. Þeir sögðu við kjós-j
endur æ ofan í æ: Þið vitið j
hvernig viðreisnarstjórnin er. Og ;
Hoffl shtil þai, sem rétt er
„Akureyri, 13. nóvember 1963
Að gefnu tilefni í 37. thl. Al-
þýðumannsins frá 12. nóv. 1963
vill stjórn Fulltrúaráðs verkalýðs-
félaganna á Akureyri taka fram
eftirf arandi:
Til launþegafundarins, sem
haldinn var í Alþýðuhúsinu
mánudaginn 4. þ. m. var boðað
af Fulltrúaráði verkalýðsfélag-
anna og var ákvörðun um að
halda fundinn svo og að skora á
VÍSA VIKUNNAR
Óhamingja okkar lands
er nú fyrir stafni:
Tekur stýri mektor manns
moður, Bjarni að nafni.
y
FRAM-HÖRGDÆLIR
FÁ RAFLJÓS
Sl. þriðjudag voru menn Raf-
veitna ríkisins á ferð í Hörgárdal
og var vel fagnað. Þeir voru að
fullkomna það verk, sem unnið
hefur verið að í sumar, að veita
ljósi og yl Laxár á heimili dal-
húa. Þessir bæir voru tengdir:
Langahlíð, Samkomuhúsið Melar,
Hallfríðarstaðir, Öxnhóll, Barká,
Þúfnavellir, Gerði, Myrká, Myrk-
árbakki, Flaga, Bás, Búðarnes,
Staðartunga.
Til hamingju bræður.
launþega að leggja niður vinnu
eftir hádegi þann dag í mótmæla-
skyni við frumvarp ríkisstj ómar-
innar um launamál o. fl. tekin ein-
róma á fundi fulltrúaráðsins
laugardaginn 2. þ. m.
Það er því ekki rétt, sem segir
í áður greindu blaði að til fund-
arins hafi verið boðað af tveim
tilteknum verkalýðsfélögum hér í
bæ, né heldur að það þriðja hafi
ekki átt aðild að fundinum.
Öll verkalýðsfélög á Akureyri,
sem eru meðlimir Alþýðusam-
hands Islands eru aðilar að Full-
trúaráði verkalýðsfélaganna.
Stjórn FulltrúaráSs verka-
lýðsfélaganna á Akureyri.“
Verzlin B. Loxdol
25 ára
Verzlun B. Laxdal á 25 ára afmæli
um þessar mundir. Verzlun þessi hefur
aflað sér vinsælda hér í hæ fyrir dygga
og heiðarlega þjónustu undir stjóm
Jóhönnu Jóhannesdóttur. Verzlunin
býður viðskiptavinum upp á 20% af-
slátt á öllum vörum, sem keyptar eru
í verzluninni í dag.
ef viðreisnarstjórnin fellur, þá I
getið þið fengið yfir ykkur stjórn, ^
sem er miklu verri og leitt getur 1
þjóðina út í takmarkalaust öng-^
þveiti. En þið vitið þó, hvernig J
viðreisnarstjórnin er, og þess
vegna skuluð þið ekki láta hana
falla!
Þannig er hugsun og kenning
afturhaldsins. Það nýja getur ver-
ið hættulegt; breyting getur verið
hættuleg. Þeir gömlu dagar voru
góðir, þegar enginn verkfallsrétt-
ur var til.
Ríkisstjórn, sem haldin er þess-
um afturhaldsanda, er á tímum
örrar vísinda- og tœkniþróunar sú
versta stjórn, sem þjóðiri getur
valið sér.
Og fram á geigvænni nöf kúg-
unarlaganna voru viðreisnarmenn
að efla sjálfum sér kjark með
sjálfshóli, og Alþýðuflokksmenn
sérstaklega lögðu mikla áherzlu á
hið mikla traust, sem stjórnin nyti
hjá þjóðinni. Var þetta næsta
broslegt skraf af hálfu hrörnandi
flokks, sem minnst traust hlaut
hjá þjóðinni í síðustu kosning-
ua, en telur sig þess þó umkom-
inn, að ganga undir afturhaldi og
auðvaldi í þjóðfélaginu og magna
það gegn áunnum réttindum al-
þýðunnar. — Og þessi flokkur
heitir Alþýðuflokkur.
Og þarna var það, að alþýða
manna hrökk ónotalega við —
hún hafði sem heild alls ekki vitað
hvernig viðreisnarstjórnin var.
Og það var víðar barizt en á
Alþingi. Áróðurslið afturhaldsins
óð fram á vegum hins „óhlut-
dræga“ ríkisútvarps og vóg af
auðvirðilegri löðurmennsku aftan
að andstæðingi sínum, íslenzkri
alþýðu. Annan daginn Benjamín
Eiríksson, hinn daginn Páll Kolka.
Alþýða manna er glæpahyski!
„Löglega kosin ríkisstjórn“ hefur
rétt til að setja hver þau lög, er
henni býður við að horfa — jafn-
vel þótt hún tæti niður alla stjórn-
arskrána grein fyrir grein. Og
getur þá vitanlega forðað eigin
falli með lögum um afnám al-
þingiskosninga.
Eða hvar eru takmörkin?
Olgeir Lútersson.
AÐALFUNDUR
Skákfélags Akureyrar var haldinn
fyrra mánudagskvöld. Fór þar
m. a. fram stjórnarkjör, og er
stjórnin nú þannig skipuð:
Jón Ingimarsson formaður,
Haraldur Bogason ritari, Gunn-
laugur Guðmundsson gjaldkeri,
Ölafur Kristjánsson spjaldskrár-
ritari og Jón Björgvinsson á-
haldavörður.
Varaformaður er Júlíus Boga-
son.
FÆST HEITT VATN?
Húsavík, 12. 11.
Hér er nú snjókoma dag eftir
dag og gæftaleysi. Þungfært er
orðið á vegum, þó ganga mjólk-
urflutningar enn vel.
Það er einnig þæfingur á göt-
um bæjarins.
Við hugsum nú mest um árang
ur þann, sem vonandi næst við
dýpkun borholunnar, sem hætt
var við í fyrra. Þar er 110 stiga
hiti, en vantar vatnið. Dýpkun
stendur fyrir dyrum, búið að
koma stóra Norðurlandsbomum
fyrir en beðið eftir nokkrum vara
hlutum, sem enn vanta, svo hor-
un geti hafizt.
Vonumst eftir, að allt verði
komið í lag úr 20. þ. m.
Kjólor
stór númer
Ný sending
HATTAR
og
VETRARHÚFUR
mikið og nýtt úrval
H Ú F U R
á telpur 10—14 óra
Markaðurinn
SIMI 1261.