Verkamaðurinn - 24.01.1964, Qupperneq 1
Verkamaðurinn
Söluskattur hœkkar um
2-300 milljónir króna
Nýtt uppbótakerfi — Fjárlögin gerð ómerk
Fjárhagsáætlunin rædd
Ríkisstjórnin lagði í gær fram á Alþingi „bjargráðafrum-
varp“ það, sem búizt hefur verið við hvern dag frá því að
Alþingi kom saman í þessum mánuði. Frumvarp þetta nefnist
„frumvarp til laga um ráðstafanir vegna sjávarútvegsins“, og
helztu ráðstafanir, sem gera á samkvæmt því eru þessar:
1. Veita á 43 millj. kr. til styrktar
frystihúsunum
aukningar“
,,til framleiðni-
ís og það er
kallað. í rauninni er hér um
uppbætur að ræða vegna þess,
að rekstur hraðfrystihúsanna
ber sig ekki lengur sökum verð-
bólguþróunarinnar.
2. Útflutningsgjald af fiskafurð-
um á að lækka um 30 milljónir
króna, sem einni g kemur þá
fiskiðnaðinum til góða. Eru
það því alls 73 millj., sem fisk-
iðnaðinum er ætlað að fá í sinn
hlut.
3. Til togaranna á að veita 51
milljón króna til viðbótar því,
sem sú útgerð fær eftir öðrum
leiðum. Allar uppbætur til
þeirrar útgerðar ganga í gegn-
um Aflatryggingasjóð, en gert
er ráð fyrir, að þær nemi á
árinu sem næst 3 milljónum á
hvert skip, sem út er gert til
veiða.
4. Til fiskileitar vegna togaranna
á að verja 4 milljónum króna.
5. Samkvæmt fjárlögunum var
gert ráð fyrir að hætta niður-
greiðslum á vöruverði. Nú hef-
ur stjórnin tekið sig á í því
efni, og ætlar að halda niður-
greiðslunum áfram „fyrst um
sinn“. Til þeirra eru ætlaðar 55
millj.
6. Til útgjaldaaukningar Al-
mannatrygginganna vegna
hækkaðra bóta eru ætlaðar 27
milljónir króna.
Alls nema útgjöld samkvæmt
þessum viðbótarfjárlögum ríkis-
stjórnarinnar 210 milljónum
króna.
NÝR SÖLUSKATTUR.
Til þess að afla fjár til að mæta
framangreindum útgjöldum á að
hækka hinn almenna söluskatt úr
3% í 5%, og á sú hækkun að taka
gildi frá 1. febrúar. Reiknað er
með, að hækkunin gefi minnst
220 milljónir króna.
Það er greinilega fram tekið,
að ekkert af því á að renna til
sveitarfélaganna. Á þannig skatt-
viðbótin að hlíta öðrum reglum
en sá skattur, sem fyrir er, og er
því kannske réttara að tála um
nýjan skatt fremur en viðbót við
hinn eldri. En staðreyndin er sú,
að allir eiga að skattleggj ast, ríkir
sem fátækir.
FJÁRLÖGIN ÓMERKT.
Það hefur verið áberandi ein-
kenni þessarar ríkisstjórnar, að
hún leitast við að stjórna með til-
skipunum en án tillits til laga og
lýðræðislegra venja. í þessu nýja
frumvarpi er ákvæði, sem enn
sannar þetta og það mjög greini-
lega. Er það 6. grein frumvarps-
ins, sem er þannig:
„Ef atvinnuástandið í landinu
eða fjárhagur ríkissjóðs gerir það
nauðsynlegt, er heimilt að fresta
til ársins 1965 verklegum fram-
kvæmdum ríkisins, sem fé er veitt
til á fjárlögum fyrir árið 1964.
Sama gildir um greiðslur fram-
laga til framkvæmda annarra að-
ila, sem ákveðin eru í fjárlögum
1964“.
Með þessu ákvæði er raunveru-
lega verið að ómerkja fjárlögin
og störf Alþingis, en ríkisstjórnin
að afia sér aðstöðu til að haga öll-
um fj árveitingum að eigin vild.
Og lítið fer nú að verða úr ýms-
um framlögum þeim, sem ríkis-
stjórnin hefur verið að hæla sér
af, ef kippa á þeim til baka með
Alþýðubandalagið á Akureyri
hélt fund í Alþýðuhúsinu á þriðju-
dagskvöldið. Var þar aðallega
þessu nýjasta pennastriki, en taka
féð í eyðsluhít stj órnarinnar. Fer
t. d. ekki að verða hæpið úr þessu,
að treysta því að mikið verði úr
hinum miklu framkvæmdum í
vegamálum, sem lofað var með
vegalögunum nýju?
Á sama tíma og ríkisstjórnin
telur ástæðu til að stórhækka álög-
ur á þjóðina með nýjum sölu-
skatti og aflar sér heimildar til að
inna ekki af höndum framlög, sem
lögboðin eru samkvæmt fjárlög-
unum, þá er það vitað, að vegna
hinnar ofsalegu skattheimtu að
undanförnu hefur orðið mikill
greiðsluafgangur hjá ríkissjóði.
Nemur hann á síðasta ári a. m. k.
160 milljónum króna, og rekstrar-
afgangur er ca. 100 milljónum
meiri. Hefði ýmsum sýnst eðli-
legra, að þessi afgangur, sjóðeign
ríkissjóðs, hefði verið tekinn til
að mæta óhjákvæmilegum nýjum
útgjöldum fremur en að rjúka til
með hækkun neyzluskatta. En rík
isstjórnin hefur sín sérstöku sjón
armið.
Fyrir hálfum mánuði síðan
brann Tunnuverksmiðjan á
Siglufirði. Þetta stóra og —
að því er virtist — sterklega
hús var orðið að einni járna-
hrúgu og allt gersamlega ónýtt.
Milli 40 og 50 manns urðu
skyndilega atvinnulausir og
enga aðra vinnu var að hafa í
Siglufirði. Nú hafa 35 þessara
manna flutt dvalarstað sinn til
Akureyrar um stundarsakir og
vinna í tunnuverksmiðjunni
þar. Unnið er þar á tveimur
vöktum og önnur vaktin að
mestu skipuð Siglfirðingum.
Húsnæði og fæði hafa þeir á
Hótel Akureyri. Talið er, að
vinna í verksmiðjunni muni
endast til aprílloka.
En það er dýrt og óþægilegt
fyrir Siglfirðinga að sækja
vinnu til Akureyrar, og von-
andi líður næsta sumar ekki
svo, að tunnuverksmiðj a verði
ekki byggð á ný í Siglufirði,
höfuðstað síldariðnaðarins.
Myndin hér að neðan var
tekin af norðausturhomi tunnu-
verksmiðjunnar í Siglufirði
eftir brunann. Ljósm.: Ólafur
Ragnarsson.
rætt um frumvarp það að fjár-
hagsáætlun fyrir bæjarsjóð Akur-
eyrar, sem nú liggur fyrir bæjar-
stjórn til meðferðar og afgreiðslu.
Bæjarfulltrúarnir Ingólfur
Árnason og Jón Ingimarsson
fluttu framsöguræður, röktu, ein-
staka liði áætlunarinnar og lýstu
sinni afstöðu til hennar. Að lokn-
um ræðum þeirra urðu talsverðar
umræður og bæjarfulltrúarnir
svöruðu ýmsum spumingum, sem
fram komu.
Mjög var það áberandi, að
menn undrast hversu útsvörin
hækka gífurlega með hverju ári,
þrátt fyrir það, að nú rennur hluti
af söluskatti til sveitarfélaganna
og núverandi ríkisstjórn lýsti því
yfir á sínum tíma, að sú rástöfun
væri gerð til þess að létta útsvars-
byrðarnar. En dýrtíðaraldan hef-
ur bara sópað burtu allri þeirri
hagsbót, sem sveitarfélögunum
átti að verða af söluskattinum, og
miklu meiru. Er gott dæmi um
það, að á fyrsta ári Viðreisnar-
stjórnarinnar, 1960, voru álögð
útsvör og aðstöðugjöld á Akur-
eyri 20 milljónir króna. Nú er gert
ráð fyrir, að útsvörin og aðstöðu-
gjöldin nemi nálægt 50 milljónum
króna. Virðist það allmyndarleg
hækkun á ekki lengri tíma. Má til
samanburðar benda á, að ef sam-
bærileg hækkun hefði orðið á
launum verkafólks, ætti tímakaup
þess nú að vera yfir 50 krónur.
Á fundinum komu fram ýmsar
ábendingar til bæjarfulltrúanna
varðandi afgreiðslu fj árhagsáætl-
unarinnar og hugmyndir um
breytingar.
ÞORRABLÓT
Verkolýðsfclagsins EININGAR
verður t Alþýðuhúsinu n.k.
laugardag og hefst kl. 7.30.
Mjög vönduð skemmtiskrá.
Aðgöngumiðar í Verkalýðs-
húsinu föstudag kl. 4—7.
Vestfirðingar, Akureyri. Sunnudaginn
26. janúar kl. 4 e. h. ver'ð'ur fundur í
Alþýðuhúsinu um stofnun Vestfirðinga-
félags. Mætið sem flest.
HEYRIA GÖTUlll
AÐ minni sé stórhugur islenzkra
ráðamanna nú en fyrir 50 ár-
um, þegar Eimskipafélag ís-
lands var stofnað. Nú má ekki
ráðast í neina umtalsverða
framkvæmd nema treysta á
útlent fjármagn og útlenda
stjórn.
AÐ erfiður kynni að verða rekstur
aluminiumverksmiðju á Dag-
verðareyri, ef hafis lokaði
Eyjafirði.
AÐ verkstjóri bæjarins vonist til
að rótlaus jólatré blómstri með
vorinu og vilji þvi ekki hreyfa
þau þaðan, sem þau voru stað-
sett í desember.